Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 14
u c MÖR'GUNBLAÐIÐ MINNIINIGAR si nnldau /8. OKTÓBBR BETRI LÍÐAN Namskeid um mannleg samskiptl Streita — slökun Kvíði ~ ákveðni Reiði«ylirvegun Þátttakendum er kennt að meta ofangreind einkenni og aðferðir til að ná valdi á þeim. Leiðsögn er í höndum reynds sálfræðings. Upplýsingar í síma 39109 e. kl. 20.00 öll kvöld. ODDI ERLINGSSON, sálfræðingur. Oddný Pétursdótt- ir hjúkrunarkona Fædd 3. nóvember 1912 Dáin 27. september 1989 Ég man fyrst eftir henni í, að mér finnst, stóru eldhúsi í Útkaupstað á Eskifirði. Systurnar Oddný, Gauja, Borghildur og Sigríður, móðir mín, voru að pappírskrulla hver aðra með járni sem þær hituðu á eldavélinni. Þá spjölluðu þær um A og B svo ég 5 eða 6 ára gömul gæti ekki fylgst of vel með. Að þeim hinum ólöstuðum var Oddný stjarnan í góðlátlegum eftirhermum og frásögnum af lífinu á æskuslóðunum í Breiðdal. Þessar frásagnir þreyttist ég aldrei á að heyra þótt árin liðu. Oddný var meðalkona á hæð, ljós yfirlitum, grannvaxin og kvik á fæti. Hún var sérlega vel af Guði gerð, gædd frábærum dugnaði, greind, skapfestu, ósérhlífni og kímni. A öll- ’U. Þú stendur betur að vígi að loknu hagnýtu námi Með námi í skrifstofutækni nærð þú góðum tökum á tölvum og notkun þeirra. Þú kynnist bókfærslu, stjórnun og fleiri viðskiptagreinum, rifjar upp ýmislegt í íslensku og færð góða innsýn í viðskiptaensku. Námið tekur 3-4 mánuði og að því loknu útskrifast þú sem skrifstofutæknir. Þú getur valið um morgun-, eftirmiðdags- eða kvöldtíma. Við bjóðum upp á afar hagstæð greiðslukjör. Innritun er þegar hafin. Hringdu strax í síma 687590 og við sendum þér bækling um hæl. Tölvufræðslan Borgartúni 24, sími 687590 I i línrpiiwl U Metsölubbd á hverjum degi! um þessum eiginleikum þurfti hún að halda á lífsferli sem oft var erfið- ur. Hún var fædd að Eydölum í Breiðdal. Foreldrar hennar voru prestshjónin Pétur Þorsteinsson og Hlíf Bogadóttir Smith. Séra Pétur, afi minn, lést þegar Oddný var að- eins 6 ára gömul. Börnin voru þá orðin tíu, tvö yngri en Oddný sem svo ólst upp hjá móðursystur sinni, Sigurbjörgu, og séra Vigfúsi Þórðar- syni sem tók við brauðinu. Það má nærri geta hvílík sorg það hefur ver- ið að missa föðurinn og sjá á eftir móður og systkinum þegar bernsku- heimilið leystist upp og amma mín fluttist að Flögu. Einn vetur var Oddný á hús- mæðraskólanum að Hallormstað. Síðar hóf hún nám í hjúkrunarfræð- um og lauk því 1940. Það sama ár giftist hún fyrri manni sínum, Hall- grími Hallgrímssyni. Hann var einna af þeim ungu eldhugum sem fóru til Spánar að berjast með lýðveldis- stjórninni gegn Franco. Sambúð þeirra varð örstutt og dóttirin, Halla Mjöll, aðeins á fyrsta ári þegar sorg- in enn kvað dyra er Haligrímur lést í sjóslysi 14. nóv. 1942. Þremur árum síðar giftist Oddný öðrum mætum manni, Axel Sveins- syni verkfræðingi og síðar vitamála- stjóra. Þau áttu saman þijú börn, Hlíf Borghildi, Bjarna Magnús og Hallgrím. Eftir þrettán ára sambúð lést Axel. Þijú af börnunum voru þá um og innan við fermingu. Oddný hóf þá störf á Slysavarðstofunni, en hafði áður starfað á Landspítalanum og Vífilsstöðum. Hún kom börnunum til mennta og vann svo lengi sem heilsan leyfði eða til 1971. Þá var hún yfirkomin af liðagigt, aðeins 59 ára gömul. Þótt líf Oddnýjar frænku minnar væri oft ekki dans á rósum má segja að hún væri gæfukona og var sú gæfa ekki síst fólgin í því að hún átti fjarska myndarleg og góð börn sem allt vildu fyrir hana gera. Frá- bærir mannkostir hjálpuðu henni gegnum alla erfiðleika, ástvinamissi og kvalafullan sjúkdóm. Glaðværðin var sá þáttur í fari hennar sem ein- kenndi hana hvað mest. Oddný var elskuð af okkur öllum og oft var leitað ráða og aðstoðar hjá henni, hvort heldur var um mat- seld, bakstur, sjúkdóma eða sauma- skap. Hún hafði alltaf tíma. Hennar er nú sárt saknað. Börn- um, tengdabörnum og barnabörnum sem og systkinum Oddnýjar, Borg- hildi og Andrési, sendi ég dýpstu samúðarkveðjur. Ingibjörg Pálsdóttir Tengdamóðir mín, Oddný Lára Emilía, fæddist þann 3. nóvember 1912 í Heydölum í Breiðdal. Móðir hennar var Hlíf Bogadóttir Smith, Ragnheiðar Bogadóttur Benidikts- sonar, fræðimanns á Staðarfelli, og Martinusar Smith, kaupmanns og konsúls í Reykjavík. Faðir Oddnýjar var séra Pétur Þorsteinsson, prestur í Heydölum, Þórarinssonar, prests að Hofi í Álftafirði og síðar í Breið- dal, og Þórunnar Sigríðat- Péturs- dóttur, Jónssonar, prests á Valþjófs- stað í Fljótsdal. Oddný var þriðja yngst 10 systkina og eru nú við fráfall hennar einung- is tvö þeirra á lífi. Systkinin voru: Þorsteinn Brynjólfur f. 1900. Hann fékk lömunarveiki í æsku og var fatlaður upp frá því. Hann lést 1933. Þórunn Sigríður f. 1909, gift Páli Magnússyni lögfræðingi. Þau eru bæði látin og lést hún 1987. Ragn- heiður Anna f. 1903, ógift og lést 1979. Hlíf Petra f. 1905. Hún fór til ættingja í Kanada 15 ára gömul og giftist Vaugham Talcott, banda- rískum verkfræðingi sem nú er löngu látinn. Hún lést 1988. Tvíburarnir Karl Daníel járnsmiður og Gunnar Andreas rennismiður f. 1909. Karl, sem lést árið 1979, kvæntist Unni Magnúsdóttur. Gunnar Andreas er ókvæntur og annar af tveimur eftir- lifandi systkinum Oddnýjar. Guðný Anna f. 1911, gift Arnþóri Jensen, kaupfélagsstjóra á Eskifirði. Hún lést 1988. Oddný, sem hér er minnst. Borghildur f. 1917, fyrri maður Kjartan Sveinsson (látinn 1977) og Macin Skemmtilegt ( um forritið innifalin. S Stýrikerfi, ri m itosh fyrir byrjendur 5g fræðandi 22 kennslustunda námskeið Works. Macintoshbók, 180 blaðsíður, íðdegis-, kvöld- og helgarnámskeið. tvinnsla, gagnasöfnun og áætlanagerð. Tölvu-og verkfræðiþjónustan j; Grensásvegi 16 • stmi 68 80 90 Hentugur fatnaður innanbæjar sem utan. Veiðimaðurinn, Hafnarstræti 5 WordPerfect II. Útg.5.0.17.-19. okt.kl. 13-17 (Orðsnilld)fyrir lengra komna. Kafað enn dýpra í ritvinnsluna WordPerfect, t.d. erfarið í samsteypur, teiknun, reikning, textadálka, fjölva, kaflaham o.s.frv. Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá Ásrúnu Matthlasdóttur Einari J. Skúlasyni hf. Grensásvegi 10, sími 686933. ATH: VR og fleirí stéttarfélög styrkja félaga sina til þátttöku. Tölvuskóli Einars J. Skúlasonar hf. seinni maður Guðmundur Guðlaugs- son, verslunarmaður. Hann lést fyrr á þessuári. Borghildur sér nú á eftir síðustu systurinni og jafnframt sinni bestu vinkonu. Yngstur þeirra systk- ina var Pétur f. 1919, látinn 1960. Hann var flugmaður. Fyrstu æviárin dvaldi Oddný á heimili foreldra sinna, presthjónanna í Heydölum. Þegar hún er sex ára feilur séra Pétur frá, þá aðeins 46 ára að aldri. Eftir stóð móðir Oddnýj- ar, Hlíf, með 10 börn, það yngsta fæddist daginn eftir lát Péturs. Sundrung fjölskyldunnar varð ekki umflúin. Móðirin flutti með tvö yngstu börnin, Pétur og Borghildi, og fatlaða soninn, Þorstein, að Flögu í Breiðdal og hóf þar búskap. Hin systkinin fóru í fóstur þau yngri og í vist til Reykjavíkur. Ein systirin fór til Kanada eins og áður er getið. Oddný varð eftir í Heydölum hjá móðursystur sinni, Sigurbjörgu Bogadóttur Smith, og séra Vigfúsi Þórðarsyni, sem tók við prestskap þar. Þarna dvelur Oddný sín upp- vaxtarár hjá frændfólki sínu. Nauð- synlega uppfræðslu fékk hún á prest- setrinu en auk þess sótti hún nám í húsmæðraskóla á Hallormsstað. Oddný flutti ung að árum til Reykjavíkur. 1937 hefur hún nám í hjúkrun við Hjúkrunarskóla íslands og útskrifast vorið 1940. Um þetta Leyti kynnist hún Hallgrími Balda Ilallgrímssyni og gengu þau í hjóna- band 1940. Hallgrímur var fæddur 10. nóvember 1910 á Sléttu í Mjóa- firði, S-Múlasýslu. Foreldrar Sigríður Björnsdóttir og Hallgrímur Jónsson. Hallgrímur var fiekktur maður á sinni tíð, m.a. barðist hann í her lýð- veldisstjórnarsinna gegn fasistum á Spáni 1938. Um þátttöku sína í borg- arastyijöldinni ritaði hann bókina „Undir fána lýðveldisins". Hall- grímur tók virkan þátt í stjórnmálum og verkalýðsbaráttu þeirra tíma. Var einn af stofnendum Kommúnista- flokks íslands og síðar Sósíalista- flokksins. Samvistir þeirra Oddnýjar urðu skammar. Hallgrímur lést 1942. Var hann á ferðalagi um landið fyrir Sósíalistaflokkinn þegar bátur sá er hann var farþegi á, SV Sæborg, hvarf í hafi. Oddnýju var hann mik- ill harmdauði og talaði hún gjarnan um að af öllum þeim mótbyr sem lífið krafðist hafi hún átt hvað erfið- ast með að sætta sig við ótímabært fráfall ungs eiginmanns. Þau Oddný og Hallgrímur eignuðust eina dóttur, Höllu Mjöll, f. 15. júní 1941. Hún starfar sem bókari á Reykjalundi, gift Erni Harðarsyni rennismið. Eftir fráfall Hallgríms vann Oddný m.a. sem ráðskona í Hafnarfirði og hafði unga dóttur sína með sér. Seinni maður Oddnýjar var Axel Sveinsson f. 3. apríl 1896 í Bergs- holti, Staðarsveit, Snæf., dáinn 12. ágúst 1957, sonur Sigríðar Magnús- dóttur og Sveins Bjarnasonar bónda. Axel var verkfræðingur, vita- og hafnamálastjóri um skeið og yfir- verkfræðingur hafnamála frá 1951. Börn þeirra eru: Hlíf Borghildur f. 5. október 1945, bankastarfsmað- ur, Bjarni Magnús f. 18. mars 1947, tæknifræðingur, kvæntur Láru Gunnarsdóttur, húsfreyju, og Hall- grímur f. 15. júlí 1948, verkfræðing- ur, kvæntur undirritaðri. Áður átti Axel tvær dætur, Huldu f. 6. janúar 1920, lækni í Reykjavík, og Sólveigu f. 23. desember 1936, hjúkruna- rfræðing í Kópavogi. Barnaböm Oddnýjar eru tólf og barnabamabörnin orðin tvö. Axel og Oddný bjuggu fyrst á Ásvallagötu í Reykjavík en fluttu síðar í Kópavog, þar sem þau endur- reistu hús við Kársnesbraut. Meðan Axels naut við stundaði Oddný ásamt uppeldis- og heimilis- störfum heimahjúkmn og sauma- skap. Þeir sem þekktu hana á þessum árum segja að hún hafi haft einstakt lag á að laða til sín einstaklinga sem á einhvern hátt áttu um sárt að binda og mun heimilið gjarnan hafa staðið opið þeim sem á skjóli og hughreyst- ingu þurftu að halda. Þegar Oddný er 45 ára gömul fell- ur Axel frá sökum nokkuð skyndi- legra veikinda og aftur reynir á styrk og þrek þegar mótlæti ber að garði. Hún verður ein fyrirvinna með fjögur ung börn. Er óhætt að fullyrða að hún hafi sýnt fádæma elju og dugn- að við að koma þeim til manns á tímum þar sem félagsþjónusta og samhjálp voru skammt á veg komin. Sem hjúkrunarkona starfaði Oddný m.a. á Vífilsstöðum, Lands-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.