Morgunblaðið - 18.10.1989, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 18.10.1989, Blaðsíða 43
eeoi Hjiaorao MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR M AV11>0{I4\ GIGAJflMUOHOM MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1989 43 KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN Bandarískur dag- ur á Sauðárkróki Útlendingarnirtveir með 83 stig er Tindastóll sigraði Val Björn Björnsson skrifarfrá Sauðárkróki Utlendingarnir í liðum Tinda- stóls og Vals fóru á kostum þegar liðin mættust í gær á Sauðár- króki. Þeir gerðu samtals 83 stig en Tindastóll sigraði 103:88 í skemmti- legum leik. Bo Heiden kom heimamönnum af stað með þremur þriggja stiga körf- um á fyrstu mínútunum og lengst af höfðu Sauðkrækingar 10-15 stiga forskot. Mestur varð munur- inn 22 stig en undir lokin náðu Valsmenn að saxa á forskotið enda heimamenn í verulegum villuvand- ræðum. Tindastóll sýndi ágæta baráttu í lokin og hélt fengnum hlut. Síðustu mínútur leiksins voru mjög fjörugar og í lokin höfðu fimm leikmenn farið útaf með fullan kvóta af vill- um. Bo Heiden var maður leiksins. Hann gerði 44 stig, þar af fimm úr þriggja stiga skotum, og tók 23 fráköst. Skotnýting hans var einnig góð eða um 80% en þess má geta að hann lék með fjórar villur síðustu 12 mínútur leiksins. Chris Behrents og Svali Björgvinsson áttu mjög góðan leik fyrir Val og Sturla Orl- ygsson fyrir Tindastól. UMFN-UMFG 91 : 76 íþróttahúsið í Njarðvik, íslandsmótið I körfuknáttleik, þriðjudaginn 17. október Gangur leiksins: 2:0, 2:5, 7:7, 7:11, 11:11. 19:19, 23:23, 31:26, 40:35, 48:42, 54:49, 59:49, 71:62, 82:66, 85:70, 89:71, 91:76. Stig UMFN: Patrick Releford 19, Teilur Örlygsson 18, ísak Tómasson 17, Kristinn Einai-sson 14, Jóhannes Kristbjömsson 11, Ástþór Ingason 10, Friðrik Ragnars- son 2. Stig UMFG: Guðmundur Bi-agason 32, Jeff Null 19, Hjálmar Hailgrimsson 12, Sveinbjöm Sigurðsson 6, Rúnar Ámason 4, Steinþór Helgason 3. Áhorfendur: Um 350. Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Jón Bend- er. Tindastóll-Valur 103 : 88 íþróttahúsið á Sauðárkróki, úrvalsdeildin í körfuknattleik, þriðjudaginn 17. október Gangur leiksins: 12:0, 18:6, 29:15, 40:23, 57:38, 66:43, 72:56, 82:69, 93:83, 103:88. Stig Tindastóls: Bo Heiden 44, Sturla Öriygsson 16, Björn Sigtryggson 16, Svcrrir Sverrisson 14, Valur Ingimundar- son 11 og Pótur Sigurðsson 2. Stig Vals: Chris Behrents 39, Svaii Bjöig- vinsson 23, Einar Ólafsson 11, Ari Gunn- arsson 8, Matthías Matthíasson 3, Amar Guðmundsson 2 og Bjöm Zoega 2. Dómarar: Leifur Garðarsson og Kristján Möller. Dæmdu vel. Áhorfendun 500. Njarðvíkingar í ham Sigurganga Njarðvíkinga held- ur áfram í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, í gærkvöldi unnu þeir sannfærandi sigur á nágrönn- um sínum úr Björn Grindavík 91:76 og Blöndal er UMFN eina liðið skrifarfrá sem ekki hefur tap- N‘arövik að leik. Grindvíkingar veittu Njarðvík- ingum harða mótspyrnu framan af og útlitið var allt annað en gott fyrir UMFN þegar Patrick Releford varð að fara af leikvelli með 5 villur í upphafi síðari hálfleiks. En það hafði engin áhrif á leik liðsins og Njarðvíkingar gátu meira að segja leyft sér þann munað að láta vara- menn sína ljúka leiknum. Leikurinn var bæði hraður og fjörugur í fyrri hálfleik. Grindvík- ingar byijuðu betur en Njarðvíking- ar náðu smám saman yfirhöndinni og um miðjan síðari hálfleikinn hafði liðið nánast tryggt sér sigur. „Njarðvíkingar eru með mjög gott lið og það verður ekki auðvelt að sigra þá, það sýndu þeir í kvöld. FIMLEIKAR Fjólu og Bryndísi gekk ekki vel Fjóla Ólafsdóttir og Bryndís Guðmundsdóttir luku keppni á heimsmeistaramótinu í fimleikum, í Vestur Þýskalandi í gær, með fijálsum æfingum. Þeim gekk ekki vel, að sögn Dóru Óskarsdóttur fararstjóra. Linda fékk samtals 67,237 stig í keppninni og Bryndís 66,099 stig — þ.e. fyrir skylduæf- ingar og frjálsar æfingar. Keppn- inni lýkur í dag, þannig að í gær var ekki ljóst í hvaða sætum þær lenda. Fjóla fékk eftirtaldar ein- kunnir í gær fyrir æfíngar sínar; stökk; 8,912, tvíslá: 8,625, slá: 7,625 og gólfæfingar: 8,500. Bryndís hlaut þessar einkunnir; stökk: 8,350, tvíslá: 7,425, slá: 7,775 og gólfæfingar: 8,050. Fjóla datt í æfingunni á tvíslá, og vankað- ist lítillega að sögn Dóru, og bar einkunnin þess merki — einnig ein- kunn fyrir æfingar á slá. En við vorum óheppnir með skot okkar í síðari hálfleik .þegar allt gekk upp hjá þeim,“ sagði Dennis Matika þjálfari Grindvíkinga. Njarðvíkurliðið fór oft á kostum í leiknum og þar var hvergi veikan hlekk að finna, Patrick Releford og Teitur Örlýgsson voru atkvæða- mestir eins og í fyrri leikjum en Guðmundur Bragason var yfir- burðamaður í liði Grindvíkinga. Bo Heiden, Tindastóli. Chris Behrents og Svali Björgvinsson, Val. Sturla Öriygsson, Tindastóli. Patrick Releford og Teitur Örlygsson, Njarðvík. Guðmundur Bragason, Grindavík. Einar Ólafsson, Val. Valur Ingimundar- son, Bjöm Sigtryggsson og Sveirir Sverrisson, Tindastóli. Jóhannes Krist- bjömsson, ísak Tómasson og Kristinn Einarsson, Njarðvík. Hjálmar Hallgr- ímsson, Grindavík. ÚRSLIT Körfuknattleikur 1. deild kvenna: IS-Haukar........................45:51 UMFN-ÍBK.........................36:55 Handknattleikur 2. deild kvenna: Afturelding - Þróttur R..........19:13 Fimleikar Liðakeppni karia á heimsmeistaramótinu, sem nú fer fram í Stuttgart, lauk í gær með öruggum sigri Sovétmanna. Efstu þjóð- ir urðu þessar: Stig 1. Sovétríkin..................587.25 (í liðinu voru Vladímír Artemov, Igor Korobtsjínsky, Valentín Mogilny, Vladímír Novíkov, Vítaly Marinítsj og Valery Be- lenkíy) 2. Austur Þýskaland............580.85 (Sven Tippelt, Andreas Wecker, Sylvio Kroll, Enrico Ambros, Jens Milbrandt, Jörg Behrend) 3. Kína................. ,....579.30 (Li Chunyang, Wang Chongsheng, Li Jing, Ma Zheng, Li Ge, Guo Linxian) 4. Japan..................... 575.55 5. Ungveijaland................574.30 6. Rúmenla.....................572.45 7. Ítalía......................569.15 8. Búlgaría....................568.25 8. Bandaríkin..................568.25 Morgunblaðið/Einar Falur Bandaríkjamaðurinn Bo Heiden lék frábærlega með liði Tindastóls í gærkvöldi, er það sigraði Val á Sauðárkróki. Hann er fyrsti leikmaður úrvals- deildarinnar til að fá 3 M í einkunn í vetur — en það er hæsta einkunn sem fréttamenn Morgunblaðsins gefa, og þýðir einmitt að viðkomandi hafí leikið frábærlega. Jón Páll hættir Steflán „ Arnarson tekur við liði ÍBK STEFÁN Arnarson, unglinga- þjálfari ÍBK f körfuknattleik, var í gær beðinn um að taka við stjórninni hjá úrvalsdeildarliði félagsins eftir að samkomulag náðist um að Bandaríkjamað- urinn John Veargason léti af , störfum. Veargason, sem tók við þjálfun liðsins í haust, gekk á fund formanns körfuknattleiksdeildar ÍBK á mánudag og óskaði eftir að fá að losna undan gerðum samn- ingi, þar sem hann treysti sér ekki til að taka á verkefninu, hvorki sem leikmaður né þjálfari. Stjórn og leikmeíin funduðu um málið og var ákveðið að verða við óskum Banda- ríkjamannsins. Stefán mun sjá um liðið fyrst um * sinn, en reynt verður að fá Banda- ríkjamann til að taka við stjórninni sem allra fyrst og hafa forsvars- menn íslandsmeistaranna þegar sett sig strax í samband við um- boðsaðila í Bandaríkjunum. Tkvöíd Handknattleikur 1. deild karla HK-ÍBV.....Digranesi kl. 20.15 Stjaman-ÍR...........Garðabæ kl. 20.00 FH-KR...Hafnarf. kl. 20.30 Víkingur-GróttaLaugardalsh. kl. 20.15 Valur-KA............Valshúsi kl. 20.00 2. deild karla Haukar-FH b.....Hafnarf. kl. 19.00 Ámiann-UMFN.Laugaróalsh. kl. 19.00 Valurb-UBK......Valshúsi kl. 18.30 3. deild karla ÍS-Víkingur b....».Digranesi kl. 21.30 2. deild kvenna ÍBK-Selfoss.. Keflavík kl. 20.00 Blak 1. deild karla HSK-ÍS..Laugaiv. kl. 20.45 með Grindavík JÓN Páll Haraldsson körfuknattleiksmaðu.-- inn ungi hjá Grindavík, er hættur að ieika með liðinu. Jón Páll, sem er aðeins 19 ára, iék mjög vel á síðasta keppnistímabili og var þá valinn í íslenska landsliðshópinn. Jón Páll stundar nám í ijölbrautarskóla Suður- nesja og ætlar að einbeila sér að náminu í vetur. Jón Páll. HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD Héðinn í bann 10. Vestur-Þýskaland............566.75 11. Kúba........................564.05 12. Frakkland...................561.25 13. Bretland.................. 557.30 14. Norður Kórea................557.25 Stigahæstu einstaklingarnir eftir liða- keppnina eru eftirtaldir. Þess má geta að 36 stigahæstu (þó mest þrír frá hveiju landi) komast í úi*slit einstaklingskeppninn- ar: Stig l.IgorKorobtsjínsky, Sovétríkjunuml 17.80 2. Viadímír Artemov, Sovétríkjunum. 117.65 3. LiChunyang, Kína...............117.15 4. Valentín Mogilny, Sovétrikjunum..ll7.10 5. Andreas Weeker, A-Þýskalandi...117.00 6. Vítaly Marínítsj, ..Sovétríkjunum ..116.95 7. Sven Tippelt, Austur-Þýskalandi... 116.85 8. Valery Belenkíy, Sovétríkjunum.... 116.65 9. Sylvio Kroll, Austur-Þýskalandi ....116.45 10. Li Jing, Kína...............116.15 11. Toshiharu Sato, Japan........H6.05 12. GyulaTakacs, Ungveijalandi..115.95 13. Vladímír Novíkov, Sovétríkj.115.90 14. Marius Gherman, Rúmeníu.....115.65 Knattspyrna England, 2. deild í gærkvöldi: Bamsley-Sheffield United............1:2 Hull-Oldham.........................0:0 Ply mouth-Leicester............... 3:1 Portsmouth-Leeds....................3:3 Stoke-WestBromwich Albion...........2:1 Swindon-Oxford......................3:0 Watford-Boumemouth..................2:2 Wolves-Port Vale....................2:0 HÉÐINN Gilsson, FH, var úr- skurðaður í eins leiks bann í 1. deild karla á fundi aganefnd- ar HSÍ í gær. Bannið tekur gildi á morgun, fimmtudag, og því má Héðinn leika með FH í kvöld gegn KR, en verður í banni gegn KA í næstu umferð. Ævar Sigurðsson í 1. flokki KR, fékk einnig eins leiks bann, en átta mál voru tekin fyrir. Héðni hefur verið vikið af velli í síðustu tveimur leikjum FH og er með sex refsistig. Ævar fékk hins vegar átta refsistig vegna brottvikningar í 1. flokks leik Gróttu og KR, þar sem rauða spjald- ið var fímm sinnum á lofti. Dómarar gefa refsistig fyrir rauð spjöld, allt frá einu upp í átta, eftir vægi brotanna. Eitt refsistig er fyr- ir þrjár brottvísanir. Ef leikmaður fær rautt spjald vegna óíþrótta- mannlegrar framkomu, gróf leik- brot eða grófan leik getur hann fengið tvö til fimm refsistig. Eins getur dómari gefið leikmanni átta refsistig fyrir ítrekuð brot eða of- beldi utan vallar. Leikmenn byija hvert tímabil á núlli, þ.e.a.s. refsistig leikmanna færast ekki á milli keppnistímabila. Fimm refsistig þýða eins leiks bann. 10 refsistig þriggja leikja bann. 15 refsistig sex leikja bann og 20 refsi- stig 10 leikja bann. Þó svo að leikmaður taki út leik- bann eftir fímm refsistig er hann enn með þau á sér í næsta leik og getur þannig bætt við sig refsistig- um. Tökum sem dæmi. Leikmaður tekur út leikbann eftir fimm refsi- stig. Hann bætir síðan við sig fimm refsistigum og fær þá þriggja leikja bann. 10 refsistig til viðbótar og 10 leikja bann! Aganefnd HSÍ kemur saman á þriðjudögum. Leikbönn taka síðan gildi á hádegi næsta fímmtudag eftir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.