Morgunblaðið - 04.10.1989, Page 28
'28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. OKTOBER 1989
Jamie Reeves setti heimsmet í trédrumbalyftu
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sterkasti maður heims, Jón Páll
Sigmarsson, í trukkadrættinum
en á efri innfelldu myndinni sést
Jamie Reeves en hann setti
heimsmet í trédrumbalyftu, en
varð að sjá á eftir titlinum sterk-
asti maður heims í hendur Jóni
Páli.
Hjalti „Úrsus“ Árnason etur
við Reeves í lýsistunnu-
Jón Páll Sigmarsson endurheimti
titilinn sterkasti maður heims á
móti kraftajötna í Reykjavík um
helgina. Jón Páll náði 40 stigum
út úr átta þrautum, en það gerði
reyndar helzti keppinautur hans og
handhafi titilsins, Jamie Reeves,
einnig. Jón Páll hlaut þó titilinn þar
sem hann vann sigur í fleiri keppn-
isgreinum en Reeves. Á mótinu setti
Reeves heimsmet í trédrumbalyftu
er hann snaraði 172,5 kílóum.
í fyrstu greininni urðu óvænt
úrslit er léttasti maður keppninnar
Magnús Ver Magnússon sigraði.
Reeves varð í öðru sæti, O.D. Wil-
son í þriðja, Hjalti „Úrsus“ Árnason
í fjórða, Jón Páll í fimmta og Magee
í sjötta. Næsta grein fólst í að kasta
lóði yfir rá og þar bar Wilson sigur
úr býtum. Jón Páll varð annar og
Reeves þriðji. Jón Páll sigraði í
steinkasti, Wilson varð annar og
Reeves þriðji, Reeves vann öruggan
sigur í trédrumbalyftu, Jón Páll
varð annar og Magee þriðji. Magn-
ús Ver varð hlutskarpastur í lýsis-
tunnuhleðslu, Jón Páll annar og
Hjalti þriðji. Jón Páll sigraði í
steinatökum. Magnús Ver varð ann-
ar og Reeves þriðji. Magee hélt
lengst á rafgeymi með útréttum
handleggjum, næstur honum kom
Reeves og þriðji varð Hjalti. Jón
Páll fór hraðast með hjólbörur með
850 kílóa hlassi, Magnús Ver varð
annar og Hjalti þriðji. Reeves varð
svo hlutskarpastur í annarri hjól-
böruþraut, Magnús Ver varð þar
annar og Jón Páll þriðji.
Samanlagður árangur keppend-
anna varð því sá að Jón Páll og
Jamie Reeves hlutu 40 stig. Jón
Páll vann þrjár greinar en Reeves
tvær og féll sigurinn því Jóni Páli
í skaut. Magnús Ver varð annar
með 36 stig, Hjalti þriðji með 29,
Magee 21 og Wilson 20 stig.
KRAFTAJÖTNAR
Jón Páll endur-
heimti titilinn
UMHYGGJA
Arnold
bíður
spenntur
Vöðvatröllið
umtalsverða Amold
Schwarzenegger bíður
þess spenntur að komast
í feðratölu, en síðast er
fréttist var eiginkona hans
Maria Schreiver komin að
því að ala fyrsta barn
þeirra hjóna. Amold er
sagður líta þessi mál
alvarlegum augum og
hefur honum þótt miður
hve upptekinn hann er við
gerð kvikmynda og annað
er krefst tíma stórstima.
Hann er að heiman heilu
nætumar og telur enga
leið að losna undan
daglegu amstri ef hjólin
eigi að halda áfram að
snúast. En fyrir vikið
getur hann ekki verið
konu sinni sú hjálparhella
sem þau bæði vildu.
Amold hefur tekist á við
vandann og fundið lausn.
Heljarmennið hefur
ráðið ungtpartil
heimilisstarfa og sofa þau
í húsi þeirra hjóna þrjár
nætur í viku, eða þegar
Amold getur ekki verið
sjálfur heima vegna starfa
síns. Þá á unga könan að
nuddafrú Schreiverdag
hvem og ungi maðurinn,
sem er kokklærður, á að
elda dýrindis
miðdegisverð daglega.
Eiginkona Arnolds sem
hér hefur verið kölluð frú
Schreiver í stað þess að
kenna hana við mann sinn
sem frú Schwarzenegger
eraf hinnifrægu
Kennedy-ætt í
Bandan'kjunum. Ef
ættfræðiþekkingin bregst
ekki þá er hún systurdóttir
Johns F. Kennedys
Bandaríkj aforseta.
HUNDARÆKT
íslenskur eigandi frægs verð-
launahunds
Arnold Schwarzenegger hugsar
vel um konu sína
Einn þekktasti hundur sem
fram kemur á hundasýningum
fyrir vestan haf heitir C.H. Jandis
Happy Yankee CDX. Það væri
ekki í frásögur færandi nema
vegna þess að eigandi hans, þjálf-
ari og snyrtisérfræðingur heitir frú
Bima Lenahan og er íslensk, gift
bandarískum hundatemjara Fran-
cis Lenahan.
Frú Birna er reykvíkingur í húð
og hár, en hún giftist Franeis
manni sínum árið 1950 og hefur
búið vestra síðan.
Hennar ær og kýr em hundarn-
ir og þá sérstaklega þessi með
langa og flókna nafnið. Meginnafn
hundsins, sem er af smárri Po-
odle-gerð, er Happy Yankee, en
romsan bæði fyrir framan og aftan
er titlatog af ýmsu tagi.
Enda er dýrið afar vinsælt til
undaneldis og á nú 16 syni og
dætur, þar af fjögur afkvæmi sem
einnig hafa unnið til verðlauna.
Má þar nefna Yankee Clipper,
sem maður hennar Francis hefur
þjálfað og alið til metorða.
Frú Bima segir það hreina til-
viljun að hún hafí tekið ástfóstri
við þetta franska „poodle“-kyn.
Þannig hefði verið að þegar dóttir
þeirra hjóna var á unga aldri linnti
hún ekki látunum fyrr en henni
var færður hundur af þessari gerð.
Eftir örfáar vikur var nýjabm-
mið á bak og burt og kjölturakk-
inn kominn í kjöltu Birnu. Kynnt-
ist hún þá eiginleikum og innræti
þeirra og þótti svo í hundana var-
ið að hún fór að þjálfa og ala „po-
odle“-hunda af þessu tagi. Rósin
í hnappagatinu er C.H. Jandis
Happy Yankee CDX...
Romsan segir sérfræðingum og
áhugamönnum allt um hundinn,
* þ.e.a.s. að hann sé hreinræktaður
gæðingur af bestu gerð.
Frú Birna Lenahan og Happy Yankee...
fclk í
fréttum