Morgunblaðið - 22.10.1989, Síða 6

Morgunblaðið - 22.10.1989, Síða 6
rtpti'JiM 4ii>l*(‘ ]/'n J? (;y«Aif ti jí*íí->í MOKGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER VEGIR HLWDA Helgi Þorláksson leitar hotfinna leiba Oddaverja ur leiðin til forna ekki legið; áin fellur í þröngu glúfri og þarna hef- ur verið ófært. Að fornu var aðalfer- justaður miklu nær sjó, við Sand- hóla þar sem áin er lygn og breið. Þegar að er gætt kemur í ljós að Oddi er á línu sem liggur úr Fljótshlíð yfir Þjórsá við Sandhóla- feiju og síðan yfir Ölfusá á feiju- staðnum í Kaldaðarnesi. Það blasir við að Oddi hefur verið í þjóðbraut svo framarlega sem hægt er að sýna fram á það að þessi leið hafi yfirleitt verið fær. — Og það er það sem mönnum hefur verið hulið. Þeir hafa aðeins litið til nítjándu aldar en þá voru komnar torfærur eins og Oddaflóð og Safamýri milli Odda og Sandhólafeiju. Menn hafa ekki áttað sig á því að þessi leið var fær áður fyrr. Ég reyni að sýna fram á það að þessir farartálmar hafi ekki verið til um 1200. Leiðir lágu öðruvísi áður fyrr. Það gildir ekki hvað síst um Rangárþing." — Hvað varð til þess að þú fórst að hugsa eftir þessum nótum, eða kannski öllu heldur feta þessar slóð- ir? eftir Pél Lúðvík Einarsson ODDAVERJAR VORU valda- mesta ætt landsins um 1200, þeir sátu í Odda á Rangárvöll- um og stjórnuðu Rangárþingi. Lærdómur og menning þreifst í skjóli ættarinnar, til dæmis ólst upp í Odda snillingurinn Snorri Sturluson og hlaut þar menntun og þroska. Nú um stundir virðast fleiri íslendingar þekkja ættarsögu Ewinga eða Carringtona í sápuóperunum Dailas og Dyn- asty. En þeim sem samanburð hafa, er saga Oddaveija mun hugstæðari. Hverjar eru skýr- ingarnar á risi og falli Odda- veija sem valdaættar? Fræði- mönnum ber ekki saman, Helgi Þorláksson sagnfræð- ingur segir í nýútkominni bók sinni Gamlar götur og goða- vald að samgöngur séu lykill til skilnings á veldi ættarinnar og jafiiframt á hinu mikla falli hennar þegar um 1220. Bláttblóð Ætt Oddaveija hófst til vegs og virðingar með Sæmundi presti hin- um fróða sem lést árið 1133. Ekki minnkaði vegur ættarinnar þegar Loftur sonur Sæmundar fékk Þóru dóttur Magnúsar berfætts Noregs- konungs. Héðan í frá rann Odda- veijum blátt blóð í æðum. — En mest hefur mönnum þótt um son þeirra hjóna, Jón (1124-1197). Þor- lákur biskup helgi var að vísu ekki sérlega hrifinn og mælti við Jón: „Þá er miklu óþolanlegra það, er biskupar fá eigi frá þér tekið hór- konur þinar, þær er þú heldur móti öllum landssið." Hér var guðsmað- urinn m.a. að tala um Ragnheiði systur sína. Islendingar hafa litið í gegnum fingur sér með hórdóm Jóns en metið þess mun meir um- mæli hans „Heyra má ég erkibisk- ups boðskap en ráðinn er ég í að halda hann að engu.“ Helgi var inntur eftir, hversu stöndugur þessi höfðingi hafi verið sem treysti sér til að brúka kjaft við kirkjuvaldið? „Jón var ekki aðeins óumdeildur höfðingi Rangæinga heldur nánast ókrýndur konungur landsins. Menn hafa rennt augum til persónuleika og lyndiseinkunnar Jóns til skýring- ar á veldi Oddaveija. En það sem ég legg áherslu á og vil sýna fram á er hvernig Jón og aðrir Oddaveij- ar færðu sér í nyt auknar samgöng- ur og breyttu Odda í miðstöð. Gerðu Rangárþing að einni stjórneiningu. Oddaveijar höfðu pólitískan metnað og vildu ráða öllu héraðinu. Þeir náðu undir sig nokkrum lykil- stöðum, Keldum, Völlum á Landi og Stórólfshvoli. Það var til fjöldi annarra eigulegra jarða en einmitt þessar eru þær sem þeir sækjast eftir vegna þess að þær eru við þjóðbrautir. Eins og flestir íslendingar hafa lært í sögukennslu í skólum • var þróunin á tólftu og þrettándu öld í átt til valdasamruna. — Og ég tel að auknar og bættar samgöngur ráði hér ekki hvað minnstu um. Kirkja og kristnihald efldist; fólk varð að komast til kirkju og aukið föstuhald gerði fiskflutninga frá sjávarsíðunni nauðsynlega. Ekki má heldur gleyma því að skeifur undir hesta fóru að tíðkast, það hefur verið geysileg samgöngubylt- ing. Oddaveijar færðu sér þessa þróun í nyt. Kirkjan í Odda var með almikilvægustu kirkjum og Rangæingar greiddu miklu meira til kirkjunnar heldur en vanalega tíund, t.d. osttoll. Oddaveijar sjálfir hafa tæpast getað torgað ostafjalli því sem hefur orðið árlega til í Odda. Og ég hafna þeirri tilgátu að osturinn hafi verið fluttur úr landi.“ — Hvers vegna í ósköpunum hafði Oddi allar þessar tekjur? „íslenskir bændur hafa löngum verið tregir til að borga skatta og ýmsar álögur nema þeir sjái ein- hvem tilgang eða þykist hljóta end- urgjald fyrir. Bændur ætluðust til þess að fá eitthvað í staðinn, ég reyni að færa fyrir því rök í bókinni að Oddi hafi verið nokkurs kon- ar þjónustu-, stjórn- sýslu- og samgöngu- miðstöð. Það var mikilvægt fyrir höfðingja að vera vel í sveit settir. Geta haft eftirlit og aflað frétta. Þeir vildu líka hafa kaupmenn í vist hjá sér og þá betra að vera í alfaraleið. Og á ófriðartímum var Oddi líka vel í sveit settur. T.d. segir frá því í Njálu að Geir goði hafi haldið til í Odda eftir víg Gunnars frá Hlíðar- enda.“ Horftiar götur — En Oddi, sá staður er ekki í alfaraleið? „Nei, Oddi er ekki í þjóðbraut á okkar tímum. En allir sem fara yfir brúna á Þjórsá hljóta að sjá að þar hef- Mynd/Þorbjörg Höskuldsdóttir Snorri Sturluson með Oddaverja á báðar hendur árið 1222. T.v. Solveig Sæmunds- dóttir, t.h. ekkjan ríka Hallveig Ormsdóttir. „Fyrir allmörgum ámm safnaði ég örnefnum á jörð afa míns, Efra Hvoli, austur í Hvolhreppi. Ég tók eftir því að mikilvægar leiðir höfðu legið um landareignina, m.a. ein sem getið er um í Njálu en menn höfðu ekki áttað sig á, frá Lambey að Velli. Ég hef síðan alltaf haft vakandi áhuga á þessu efni. En ég vaknaði fyrst til vitundar um það að þjóðleið hefði legið um hlaðið á staðnum í Odda, þegar ég fyrir nokkrum árum var að skoða kort sem Björn Gunnlaugsson gerði á fjórða áratug nítjándu aldar. Það sýnir einmitt leið um Hvol og Odda yfir að Sandhólafeiju. Þetta kort var opinberun. Ég fór að kanna hvort þessar upplýsingar fengju staðist hjá Birni. Um það leyti sem Björn teiknaði kortið var þessi leið að verða ófær en mér var ljóst að þarna hefði verið þjóðleið. Maður finnur sjaldnast fornar leiðir þegar maður fer um Rangár- þing því landið er svo umbreytt; jarðvegur fokið burt og ár breytt um farvegi. En athuganir á gömlum skjölum, aðallega frá 18. og 19- öld, og áiit Hreins Haraldssonar jarðfræðings og Guðmundar Ólafs- sonar fornleifafræðings styrkja skoðun mína.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.