Morgunblaðið - 08.10.1989, Page 33

Morgunblaðið - 08.10.1989, Page 33
H3HOTMO .8 3UR MOKGUNBLAÐIÐ VELVAKANDÍ J/JíÍl/ ;■ , H, lí ; <). SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER c ú Anna María Pitt skólarnir að taka til starfa - það ber alltaf meira á hegðunarvandamálum unglinga þegar skólarnir byrja á haustin og þegar þeir hætta á vorin heldur en á öðrum árstímum, sagði Guðni. Við hittum Þorvald Jónsson þar sem hann var á leið í Pósthúsið. Hann sagðist ekki hafa orðið var við að ungiingar væru ofbeldishneigðari nú en áður. „Eg er hins vegar sjald- an á þeim stöðum þar sem unglingar safnast saman og það getur vel ver- ið að þetta hafi farið framhjá mér.“ Já, ég gæti trúað að ofbeldi fari í vöxt - mér dettur þá í hug nauðgun sem nýlega átti sér stað, sagði Anna María Pitt. Þó veit ég ekki hvort sérstök aukning hefur átt sér stað að undanförnu eins og sagt er, ég hef að minnsta kosti ekki orðið vör við það sjálf. Ég hef ekki orðið vör við neina breytingu í Vesturbænum þar sem ég bý. Þorvaldur Jónsson Agaleysi Við spjölluðum við nokkra eldri , borgara á förnum vegi og bar þeim saman um að mikill munur væri á unglingum nú eða fyrir hálfri öld. Einn þeirra sagði að í sínu ungdæmi hefðu unglingar látið sér nægja að stela rófum. Að vísu hefðu verið róst- ur milli unglinga í Austurbænum og Vesturbænum, en það voru allt heið- arleg slagsmál. Þeir drápu ekki í sígarettum hvor á öðrum og hnífum og bareflum var ekki beitt, eins og einn viðmælenda okkar komst að orði. Það er agaleysið sem er rótin að þessu öllu. Kennararnir hafa enga stjórn á unglingunum lengur og mega heldur ekki taka í lurginn á þeim. Það þyrfti að stofna her hér á landi þar sem unglingar fengju að kynnast aga, sagði einn viðmælenda okkar. Með krafti heilags anda Kæri Velvakandi. * Avallt þykir mér jafn ljúft að ljúka upp heilagri ritningu okk- ar kristinna manna. Skiptir þá engu hvort í sinni ríkir sumar eða vetur, dagur eða nótt, gleði eða sorg. Sér- hver stund gefur tíma og tilefni til að lesa og hugleiða hin helgu og lifandi orð Guðs, sem finnast í Bibl- íunni. Með krafti heilags anda, náð- inni sem okkur er gefin fyrir fórnar- dauða frelsarans Jesú Krists, og lestri Guðsorðs, opnast okkur nýjar víddir og skilningur á tilverunni. Undraveröldin, sem lífið er, tími og rúm, alheimurinn í allri sinni stærð, og smæð, hefur upp hugann í hrifn- ingu, allt upp til sjöunda himins, hvort sem maður er staddur úti í miðri náttúrunni og hrópar í gleði himnesk orð og hallelujah, eða spennir grejpar bak við luktar dyr og hvíslar meðan hjartað hrópar til skapara síns: Lof sé þér Drottinn. Við stór þáttaskil í lífi mínu ný- lega, þegar ég hafði í breyskleika mínum litið fram á veginn og gert áætlanir, sem fóru á annan veg en ég ætlaði, varð mér hugsað til orð- anna í Orðskviðunum, þar sem seg- ir: „Maðurinn upphugsar sinn veg, en Drottinn stýrir gangi hans.“ I sárum mannlegum vonbrigðum mínum las ég í Speki Salómóns, sem er rit í „Biblíu kaþólskra", eitthvað á þá leið: því að þitt orð Drottinn er það sem allt læknar, — og gladd- ist þegar í anda, við það sem var Guðs vilji. Einar Ingvi Magnússon 5 aurar á dögnm Krists Til Velvakanda. Spurt var um það hér í blaðinu nýlega hverjir vextir myndu verið hafa í fornöld. Það fer sjálf- sagt eftir framboði á fé, eins og öðru, nema hvað múhameðstrúar- menn mega ekki taka vexti af fé, eins og kunnugt er. En ef þú lesandi góður skyldir nú hafa lagt 5 aura inn á reikning fyrir 1989 árum á 6% vexti, hver skyldi þá innistæða þín vera í dag með vöxtum og vaxtavöxtum? Jú, þú gætir keypt þyngd jarðar- innar í gulli 50 þúsund sinnum .. . og reiknaðu nú eftir. Við ættum e.t.v. að fara að hugsa fyrir framtíð barnabarnanna? R.R. l Hvað heitir fólkið á myndunum? essar myndir voru sendar Vel- vakanda og vill eigandi þeirra gjarnan fá að vita nöfn þeirra sem I við fólkið eru beðnir að hringja í eru á myndunum. Þeir sem kannast | Einar í síma 657752. verdur krýnd i Hótel íslandi 16. apríl. Nú hefur verið ákveðið, að 20 stúlkur komi fram á úrslitakvöldinu í keppninni um titilinn Fegurðardrottning íslands 1990. Forkeppnirnar fara fram í Reykjavík og um land allt í janúar og febrúar. Framkvœmdastjóri keppninnar, Gróa Ásgeirsdóttir tekur vid ábendingum um keppendur i sima 687111 daglega. PjUAND Nýr og betri veislusalur Meiriháttar mótstaður Afmœlisveislur Árshátíðir Blaðamannafundir Brúðkaupsveislur Dansleikir Danssýningar Erfidrykkjur Fermingarveislur Fundir Grimudansleikir Jólaböll Matarboð Ráðstefnur Skákmót Sumarfagnaðir Vetrarfagnaðir Porrablót Ættarmót Eða bara stutt og laggott: Alltfrá A — Ö Fullkomið liljóðkerfi sem hentar bœði hljómsveitum, diskóteki sem ráðstefnum. EITT SIMTAL - VEISLAN í HÖFN. MANNÞING, símar 686880 og 678967.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.