Morgunblaðið - 04.10.1989, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1989
21
HÁVÆRAR RADDIR
UM DAVÍÐÍ
FORYSTUHLUTVERK
Sjálfstæðisflokksins hafi horn í síðu
Davíðs og vantrú á því að hann
myndi standa sig sem skyldi í starfi
formanns flokksins, þó síðar yrði.
Þessir sömu menn hafi einnig van-
trú á því að Davíð, sem ekki þykir
ávallt í hópi hæverskustu og hóg-
værustu stjórnmálamanna, valdi því
hlutverki að vera eins konar sátta-
semjari eða málamiðlari í viðkvæm-
um málum, sem óneitanlega komi
oft upp á yfirborðið í jafn breiðum
og stéttmörgum flokki og Sjálf-
stæðisflokknum.
„Davíð á. að hætta að byggja
brýr í Reykjavík að sinni, og snúa
sér að því að byggja brýr yfir til
framtíðar, með því að taka að sér
varaformennskuna nú,“ sagði tals-
maður þess að Davíð taki við vara-
formennskunni. Forystumaður í
Reykjavík sagði: „Ef Davíð kæmi
inn sem forystumaður við hlið Þor-
steins, þá væri það flokknum
tvímælalaust mikill styrkur. Auðvit-
að væri Friðrik þannig að taka á
sig stærri hluta ábyrgðar en honum
ber, en sálfræðilega held ég að það
hefði afskaplega góð áhrif á flokk-
inn að sú yrði niðurstaðan. Vissu-
lega væri það þá þannig að Friðrik
þyrfti að gjalda fyrir það að fólk
vill sjá breytingar, en stjórnmál eru
nú einu sinni þannig, að oft verður
að fórna einhveijum, hvort sem
hann á það skilið eða _ekki.“
Það sjónarmið er einnig talsvert
útbreitt í flokknum að ef lands-
fundur er ekki tilbúinn til þess að
skipta um formann nú og kjósa
Davíð í stað Þorsteins, þá beri að
geyma Davíð, þar til hans vitjun-
artími kemur. Talsmenn þessa sjón-
armiðs segjast telja að ef ekki náist
samstaða um að kjósa Davíð sem
formann, þá komi ekki til greina
að eyðileggja hann með því að kjósa
hann sem varaformann. Þessir
menn eru einnig efins um að emb-
ætti varaformannsins muni hæfa
Davíð. Hann sem varaformaður
verði í einskonar aukahlutverki og
þeir telji það stóra spurningu hvern-
ig slíkt færi með Davíð sem stjórn-
málamann að vera næstráðandi á
eftir Þorsteini. Einhvern veginn
segjast þeir eiga bágt með að sjá
foringjann Davíð í aukahlutverki.
Urgrir í landsbygg-ðinni
Það er ekki hægt að segja að
það sé allsráðandi sjónarmið innan
flokksins að Davíð eigi að taka við
varaformennskunni. Aberandi er að
fulltrúar hinna ýmsu hverfafélaga
í Reykjavík lýsa sig andvíga því að
Davíð komi að landsmálunum með
ofangreindum hætti. Hans vitjun-
artími sé ekki kominn og honum
beri að skila Reykjavíkurborg í ör-
ugga meirihlutahöfn Sjálfstæðis-
flokksins. Eftir það segja þessir
menn að Davíð geti komið inn á
lista til alþingiskosninga og unnið
sig upp á þeim vettvangi, í for-
mannssætið. Það hafi sýnt sig í
formennskutíð Þorsteins að það
gefi ekki góða raun að stökkva
beint í formannssætið, án nokkurr-
ar stjórnmálareynslu. Þeir segja að
þótt Davíð hafi mikla reynslu af
stjórnmálum, vegna borgarstjórn-
armála, þá þurfi hann að sjóast í
landsmálunum. Það er einnig áber-
andi í oi'ðum þessara manna, að
þeim liggur hlýrri rómur til Friðriks
Sophussonar, varaformanns, en
formannsins. Segja þeir að Friðrik
sé sá eini úr foiystuliði flokksins
sem hafi af einlægni og dug sinnt
félags- og flokksstarfinu. Formaður
eins hverfisfélagsins í Reykjavík
orðaði þetta svo: „Ég fæ ekki betur
séð en það væri verið að hengja
bakara fyrir smið, ef Friðrik yrði
fórnað á þessum landsfundi og
Davíð kosinn varaformaður.“
Af samtölum við sjálfstæðismenn
um land allt má heyra að lands-
fundarfulltrúar úr þeirra röðum
gera ráð fyrir því að forysta flokks-
ins verði endurkjörin óbreytt. Ýmsir
sögðust reyndar vera hundóánægð-
ir með forystuna, en ekki svo óán-
ægðir að þeir færu að ráðast til
atlögu við hana og reyna að knýja
fram breytingu. Sálin í Sjálfstæðis-
flokknum væri einfaldlega svo for-
ingjaholl, að ekki yrði ráðist í for-
mannaniðurskurð á landsfundi, í
blóra við vilja formanns.
Orð mikils athafnamanns utan
af landi eru kannski táknræn fyrir
afstöðu margra sjálfstæðismanna
utan af landi: „Ég er af þeim skóla
að númer eitt, tvö og þijú, verði
flokksmenn að vera tryggir forystu
flokksins, hversu ári óánægðir og
fúlir sem menn geta verið.“
Þó mun þetta vera mismunandi
eftir kjördæmum, og líklegt er að
Davíð fái mörg atkvæði í varafor-
mannsembættið úr ákveðnum kjör-
dæmum, svo sem Suðurlandskjör-
dæmi.
Hrifiiing manna á
þingflokknum afar
takmörkuð
Áhyggjur margra í flokknum af
forystumálum ná út fyrir raðir
formanns og varaformanns. Marg-
ur sjálfstæðismaðurinn virðist hafa
þungar áhyggjur af því hvað bíði
Sjálfstæðisflokksins á næstu árum,
ef ekkert verður hróflað við þing-
flokknum, sem margir segja staðn-
aðan, leiðinlegan og hugmynda-
snauðan. „Það er skelfilegt til þess
að hugsa, ef efstu sæti framboðs-
lista í næstu kosningum verða skip-
uð eintómum Öglum Jónssonum,“
sagði einn frammámaður í flokkn-
um í Reykjaneskjördæmi. Hann og
fleiri halda því fram, að fari svo,
muni fylgi flokksins alls ekki verða
í samræmi við það sem gæti orðið,
ef um einhveija og helst umtals-
verða endurnýjun yrði að ræða á
framboðslistum. Það þyrfti einfald-
lega að sækja hæfileikafólk til at-
vinnulífsins og fá á lista. Það væri
kominn tími á marga í þingflokki
Sjálfstæðisflokksins, en það hefði
aldrei þýtt að benda þeim á það.
Þeir litu svo margir á þingmennsk-
una sem ævistarf.
Líftími forystumanna
stjórnmálaflokka að styttast
Um þetta segir atvinnurekandi í
Reykjavík: „Vandi sá sem núver-
andi forysta Sjálfstæðisflokksins á
við að glíma, og á erfitt með að
sætta sig við, er að líftími forystu-
manna stjórnmálaflokka er veru-
lega að styttast. Tími þess að menn
sátu í forystu Sjálfstæðisflokksins
í áratugi er liðinn. Hin mikla og
öra fjölmiðlun í dag gerir það ein-
faldlega að verkum, að líftími
stjórnmálamanna styttist. Þessu
verða forystumennirnir að gera sér
grein fyrir, og sjá þegar þeirra tími
er í rauninni útrunninn."
Þorsteinn segir að það sem helst
verði fjallað um á landsfundinum
verði annars vegar almenn stefnu-
mörkun til lengri framtíðar og hins
vegar ákvarðanir sem lúti að
stefnumörkun Sjálfstæðisflokksins
í efnahags- og atvinnumálum. „Ég
vona að landsfundurinn styðji rrijög
einarðlega við ákvarðanir þing-
flokksins í mjög veigamiklum atrið-
um, að því er varðar atvinnumálin,"
segir Þorsteinn.
Auk þess segist Þorsteinn eiga
von á miklum umræðum á lands-
fundinum um það með hvaða hætti
stjórnun í sjávarútvegi og land-
búnaði eigi að vera í framtíðinni.
„Sem vonlegj: er, hafa miklar um-
ræður farið fram innan flokksins í
þessum efnum, vegna þess að flokk-
urinn er í eðli sínu breiðfylking. Það
þarf því engum að koma á óvart
að það komi ekki af sjálfu sér að
menn komist að sameiginlegri nið-
urstöðu í þessum málaflokkum."
Þorsteinn hefur á afdráttar-
lausan hátt hafnað svonefndum
auðlindaskatti. Friðrik Sophusson,
varaformaður flokksins, lýsti aftur
í blaðagrein hér í Morgunblaðinu
nú fyrir skömmu hugmyndum
sínum um að handhafar veiðileyfa
greiddu fiskirannsóknir og eftirlit,
auk þess sem hann lýsti stuðningi
sínum við sölu veiðileyfa. Þorsteinn
var spurður hvort yfirlýsingar hans
gætu ekki torveldað landsfundinum
að komast að sameiginlegri niður-
stöðu í þessum efnum: „Það er hlut-
verk formanns Sjálfstæðisflokksins
að hafa mótandi áhrif á niðurstöð-
una og leiða umræður til niður-
stöðu. formaðurinn er enginn hlut-
laus ríkissáttasemjari milli deiluað-
ila. Hann er forystumaður og þeir
sem bera fram gagnrýni af þessu
tagi, þeir skilja ekki í hveiju for-
ystuhlutverk er fólgið."
Formaðurinn tekur ekki
ákvarðanir fyrir landsfiind
— Er valdsvið formanns Sjálf-
stæðisflokksins þá með þeim hætti
að hann geti sagt rúmlega þúsund
manna landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins fyrir verkum í grundvall-
armáli sem þessu?
„Vald formannsins er ekki það
að taka ákvarðanir fyrir landsfund.
Vald formannsins er að hafa for-
ystu í málefnum flokksins og að
þessu leyti hef ég ekki kveðið upp
neinn endanlegan dóm um hver
verður niðurstaða landsfundarins.
Ég hef hins vegar tekið forystu um
það að lýsa því yfir að auðlinda-
skattur verði ekki þáttur í fiskveiði-
stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Frá mínum bæjardyrum séð, þá
stríðir slíkur skattur gegn grund-
vallarhugmyndum flokksins um
sem minnst ríkisafskipti. Skattur
af þessu tagi þýðir að hluti af af-
rakstri sjávarútvegsins er tekinn,
hann er settur inn í ríkissjóð og
honum deilt þaðan út aftur. Með
öðrum orðum, aukin ríkisafskipti. I
annan stað er ljóst að einn veiga-
mesti þátturinn í þeirri gífurlegu
spennu sem nú er á milli lands-
byggðarinnar og höfuðborgarsvæð-
isins er það að sjávarútvegurinn
hefur átt í vök að veijast á undan-
förnum árum og verið að tapa eigin
fé. Það er eitt höfuðhlutverk Sjálf-
stæðisflokksins að standa þannig
að málflutningi og framkvæmd
efnahagsstefnu, að það sameini
þjóðina. Þeir sem bera fram tillögur
um auðlindaskatt munu sundra
þjóðinni og efna til stórátaka við
þessar aðstæður á milli landsbyggð-
ar og þéttbýlis. Það er ekki síst í
Ijósi þessara aðstæðna sem það er
nauðsynlegt að ýta þessum hug-
myndum út af borðinu.“
Ákveðnir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins utan af landi telja að for-
maður flokksins hafi gert hárrétt í
yfirlýsingu sinni varðandi auðlinda-
skatt. Hann liafi ósköp einfaldlega
verið að lýsa stefnu Sjálfstæðis-
flokksins í sjávarútvegsmálum. „Ef
landsfundarfulltrúar vilja koma á
auðlindaskatti, þá held ég bara að
þeir ættu að kjósa sér talsmann
slíks skatts sem formann,“ segir
landsbyggðarþingmaður.
Verður forystan óbreytt?
Það er ekki fyrr en á sunnudag
sem úr því fæst skorið hvort for-
maður og varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins verða endurkjörnir en
búast má við því að talsverður fjöldi
atkvæðaseðla verði með nafni
Davíðs Oddssonar.
Engu skal hér sþáð um það hvort
landsfundarfulltrúum tekst að ná
sáttum um þau mál, sem helst virð-
ast skilja á milli dreifbýlis og þétt-
býlis, þ.e. hver framtíðarstefnan
eigi að vera í sjávarútvegs- og land-
búnaðarmálum, en það eru mjög
skiptar skoðanir, hvort það tekst
og raunar miklar efasemdir einnig.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 3. október.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 66,00 64,00 64,08 2,145 137.444
Þorskur(ósL) 42,00 42,00 42,00 0,536 22.512
Ýsa 102,00 61,00 95,20 3,293 313.481
Ýsa(ósl.) 95,00 82,00 86,99 2,860 248.798
Ýsa(smá) 56,00 56,00 56,00 0,078 4.340
Ufsi 20,00 20,00 20,00 0,015 300
Steinbítur 90,00 90,00 90,00 0,006 540
Lúða 255,00 230,00 243,74 0,046 11.090
Koli 35,00 35,00 35,00 0,008 280
Samtals 82,22 8,986 738.785
I dag verða meðal annars seld 1,8 tonn af þorski, 0,6 tonn af
ýsu, 69,3 tonn af karfa, 14 tonn af ufsa og 13 stórlúður úr Sig-
urey BA, svo og óákveðið magn af blönduðum afla úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 71,00 59,00 61,76 5,434 335.626
Þorsk(1 .-2.n.) 70,00 70,00 70,00 2,497 174.790
Þorsk(ósl1-2n) 39,00 39,00 39,00 0,670 26.130
Ýsa 131,00 93,00 119,46 5,257 628.027 .
Ýsa(12.n.) 95,00 82,00 84,25 1,778 149.800
Ýsa(ósl.1-2n.) 106,00 92,00 100,15 4,054 406.027
Ýsa(1.-3. n.) 83,00 79,00 81,44 1,108 90.230
Karfi 39,00 38,00 38,74 21,721 841.435
Ufsi 43,00 41,00 42,49 28,764 1.222.255
Ufsi(ósl.) 29,00 29,00 29,00 0,267 7.743
Hlýri 70,00 70,00 70,00 0,032 2.240
Lúða(stór) 305,00 305,00 305,00 0,024 7.320
Lúða(smá) 285,00 260,00 279,24 0,079 22.060
Skarkoli 45,00 10,00 17,45 0,047 820
Keila 30,00 30,00 30,00 0,490 14.700
Lýsa 47,00 47,00 47,00 0,022 1.034
Samtals 54,40 72,244 3.930.237
Selt var úr Ottó N. Þorlákssyni RE og bátum. í dag verða með-
al annars seld 25 tonn af karfa, 20 tonn af ufsa og óákveðið
magn af þorski, ýsu og fleiri tegundum úr Húnaröst ÁR, Þor-
láki ÁR og netabátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 70,50 60,00 62,57 2,691 168.381
Ýsa 106,00 47,00 84,24 6,174 520.109
Ufsi 28,50 28,50 28,50 0,087 2.480
Steinbítur 50,00 50,00 50,00 0,013 650
Lúða 195,00 185,00 186,11 0,018 3.350
Skata 60,00 60,00 60,00 0,014 840
Tindaskata 10,00 8,00 9,65 0,424 4.092
Samtals 74,29 9,421 699.902
Selt var meða annars úr Gjörva SH.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð, hjálp og vináttu við andlát og
jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGURBJARGAR SÆMUNDSDÓTTUR,
Norðurgötum,
Mýrdal.
Sérstakar þakkir skulu færðar starfsfólki sjúkrahúss Suðurlands
á Selfossi fyrir frábæra umönnun við Sigurbjörgu síðustu árin.
Jón Hjaltason, Guðrún Einarsdóttir,
Kristín Hjaltadóttir,
Sigriður Hjaltadóttir,
Sæmundur Hjaltason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Við þökkum innilega öllum þeim sem
auðsýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
GUNNARS MAGNÚSAR JÓNSSONAR,
Grýtubakka 20,
Reykjavik,
Torfhildur Þorleifsdóttir,
Gunnar M. Gunnarsson,
Ásta M. Gunnarsdóttir,
Valdís R. Gunnarsdóttir,
Eyrún A. Gunnarsdóttir,
Tryggvi Þ. Gunnarsson,
Einar Gunnarsson,
Jóna B. Gunnarsdóttir,
Björn R. Gunnarsson,
og
Jóna Arnórsdóttir,
Herbert Ólason,
Björn T. Hauksson,
Baldur Ó. Svavarsson
Elín Höskuldsdóttir,
barnabörn.
+
Vinum fjölskyldunnar, vandamönnum og samstarfsfólki þökkum
við samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför
HARALDAR STEINGRÍMSSONAR
rafvirkja,
Hvassaleiti 127.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er glöddu hann með heim-
sóknum í veikindum hans.
Þyri Gísladóttir,
Steingrimur V. Haraldsson, Alma Birgisdóttir,
Guðni Á. Haraldsson, Stefanfa Jónsdóttir,
Fríða Sigrún Haraldsdóttir, Sigurbjörn Helgason,
Guðrún Steingrímsdóttir, Már Egilsson,
Margrét Steingrimsdóttir, Gunnar Árnason,
Rannveig Steingrímsdóttir,
Ásta Steingrímsdóttir,
Þór Steingrimsson, Magnea Þorsteinsdóttir,
Tryggvi Steingri'msson, Ásta Karlsdóttir
og barnabörn.