Morgunblaðið - 18.10.1989, Side 18

Morgunblaðið - 18.10.1989, Side 18
í XHM CÍKIAJ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1'8. OKTOBER 1989 GrundarQ ör ður: Glæsilegt íþrótta- hús á Grundarfírði Grundarfirði. Hátíðarstemmning ríkti á Grundarfírði þegar nýtt og glæsilegt íþróttahús var vígt og formlega tekið í notkun. Hátíðarhöldin hófust með skrúð- göngu Ungmennafélags Grundar- fjarðar í gegnum bæinn og að hinu nýja íþróttahúsi. Þar hljómaði hljóð- færaieikur tónlistarskólabarna und- ir stjórn Friðriks V. Stefánssonar meðan gestir gengu í húsið. Meðal gesta voru menntamálaráðherra, Svavar Gestsson, þingmenn kjör- dæmisins og sveitarstjórnarmenn héraðsins. Oddviti hreppsnefndar, Kristján Guðmundsson, setti hátíð- ina og opnaði húsið formlega. Kirkjukór Setbergssóknar söng og séra Jón Þorsteinsson blessaði hús- ið. Að því búnu rakti sveitarstjóri, Ólafur Hilmar Sverrisson, bygging- arsögu hússins. Því næst voru ávörp gesta og fyrstur ávarpaði samkom- una Svavar Gestsson, menntamála- ráðherra. Skólastjóra, Gunnari Kristjánssyni, var síðan formlega afhent húsið til afnota fyrir grunn- skólann og setti hann skólann við þetta tækifæri. Formaður nemendaráðs, Þórar- inn Kristjánsson, ávarpaði gesti en að því loknu tóku nemendur skólans húsið í notkun undir stjórn Péturs Guðráðs Péturssonar, íþróttakenn- ara. Þegar oddviti hafði slitið hátíð- inni var öllum hátiðargestum boðið til kaffisamsætis í boði hrepps- nefndar, sem Foreldra- og kennara- félag skólans sá um. Nýja íþróttahúsið er allt hið glæsilegasta, salur er rúmir 400 fm auk áhorfendapalla sem rúma 150 manns í sæti auk stæða. Völlur hússins er eini löglegi_ körfubolta- völlur á Snæfellsnesi. Áætlað er að heildarbyggingakostnaður verði um 65 milljónir króna. - Ragnheiður Mikið fjölmenni var við vígslu íþróttahússins á Grundarfirði. Morgunblaðið/Ragnheiður Gunnarsdóttir Svavar Gestsson menntamálaráðherra: Staðið verður við hækkun námslána en óvíst hvenær Mest skerðing hjá stóru fjárbúunum SAMKVÆMT reglugerð landbúnaðarráðuneytisins verður heildarfúll- virðisréttur til sauðfjárframleiðslu á verðlagsárinu 1990-1991 skertur um 1,8% af fullvirðisrétti yfirstandandi verðlagsárs. Er það í samræmi við nýgert samkomulag bænda og stjórnvalda um skerðingu fúllvirðis- réttar, meðal annars vegna úthlutunar fullvirðisréttar utan ramma gildandi búvörusamninga. Skerðingin verður mismunandi eftir bú- stærð, og getur orðið allt að 5% af fullvirðisrétti búa með meira en 880 ærgildisafurðir. SAMSTARFSNEFND námsmannahreyfinganna hefúr sent mennta- málaráðherra bréf og lýst undrun sinni og vonbrigðum með hlut Lánasjóðs íslenskra námsmanna í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Ráðherra er inntur svara við því, hvort hann hyggist standa við samkomufag um leiðréttingu námslána, sem meðal annars felur í sér 6,7% hækkun lána 1. janúar næstkomandi. Svavar Gestsson svarað bréfinu og segir þar að staðið verði við loforðið, þótt ekki sé enn hægt að tryggja tímasetningu hækkunarinnar. Framangreindri 1,8% skerðingu á heildarfullvirðisrétti verður mætt með því að 0,3% verða tekin út með skiptum á fullvirðisrétti til sauðljár- framleiðslu fyrir fullvirðisrétt til mjólkurframleiðslu, og 1,5% koma til skerðingar á einstökum búmarks- svæðum í hlutfalli við heildarfullvirð- isrétt hvers svæðis til sauðfjárfram- Bjarnaborg og írönsku húsin í þriðjudagsblaði Morgunblaðsins segir í grein eftir Rúnar Sig. Birgis- son um Bjarnaborg, að efni hússins hafi verið sótt víða að og „má nefna að bæði endahús Bjarnaborgar voru fengin úr frönsku húsunum svo- nefndu, sem stóðu á Austurvelli 12 og byggð voru um 1830“. Ártalið er ekki rétt. Vegna bókar um frönsku skútu- sjómennina, sem er að koma út, hefi ég kannað heimildir og hefi m.a. bréf frá flotamálaráðuneytinu franska til verslunarráðsins í Dun- kerque 10. ágúst 1869. Þar kemur fram að Frakkar komu sér upp að- stöðu í tveiirmr timburhúsum, sem flutt voru til íslands sitt árið hvort, árin 1869 og 1870, til að hýsa hina mörgu strandmenn þeirra, meðan þeir biðu skipsferðar heim. Voru þau sett niður við Austurvöll og stóðu þar til 1902, þegar Franski spítalinn var reistur við Lindargötu. Þá voru þau flutt og sett niður í vinkil niður úndir fjöru þar fyrir neðan og tróðu frönsku fiskimennirnir stíginn upp að spítalanum á háværum trékloss- um sínum til að borða í borðstofu Franska spítalans og þar höfðu þeir aðra þjónustu og var neðsti hluti götunnar nefndur Frakkastígur. Þarna stóðu húsin meðan Frakkar ráku Franska spítalann og voru hér mest. En farið var að draga úr fiskveið- um þeirra í og eftir fyrra stríð, og kunna viðir þá að hafa farið í Bjarna- borgina. Ég hefi talað við franskan sjómann sem var í þeim 1914. Elín Pálmadóttir leiðslu eins og hann er á yfirstand- andi verðlagsári, að meðtöldum þeim fullvirðisrétti sem bundinn er með samningum. Skerðing á fullvirðis- rétti einstakra framleiðenda verður með þeim hætti að á búum þar sem fullvirðisréttur er 440 ærgildisafurðir eða minna verður að hámarki 1,5% skerðing á framleiðslurétti, 2% á búum með 440-550 ærgildi, 3% á búum með 550-660 ærgildi, 4% á búum með 660-880 ærgildi, og á búum með meira en 880 ærgildisaf- urðir verður skerðingin að hámarki 5%. Þá verður búnaðarsamböndum heimilt að skerða allt að 5% af full- virðisrétti þeirra framleiðenda sem byggja afkomu sína að meirihluta á öðru en framleiðslu mjólkur og kindakjöts, annarra en þeirra sem hafa ráðstafað fullvirðisrétti sínum með samninga við opinbera aðila, og er það óháð bústærð. „í febrúar síðastliðnum náðist samkomulag milli námsmanna og fulltrúa ríkisvaldsins um 20,1% hækkun námslána í þremur áföng- um. Síðasti áfangi þessarar hækk- unar, 6,7%, á að öllu óbreyttu að koma til framkvæmda fyrsta janúar næstkomandi," segir í bréfi nefnd- arinnar. Þar segir ennfremur að skilja megi greinargerð með fjár- lagafrumvarpinu á þann veg, að skerða eigi námslánin frá og með næsta skólaári. Ráðherra er spurð- ur hvort hann hyggist standa við samkomulagið og hvernig eigi að fjármagna hækkunina, ef flárlaga- frumvarpið geri ekki ráð fyrir henni, ennfremur hvort skerða eigi námslán að einhveiju leyti. í svari ráðherra kemur fram að staðið verði við hækkunina, en hins vegar sé ekki enn hægt að tryggja tímasetningu hennar. „Á þessu ári höfum við hækkað framfærslu- grunn námslánanna tvisvar sinnum umfram verðlagsbreytingar, fyrst 1. mars og síðan 1. september. Það hefur verið ætlun okkar að ná fram hækkun á framfærslugrunninum á árinu 1990. Það er hins vegar alveg augljóst mál að við náum því ekki nema með sérstökum ráðstöfun- um,“ sagði Svavar. Hann sagði tvennt koma til greina í þeim efn- um, annars vegar að breyta öðrum greiðslum sjóðsins, „taka á rekstr- arkostnaði sjóðsins, skólagjöldum, ferðastyrkjum og þvíumlíku. Hin leiðin er sú að breyta skuldum Lánasjóðsins í lán til lengri tíma.“ Fjárveiting ríkisins til LÍN er áætluð 2.215 milljónir króna á næsta ári, en samkvæmt fjárlögum verður hún 1.617 milljónir á þessu ári. LÍN á að greiða 1.110 milljónir í afborganir og vexti á næsta ári, en það er ríflega ljórðungur af heildarútgjöldum sjóðsins, sem eru áætluð 4.152 milljónir króna í fjár- lagafrumvarpinu, þar af 2.871 milljón í lánveitingar. Á þessu ári eru lánveitingar 1.995 milljónir, samkvæmt fjárlögum. Hækkunin er 876 milljónir, eða 44%. Starfsfólki skattstofa fjölgar um tuttugu og sjö STARFSFÓLKI á skattstofum Ijölgar um 27 á næsta ári. 16 þessara staða eru í tengslum við virðisaukaskatt, sem tekinn verður upp um áramótin, en 11 vegna staðgreiðslukerfis skatta. Bein hækkun á launa- lið skattstofanna vegna þessarar Ijölgunar verður um 43 milljónir á næsta ári. Þetta kemur fram í Ijárlagafrum- varpi ríkisstjórnarinnar. Þar segir, að heildarframlag til skattstofanna hækki um 39%, úr rúmlega 346 milljónum í rúmar 96 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að fjölgað verði um 6,5 stöðugildi á Skattstof- unni í Reykjavík, um tvær stöður á Skattstofu Vestíjarða, eina stöðu á Skattstofu Norðurlands vestra. fjórar stöður á skattstöfu Norður- lands eystra, tvær stöður á skatt- stofu Austurlands, fjórar á Skatt- stofu Suðurlands, hálfa stöðu á Skattstofu Vestmannaeyja og sjö stöður á skattstofu Reykjaness. Auk þess er tímabundið bætt við hálfri stöðu á skattstofu Vestur- lands. PHILIPS FRYSTISKÁPAR OG KISTUR FALLEG GÆÐAVARA AFB716 Rúmmál 140 lítrar. Þrjár hillur með loki að framan og frystibúnaði. Ein skulfa. Mál: Breidd 55, Hæð 85, Dýpt 60 cm. AFB 717 Rúmmál 220 lítrar. Fjórar hillur með loki að framan og frysti- búnaði. Ein skúffá. Sérstök hraðfrysting. Mál: Breidd 59, Hæð 120, Dýpt 60 cm. AFB718 Rúmmál 290 lítrar. Fjórar hillur með loki að framan og frystibúnaði. Ein skúffa. Sérstök hraöfrysting. Mál: Breidd 59, Hæð 140, Dýpt 60 cm. Rúmmál 330 lítrar. Sex hillur með loki að framan og frystibúnaði. Ein skúffa. Hjól til að færa skápinn. Mál: Breidd 59, Hæð 160, Dýpt 60 cm.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.