Morgunblaðið - 18.10.1989, Blaðsíða 1
48 SIÐUR B
237. tbl. 77. árg.________________________________MTÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1989_______________________________Prentsmiðjá Morgunblaðsins
Tékkóslóvakía:
Ofiirvaldi
kommún-
ista ögrað
Pragi Reuter.
FÉLAGAR í tveimur tékknesk-
um stjórnmálaflokkum, sem
lengi hafa aðeins verið sjálfstæð-
ir að nafninu til, hafa krafist
þess, að undirgefninni við komm-
únistaflokkinn verði hætt og lýð-
ræði komið á í Tékkóslóvakíu.
Rúmlega 70 fulltrúar Þjóðar-
flokksins víðs vegar að af landinu
hafa látið frá sér fara yfirlýsingu
þar sem segir, að almennir flokks-
menn vantreysti flokksforystunni
vegna gagnrýnislausrar hlýðni
hennar við kommúnistaflokkinn.
Er skorað á forystumennina að
segja af sér tafarlaust og aðra þá
flokksmenn, sem standa í vegi
framfara og breytinga.
Féiagar í Prag-deild Sósíalista-
flokksins hafa einnig krafist þess,
;nð tékknesku stjórnarskránni verði
byeytt og felld út ákvæði um for-
ýlduhlutverk kpmmún isteflokksins.
Jííemur"þetta fram í nýju frétta-
bréfi, sem heitir „Lýðræðissinninn",
og er þar livatt til einkarekstrar í
landinu og virðingar fyrir mannrétt-
indum.
Þjóðarflokkurinn og Sósíalista-
flokkurinn og tveir smáflokkar í
Slóvakiu eru hlutí af Þjóðfylking-
unni, flokkasamsteypu, sem komm-
únistar hafa stjórnað að öilu leyti.
Logandi eiturtankur
Reuter
Óttast er, að þrír menn hafi látist þegar tankur með eitruðum efnum
sprakk í Rotterdamhöfn í Hollandi í gær. Voru sex menn að gera við
tankinn þegar slysið varð og komust þrír lífs af, tveir mikið brenndir.
Hefur lík eins manns fundist en tveggja er saknað. Á myndinni stígur
reykjarmökkurinn frá tankinum til himins en hann var látinn brenna
upp þar sem ekki þótti á hættandi að reyna að slökkva eldinn.
Flugleiðir fljúga frá Stokkhólmi til Washington:
Nýja flugleiðin vek-
ur athygli í Svíþjóð
- en S AS reynir ekki að leyna gremjunni
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
Forsvarsmenn SAS-flugfélagsins gnísta tönnum af bræði yfir að
íslenska flugfélagið Flugleiðir skuli hafa fengið leyfi bandarískra
stjórnvalda fyrir beinu flugi milli Stokkhólms og Washington. Sjálft
hefúr SAS reynt í 20 ár að komast yfir þessa flugleið en ávallt ver-
ið neitað vegna þess, að vestra finnst mönnum hlutur SAS í flugi
milli Norðurlanda og Bandaríkjanna vera allt of stór.
Þrátt fyrir óánægju SAS-for-
stjóranna geta flugmálayfirvöld í
Svíþjóð og samgönguráðuneytið
ekkert aðhafst í málinu. Flugleiðir
hafa um margra ára skeið flogið
milli Reykjavíkur og Stokkhólms
og í umsókninni til bandarískra yfir-
valda voru nefndir flugtímar, sem
falla vel að framhaldsflugi til Was-
hington.
Þessi nýja flugleið hefur þegar
vakið athygli sænskra kaupsýslu-
og stjórnmálamanna og annarra,
sem erindi eiga til Washington, og
bókanirnar streyma inn á skrifstofu
Flugleiða í Stokkhólmi. Það tekur
nú skemmri tíma að komast til
Washington með Flugleiðum en
öðrum flugfélögum og það á einnig
við um heimferðina þrátt fyrir milli-
lendingu á íslandi. Áður þótti ein-
faldast að fara frá Stokkhólmi til
Frankfurt eða Amsterdam og þaðan
vestur og því má búast við, að Luft-
hansa og KLM missi einnig spón
úr aski sínum.
SAS hefur ávallt verið neitað um
beint flug til Washington vegna
þess, að það hefur nú þegar helm-
ing alls flugs milli Norðurlanda og
Bandaríkjanna. Stóru, bandarísku
flugfélögin American Airlines,
TWA og PanAm halda því fast
fram, að 30% séu meira en nóg
fyrir eitt flugfélag.
Þeir hjá SAS reyna ekki að leyna
bræðinni en talsmenn Flugleiða í
Stokkhólmi segjast fylgjast spennt-
ir með þróuninni. Gangi allt vel
verður flugtíðnin hugsanlega aukin
á þessari leið.
Óvissa á verðbréfamörkuðum
vegna viðskiptahallans vestra
New York, London. Reuter.
HALLINN á viðskiptum Banda-
ríkjanna við útlönd jókst í ágúst-
mánuöi um 31% frá fyrra mánuði
og höfðu fréttirnar þau álirif, að
hlutabréf lækkuðu nokkuð í verði
í kauphöllinni í Wall Street í New
York. Þá féll gengi dollarans
einnig. I flestum kauphöllum í
Evrópu og víðar iiækkaði hluta-
bréfaverð lítillega frá því, sem
það var lægst í fyrradag, en al-
mennt er mikil óvissa ríkjandi á
verðbréfamörkuðunum.
Viðskiptahallinn í Bandaríkjun-
um í ágúst var 10,77 milljarðar
dollara eða 31% meiri en í júlí, þeg-
ar hann var 8,24 milljarðar. Er
hann miklu meiri en búist hafði
Mikis Theodorakis
orðinn hægrimaður
AJjenu. Reuter.
GRÍSKA tónskáldið Mikis Theodorakis, sem samdi meðal annars tónlist-
ina við „Grikkjann Zorba“, hefur tekið sinnaskiptum í pólitíkinni og
ætlar að bjóða sig fram tii þings fyrir hægriinenn, Nýja demókrataflokk-
inn.
Theodorakis og Konstantin Mitso-
takis, formaður Nýja demókrata-
flokksins, áttu með sér fund á mánu-
dag og sögðu að honum loknum, að
Theodorakis yrði skipað á bekk með
forystumönnum flokksins og þar með
tryggt öruggt kjördæmi í kosningun-
um eftir fáar vikur.
Theodorakis hefur til þessa verið
kommúnisti og margoft setið í fang-
elsi fyrir skoðanir sínar. Þingmaður
kommúnistaflokksins var hann frá
1981-87. Á valdadögum herforingja-
stjórnarinnar, 1967-74, voru
tónsmíðar hans bannaðar í Grikk-
iandi.
„Enn einu sinni hef ég ákveðið
að leggja listina á hilluna og helga
mig stjórnmálunum. Að þessu sinni
tíl að uppræta með öllum ráðum
PASOK-ástandið,“ sagði Theodorak-
is og átti þá við arfleifð sósíalista-
flokksins, sem var við völd frá 1981
og fram í júní sl. Eins og kunnugt
er hafa Andreas Papandreou, for-
maður PASOK, og aðrir frammá-
menn flokksins, verið sakaðir um
stórkostlega spillingu í embætti.
verið við og sá mesti síðan í désem-
ber fyrir tæpu ári. Þá var hann
10,80 milljarðar dollara. Hátt doll-
aragengi og minni hagvöxtur er-
lendis eru talin valda þessum aukna
viðskiptahalla en tíðindin urðu til
þess, að gengi dollarans lækkaði
nokkuð.
Verðfallið í Wall Street á föstu-
dag vannst að nokkru upp á mánu-
dag en fréttirnar um viðskiptahall-
ann urðu til þess, að í gær lækkaði
hlutabréfaverð dálítið frá deginum
áður. í gærmorgun bentu kauphall-
amðskipti í Evrópu og víðar til, að
verðfallið á mánudag gengi til baka,
en viðskiptahaliinn vestra varð til
að stemma þá á að ósi. Yfirleitt
hækkaði verðið þó örlítið, mest í
Tókýó, en verðbréfasölum ber sam-
an um, að mikil óvissa sé á mörkuð-
unum. Óttast margir, að ástandið
muni einkennast af verðsveiflum á
næstunni.
Ókyrrðin á verðbréfamörkuðun-
um hefur vakið upp spurningar um
hvort þeir séu sá spegill efnahags-
lífsins, sem þeir eiga að vera. Segja
sumir, að tölvutæknin hafi ekki
aðeins auðveldað kauphallarvið-
skipti, heldur einnig ýtt svo undir
spákaupmennsku og áhættusöm
viðskipti, að markaðirnir séu farnir
að lifa eigin lífi án tengsla við raun-
veruleikann. Aðrir draga úr þessu
og segja, að markaðirnir séu eins
og 17 ára drengur, sem fengið hafi
bíl í afmælisgjöf. Það geti tekið tíma
að gerast ábyrgur ökumaður.
Bretland:
Mikið tap á
Sky-stöðinni
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari
Frímannssyni.
RUPERT Murdoch, aðaleigandi
News International, sem á Sky-
gervihnattasj ón varpsstöð ina,
sagði um síðustu helgi að yrði
stöðin ekki farin að skila hagn-
aði eftir fimm ár yrði henni lok-
að eða hún seld. Sky sendir út
á fjórum rásum og tapar nú jafn-
virði um 200 milljóna króna á
viku.
Búið er. að setja upp hálfa millj-
ón mótttökudiska í Bretlandi og
um 300 þúsund á írlandi. Stöðin
þarf nokkrar milljónir áskrifenda
til að bera sig og gaf Murdoch
berlega í skyn að sala á mótttöku-
diskum nú yfir vetrarmánuðina
myndi ráða framtíð sjónvarps-
stöðvarinnar.
Reuter
Hornsteinn að ólympíuþorpi
í Barcelona á Spáni er undirbúningur sumarólympíuleikanna 1992 í
fullum gangi og i gær var lagður hornsteinn að ólympíuþorpinu við
hátíðlega athöfn. Tveir menn með ólympíufána sigu með steininum á
réttan stað en áætlað er, að þorpsbúarnir, íþróttamennirnir á leikun-
um, verði 15.000 talsins.