Morgunblaðið - 08.10.1989, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. 0KTÓBER
C 17
málfræðingur og hefur mikinn áhuga
á ísiensku. Hann óskar þess oft að
íslenska væri útbreiddara tungu-
mál.“
— Hvað bindur þig annað við ís-
land? „Islenskar siðvenjur," segir
Heather með áherslu. „Þær voru og
eru hluti af mínu flölskyldulífi. Ég
baka íslenska vínartertu eða rúllu-
tertu eins og mamma gerði. Og ég
held íslensk jól. íslendingafélagið
hérna stendur alltaf fyrir þorrablóti,
sem er vinsæl skemmtan. Haraldur
Bessason ætlaði að standa fyrir nám-
skeiði í íslenskri dulspeki og þjóðtrú,
en hann flutti til Akureyrar og ekk-
ert varð úr námskeiðinu. En áhuginn
er enn fyrir hendi,“ segir Heathei1
brosandi.
— Manstu eftir afa þínum, Gutt-
ormi Guttormssyni? „Hvort ég man!
Ég sé hann ennþá fyrir mér, þar sem
hann sat undir tijánum og skrifaði
ljóð. Ég mat hann mikils og öfund-
aði eiginmann minn af vináttu hans
við afa. En þeir sátu löngum og
töluðu saman um heimspeki, stjórn-
um, dóu ekki tii einskis. Það sýnir
hinn fjölmenni íslenski kynstofn í
Kanada. Afi var sjálfmenntaður, fá-
tækur bóndi. Hann skrifaðist á við
fólk allstaðar í heiminum. Las þung-
ar bækur og" gat komið sér upp
merkilegu bókasafni, sem hann
ánafnaði háskólanum í Manitoba.
— A ég að sýna þér eitt hið dýr-
mætasta í minni eigu,“ spyr Heath-
er. Við göngum saman inn í bókaher-
bergið og hún dregur fram litla bók,
sem greinilega er oft búið að fara
höndum um. Frumútgáfa af ljóðum
afa hennar. „Viltu ekki gera eitt
fyrir mig,“ segir Heather. „Að lesa
upphátt fyrir mig Sandy Bar. Mig
langar svo til að eiga það lesið með
réttum, íslenskum framburði á
spólu.“ Hún kveikti á kerti til að
gera stundina hátíðlega. Og ég las
eins vel og ég gat, kvæðið, sem
Heather hafði sungið með svo mik-
illi tilfinningu kvöldið áður. Og
þama, undir daufu skini kertaljóss-
ins, í bjarma ljósanna frá Vancou-
ver-flóanum, skynjaði ég þunga orð-
Á tónleikum
í Vancouver.
Hjónin William og
Heatlier Ireland.
mál, hagfræði og bókmenntir. Um-
ræður milli tveggja karlmanna, sem
ég, stelpan mátti ekki taka þátt í,“
segir Heather og hlær. Afi var einn
af fyrstu innfæddu íslendingunum í
Kanada. Fyrsta kynslóð, eins og við
köllum þá.
Afi ólst upp í Nýja íslandi. Þar
var geysilega harðbýlt og frumbyggj-
ar hrundu niður í harðindum. Frostið
var oftast yfir 20 stig frá október
fram í apríl. Aðfluttu Islendingarnir
kunnu ekki að veiða sér til matar
úr ísilögðu Winnipeg-vatninu. Þá
komu indíánar þeim til hjálpar.
Kenndu þeim nýjar veiðiaðferðir. Afi
talaði oft með virðingu um indíána-
höfðingjann Ramsy. Og amma mundi
vel eftir fallegri konu í indíánaklæð-
um, sem kom oft til að hjálpa henni.
Þessir miklu erfiðleikar, einmana-
leiki'-og einangrun koma vel fram í
Ijóðufn afa, einna best i kvæðinu
Sandy Bar. Ég hef gengið út á Sandy
Bar að haustlagi, með kaldan storm-
inn gnauðandi allt í kringum mig.
Það er átakanlegt og áhrifamikið að
ganga innan um grafirnir — hið
eina, sem vitnar um búsetu íslend-
inga á þessum lítt byggilega stað.
Um tíma leit út fyrir að þeir myndu
allir enda lífdaga sína þarna. En
þeir, sem féllu úr örbirgð og harðind-
anna í ljóði íslenska frumbyggjans.
Tárin í augum Heather sýndu, að
hún var ánægð með uppiesturinn.
Við sáum eftir öllu fólkinu, sem
ílutti til Kanada. En gerum við okk-
ur nægilega vel grein fyrir þeirh
auðæfum, sem íslenska þjóðin á fólg-
in í hinni íslensku arflegð vestan-
hafs? Það er ótrúlegt hvað íslensk
tunga og íslenskar siðvenjur eru enn
í heiðri hafðar meðal þessa fólks.
Það er okkar hagur, að íslensk þjóð-
ræknisást haldist í vestur-íslenskum
byggðum. Kannski er hún sannari
en ættjarðarástin hér heima. Og ég
spyr Vestur-íslending af þriðju kyn-
slóð: — Ertu íslendingur, Heather?
Og hún svarar: „Ég er fyrst og
fremst Kanadabúi. Hér liggja mín
bernskuspor. Hér er fjölskylda mín.
En um æðar mér rennur. íslenskt
blóð. Rætur mínar liggja til litlu eyj-
arinnar í norðri. Stolt mitt og okkar
allra er, að íslandi gangi allt í hag-
inn.“
Heather mun halda tónleika í
Gerðubergi í kvöld, kl. 8.30. Hún
kemur einnig fram í sjónvarpi og hjá
Stöð tvö. Á morgun syngur hún i
móttöku hjá sendiherra Kanada. Og
mun trúlega halda tónleika á Akur-
eyri, sem verða auglýstir síðar.
TILBOÐ ÓSKAST
í G.M.C. P/U S-15 Sierra 2 w/d árgerð ’87 (ekinn 18 þús. mílur),
ásamt öðrum bifreiðum, er verða sýndar á Grensásvegi 9,
þriðjudaginn 10. október kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
Sala varnarliðseigna.