Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 18
18 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8, OKTÓBER
irðisaukaskattur verðurtekinn upp í
stað söluskatts hinn 1. janúar 1990.
Virðisaukaskattur er nútímaskattkerfi sem er
sniðið að efnahags- og viðskiptaiífi samtímans.
Hann er innheimtur af inniendum viðskiptum,
innfluttum vörum og þjónustu.
Mjög lítil fyrirtæki, þ.e. fyrirtæki sem selja
skattskylda vöru eða þjónustu fyrir minna en 122.400 kr.
á ári, eru heldur ekki skattskyld.
Þeir sem ekki eru skattskyldirfá engan innskatt af
aðföngum endurgreiddan.
Innheimtan dreifist
á öll stig viðskipta
\mJ\\ framleiðslufyrirtæki, milliliðir og
smásalar innheimta og skila sínum hluta virðisauka-
skattsins. Þetta aðgreinir skattinn frá söluskattinum en
þar fer innheimtan oftast fram á síðasta stigi.
Innskattur- útskattur
Hillfcn
fvert fyrirtæki innheimtir virðisaukaskatt
af allri sölu sinni. Sá skattur er nefndur útskattur. Öll
aðföng fyrirtækis eru keypt með skatti. Sá skattur er hins
vegar nefndur innskattur.
Fyrirtækið skilar mismun útskatts og innskatts í
ríkissjóð. Ef innskattur er hærri en útskattur endur-
greiðir ríkissjóður mismuninn.
Hvað?
Hvemig?
Skattur af virðisauka
M rádráttur innskatts frá útskatti veldur því
að hvert fyrirtæki - hver hlekkur í framleiðslu- og
sölukeðjunni - innheimtir aðeins skatt af verðmætis-
aukningunni sem á sér stað í því fyrirtæki, þ.e. af þeim
virðisauka sem myndast í fyrirtækinu.
Víðtæk frádráttarheimild
yrirtæki má ekki aðeins draga frá
innskattinn af vörum sem það kaupirtil endursölu,
einnig má draga frá innskatt af rekstrar- og fjárfestingar-
kostnaði, svo sem orku, vélum og byggingarkostnaði.
Flest öll viðskipti
og þjónusta er skattskyld
llmennt er öll sala vöru og þjónustu
skattskyld. Þeir sem stunda viðskipti með skattskylda
vöru eða þjónustu í atvinnuskyni innheimta virðisauka-
skatt og standa skil á honum í ríkissjóð.
Tiltekin vinna og þjónusta er undanþegin af
félagslegum eða tæknilegum ástæðum, s.s.
heilbrigðisþjónusta, menningarstarfsemi, íþrótta-
starfsemi, bankaþjónusta og vátryggingarstarfsemi.
Aðilar sem eingöngu hafa með höndum þessa
starfsemi eru ekki skattskyldir.
1 s ‘ ' , , > i ' , J ' >J' 0 u- 'i ' , ' ú' • Hvernig er virðisaukaskat innheimtur? tur
f| Við skulum fylgja innfluttu heimilistæki frá toflafgreiðslu til neytanda (míðað er við 22% vsk.): Heildsali flytur inn heimilistæki. ■ *
Tollverðtækisinser Tollstjóri innheimtir22% vsk. af tollverðinu . . . 1.000 kr. . . . 220 kr.
Heildsalinn greiðir samtals . . . 1.220 kr.
Tollstjóri skilar220 kr. í ríkissjóð. Heildsalinn skuldfærir ríkissjóð í bókhaldi sínu fyrir þessari upphæð, þ.e. færir sömu upphæð til frádráttar skattskilum sínum.
Heildsalinn leggur 700 kr. á tækið og selur það til smásala á 1.700 kr. Heildsalinn innheimtir 22% vsk. af söluverðinu 374 kr.
Smásalinn greiðir samtals . . . 2.074 kr.
Heildsalinn hefur þá innheimt 374 kr. í virðisaukaskatt en við skil á skattinum í ríkissjóð dregur hann frá 220 kr. sem hann hefur áður skuldfært ríkissjóð fyrir. Hann greiðir því 154 kr. í virðisaukaskatt. Smásalinn færir 374 kr. til frádráttar í bókhaldi sínu. ý \ (yl >K.
Loks selur smásalinn tækið til neytanda á og að auki kemur 22% vsk Neytandinn greiðir . . . 2.300 kr. . . . 506 kr. . . . 2.806 kr.
Smásalinn skilar 132 kr. í ríkissjóð (506 kr. -374 kr. = 132kr.). }?l>
Hvað hefur gerst? Virðisaukaskatturinn er innheimtur á öllum stigum: ; ' ■ \ u
Tollstjóri skilaði Heildsalinn skilaði Smásalinn skilaði Virðisaukaskattur samtals, þ.e. sú upphæð sem neytandinn greiddi 220 kr. 154 kr. 132 kr. 506 kr. • *• . i*. ■ 'S .
- í .vfn'L Sf ' ■ Í,>i\ | f Af