Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 6
6 C MORGÚNBLAÖIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBÉR OLAIIA JO\8l)OIIIK ÁTTIENGA AURA ÞEGAR HÚN YAR UNG, EN HÚN EYDDIALDREIMEIRU EN HÚN ÁTTIOG GAT ÞVÍ A EFRIÁRUM RÉTT SKÓGRÆKTARFÉLAGIÍSLANDS LITLAR 7,6 MILLJÓNIR KRÓNA ligij Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson Ólafía: Þeir fáu sem áttu peninga báru sig að eins og væru þeir af aðalsættum. Þetta er miklu heilbrigðara núna. PAS8AIH Al RAYA l»í\A eftir Kristínu Marju Boldursdóttur/Mynd Bjarni Eiríksson ENGINN HAFÐI not fyrir Ólafíu Jónsdóttur þegar hún fímmtán ára gömul og fúll af áhuga falaðist eftir vinnu við skógrækt. Hún beindi því áhuganum inn á önnur svið og hefði að öllum líkindum orðið söngkona í Þýskalandi ef auraleysið hefði ekki heftað fór hennar. Auralaus var hún þó ekki 85 ára þegar hún gaf Skógræktarfélagi íslands tæpar 7,6 milljónir króna nú fyrir skömmu, í þeirri von að aurarnir kæmu að gagni og að framlag hennar myndi ef til vill „smita“ landa hennar. Hjónin Guðmundur Þorsteinsson og Ólafía Jónsdóttir á söngferðalagi í Danmörku. Landið átti þetta inni hjá mér,“ segir hún þessi hvíthærða dama sem situr við gluggann í stofunni hjá sér á Vífilsgötunni með heilan skóg í baksýn sem byrgir útsýnið. - Þetta var nú ansi há upphæð? „Já þetta voru nokkrir aurar.“ — Þú hefur ekki viljað eyða þessu í sjálfa þig, fara t.d. í heims- reisu? „Maður græðir ekki neitt í ysi og látum. Eg hefði þó viljað eiga þá þegar ég var ung og prófessor- inn vildi fá mig til Þýskalands til að syngja! Nei, veistu mig hefur aldrei langað til Spánar eða þess háttar, uss nei. En þegar ég var ung þá söng ég stundum fyrir gesti sem komu hingað með lystiskipum, og þá hugsaði ég oft mér að gaman væri að sigla með skemmtiferða- skipi um höfin og tína upp löndin, lifa svona flökku- og lúxuslífi!" Svo hlær Ólafía dátt. Hún er afar sportleg kona, iétt á fæti í síðbuxum, „polo“-peysu, og mjúkum leðurskóm. — Hvernig ferðu að þessu? spyr ég og á við leyndarmálið bak við unglegt útlitið. „Ætli það séu ekki hestarnir, þeir hrista skrokkinn!" Spýtur og koks Ólafía er lítið fyrir ættfræði, segist þó hafa komið árið 1912 úr Flóanum til Reykjavíkur þá sjö ára gömul. Foreldrar hennar voru Margrét Þórarinsdóttir og Jón Eiríksson, og var hún yngst af sjö systkinum. „Við.bjuggum á ýmsum stöðum í bænum, segir Ólafía. „Fólk var alltaf að flytja á þessum tímum, bjó kannski í einu til tveimur her- bergjum og þrælaði myrkranna á milli. Ég var nú ekki há í loftinu þegar fyrri heimsstyijöldin stóð yfir, en ég man ég fór oft niður að sjó og tíndi spýtur í eldinn, eða niður á gasstöð eldsnemma á morgnana og tíndi koks. Ég held bara að mamma hafi alltaf haft í eldinn af því ég skrapaði þessu saman.“ — Hvenær fékkstu áhuga fyrir skógrækt? „Eg hef alltaf verið svo hrifin af gróðri,“ segir hún. „ Þegar ég var unglingur þá langaði mig svo óskaplega til að læra skógrækt. En það hafði enginn not fyrir mig, enda ekki hlaupið að því fyrir fimmtán ára ungling að læra eða fá vinnu við slíkt. Garðyrkjustöðin við Laufásveginn var nú eina gróð- urlindin þá. Svo það leið hjá og ég fékk aðr- ar intressur, — músik og söng.“ Ólafía söng í kórum og segist hafa lent í því að syngja einsöng. „Svo vildi nú til að hingað kom Lula Mitzgemeiner, prófessor við Berlínarháskóla, og hún prófaði fólk í söng, — og setti lausa skrúfu í mig! Sagði að kæmi ég til Þýska- lands skyldi hún sjá til þess að ég fengi fasta atvinnu sem söngkona. Nú, ég byijaði að læra þýsku hjá Reinhard Prinz og náði sæmilegu valdi á henni, en þegar til kom voru engir peningarnir svo ég fór aldrei út. Maður átti fullt í fangi með að hafa í sig og á. Ég fór að vinna sem barnfóstra, vinnukona, í fiski og fór á síld, það var enginn auður til að sigla með. Elskan mín, það var svo mikil fátæktin." Láta vitið ráða í Bankastræti 12 var Guðmundur Þorsteinsson með gullsmíðastofu og hjá honum fékk Ölafía vinnu. „Já ég fór að smíða hjá Guð- mundi, og úr því varð ljós!“ segir hún og hlær. „Við giftum okkur 1932 og höfum þraukað þetta sam- an. Guðmundur var yndislegur maður. Þeir gerast ekki göfugri. Nú, þegar ástin kemur þá hverf- ur hitt, en ég hélt þó alltaf áfram að syngja, var í Samkór Reykjavík- ur, Tónlistarkórnum, Hörpu, — maður man varla nöfnin á þessu öllu. Og Guðmundur söng með Karlakór Reykjavíkur.“ Þau byggðu hús sitt við Vífíls- götuna árið 1936 og hafa alla tíð búið þar. „Við áttum 5 þúsund krón- ur þegar við byijuðum, en fullbúið kostaði það 30 þúsund. Hugsaðu þér bjartsýnina!“ Ólafía missti mann sinn í júní sl. og býr nú ein. Þau voru barnlaus, en þó alltaf með stóran barnahóp í kringum sig, því vinkona Ólafíu, Kristín Guðbrandsdóttir, á fimm börn sem urðu þeim hjónum afar kær. Kristín hafði orðið fyrir þeirri óhamingju að maður hennar veikt- ist og varð algjör öryrki. Hún sá um tíma um heimilið fyrir Ólafíu meðan hún vann í gullsmíðaverslun þeirra hjóna og urðu börn Kristínar því heimagangar. Auk þess var bróðurdóttir Ólafíu, Eyja Hender- son sem nú er búsett í Bandaríkjun- um, lengi hjá henni. „Já en svo eru það margir sem eiga fullt hús af börnum sem aldrei hafa tíma fyrir foreldra sína,“ segir Ólafía. Ég var óhemju heppin að hafa kynnst vinkonu minni Kristínu, að hafa eignast vináttu hennar og barna hennar allra. Ég get sagt þér það svona í leiðinni, að sl. vetur fór ég á heilsuhælið í Hveragerði, og þegar ég kom heim var búið að mála alla íbúðina, þvo og hreinsa. Það gerðu systkinin og móðir þeirra, — geri aðrir betur!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.