Morgunblaðið - 04.10.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.10.1989, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. OKTOBER 1989 Er LÍ Ú á móti auðlindaskattí? Kennsla í portúgölsku við Háskóla Islands eftirEinar Júlíusson „Ég er algerlega andvígur öllum hugmyndum um auðlindaskatt eða sölu veiðileyfa,“ segir Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur LIÚ, í Morgunblaðinu 27. septem- ber. Hvað er þetta annað en þvætt- ingur? LÍÚ er ekkert á móti auð- lindaskatti eða veiðileyfasölu al- ímennt. Talar Sveinn líka fyrir Grétar Friðriksson á Þórshöfn sem segir á baksíðu sama blaðs: „Við höfum ekki efni á að kaupa þorskkvóta fyrir 25 kr. kílóið.“ Hver er að leggja þennan auð- lindaskatt á skipið hans, Stakfell? Eru það ekki félagar í LÍÚ? Tutt- ugu og fimm krónur á þorskkíló, það jafngildir tug milljarða á allan þorskaflann, hátt annan tug millj- arða á allan fiskaflann. Hver hefur gefið þessum lénsherrum rétt til að leggja tugmilljarða króna árleg- an auðlindaskatt'á þá sem kepp- ast við að draga okkur björg í bú? „Eiga menn að verða gjald- þrota?“ spyr Sveinn. „Við höfum ekkert séð enn sem tryggir það að afkoma útgerðarinnar verði bætt með þeim hætti að hún ráði við kaup á veiðileyfum... “ „Ég sé ekki að við fáum tekjur á móti.“ Nei, það er ekki von að hann eða LIÚ (við) sjái eitt eða neitt, því það á ekkert að bæta útgerð- inni auðlindaskattinn hvorki með hækkuðu fiskverði, gengislækkun, styrkjum eða millifærslum af neinu tagi. Veit hagfræðingur LÍÚ ekkert hvað auðlindaskattur er? Hvernig getur hann ímyndað sér að' hann fái tekjur á móti? Heldur hann e.t.v. að þetta eigi að vera einhver millifærsla úr einum vasa útgerð- arinnar í annan? Hvernig hafði LÍÚ hugsað sér að bæta Stakfell- inu það veiðileyfaverð sem það þarf að borga til að fá að þalda áfram að veiða fisk við ísland fremur en sigla til Kanada? Þeir sem velja sér að beijast gegn auð- lindaskatti áratugum saman og valda þar með ómældu tjóni, eiga a.m.k. rétt á að fá ad vita á móti hveiju þeir eru að beijast. ' Sú kynslóð sem á að erfa rofa- börðin, ördeyðuna og skuldirnar á rétt á þessum milljarðatugum en ekki lénsherrar LIÚ. Spillinguna verður að uppræta og útgerðin á ekki að fá í sinn hlut eitt eða neitt annað en stóraukinn afla á fiski- skip, aukinn heildarafla, vaxandi fiskistofna, fijálsan markað, heil- brigða samkeppni og traust at- vinnulíf. Þá eiga þeir sem nú neyð- ast til að kaupa sinn kvóta á því uppsprengda verði sem LÍÚ setur upp, og skrimta samt, að fá að lifa og græða. Hinir sem safna ■botnlausum skuldum og lifa á því að selja okkar óveidda þorsk, já, þeir eiga að verða gjaldþrota. Höfundur er eðlisfræðingur. Atlantshafsbandalagið mun veita nokkra fræðimannastyrki til rannsókna í aðildarríkjum bandalagsins á háskólaárinu 1990-1991. Markmið styrkveit- inganna er að stuðla að rann- sóknum og aukinni þekkingu á málefnum er snerta Atlants-. Korpa heldur fiind ITC deildin Korpa Mosfellsbæ heldur fund miðvikudaginn 4. októ- ber í Hlégarði klukkan 20 stundvís- lega. Fundurinn er öllum opinn. Einar Júlíusson „Þeir sem velja sér að berjast gegn auðlinda- skatti áratugum saman og valda þar með ómældu tjóni, eiga a.m.k. rétt á að fá að vita á móti hverju þeir eru að berjast.“ hafsbandalagið og er stefnt að útgáfu á niðurstöðum rannsókn- anna. Alþjóðadeild utanrikisráðuneyt- isins veitir upplýsingar um fræði- mannastyrkina og lætur í té um- sóknareyðublöð. Styrkirnir nema nú um 277 þús. íslenskum krónum (180 þús. belgískum frönkum og er ætlast til að unnið verði að rannsóknum á tímabilinu frá maí 1990 til árs- loka 1991. Einnig er greiddur nauðsynleg- ur ferðakostnaður, en gert er ráð í FYRSTA sinn er nú á haust- misseri boðið upp á námskeið í portúgölsku við heimspekideild Háskóla Islands f samvinnu við Endurmenntunarnefnd HI. A tímabilinu 1. október-31. nóv- ember verður haldið byrjenda- námskeið í portúgölsku. Kenn- ari verður Elín Ingvarsdóttir BA og kennari við tungumála- deild háskólans í Mexíkó. Námskeiðið verður þannig að ekki er gert rað fyrir neinni undir- stöðukunnáttu i portúgölsku. Verður það um 36 klukkustundir, tvisvar í viku 2 tíma í senn, kl. 17.00-19.00. Hámarksíjöldi þátt- takenda er 20 manns. Markmið námskeiðsins er að kenna og æfa grunnþekkingu á málinu, þannig að þátttakendur geti tekið þátt í algengum og ein- földum samræðum. T.d. spyijast fyrir, afla sér upp- lýsinga, lýsa og bera saman hluti, versla o.þ.h. Megináhersla er lögð á talæf- fyrir að rannsóknir geti farið fram í fleiri en einu ríki Atlantshafs- bandalagsins. Styrkirnir skulu að jafnaði veitt- ir háskólamenntuðu fólki. Styrk- þegum ber að skila lokaskýrslu um rannsóknir sínar á ensku eða frönsku til alþjóðadeildar utanrík- isráðuneytisins fyrir árslok 1991. Umsóknir um fræðimanna- styrki Atlantshafsbandalagsins skulu berast til alþjóðadeildar ut- anríkisráðuneytisins eigi síðar en 15. desember 1989. (Fréttatilkynning) ingar, nemendur munu leysa verk- efni, munnleg og skrifleg, og próf verða haldin reglulega. Hægt verður að taka próf að námskeiðinu loknu og geta nem- endur í rómönskum málum geta sótt um til heimspekideildar að fá námskeiðið metið til eininga. Sigluflörður: Smákropp á Sléttugrunni Togararnir fylgu smábát í land í vit- lausu veðri Siglufirði. SMÁKROPP hefur verið hjá togurunum á Sléttugrunni síðustu daga, þrátt fyrir hvassvirði. Stálvíkin og Hjalt- eyrin urðu til dæmis að fylgja litlum bát í var við Grímsey um helgina. Hann var þá á trolli á Sléttugrunnshorninu í 10 til 12 vindstigum. Stapavíkin kom inn á sunnu- dag með um 70 tonn og vay þeim landað á mánudag. Á mánudagskvöld kom Sigluvíkin inn með 60 til 70 tonn og þá var Stálvíkin á Sléttugrunni, komin með um 70 tonn. Hilmir SU kom hingað inn um helgina og höfðu þeir þá ekkert fundið af loðnu. Dauft var í skipveijum hljóðið, skipið var bundið og fór mannskapur- inn suður í frí. Færeyingarnir hafa ekkert fundið heldur og einhveijir hafa legið inni á Eyja- firði. Nato veitir fræðimannastyrki RAOAOGl YSINGAR BÁTAR — SKIP Kvóti Til sölu eru 70 tonn af ýsukvóta. Upplýsingar í síma 93-61200. Fiskiskip Til sölu: 70 tonna nýr stálbátur. 74 tonna stálbátur í góðu standi. Skipasalan Bátar og búnaður, Tryggvagötu 4, sími 622554. Til sölu matsölustaður í leiguhúsnæði. Sæti fyrir 55 manns. Upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni, ekki í síma. Fasteignaþjónustan, Austurstræti 17, Þorsteinn Steingrímsson, löggiltur fasteignasali, Kristján Kristjánsson, sölumaður. ÝMISLEGT FUNDIR - MANNFAGNAÐUR Haustfagnaður Árnesinga verður haldinn laugardaginn 7. október nk. á Hótel Loftleiðum og hefst með borðhaldi kl. 20.00, en húsið verður opnað kl. 19.00 og boðið upp á fordrykk. Söngflokkurinn einn og átta og Jóhannes Kristj- ánsson, eftirherma, skemmta og hljómsveit Jakobs Jónssonar leikur fyrir dansi. Miðapantanir eru í versluninni Blóm og græn- meti, sími 16711. Árnesingafélagið íReykjavík. Þorsk- og grálúðukvóti óskast Okkur vantar þorsk- og grálúðukvóta fyrir togarana okkar Arnar og Örvar. Staðgreiðum hæsta gangverð. Upplýsingar í símum 95-22690, 95-22620 og 95-22761. Skagstrendingur hf., Skagaströnd. TIL SÖLU Bílavarahlutaumboð Til sölu er ein besta verslun með bílavara- hluti. Einkasöluleyfi fyrir mjög góð umboð í USA og Evrópu. Upplýsingar gefur Pétur Þ. Sigurðsson, hdl., Borgartúni 31, sími 622311. Auglýsing um styrkveitingu til kvikmyndagerðar Kvikmyndasjóður íslands auglýsir eftir um- sóknum um styrki til kvikmyndagerðar. Sérstök eyðublöð og leiðbeiningar um notk- un þeirra fást á skrifstofu Kvikmyndasjóðs, Laugavegi 24, 3. hæð, 101 Reykjavík, og í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík. Umsóknin er því aðeins gild að eyðublöð Kvikmyndasjóðs séu útfyllt samkvæmt skil- yrðum sjóðsins. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Kvik- myndasjóðs fyrir 1. desember 1989. Reykjavík, 4. október 1989. Stjórn Kvikmyndasjóðs íslands. smá augtýsingor ¥ ÉLAGSLÍF I.O.O.F. 9 = 171498’/z = Fl. □ HELGAFELL 59891047 VI 2. □ GLITNIR 59891047 - Fjhst. I.O.O.F. 7 = 1701048’/z = 9.I. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Almennur biblíulestur verður í kvöld kl. 20.30. Raðefni. Garðar Ragnarsson. Allir hjartanlega velkomnir. Samkomuherferð í Bústaðakirkju Tissa Weerasingha frá Sri Lanka talar i krafti Guðs í kvöld kl.20.30. Fyrirbænaþjónusta, lofgjörð og tilbeiðsla. Allir velkomnir. Öll sem eitt, samstarf kristinna í Reykjavík. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. KLennsia Vélritunarkennsla Ný námskeið eru að hefjast. Vélritunarskólinn, s. 28040.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.