Morgunblaðið - 08.10.1989, Qupperneq 26
(jKTOppp
Maðurinn minn, FRIÐRIK M. FRIÐLEIFSSON myndskeri, Valhúsabraut 23,
lést 5. október. Guðrún Ólafsdóttir.
t
Móðir mín og dóttir,
SARA SIGURÐARDÓTTIR
sjúkraliði,
Laufásvegi 19,
lést þann 5. október.
Smári Björn Guðmundsson,
Pála Sveinsdóttir.
t
Útför,
SIGFÚSÍNU HALLDÓRU BENEDIKTSDÓTTUR
frá Hesteyri,
verður gerð frá Fossvogskirkju á morgun, mánudaginn 9. október
kl. 1 5.00. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á hjúkrunar-
heimilið Skjól.
Kristinn Gislason, Margrét Jakobsdóttir,
Hjálmar Gíslason, Margrét Guðmundsdóttir,
Sigurrós Gísladóttir, Guðmundur Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
SVANHVÍTAR ÞORGRÍMSDÓTTUR,
Barmahlíð 30,
fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 9. október kl. 15.00.
Sveinn Tómasson,
Þorfinnur Pétursson
og barnabörn.
Guðlaug Pálsdóttir,
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ODDNÝ PÉTURSDÓTTIR
hjúkrunarkona,
til heimilis i dvaiarheimilinu Seljahlíð,
verður jarðsungin mánudaginn 9. október kl. 13.30. frá Seljakirkju.
Halla Mjöll Hallgrímsdóttir, Örn Harðarson,
Hlíf Axelsdóttir,
Bjarni Axelsson, Lára Gunnarsdóttir,
Hallgrímur Axelsson, Rannveig Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Pétur Þorvaldsson
sellóleikari — Minning‘
Fæddur 17. janúar 1936
Dáinn 1. október 1989
í stórum vinnuhóp eins og sin-
fóníuhljómsveit myndast oft milli
fólks eitthvað meira og dýrmætara
en venjulegur kunningsskapur.
Starfið er þess eðlis að alltaf er
verið að takast á við ný viðfangs-
efni sem unnin eru að lokaáfanga,
tónleikum eða upptöku. Hver ein-
staklingur leggur sitt af mörkum
til þess að heildin geti orðið sem
best. Það, að eiga slík sameiginleg
markmið daglega bindur fólk oft
og tíðum hlýjum vináttuböndum.
Það er gangur lífsins að þessi
hljómsveit okkar breytist smátt og
smátt. Þeir eldri láta af störfum
og yngri taka við.
En þegar maður á miðjum starfs-
aldri hverfur af sjónarsviðinu, þá
verður skarðið óbætanlegt.
Góðan hljóðfæraleikara getum
við eflaust fengið, en maðurinn
Pétur Þorvaldsson hefur gengið
sinn veg og er horfinn okkur úr
þessu lífi.
Haustið 1974 tókum við Pétur
bæði við ábyrgðarstöðum í Sin-
fóníuhljómsveit íslands. A undan-
förnum 15 árum áttum við saman
mikið og gott samstarf ekki einung-
is innan hljómsveitarinnar heldur
einnig í kammertónlist á öðrum
vettvangi.
Pétur var afskaplega ósérhlífinn
til vinnu. Vinnudagur hans var yfir-
leitt lengri en gengur og gerist.
Auk starfs síns í Sinfóníuhljómsveit
íslands stundaði Pétur kennslu,
m.a. við Nýja tónlistarskólann.
Hann spilaði reglulega með Kamm-
ersveit Reykjavíkur, tók þátt í
óperuflutningi og tók yfirleitt að
sér hvaðeina sem áhugavert var í
tónlistarlífinu.
I félagsmálum hljómsveitarinnar
var Pétur einstaklega ötull og lét
mikið að sér kveða. Hann sat í
stjórn starfsmannafélagsins um
árabil og barðist ótrauður í samn-
ingamálum hljómsveitarmanna.
Ekkert sem betur mátti fara var
honum óviðkomandi. Hann var far-
sæll í starfi.
Líf Péturs varð ekki langt, en
það var hamingjuríkt. Kornungur
kvæntist hann eftirlifandi eigin-
konu sinni, Erlu Steingrímsdóttur,
og eignuðust þau fjögur börn, sem
öll eru uppkomin. Samheldni fjöl-
skyldunnar var einstök og reyndi
mikið á hana síðustu vikurnar.
Pétur brást við veikindum sínum
af ótrúlegu hugrekki og æðruleysi.
Hann kom til vinnu skömmu eftir
erfiðan uppskurð sl. vor og í júní
ferðaðist hann með hljómsveitinni
í tónleikaferð um Norðurland, þá
orðinn sárþjáður.
Hann var staðráðinn í því að
HOOVER
Compact Electronic 1100
Burt með rykið
fyrir ótrúlega
lágt verð!
Kr.
8.990,-
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
ÞARABAKKI 3, SÍMI 670100
berjast og vonina missti hann aldr-
ei. Hann fylgdist með öllu sem var
að gerast til hinstu stundar, bæði
þjóðmálum og starfi hljómsveitar-
innar og þreyttist aldrei á að fá
nákvæmar fréttir af sínum vinnu-
stað.
Eg kveð vin minn og starfs-
bróður, Pétur Þorvaldsson, með
miklum söknuði. Hans hlýja viðmót
og fallegi svipur munu aldrei líða
mér úr minni.
Ég votta ástvinum hans mína
dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Péturs Þor-
valdssonar.
Guðný Guðmundsdóttir
Sárt er að sjá á bak góðum vini
og samstarfsmanni eftir áratuga
samferð á lífsleiðinni, manni sem
fellur frá á besta aldri, en um leið
er okkur þakklæti í huga að ströngu
stríði við kvalafullan sjúkdóm skuli
lokið. Pétur kom til starfa í okkar
hóp kornungur og fullur af áhuga
þegar hann var enn við nám hér
heima og sýndi strax að þarna var
maður sem átti eftir að verða mik-
ill liðsauki fyrir hina ungu hljóm-
sveit okkar sem var að stíga sín
fyrstu spor. Pétur fór utan til náms
hjá Erling Blöndal Bengtssyni og
starfaði síðan að námi loknu um
nokkurra ára skeið í hljómsveit í
Danmörku en grunur minn er að
aldrei hafi annað hvarflað að honum
en að koma heim og taka þátt í
því starfi sem hér var hafið. Víst
er um það að honum stóðu allar
dyr opnar til starfa erlerdis í stærri
hljómsveitum og við miklu betri
kjör en hér var að vænta. Arið
1965 fluttist hann heim með fjöl-
skyldu sína og tók virkan þátt í
tónlistarlífinu af lífi og sál frá fyrsta
degi. Auk kennslunnar og hljóm-
sveitarstarfsins, þar sem Pétur
gegndi hinu ábyrgðarmikla starfi
leiðandi manns sellódeildarinnar í
hálfan annan áratug, var hann
manna fúsastur til að leggja sitt
af mörkum í hverskonar músíkstörf
önnur þar sem þörf var á og var
einn af stofnendum Musica Nova
og síðar Kammersveitar Reykjavík-
ur. Átti ég því láni að fagna að
vinna mikið með Pétri á þessum
sviðum öllum og kynntist því vel
tónlistarmanninum trausta og
trygga og þeim mannkostum sem
hann var gæddur. Við samstarfs-
mennirnir söknum rólegu og yfir-
veguðu skapgerðar hans, hlýja og
notalega húmorinn sem Pétur átti
í svo ríkum mæli, ánægjulegu
stundirnar yfir skákborðinu þar sem
fáir höfðu roð við honum og sam-
verustundirnar í þröngum vinahóp
þar sem mál voru rædd af þeirri
hógværð og virðingu sem ávallt ein-
kenndi Pétur. Það var gott að vera
návistum við hann. Pétur var sá
klettur sem hægt var að treysta
á, ieiðarinn, sem hafði það til að
bera sem best getur einkennt for-
ystumanninn. Það er von mín að
íslenskt tónlistarlíf beri gæfu til að
eignast aftur mann á borð við Pét-
ur Þorvaldsson.
Við vottum Erlu ög börnúrri
þeirra okkar innilegustu samúð en
vitum að þau, eins og við öll þekkt-
um og umgengumst Pétur, munu
ylja sig við hlýjar minningar um
sannan og tryggan vin.
Gunnar Egilsson
Vinur minn og starfsbróðir, Pétur
Þorvaldsson sellóleikari, er látinn.
Þegar Pétur fór utan til náms í
fyrsta skipti tvítugur að aldri hélt
hann til Kaupmannahafnar þar sem
hann nam við Tónlistarháskólann
þar í borg hjá Erling Blöndal
Bengtsson. Um svipað leyti hóf ég
sellónám við Tónlistarskólann í
Reykjavík tólf ára gamall og mér
fannst þetta ævintýri líkast að Pét-
ur skyldi vera að nema hjá Erling
Blöndal Bengtsson í Kaupmanna-
höfn. Nokkrum árum seinna hlust-
aði ég á Pétur leika með Pólýfón-
kórnum á hljómleikum í Krists-
kirkju og fannst mikið til um. Ég
hitti hann ekki að máli fyrr en vo-
rið 1964 í Tívolí-hljómleikasalnum
í Kaupmannahöfn, en þá var Pétur
að leika þar með Sinfóníuhljómsveit
Árósa, en í þeirri hljómsveit starf-
aði hann sem 1. sellóleikari í 4 ár,
og man ég hve Ijúfmannlega hann
tók á móti mér. Stuttu seinna flutt-
ist Pétur heim og það var einmitt
hér heima að ég kynntist manneskj-
unni Pétri Þorvaldssyni. Þegar
ungt, óreynt tónlistarfólk kemur
heim og heldur sína fyrstu tónleika
er eldraunin þvílík að margir spyrja
sjálfa sig vafalaust þeirrar spurn-
ingar hvort það sé ekki óðs manns
æði að leggja þetta á sig. Ég man
eftir mörgum þvílíkum tónleikum
hér heima á meðan ég var búsettur
erlendis, en viðmót og skilningur
manna eins og Péturs Þoi-valdsson-
ar var ómetanlegur og átti mikinn
þátt í því að haldið var áfram. Pét-
ur var hæglátur maður og prúður
að eðlisfari, en hann hafði djúpa
réttlætiskennd og göfugt hjartaiag.
Hann var fyrsta flokks hljómsveit-
armaður og sem leiðandi sellóleik-
ari í 15 ár í Sinfóníuhljómsveit ís-
lands stjórnaði hann sínu fólki með
myndugleik og reynslu kunnáttu-
mannsins. En Pétur var ekki við
eina fjölina felldur í tónlistarmálum,
hann hafði þvílíkt starfsþrek að
ásamt fullri stöðu í hljómsveitinni
gegndi hann umfangsmikilli
kennslu, lék í óperusýningum og
starfaði í kammertónlist.
Seinni hluta síðastliðins vetrar
kenndi Pétur þess sjúkdóms, sem
svo skjótt lagði þennan sterka mann
að velli. í mjög erfiðri sjúkdómslegu
sýndi Pétur þvílíka karlmennsku og
jafnaðargeð að undrum sætti. Sinni
aridlegu reisn hélt hann til hinstu
stundar.
Það er með miklum söknuði og
trega að ég kveð vin minn, Pétur
Þorvaldsson. Megi góður Guð veita
eiginkonu hans og ættingjum öllum
styrk á þessum erfiðu tímum.
Gunnar Kvaran
Það var haustlegt orðið þegar
ungur sellóleikari átti dag einn að
fara í sinn fyrsta spilatíma til nýs
kennara. Vinnupallarnir á Hall-
grímskirkju voru þá þegar farnir
að grána af elli eftir nokkurra ára-
Fjallagarpar
Dagana 9., 10., 11. og 12. október nk. verður
haldið námskeið í skyndihjálp ætlað ferðafólki.
Fjallað verður um algengustu slys, sem verð?
á ferðalögum innanlands, forvarnir og skyndi
hjálp með tilliti til þessara slysa.
Námskeiðið verður haldið í fundarsal Hótels
Lindar, Rauðarárstíg 18, Reykjavík.
Skráning og nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu
Rauða kross íslands í síma 91 -26722.
Rauði Krosslslands