Morgunblaðið - 08.10.1989, Qupperneq 36
GOTT FÓLK / SÍA
36 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR'8" OKTÓBER
H
Hvernig gengur í skólanum?
Ertu farin(n) að kvíða fyrir prófunum?
Láttu ekki eina eða tvær námsgreinar
stöðva skólagöngu þína. Notfærðu þér
NÁMSAÐSTOÐ
okkar. Það hafa 4000 nemendur gert á
undanförnum 5 árum. Mundu að nám tekur tíma.
Innritun kl. 14.30-18.30. Sími 79233
Nemendafjjóttustan sf. Þangbakka 10, Mjódd.
"I
Macintosh - Kennarabraut
Skemmtileg og fræðandi námskeið í tveimur áföngum,
sérstaklega ætluð kennumm á öllum skólastigum, hefjast
um miðjan október. Kvöld- og helgartímar.
Menntun sem metin er til stiga hjá námsmatsnefnd og hægt
er að sækja um styrk í endurmenntunarsjóði.
Lögö er áhersla á notkun Macintoshtölvunnar viö
námsefnisgerö, nemendabókhald og verkefnagerö.
Tölvu- og verkfræðlþjónustan Hringdu og fáðu
Grensásvegi 16 • Sími 68 80 90 bækling sendan
Vaxtarsjóðurinn hefur
slitið bamsskónum
Vaxtarsjóður Útvegsbanka íslands hf., sem
er rúmlega ársgamall, hefur vaxið jafnt og
þétt og eru nú tæpar 500 milljónir króna í
sjóðnum. Síðustu þrjá mánuði hafa Vaxtar-
bréfin borið 9,4% vexti umfram hækkun
lánskjaravísitölu.
Eignir sjóðsins eru bundnar í
Fasteigna-
tryggöum
bréfum
Öörum
tryggum
bréfum
Vaxtarbréfin eru ávallt laus til innlausnar
gegn 1% innlausnargjaldi.
Athugið!
2. og 3. hvers mánaðar er ekkert inn-
lausnargjald.
Vaxtarbréfin fást á öllum afgreiðslustöðum
Útvegsbankans.
öo
VERÐBRÉFAA/IARKAÐUR
ÚTVEGSBANKANS
SÍÐUMÚLA 23, 108 REYKJAVÍK, SÍMI .68 80 30
BAKÞANKAR
Sköpun í
auga storms-
ins
Regnið glymur á þakinu og
vindurinn syngur hástöf-
um. Er ég lít út um gluggann
er Esjan á bak og burt og
hafið ólgandi og grátt. Þetta
er ósvikinn
stormur, hugsa
ég hálfsmeyk
undir súð. Og
það kemur á
daginn að
þarna er á ferð
sjóræningi
mikill, Hugo að
nafni, sem er
kominn langt að og hefur
gengið berserksgang suður í
höfum og höggvið strandhögg
víða. Þó gusti af honum þar
sem hann slær um sig hér
norður frá er hann aðeins
svipur hjá sjón, enda næstum
því örmagna eftir að hafa lagt
heilu borgirnar í rúst. Versti
fellibylur sem fór yfir
Bermudaeyjar á þessum ald-
arhelmingi hét Arlín. í þá
daga voru þessir vágestir að-
eins nefndir kvennanöfnum
og þótti karlpeningnum það
viðeigandi því þessir stormar
eru jafnan óútreiknanlegir og
kenjóttir. Slá um sig með
miklum pilsaþyt en eru tómir
að innan. Þ.e.a.s. hringlaga
sveipur sem æðir áfram en í
miðjunni er svokallað auga
þar sem er dúnalogn. Þegar
kvennahreyfingin komst á
legg var þessu mótmælt harð-
lega og síðan eru stormar
karlkyns, að minnsta kosti
annað hvert ár.
Ég átti von á barni i lok
júlímánaðar, en ein vika var
liðin af ágúst. Hitinn var
þrúgandi og loftið mettað af
raka. Ég mókti í skugga pál-
mans í garðinum og beið.
Seinnipart áttunda kom að-
vörun um að Arlín væri á leið-
inni. Eyjarskeggjar byrjuðu
að undirbúa á hefðbundinn
hátt. Garðhúsgögn voru sett
undir þak, gluggahlerar
negldir fastir og vatn látið
renna í baðker, þvottavélar
og önnur ílát því hver og einn
er með rigningarvatn i þró
undir híbýlum sínum. Færi
rafmagn var ekki hægt að
dæla vatninu i hús og einnig
gæti vatnið mengast í miklum
hamförum.
Að morgni níunda var farið
að draga til tíðinda, bæði veð-
urfræðilega séð og eins fann
ég að nú væri frumburðurinn
í kapphlaupi við aðvífandi
storminn. Ég hringdi í lækn-
inn sem vegna anna bað mig
að láta vita að ég væri á leið-
inni á sjúkrahúsið. Ég hringdi
í eiginmanninn sem sagði
mér að verið væri að loka
bænum en er ég tók upp
símann til að hringja á
sjúkrahúsið var sambandið
rofið.
Ég komst á fæðingardeild-
ina eftir langa mæðu þvi trjá-
greinar gerðu flesta vegi
ófæra. Á hádegi, um það bil
sem ég var komin á réttan
stað, fór augað yfir og í stund-
arkorn blakti ekki hár á
höfði. Síðan byrjaði ballið fyr-
ir alvöru, himinhá tré féllu,
þök fuku af húsum, báta rak
til hafs eða á bólakaf.
Ég hef lifað af fleiri storma
en Arlínu en hún er mér
minnisstæðust því meðan
hún var að rifa og tæta var
ég þátttakandi í sjálfu sköp-
unarverkinu. Dóttir mín
fæddist klukkan átján, og var
Arlín þá komin á haf út og
lífið fór að ganga sinn vana-
gáng.
eflir Jónu
Morqeirsdótlur