Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUÐAGUR 8. OKTOBER ÚR MYNDASAFNINU RAGNAR AXELSSON Tónleikar Pelicans ÆSKUMYNDIN... ER AF ÞRÁNIBERTELSSYNI KFIKMYNDAGERÐARMANNI Vatnsgreiddur tilfiindar við kvikmyndagyðjuna Reykjavík, í lok fimmta áratugarins. Sviðið er Gamla Bíó og sýning er að hefjast á myndinni um Mjallhvít og dvergana sjö. I miðjum salnum situr snyrtilegur ungur maður, liðlega fimm ára. Hann er spariklæddur og vatnsgreiddur, heldur , þétt í hönd eldri systur sinnar, enda að halda á vit kvikmyndagyðjunnar í fyrsta sinn. Endur- fundirnir eiga eftir að vera tíðir, því pilturinn verður síðar þekktur fyrir afrek á þessu sviði. Hann heitir Þráinn Bertelsson. Þráinn fæddist í Reykjavík, 30. nóvember árið 1944. Foreldrar hans voru Bertel Sigurgeirsson tré- smiður, sem nú er látinn, og Fjóla Oddsdóttir. Systir Þráins, Ýrr sem starfar nú við Sjónvarpið að þýðing- um, kom í heiminn tíu árum áður. Þegar Þráinn fæddist bjó fjöl- skyldan vestan við læk. Skömmu síðar veiktist móðir hans alvarlega og fjölskyldan tvístraðist. Honum var komið í vist á vöggustofu þar sem hann bjó við rýran kost og litla um- hyggju. Þráinn var máttfarinn af nærmg- arskorti þegar móðursystir hans, Guðný Oddsdóttir, tók hann í fóstur. Hann braggaðist fljótt á nýja heimil- inu og reyndist Guðný honum sann- kallaður lífgjafi. Veikindi móður Þráins ollu því að hún varð að dvelja á stofnunum. Um Ieið og faðir hans átti þess kost tók hann drenginn aftur að sér. Bertel var hægur maður og geðgóður, barn- elskur með afbrigðum. Þótt smíðarn- , ar bæru hann vítt ög breitt um landið reyndi hann af fremsta megni að halda bömunum heimili. Fróðleiksþorsti Þráins var óslökkvandi. Hans bestu stundir voru þegar einhver vildi lesa upphátt. Þegar Þráinn var fjögurra ára upp- götvaðist að hann var þegar læs. Lesaranum skjöplaðist eitthvað í ónefndri skruddu og var áheyrandinn ekki lengi að leiðrétta hann. Eftir það var Þráinn sílesandi. Hann las flestar íslendingasagnanna Þráinn þriggja ára með Ýrr systur sinni þrettán ára. Eftir fæðingu var hann vistaður á vöggustofu og komst þaðan nær dauða en lífí aðeins eins og hálfs árs. Guðný Oddsdóttir móðursystur hans varð honum lífgjöfin. og þótti snemma vel að sér í þeim. Feðgarnir fóru víða og skólaganga Þráins var fjölbreytt. Þegar hann var átján ára hafði hann þegar haft vista- skipti tuttugu sinnum um ævina. Þegar faðir hans var við vinnu í Grímsnesinu sótti hann skóla að Ljósafossi en tíu vetra var honum komið í heimavist Laugarnesskólans í Reykjavík. í Laugarnesskóla kynntist hann Alfreð Þorsteinssyni, forstjóra Sölu varnarliðseigna. Þeir urðu góðir fé- lagar en Þráinn skar sig nokkuð úr hópi félaganna þar sem hann hafði lítinn áhuga á íþróttum. Þráinn var kátur piltur, hafði mikið ímyndunar- afl og þótti uppátækjasamur. Þráinn sótti kvikmyndahús af krafti. Roy Rogers var mikil hetja barnanna á þessum árum og hver myndin rak aðra í Austurbæjarbíó. Þar myn'daðist mikil þröng eftir há- degi á sunnudögum, þeirra sem vildu krækja sér í ódýrari sæti á einum af fimm fremstu bekkjunum. Röðin hafði einnig annan tilgang. I henni mátti “bítta“ myndablöðum. Eftir myndina var gjarnan haldið inn á Austurbar. Þar var glymskratti sem flutti seiðandi tóna frá framandi löndum. Þegar heimili fjölskyldunnar í BJe- sugróf brann til kaldra kola sátu Ýrr og Þráinn í kvikmyndahúsi. Er heim var komið voru eigur fjölskyldunnar orðnar eldinum að bráð. Búslóðin var rýr og tjónið því minna en ella, en flestar íjölskyldumyndir og persónu- legir munir hurfu í logana. essar myndir voru teknar á tónleikum hljómsveitarinnar Pelican í Austurbæjarbíói í ágúst 1974, en þá var sveitin tvímælalaust vinsæb asta band landsins. í broddi fylkingar er Pét- ur Kristjánsson, en auk hans má sjá Björgvin Gíslason gítarleikara, Asgeir Óskarsson trumbuleikara, Jón Ól- afsson bassaleikara og Jón Óskars- son gítarleikara. Tónleikarnir þóttu hinir glæsile- gustu, en Pétur Maack, sem seinna tók prestsvígslu, var fenginn til þess að hanna umbúnað þeirra. Tónleikarnir voru haldnir um það leyti sem smáskífan „Jenny Darl- ing“ var nýkomin út og á dagskrá sveitarinnar voru flest vinsælustu lög þeirra, eins og „Spengisandur", sem enn má heyra í útvarpi í dag. Pétur Kristjánsson sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta hefði verið eitt skemmtilegasta tímabi- lið, sem hann myndi eftir í „bransanum". Þakkaði hann það með- al annars mikilli og góðil skipulagningu umboðsmanns- ins, Ómars Valdimarssonar. „Hann sá um alla skipulagningu, bókaði tónleika, sá um auglýsingar og miðasölu, sá til þess að tónleikarnir byijuðu á hárréttum tíma og svo kom launaumslagið til okkar einu sinni í viku,“ sagði Pétur. Pétur „Pelík- ani“, eins og hann var m.a. nefndur á síðum Morgunblaðsins, þenur raddbönd- in. STARFIÐ BENEDIKT BJÖRNSSON GANGBRAUTARVÖRÐUR -iu. Benedikt Björnsson Sá síðasti í bænum ÞEGAR maður er lágur í loftinu, getur oft verið erfitt að komast leiðar sinnar í skólann — allir bílstjórar eru að fiýta sér og fáir _ gefa smáfólkinu gaum. Börnin í Langholtsskóla geta þó vel við unað því þar er starfandi eini gangbrautarvörðurinn í Reykja- vík og sér hann tii þess að allir komist klakklaust leiðar sinnar. Benedikt Bjömsson heitir hann, síðasti gangbrautarvörðurinn í . bænum. Langholtsvegurinn er fjöl- ’farin gata og þar sem ekki eru . gönguljós á.. mótum_ Holtavegar, sem skólinn er við, er nauðsynlegt að gangbrautarvörður aðstoði börn- in í umferðinni. Benedikt sagði að margir bílstjórar sýndu litla tillits- semi og því hefði hann í nógu að snúast allan daginn, en fyrstu börn- in koma í skólann klukkan átta og þau síðustu fara heim um fimmleyt- ið. Hann sagðist oft fá börn í heim- sókn í skúrinn sinn sem hann kall— ar„höllina“, til að spjalla og fá kandísmola. Benedikt lét vel af starfinu en sagði þó að til stæði að setja upp gangbrautarljós við skólann og þá yrði hans ekki lengur þörf. ÞETTA SÖGDU ÞAU ÞÁ__ Ingi R. Helga- son, stjórnar- formaður í Vá- tryggingafélagi islands á fundi í Æskulyðsfylk- ingunni, 24. nóv. 1948. Hann kvað engan eðlismun á hófdrykkju og ofdrykkju heldur aðeins stigsmun. Einnig sagðist hann álíta að ekki væri hægt að koma í veg fyrir drykkjuskap með þvi að beita almenningsálitinu. Reynslan hefði sýnt hið gagnstæða. Al- gjört bann áfengra drykkja kvað hann vera eina möguleikann í þessu sambandi. BÓKIN ÁNÁTTBORÐINU PLATAN ÁFÓNINUM MYNDIN ITÆKINU Um þessar mundir er ég að lesa bókina Skáldamót, en hún inni- heldur þýðingar Guðmundar Daní- elssonar á ljóðum ýmissa erlendra höfunda. Þetta er ekki stór bók en hún er afar falleg. Eg hlýddi fyrir stuttu síðan á plötu með Elton John sem tek- in var upp_ á hljómleikaferðalagi hans um Ástralíu. Ég hef mest dálæti á honum en hlusta einnig talsvert á létta klassíska tónlist s.s. eftir Mozart. Síðast horfði ég á myndina Cocktail og fannst mér hún al- veg ágæt. Ég horfi af og til á mynd- bönd og þegar ég fæ að ráða hvaða mynd er tekin á leigu þá vel ég helst gaman- eða spennumyndir. Eg er að lesa bókina Uns sekt er sönnuð eflir Scott Turgow og er hún nokkuð góð. Einnig hef ég verið að rifja upp Njálssögu og er jafnframt með Ævisögu Paul McCartneys í takinu eftir Chet Flippo. Hún er mjög góð. * Eg hef verið að hlusta á plötuna Solitude Standing með Susan Vega og er hún bæði ljúf og skemmtileg. Svo hef ég verið að reyna að hlusta á óperur Wagners en finnst þær nokkuð tormeltar. Fyrir stuttu sá ég myndina Pack of Lies í annað sinn. Þetta er framúrskarandi góð mynd, mjög vel leikin og spennandi. Hafði ég jafn gaman af henni og þegar ég sá hana í fyrra skiptið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.