Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 12
12 ð MOKGUKBLAWÐ MANNLÍFSSTRAUMAR UR 8. OKTÓÖER 4 liIEllMlSF'RÆÐl/Skipslœknir eda vísindamadur? Robert Koch FRÁ því Leeuwenhoek sem kynntur var í síðasta pistli gaf upp andann á tíræðisaldri leið stórt hundrað ára þangað til Robert Koch sá fyrst dags- ins ljós í Clausthal skammt frá Gött- ingen. Á milli þessara tveggja heið- ursmanna lifðu og hrærðust margir grúskarar í þeim nýju heimum sem lukust upp með tilkomu smásjárinn- ar. Sumir unnu sér aldrei til frægðar sem spjöld sögunnar telja gjald- genga; aðrir fundu bakteríur eða veQabreytingar sem við þá eru kenndar og sjá um að nöfh þeirra gleymist ekki. Arið 1843 þegar Robert Koch fæddist var Louis Pasteur rúmlega tvítugur en þeim tveimur hefur hlotnast sá heiður að vera taldir upphafsmenn sýklafræðinn- M—mmmmmmm ar. Robert sýndi þegar í æsku mik- inn áhuga á nátt- úrufræði og byrj- aði snemma að safna steinum, plöntum og öðru því sem honum þótti forvitnilegt. Hann ætlaði sér kaupmennsku þegar eftir Þórarin Guónason að stunda hann væri orðinn stór og ferðast um fjarlægar álfur í verslunarer- indum, en að skoða heiminn hélt hann vera eftirsóknarverðast allra lystisemda. Útþráin togaði lengi í hann en draumsýnin um kaup- mennsku varð ekki að sama skapi langlíf; hann gekk menntaveginn og hafnaði í læknisnámi eftir skamma áfangadvöl i stærðfræði. Tuttugu og þriggja ára gamall lauk hann embættisprófi og hugð- ist svala ferðalöngun sinni með því að gerast skipslæknir en þá bauðst honum staða við sjúkrahús í Hamborg og um sömu mundir trúlofaðist hann stúlku sem hvatti hann til að starfa heima á ættjörð- inni fremur en leggjast í heimsreis- ur. Hann fór að ráðum hennar, þau gengu í hjónaband og innan skamms settust þau að í Woll- stein, litlum bæ nálægt landamær- um Póllands. Koch kunni ekki sem best við sig í héraðslæknis- embætti og fannst daglegu störfin tilbreytingarlítil. Emmy konan hans gaf honum forláta-smásjá í afmælisgjöf og vonaði að hann tæki gleði sína ef hann færi að dunda við einhveijar rannsóknir í tómstundum. Miltisbrandur, öðru nafni miltis- bruni, var dýrasjúkdómur sem stakk sér niður í landbúnaðar- héruðum víðsvegar um Evrópu og gerðist stundum svo skæður að bændur misstu því nær allan bú- stofn sinn. Fyrir kom að sveitafólk veiktist af magnaðri kýlapest þeg- ar sjúkdómurinn heijaði á kvikféð og svæsin lungnabólga fylgdi' á' eftir þegar verst lét. Sýkillinn sem stóð fyrir þessum ósköpum hafði fundist en enginn kunni ráð til bjargar og margt í hátterni veik- innar var ólíkt því sem menn áttu að venjast í fari annarra smitsjúk- dóma. Það var engu líkara en haglendi sumra bújarða væri ban- eitrað en á öðrum bæjum í grennd- inni varð gripum aldrei misdæg- urt. Héraðslækninum í Wollstein þótti það kyndugt, ekki síður en bændunum í sveitinni, og hann ákvað að forvitnast eilítið um þennan dularfulla sjúkdóm. Hann Miltisbrunasýklar. (Einstök prik og keðjubútar milli rauðra og hvítra blóðkorna.) tók blóð úr rollu sem fannst ný- dauð úti á víðavangi og þegar hann leit á það í smásjánni góðu sá hann í dropanum einhveija stafi eða prik sem röðuðu sér gjarnan upp í langa keðju eins og hestar í lest. Þetta var víst það sem aðr- ir höfðu séð á undan honum og talið að væri sóttkveikja miltis- brunans. En var það mál nægilega kannað og sannað? Koch skoðaði blóð úr heilbrigðri kind og þar var engin prik að sjá. Þá varð hann sér úti um nokkrar mýs, lét smíða skilvegg þvert yfir lækningastof- una og bjó sér þannig til rann- sóknakompu þar sem hann geymdi mýslurnar í kössum. Hann spraut- aði eitruðu kindablóði í eina mús- ina og morguninn eftir lá hún dauð í kassanum. Þegar hann krufði hana sá hann strax að inn- volsið Ieit út líkt og innvolsið í ám og kúm sem höfðu drepist úr milt- isbrandi. Miltið í henni var stórt og þrútið eins og í þeim en úr því tók hann blóðdropa og þurfti ekki lengi að leita. Smásjáin sýndi hon- um prikin og trossurnar sem hann kannaðist við úr kindablóðinu. Hann lét þó ekki þar við sitja held- ur upphugsaði aðferð til að hrein- rækta prikin, með öðrum orðum búa svo um hnútana að engin ut- anaðkomandi óhreinindi, bakteríur eða hvað annað sem hugsast gæti, yrði til þess að menga sýklagróð- urinn. Að því búnu sprautaði hann þessum hreingróðri í mús og það fór eins fyrir henni og þeirri sem á undan var gengin, hún stein- drapst og enn fann Koch urmul af prikum þegar hann athugaði úr henni blóðið. Þar með var sann- að að ákveðinn sýkill veldur ákveðnum sjúkdómi. Ekki er hægt að skilja við Koch og miltisbrandinn án þess að minn- ast á gróin. Hann varð líka fyrstur manna til að gera sér grein fyrir að sýkillinn getur lagst í híði, ef svo mætti segja, þegar sneyðast fer um æti. Þá verða til í honum litlar kúlur sem nefndar eru gró en í því formi lifir hann lengi við skilyrði sem annars gengju af hon- um dauðum. Þannig getur hann beðið rólegur úti í haga eftir því að kýr og kindur á beit slafri hon- um í sig með grasinu. Þá vænkast hagur hans allur, hann fær nóg að bíta og brenna, leysist úr álög- um eins og prins í ævintýri og hættir að vera gró en gerist ban- vænn sýkill á ný. Koch ráðlagði bændum að brenna til ösku hræ þeirra dýra sem urðu pestinni að bráð eða grafa þau djúpt í jörðu. Svo sneri hann sér að öðrum við- fangsefnum sem áttu eftir að bera frægð hans ennþá víðar. En sagan af því bíður betri tíma. HAGFRÆDI/Skattahækkun á bamafjölskyldur og lífeyrispega? ínafiti tekjujöfnunar ÖLD er nú liðin síðan Otto von Bismarck, kanslari Prússlands, kom á fót almannatryggingum. Grundvallarhugmynd almanna- trygginga allt frá dögum Bismarcks er sú að réttur til lífeyris eða bóta sé almennur. Á næsta ári er öld liðin síðan Alþýðutryggingu var komið á fót á íslandi.Tátækrahjálp ýmiss konar var hins veg- ar við Iýði á fyrri öldum. Þannig er að finna ákvæði um fátækra- hjálp í Grágás. Fátækrahjálp er andstæð almannatryggingalögum, þar sem þiggjendur hjálpar urðu fyrir niðurlægingu og þurftu að afsala sér lýðréttindum. Megináhrif félagsmálalöggjafar á þessari öld hafa einmitt verið þau að breyta smám saman slíkri niðurlægj- andi ölmusu í viðurkennd og almenn réttindi. Tekjutenging barnabóta og elli- lífeyris, sem fyrirhugaðar munu vera í frumvarpi til fjárlaga, eru andstæðar grundvallarhug- mynd almannatrygginga. Þessi til- wmm^mmmmm laga er þar að auki ekki í jafn- réttisátt, þegar málin eru skoðuð í samhengi. eftir Sigurð Snævarr Skattahækk- un á barnafólk Meginprinsíp álagningar tekju- skatta er jöfn staða jafningja og greiðslugetan, þar sem tekið er tillit til tekna skattgreiðandans, framfærslubyrðar hans og út- gjalda vegna öflunar teknanna. Þannig eru tekjuskattar ekki lagð- ir á innkomu fyrirtækja, heldur á rekstrarafgang, en þá hafa gjöld þeirra verið dregin frá innkom- unni. Sama hefur gilt um skatt- lagningu einstaklinga, að þeim hefur verið gefin heimild til að draga ýmsa kostnaðarþætti frá tekjum, s.s. vexti, ýmsan kostnað á móti hlunnindum og iðgjöld til lífeyrissjóða. Reyndar hefur þess- um frádráttarliðum verið fækkað mjög á undanförnum áratug eða svo til þess að einfalda skattkerfið. Skoðum nú 2 ijölskyldur sem hafa 300 þúsund krónur í tekjur. Onnur fjölskyldan telur barnlaus hjón, en hin er hjón með 2 börn undir 7 ára aldri. Það er augljóst að skattgreiðslugeta fyrri íjöl- skyldunnar er meiri, þar sem fram- færslubyrði hennar er minni. Við getum t.a.m. ímyndað okkur að bæði hjónin vinni fullan vinnudag og að börnin séu hjá dagmömmu, mánaðargjaldið er vart undir 20 þúsundum króna á barn og kostn- aður fyrir 2 börn er þá 40 þúsund krónur. Til ráðstöfunar eftir greiðslu fyrir barnapössun era 260 þúsund krónur, en þessi kostnaður er óumflýjanleg forsenda tekn- anna, því að öðrum kosti gætu ekki bæði hjónin unnið utan heim- ilis. Auk þess þarí að klæða börn- in og fæða. Ef þessi hjón fengju að greiða tekjuskatta eins og fyrir- tæki gætu þau dregið þennan kostnað frá skatti. Tilgangur barnabóta hefur ein- mitt verið sá að tryggja að skatt- byrði barnafólks væri lægri en skattbyrði barnlausra með sömu tekjur. í þessu felst mikilvæg tekjujöfnun. Barnabætur era í dag greiddar með tvennum hætti, ann- ars vegar eru baraabætur sem eru óháðar tekjum foreldra/foreldris en háðar fjölda barna og aldri þeirra eða hjúskaparstétt for- eldra/foreldris. Hins vegar er barnabótaaukinn tengdur tekjum og eignum foreldra/foreldris. Hjón með eitt bam fá ekki barnabóta- auka, ef tekjur þeirra eru yfir 1.621 þús. kr., en mega hafa 133 þús. kr. í viðbót ef þau eignast annað barn. I áformum um að tengja allar PHIUPS FRYSTISKÁPAR OG KISTUR FALLEG GÆÐAVARA m AFB 716 Rúmmál 140 lítrar. Þrjár hillur meö lokí að framan og frystibúnaði. Ein skuffa. Mál: Breidd 55, Hæð 85, Dýpt 60 cm. AFB717 Rúmmál 220 lítrar. Fjórar hillur með loki að framan og frysti- búnaði. Ein skúffá. Sérstök hraðfrysting. Mál: Breidd 59, Hæð 120, Dýpt 60 cm. AFB718 Rúmmál 290 lltrar. Fjórar hillur með loki að framan og frystibúnaði. Ein skúffa. Sérstök hraðfrysting. Mál: Breidd 59, Hæð 140, Dýpt 60 cm. Rúmmál 330 lítrar. Sex hillur með loki að framan og frystibúnaði. Ein skúffa. Hjól til að færa skápinn. Mál: Breidd 59, Hæð 160, Dýpt 60 cm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.