Morgunblaðið - 18.10.1989, Síða 44
SJÓVÁÖOALMENNAR
FÉLAG FOIKSINS
tvgmifrtjifeffr
SJOÐSBREF 2
Reglulegar verðtryggðar
tekjur af sparifénu
VIB
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTOBER 1989
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Félagsvísindastoíhun:
4,7% reglu-
lega í kirkju
^ 4,7% þjóðarinnar fara reglulega
til kirkju, samkvæmt niðurstöðum
könnunar, sem Félagsvísinda-
stofnun hefur unnið fyrir Biskups-
stofu.
Eldri konur virðast fara oftar til
kirkju en karlar. 5,7% kvenna sögð-
ust sækja kirkju reglulega, en 3,6%
karla. Ef kirkjusókn er flokkuð eftir
starfsstéttum, eru það sjómenn og
bændur af Iandsbyggðinni sem oftast
fara til messu. Mikill meirihluti sva-
renda, 71,3%, sögðust sjaldan fara
til kirkju. 17,9% sögðust aldrei fara,
en 5,9% sögðust oft fara til kirkju.
Þegar spurt var um hvort viðkom-
andi gæti hugsað sér að fara oftar
i kirkju svöruðu 70,9% því játandi,
en 27,1% gátu ekki hugsað sér að
fara oftar til kirkju.
Könnunin var gerð dagana 26. til
28. febrúar sl. og var leitað til eitt
þúsund manna úrtaks. Svör fengust
frá 731 og nam nettósvörun 76,2%.
Samræmi var á milli skiptingar úr-
taksjns og þjóðarinnar allrar eftir
aldri, kyni og búsetu og má því ætla
að úrtakið endurspegli þjóðina, 15
til 75 ára, allvel.
Sjá frétt um setningu Kirkju-
þings bls. 4-5.
Tvær af íslensku tóbakspontunum.
Morgunblaðið/RAX
„ Verkstæðið“ íljósum logum
Myndatöku á kvikmyndinni „Verkstæðið", sem byggð er á leikritinu „Bílaverkstæði Badda“ eftir
Ólaf Hauk Símonarson, er nú að mestu lokið, en í gær var lokaatriði myndarinnar kvikmyndað á
bænum Kalmanstjörn á Reykjanesi. Taka myndarinnar hefur að mestu leyti farið fram þar, en
einnig' hefur verið kvikmyndað á Korpúlfsstöðum. Á myndinni sést hvar Vverkstæðið“ stendur í
ljósum logum, en um 5 tonn af gasi þurfti í eldsvoðann. Að sögn Lárusar Ymis Óskarssonar, leik-
stjóra myndarinnar, er gert ráð fyrir að vinnslu hennar ljúki í vor, en frumsýning verður væntan-
lega næsta haust.
Aðsóknar-
met á Erró
AÐSÓKNARMET á listsýningu
hér á landi hefúr verið slegið á
Kjarvalsstöðum, en á mánudágs-
kvöld höfðu 25.300 manns séð
sýninguna á verkum Errós sem
þar hefúr staðið yfir að undan-
förnu.
Svo skemmtilega vill til að á
Errósýninguna árið 1978 komu
23.000 manns og er það sú sýning
sem mesta a^sókn hefur fengið hér
á landi hingað til, nema ef vera
skyldi Kjarvalssýningin í Lista-
mannaskálanum árið 1945, því
talið er að hana hafi séð á bilinu
22.000 til 24.000 manns. Þar á
eftir kemur Picassosýningin á
Kjarvalsstöðum fyrir nokkrum
árum en 18.000 manns komu á
hana.
Stolið úr vös-
um yfírhafna
NOKKUÐ hefúr borið á því að
undanförnu í Reykjavík að stolið
sé peningum og öðrum verðmæt-
um úr vösum yfirhafna á biðstof-
um og í anddyrum ýmissa fyrir-
tækja og stofnana.
Að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns,
hefur þjófnuðum af þessu tagi fjölg--
að. „Það er vert að brýna fyrir fólki
að skilja ekki verðmæti eftir í yfir-
höfnum, þar sem fólk á greiðan að-
gang að. Oft á tíðum er stolið frá
starfsmönnum fyrirtækja og stofn-
ana og forráðamenn þeirra ættu að
sjá til þess að starfsmennirnir geti
geymt verðmæti í öruggum hirslum."
Bændur fá 45% frumgreiðslu
sauðfjárinnleggs í stað 7 5%
Ríkissjóður skuldar tæplega 500 milljónir króna í útflutningsbætur
FRAMLEIÐSLURÁÐ landbúnaðarins hefur ákveðið að frumgreiðslur
til bænda fyrir haustinnlegg 1989 verði 45% af endanlegu uppgjöri,
en hingað til hefur verið miðað við að 15. október væru greidd 75%
af fullnaðargreiðslu. Að sögn Gísla Karlssonar, framkva-mdasljóra
Framleiðsluráðs, er ástæðan fyrir þessari ákvörðun sú að greiðslur
afurðalána frá bönkum til sláturleyfisliafa hafa borist seint, en bank-
arnir hafa nú einungis lánað um 44% af óniðurgreiddu heildsölu-
verði. Ástæða þess er meðal annars sú að ríkið skuldar á bilinu
400-500 milljónir króna í útflutningsbætur vegna framleiðslu siðasta
árs. Einnig munu bankarnir hafa gert kröfu um fullnaðaruppgjör
afurðalána vegna framleiðslunnar í fyrra, en það hefur ekki verið
mögulegl þar sem ennþá eru óseld um 2.000 tonn af þeirri framleiðslu.
Kaupmannahöfn:
Islenskar
tóbakspont-
ur á uppboði
FJÓRAR íslenskar neftóbakspont-
ur verða á listmunauppboði í
Kaupmannahöfn á miðvikudag og
fimmtudag í næstu viku. Ein
þeirra er samkvæmt uppboðsskrá
sú elsta sem til er, frá um 1750.
Hún er í skránni verðlögð á 28
þúsund danskar krónur, eða um
240 þúsund íslenskar krónur.
Tóbaksponturnarerufrá um 1750,
1780,1825 og 1850. Ilin elsta þeirra
er úr slípaðri búrhvalstönn, skreytt
silfri. Það er jafnframt stærsta pont-
an. Pontan frá um 1780 er einnig
úr slípaðri búrhvalstönn og með silf-
urskreytingu. Verðmæti hennar í
uppboðsskrá er áætlað 18 þúsund
danskar krónur, eða um 100 þúsund
krónur Þriðja pontan, frá um 1825,
er skorin úr tré og skreytingar og
keðja eru úr nýsilfri (blöndu úr nikk-
el, kopar og zinki). Hún er verðlögð
á 6.000 danskar krónur, eða nlmar
30 þúsund íslenskar krónur. Yngsta
pontan á uppboðinu, frá um 1850,
er úr slípuðu og útskornu kýrhorni,
með silfraðri skreytingu. Hún er
^ metin á 9.000 krónur danskar, eða
um 50 þúsund íslenskar.
Gísli sagði að undanfarin ár hefði
verið miðað við að afurðalánin
hefðu skilað sér inn að fullu fyrir
fyrstu greiðsludagsetningu til
bænda, sem er 15. október, og
myndu duga til að greiða þeim 75%
af heildargreiðslu, en samkvæmt
búvörulögunum á að inna loka:
greiðslu af hendi 15. desember. í
fyrra hefðu verið erfiðleikar að upp-
fylla þetta, og vegna þess hve af-
urðalánin hefðu skilað sér seint nú
hefði verið sýnt að ekki þýddi að
setja þetta hlutfall svo hátt núna.
„Það er því reiknað með að slátur-
Ieyfishafar greiði bændum 45%
núna, og greiði þeim síðan eftir því
sem afurðalánin berast. Eg á von
á að þau muni hækka þegar ríkið
hefur staðið skil á útflutningsbótun-
um, og það er ekki annað séð en
að bankarnir muni á endanum lána
sama hlutfall og verið hefur venjan.
Fyrir bændur gæti þetta þýtt
ákveðna greiðsluerfiðleika, þar sem
þeir verða að bíða eftir greiðslum,
en á þó ekki að hafa í för með sér
neitt fjárhagslegt tap fyrir þá þar
sem reiknaðir verða vextir á greiðsl-
urnar.“
Hreiðar Karlsson, formaður
Landssambands sláturleyfishafa,
sagðist álíta að almennt treystu
sláturleyfishafar sér til þess að
greiða bændum á bilinu 38-43%
fyrir haustinnleggið nú í október,
miðað við þau afurðalán sem bank-
amir hafa veitt í sláturtíð, að við-
bættum sölutekjum og frádregnum
áföllnum hluta sláturkostnaðar.
„Menn reikna með því að skuld
ríkisins á útflutningsbótum verði
gerð upp í nóvember, og það muni
þýða rýmri stöðu bankanna, þannig
að þeir treysti sér til þess að greiða
fullt lán, en afurðalán hvíla á öllum
þessum útflutningsbótum. Greiðslu-
hlutfallið til bænda í dag er vissu-
lega minna en gert var ráð fyrir,
en mér finnst ekki skipta minna
máli hvort tekst að fá fulla upphæð
afurðalána í nóvember, og stað-
greiðslulánið síðan í tæka tíð í des-
ember. Þau skil tókust sæmilega í
fyrra, og mikilsvert er að þau tak-
ist ekki lakar nú.“
Breytingar á áfengisneyslu:
„Ö1 og snafs“ í stað-
inn fyrir sterka drykki
HEILDARSALA á víni og sterkum drykkjum fyrstu níu mánuði
þessa árs hefúr dregist saman um 20,61% í lítrum talið miðað
við sama tíma í fyrra. I alkóhóllítrum talið nemur samdrátturinn
17,45%. Á nióti hefur sala á áfengum bjór úr versluuum ÁTVR
frá 1. mars til 30. september verið 5.185.603 lítrar, sem svarar
til 268.901 alkóhóllítra. Þá hefur sala bittera aukist um 74,11%
á milli ára þannig að ætla má að íslendingar séu í auknum mæli
að taka upp danska siðinn „bjór og snafs“.
Heildarsala á víni og sterkum an eða um tæp 28%.
drykkjum nam 1.830.947 lítrum
eða 498.430 alkóhóllítrum fyrstu
níu mánuði þessa árs. Sambæri-
legar tölur fyrir síðasta ár eru
2.306.399 lítrar eða 603.826 alkó-
hóllítrar.
Samdráttur i sölu á hvítvíni er
mestur, 30,89% í alkóhóllítrum
talið. Samdráttur í sölu rauðvín-
stegunda nemur 21,58% og í sölu
á viskíi 21,32%. Sala á vodka
hefur dregist saman um 10,91%.
Þá hefur neysla á íslensku
Brennivíni dregist verulega sam-
ÁTVR telur ekki unnt að draga
ályktanir af áhrifum bjórsölu á
áfengisneyslu fyrr en að nokkrum
mánuðum liðnum.
I tölum þessum er ekki tekið
tillit til þess áfengis eða tóbaks,
sem áhafnir skipa og flugvéla
flytja inn í landið, eða þess magns,
sem ferðamenn taka með sér frá
útlöndum eða kaupa í fríhöfn eða
ÁTVR flytur úr landi eða selur
til fríhafnar á Keflavíkurflugvelli.
Sala léttöls er heldur ekki með-
talin.