Morgunblaðið - 18.10.1989, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.10.1989, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1989 Ást er... .. . að kjósa hana „konu ársins“. TM Reg. U.S. Pat Ott.—all rights reserved © 1989 Los Angeles Times Syndicate Guð má vita hvort það sé hugmyndin að við verðum tvíburar allt lífið? Með morgnnkaffinu HÖGNI HREKKVÍSI Er lögreglan til að drepa flugnr? Til Velvakanda. Yfirieitt heyrir maður og les um ódæðisverk lögreglumanna erlend- is. Við erum sjaldan vön því að lögreglan hér á landi gangi um í æðiskasti og myrði menn eða flug- ur samkvæmt skipun stjórnvalda. Undantekning á þessari reglu átti sér þó stað 21. september sl. hér í Reykjavík. En þá var einhver pirraður, firrtur, umburðarlítill og heimsvaldasinnaður íbúi á Grens- ásveginum svo illa haldinn af nærveru smáflugu nokkurrar í íbúð sinni (í heilaga og frátekna „plássinu hans“ í heimi hér) að hann kallaði öryggislögreglu ríkis- ins til sínTil að bana þessari blás- aklausu fiskiflugu sem var svo óheppin að hafa flækst inn í þessa lífvana en banvænu og heimsvald- asinnuðu íbúð. Fyrir hönd allra fiskiflugna heimsins leyfi ég mér að mótmæla þessu siðleysi og harðræði lögregl- unnar harðlega. Jafnframt skora ég á allar þjóðir heims að setja ákvæði í stjórnarskrár landa sinna sem kveða á Um fijálsa yfirferð flugna, köngulóa, járnsmiða og annarra svipaðra skriðdýra um hin svokölluðu fráteknu svæði, (tæp- lega þó skriðdýra af okkar teg- und, — þótt yfirtroðfull samfélög séu til af þeim?), þ.e. íbúðir og annað „húsnæði" okkar mann- anna. Sem reyndar er tóm lög- leysa að sé á nokkurn hátt frátek- ið fyrir hina yfirmáta freku og heimsvaldasinnuðu spendýrateg- und Homo Sapiens. Ég hef a.m.k. ekki rekist á neitt eintak þessa Homo Sapiens ennþá sem hefur bréf upp 'á það frá skapara þessa heims að hann eigi nokkurt svæði yfirleitt frátekið handa sér. Ef svo er þá gefi sá hinn sami sig fram og sýni vottorð sín hið fyrsta og mun dæmdur verða hér sem á efsta degi af pappírum sínum meðal annars. Það myndu margir vilja fá að líta á þau bréf. Óþolandi með öllu er að lögregl- unni sé sigað á svona stálheiðar- lega og bráðnauðsynlega gesti Lögreglan: Áreitinni fiskiflugu var banað LÖGREGLAN í Reykjavík var I kölluð að húsi á Grensásvegi um klukkan sex að morgni síðastliðins fdstudags, þar sem húsráðandi þar hafði kvartað undan áreitni fiskiflugu. Svo rammt kvað að áreitni flugunnar, að húsráðandi sá I enga leið aðra út úr ógöngunum en kalla á lögreglu. Þegar lög- reglan kom á staðinn dugðu engin rök á fluguna og endaði málið svo að lögreglan banaði henni. Hún var fjarlægð og hús- ráðandinn hefur vonandi getað fest blund, laus við áreitnina. fyrir lífkeðjuna hér á jörðu. Maður bíður bara eftir því með sama gerræðisáframhaldi að varnarlið- inu verði beitt á þessa vel inn- rættu og blásaklausu ferðalanga. A.m.k. gerir heilabú þeirra það að verkum að þau geta ekki beitt öðru eins svindli og svínaríi og við hugsandi mennirnir gerum flesta daga. Við hefðum örugglega gott af því að umgangast svona saklaust lið meir en við flest gerum í dag. Svo er fyrir að þakka hinu nýja og gerilsneydda „húsnæði" okkar nú á dögum að alltof lítill sam- gangur er við þessa gesti okkar og fyrrum fasta heimilisvini for- feðra okkar öldum saman. Því mótmælum við þessu harð- ræði, þessári kúgun og þessum ofsóknum á skjólstæðinga okkar um gervalla veröld. Annars munu flugur allra landa sameinast og taka til sinna ráða og þá verður voðinn vís og lítið pláss fyrir okk- ur lengur í paradís. Magnús H. Skarphéðinsson Vantar beygjuljós S.S. hringdi: „Ég tel að ljósin á Miklatorgi skapi mikla hættu þar sem eng- in beygjuljós eru t.d. fyrir þá sem ætla niður Snorrabraut. Umferðin er mikil um Miklu- brautina allan daginn og venju- lega ná aðeins tveir bílar að komast beygjuna áður en rauða ljósið kviknar. Fyrir bragðið eru menn að troðast áfram á rauðu ljósi og skapar þetta mikla hættur. Þarna ætti að setja upp beygjuljós sem allra fyrst.“ Tjaldvagn Brúnn Combi camp tjald- vagn með viðlegubúnaði var tekinn fyrir nokkru við Einholt 12 á Akureyri. Ef einhver veit um vagninn vinsamlegast hringið í Baldvin í síma 91- 652124. Fundarlaun, 30 þús- und kr. Armband Gullarmband tapaðist 16. september á leið frá Laugás- vegi 77 að Hótel Holt eða það- an á leið vestur í Sörlaskjól. Armbandið er af Bismarkgerð. Finnandi er vinsamlegast beð- inn að hringja í síma 74140. Fundarlaun. Úr Kvenúr tapaðist við Lang- holtsveg eða Áifheima hinn 9. október. Finnandi er vinsam- legast beðinn að hringja í sím 82026. Lyklar Bíllyklar með Heklumerki töpuðust á golfvellinum á Korp- úlfsstöðum. Finnandi er vin- samlegast beðinn að hringja í síma 32377. Víkverji skrifar Víkvetji hefur velt því fyrir sér, þegar hann ekur um þjóðvegi landsins, hvei-s vegna ekki séu settar skýrari viðvaranir við þröngar brýr. Er algengt að slys verði með þeim hætti, að bílar sem koma úr gagn- stæðri átt reyni að troðast inn á brýr, sem eru svo þröngar, að aðeins einn kemst þar yfir í einu. Hættumerki á íslenskum vegum eni ekki nógu mörg enn sem komið er. Eftir að bundið slitlag hefur verið lagt á þá, verður vafalaust hafíst handa við að bæta úr þessu. Til marks um skynsamlegar ráðstafanir til að minnka slys /eru vegriðin, sem sett hafa verið upp í Hvalfirði. Munu þau áreiðanlega auka öiyggiskennd þeirra, sem um þann veg fara. Hitt er að sjálfsögðu áhyggjuefni ef þau leiða til þess að skaflar myndist á vegum, eins og fram kom hér í blað- inu. x x x Nýlega heyrði Víkveiji reyndan skólamann skýra frá því, þegar rætt var um, hvort kunnáttu í staf- setningu hefði hrakað, að hann hefði lagt 25 ára gamalt próf í stafsetn- ingu fyrir nemendur nú á dögum og hefðu þeir jafnvel staðið sig betur en jafnaldrar þeirra fyrir aldaríjórð- ungi. Fyrir utan góða kennslu í skóla er besta leiðin til að læra stafsetn- ingu að lesa góðan texta og tileinka sér það, sem hann hefur að bjóða. Textun í sjónvarpi hefur áreiðanlega flýtt fyrir því, að böm læri að lesa og jafnvel einnig að þau læri rétta stafsetningu. Er sem betur Jer fátítt, að þar séu meinlegar stafsetningar- eða málvillur. Börn átta sig ekki á þýðingai-villum, sem stundum koma fyrir í sjónvaipi eins og annars stað- ar. Almennt er prófarkalestur á þýdd- um sjónvarpstexta góður. Hið sama verður því miður ekki sagt um alla þá texta, sem við gest- um kvikmyndahúsanna blasa. Af þeim vettvangi geta menn hæglega komið með brenglaðar hugmyndir um rithátt og stafsetningu. Þessu til staðfestingar vill Víkveiji nefna vin- sæla mynd, sem sýnd er í Há- skólabíói um þessar mundir og segir frá ævintýmm Indiana Jones, sem leggur stund á fornleifafræði og lend: ir í hinum rriestu mannraunum. í textanum með myndinni er fræði- grein Inda alltaf rituð þannig forn- leyfafræði. Fer ekki vel á því, að slík ritvilla sé höfð fyrir öllum þeim mikla fjölda ungmenna sem horfir á þessa mynd í kvikmyndahúsi sjálfs Háskól- ans! xxx Líklega hefur engum dottið í hug að kanna hlustun á útvarp á meðan á verkfalli rafiðnaðarmanna stóð. Hefði það verið gert gætu menn áttað sig á því betur en ella, hvort grandvöllur sé fyrir stöð, sem flytur klassíska tónlist eða annars konar tónlist en glymur í eyram manna á þeim rásum, þar sem lítt er vandað til tónlistarvals. Víkveiji heyrði fleiri en einn tala um það á meðan á verkfallinu stóð, hve þeir fögnuðu aukinni klassískri tónlist í ríkisútvarpinu. Er tvímæla- laust orðið tímabært fyrir forráða- menn þess að endunneta dagskrár- stefnu með það sjónarmið í huga að auka enn veg klassískrar tónlistar á þeim tímum, þegar helst er hlustað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.