Morgunblaðið - 18.10.1989, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.10.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1989 5 Frá setningu Kirkjuþings í gær. Á myndinni má sjá biskupana Pétur Sigurgeirsson og Sigurbjörn Einarson. skilgreiningar. Á Kirkjuþingi í dag verður einnig flutt tillaga til þings- ályktunar um kirkjulega réttar- stöðu presta, sem ráðnir eru til starfa af stofnunum, félagssamtök- um eða einstökum þjóðkirkjusöfn- uðum. og lögð verður fi-am tilrauna- námsskrá fermingarstarfanefndar, sem prestastefna samþykkti í sum- ar til reynslu í tvö ár. Ákvæði náms- skrárinnar eru þó ekki sögð bind- andi heldur aðeins leiðbeinandi. Kirkjuþing er árleg samkunda Þjóðkirkjunnar. Tuttugu kjörnir fulltrúar sækja þingið. Atján þeirra eru kjörnir úr átta kjördæmum landsins, en að auki er einn fulltrúi kjörinn af guðfræðideild HÍ og einn af guðfræðingum er vinna að sér- stökum verkefnum í þágu þjóðkirkj- unnar. Vígslubiskupar og kirkju- ráðsmenn eiga rétt á fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti en ekki atkvæðisrétti, nema þeir séu kjörn- ir fulltrúár. Sæti á Kirkjuþingi eiga að auki biskup og kirkjumálaráð- herra eða fulltrúi hans. Kirkjuþingi lýkur þann 26. október. Tove Engilberts ásamt höfundi bókarinnar, Jónínu Michaelsdóttur. Mmmngar Tove Engil- berts væntanlegar „Eins manns kona“ nefnist bók, sem væntanleg er á mark- aðinn um miðjan næsta mánuð. Bókin hefur að geyma minning- ar Tove Engilberts, sem er ekkja listmálarans Jóns Engil- berts. Höfimdur bókar er Jónína Michaelsdóttir. Tove Engilberts var ung kona þegar hún yfirgaf heimaland sitt og fluttist til íslands ásamt manni sínum, listmálaranum Jóni Engil- berts. í bókinni segir, Tove frá uppvaxtarárunum á auðmanns- heimili í Kaupmannahöfn og fyrstu kynnum þeirra Jóns á Lista- akademíunni þar í borg. Síðan lýs- ir hún langri sambúð við stórbrot- inn listamann og lífi þeirra á Is- landi af óvnjulegu innsæi og næmi á sérkenni samferðamanna sinna, sagði Jóhann Páll Valdimarsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, í samtali við Morgunblaðið. í minningum Tove Engilberts kemur við sögu fjöldi þjóðfrægra manna og kvenna. Þar skiptast á skin og skúrir, en umfram allt er saga Tove áhrifarik lýsing á til- finningaríku samlífi tveggja elsk- enda og vina sem aldrei varð1 hversdagsleika og vana að bráð, segir í kynningu. Jónína Michaelsdóttir skrifaði bókina „Líf mitt og gleði“ sem kom út árið 1986 og hafði að geyma minningar Þuríðar Pálsdóttur, söngkonu. Forlagið hefur tilnefnt bókina „Eins manns kona“ til íslensku bókmenntaverðlaunanna, sem forseti íslands afhendir á næsta ári. Nýr forseti Bridgesam- bandsins JÓN Steinar Gunnlaugsson for- seti Bridgesambands íslands hefur tilkynnt að hann gefi ekki kost á sér til formennsku á þingi sambandsins seinna í þessum mánuði. Einn maður hefur gefið kost á sér til starf- ans, Helgi Jóhannsson fram- kvæmdastjóri Samvinnuferða- Landsýnar. á HOTELISLANDI sunnudagskvöldið 22. október Hátíðin hefst kl. 19fyrirmatargesti. Lúðrasveitin Svanurleikur við móttöku. Hinn kunni píanisti og myndlistarmaður, Árni Elvar, leikurljúfa tónlist. Tónleikarnir hefjast kl. 21 Þessir listamenn komafram: • Þorsteinn Gauti Sigurðsson, píanóleikari, • Ólöf Kolbrún Harðardóttir, óperusöngkona og • Jón Stefánsson, organisti. • Jazzsveit F.Í.H. undir stjórn Jukka Linkola. • Sálin hans Jóns míns • Bachmann, Möller, Bernburg. • Félagarúr Félagi harmonikuunnenda, # Bubbi Morthens. • Hljómsveitin Strax. • Bjartmar Guðlaugsson. # Tregasveitjn. Veislustjórar: Ríó tríó Dregið verður úr hlutafjárloforðum sem safnast meðan á tónleikunum stendur. 1. vinningur: Vikuferð til Mallorka með Ferðaskrifst. Atlantik. 2.-6. vinningur: Málsverður fyrir tvo á Mongolian Barbecue. Sala miða í happdrætti F.T. ferfram á hátíðinni. Dregið 23. október. 1. vinningur: Skoda Favorit frá Jöfur. Foiréttur: Grágæsasúpa. Aðalréttur: Amerísk nautasteik meö bakaðri kartöflu. Eftirréttur: Kaffi og konfekt. Verð aðgöngumiða á tónleikana með kvöldverði aðeins kr. 2.450,- Verð aðgöngumiða á tónleikana frá kl. 21 kr. 1.000,- Miðasala og borðapantanir daglega á Hótel íslandi í síma 687111. Forsala aðgöngumiða á tónleikana sjálfa verður í hljómplötuverslunum. F.T. Félagsheimili tónlistarmanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.