Morgunblaðið - 04.10.1989, Side 22
Hafrannsóknastofriun:
Bæjarstjórn vill hluta
starfseminnar norður
fleitar umræður um ráðningu forstöðumanns á Skjaldarvík
„í tilefni af stofhun sjávarútvegsbrautar við Háskólann á Akureyri
skorar bæjarstjórn Akureyrar á Hafrannsóknastofhun að koma á fót
starfsemi á vegum stofnunarinnar á Akureyri. Jafnframt er bæjar-
stjóra falið að taka upp viðræður við stofhunina um þetta mikilvæga
mál.“ Svohljóðandi tillaga var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar í gær. í máli bæjarfulltrúa kom fram að þeir fögnuðu tillög-
unni og vonuðust til að hún fengi hraða og jákvæða umfjöllun hjá
stofnuninni. Sigríður Stefánsdóttir (G) sagðist vilja sjá Akureyri sem
miðstöð á sviði kennslu og rannsókna á sviði sjávarútvegs.
Allheitar umræður urðu á fundi
bæjarstjórnar um ráðningu for-
stöðumanns dvalarheimilisins
Skjaldarvíkur. Sex umsækjendur
voru um stöðuna og mælti öldrunar-
ráð með því að Karólína Guðmunds-
'dóttir yrði ráðin til starfans. Sigurð-
ur Jóhannesson (B) varpaði fram
þeirri fyrirspurn á fundinum hvort
um pólitíska ráðningu meirihlutans
í bæjarstjórn hefði verið að ræða.
Áslaug Einarsdóttir (A) formaður
öldrunarráðs sagði engan ágreining
hafa orðið í ráðinu varðandi þessa
ráðningu, mælt hefði verið með
konu sem mikið hefði starfað að
öldrunarmálum og hefði innsýn í
þau mál. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
(B) sem einnig á sæti í öldrunar-
■ráði sagði að þegar fjallað var um
málið á fundi öldrunarráðs hefði
forstöðumaður öldrunarþjónustu
Akureyrarbæjar mælt með öðrum
umsækjanda í starfið og hefði hún
stutt tillögu hans. Formaður öldr-
unarráðs hefði þá tjáð fulltrúum í
öldrunarráði að meirihluti öldrunar-
ráðs styddi Karólínu og hefði hún
því ekki viljað að upp kæmi ágrein-
ingur í ráðinu.
Björn Jósep Arnviðarson (D)
sagði fráleitt að um einhver hrossa-
kaup hefði verið að ræða eins og
ýjað væri að og um væri að ræða
vægast sagt villandi upplýsingar
héldu menn slíkt. Gísli Bragi Hjart-
arson (A) minnti menn á nýlega
samþykkt jafnréttisáætlunar og
sagði ánægjulegt að farið væri að
vinna eftir þessari samþykkt. Sig-
urður Jóhannesson tók aftur til
máls og sagði að ekki hefði verið
farið eftir tillögu . forstöðumanns
öldrunarráðs, hinn faglegi grunnur
við val á umsækjendum hefði ekki
verið hafður að leiðarljósi við endan-
legt vál heldur hefði andi jafnrétt-
isáætlunar svifið yfir vötnum. Þessu
mótmælti Björn Jósep Arnviðarson
harðlega og sagði menn hafa full-
komna vissu fyrir því að sá umsækj-
andi sem hæfastur var talinn hafi
orðið fyrir valinu og hefði hann
ekki verið valin undir yfirskyni jafn-
réttisáætlunar.
Sigurður Jóhannesson óskaði eft-
ir að greidd yrðu atkvæði í bæjar-
stjórn um umsækjendurna sex, en
féll síðar frá þeirri beiðni. Málinu
lyktaði á þann veg að tíu bæjarfull-
trúar greiddu atkvæði með því að
Karólína yrði ráðin í starf forstöðu-
manns, en Sigurður var á móti.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Bæjarstjórn Akureyrar hefúr skorað á Hafrannsóknastofnun að hún
komi á fót starfsemi á sínum vegum á Akureyri og er áskorunin
tilkomin vegna stofnunar sjávarútvegsdeildar við Háskólann á Akur-
eyri. Á myndinni er rannsóknarskipið Árni Friðriksson á siglingu á
Akureyrarpolli.
Félagsmálastofiiun:
Hugsanlegt að sækja þurfi um auka-
flárveitingu vegna flárhagsaðstoðar
68,9% ráðstöfunarfiár búin í júlílok
HUGSANLEGT er að Félagsmála-
stofnun Akureyrar þurfí að sækja
um aukafjárveitingu vegna fjár-
hagsaðstoðar sem stofnunin veitir
einstaklingum. Á Qárhagsáætlun
yfírstandandi árs voru sex milljón-
ir króna ætlaðar til fjárhagsað-
stoðar og nú þegar liðnir eru níu
mánuðir af árinu er stærri hluti
þess Qár búinn en eðlilegt er mið-
að við tíma.
Guðrún Sigurðardóttir, deildar-
stjóri ráðgjafardeildar Félagsmála-
stofnunar, sagði að nú í ár hafi
ívið fleiri skjólstæðingar leitað eftir
fjárhagsaðstoð til stofnunarinnar
en á síðasta ári. „Þetta hefur verið
í þyngri kantinum hjá okkur varð-
andi fjárhagsaðstoðina og stærri
hluti þess fjár sem við höfum til
ráðstöfunar er búinn ef við miðum
við tíma,“ sagði Guðrún.
í lok júlí var búið að ráðstafa
68,9% af því fé sem stofnunin hefur
til ráðstöfunar á árinu, en fjárveit-
ing vegna fjárhagsaðstoðar var á
þessu ári sex milljónir króna. Guð-
rún segir hugsanlegt að sækja þurfi
um aukafjárveitingu vegna þess hve
gengið hafi á það fé sem stofnunin
hefur til umráða.
„Við ætlum að bíða örlítið og sjá
til hveiju fram vindur. Það skiptir
miklu máli hvernig atvinnuástandið
er og ef til að mynda stórum vinnu-
stað er lokað, þá kemur bylgja hjá
okkur,“ sagði Guðrún. Það hvernig
ástandið yrði á vinnumarkaði fram
til áramóta skipti mestu um það
hvort sækja þyrfti um aukafjárveit-
ingu.
„Við búumst jafnvel við því að
þurfa að sækja um aukafjárveitingu
og ég tengi það atvinnuástandinu
og þeirri láglaunastefnu sem virðist
vera ríkjandi í þjóðfélaginu." Guð-
rún sagði að stærstu hópar þeirra
sem sæktu um aðstoð væru annars
vegar öryrkjar og hins vegar ein-
stæðir foreldrar. „Ástæðan er ein-
faldlega sú að tekjurnar duga ekki
til framfærslu. Einnig koma stund-
um til tímabundnar ástæður eins
og veikindi eða áföll af ýmsu tagi,
sem fólk hefur ekki Ijárhagslegt
bolmagn til að standast."
Svæðisþing Zontakvenna í Reykjavík:
Rætt um stöðu konunn-
ar í nútímasamfélagi
DAGANA 5. til 7. október verður
í Reykjavík svæðisþing Zonta,
sem eru alþjóðasamtök kvenna
með svipuðu sniði og Rotary. Is-
land er á 13. svæði ásamt Dan-
mörku og Noregi og eru svæðis-
fúndir annað hvert ár til skiptis
í löndunum.
Fundurinn í Reykjavík nú er að
því leyti sérstæður að þá verður nýr
klúbbur, Zontaklúbburinn Embla í
Reykjavík, formlega tekinn i sam-
IBM á íslandi ásamt sjö af helstu
samstarfsaðilum sínum kynna
dagana 4.-6. okt. þann hugbúnað
sem sérstaklega er þróaður fyrir
hina fúllkomnu AS/400-tölvu frá
IBM og hina miklu undirbúnings-
vinnu sem liggur að baki hönnun-
.« ar hugbúnaðar fyrir hana.
Sýnendur eru: Almenna kerfis-
tökin og kemur af því tilefni til Is-
Iands Ruth F. Walker, forseti al-
þjóðasamtakanna. í alþjóðasamtök-
um Zonta eru 35 þúsund fulltrúar
úr ýmsum stéttum, tvær úr hverri
stétt í hverjum klúbbi, í yfir þúsund
klúbbum í meira en 50 löndum.
Þingið munu sækja um 140-50
fulltrúar, sem koma til Reykjavíkur
og hittast á fimmtudagskvöld á
Hótel Loftleiðum, þar sem fundir
verða haldnir. Á föstudagsmorgun
fræðistofan, IBM, Islenskt hugvit,
Kerfi hf., Pegasus, RT — Tölvu-
tækni hf., Sinna og Strengur og
Þróun — tölvu og rekstrarráðgjöf.
Sýningin er haldin í Skaftahlíð
24 og er opin miðvikudag 4. okt.
kl. 13.00—16.00 og fimmtudag—
föstudag 5.-6. okt. kl. 10.00—
16.00. (Fróttatilkynning)
mun Gro Ramsten Wesenberg,
stjórnarformaður 13. svæðis setja
þingið. Þá flytur Kristín Halldórs-
dóttir, alþingismaður, erindi um við-
fangsefni þessa þings, stöðu kon-
unnar í nútímasamfélagi. Strax á
eftir munu fulltrúar frá Danmörku
og Noregi leggja fram stutta við-
bót, áður en viðfangsefnið verður
tekið fyrir í hópumræðum. En eftir
hádegi leggja hóparnir fram niður-
stöður sínar. Forseti íslands, frú
Vigdís Finnbogadóttir, tekur á móti
Zontakonunum á Bessastöðum
síðdegis. En um kvöldið verður nýja
Reykjavíkurklúbbnum Emblu fagn-
að með veislu á Hótel Sögu.
Laugardagsmorgun verður' nýtt-
ur til umræðna um málefni 13.
svæðis en síðan haldið til hádegis-
verðar út í Viðey, áður en fundi er
fram haldið. Um kvöldið munu kon-
urnar skipta sér og hittst á heimil-
um íslensku kvennanna, en eitt af
markmiðum Zonta er einmitt að
stuðla að kynnum milli stétta og
Ruth F. Walker, forseti Zonta
International.
þjóða. Viðfangsefni klúbbanna hef-
ur frá upphafi verið að auka starfs-
gæði og bæta lagalega, stjórn-
málalega, íjárhagslega og starf-
ræna stöðu kvenna í heiminum.
Fyrsti Zontaklúbburinn var
stofnaður 1919 og eru klúbbar nú
starfandi um allan heim. Á íslandi
eru klúbbamir fimm.
(Fréttatilkynning)
Ráðstefiia um
fagmenntun
í fiskiðnaði
FISKIÐN, fagfélag fiskiðnaðar-
ins, gengst fyrir ráðstefnu um
Fiskvinnsluskólann og fagmennt-
un í fiskiðnaði næstkomandi
fimmtudag.
Ráðstefnan verður haldin á Hótel
Holliday Inn í Reykjavík. Hún
stendur frá klukkan 10 árdegis til
16 síðdegis með hádegishléi. Ráð-
stefnugjald er 500 krónur. Um sjö
fyrirlesarar munu flytja erindi á
ráðstefnunni.
Laus úr haldi
en var settur
í farbann
Útlendingur, sem setið hafði í
gæsluvarðhaldi í 10 daga vegna
tékkasvika fyrir hundruð þús-
unda, var í gær látinn laus úr
haidi. I gær var lagt á hann far-
bann I Sakadómi Reykjavíkur.
Maðurinn er grunaður um fjár-
svik, aðallega tékkasvik. Þó munu
hafa fundist í fórum mannsins
ýmsir aðrir pappírar, sem talið er
að hann hafi komist yfir með vafa-
sömum hætti.
IBM sýnir hugbúnað