Morgunblaðið - 22.10.1989, Blaðsíða 29
MORfiUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 22; OKTÓBER
C 29
máli um hvort nota bæri nagla-
dekk. Sigurður Stefánsson var að
sækja heilsársdekk og kvaðst al-
gjörlega andvígur nagladekkjum í
innanbæjarakstri því nógur væri
saltausturinn. „Ég fer mikið út á
land og það hefur aldrei háð mér
að nota ekki nagladekk,“ sagði Sig-
urður.
Bjarni Arnaldsson var að láta
felga bílinn og skipta yfir á nagla-
dekk. „Ég er á leiðinni norður á
land og við vissar aðstæður eru
nagladekkin nauðsynleg, svo sem í
hálku," sagði hann. Verkstæðis-
menn sögðu að ólöglegt væri að
nota nagladekk eftir 1. maí, en
sumir vanræktu þó að setja sumar-
dekkinn á þar til í endaðan maí og
byijun júní. Bjarni sagði að slíkt
henti sig aldrei, enda vildi hann
ekki slíta nöglunum að óþörfu.
Nauðsynleg í örfáa daga
Bryndís Bender var ásamt dóttur
sinni, Helgu Guðmundsdóttur, á
Sigurður Stefánsson
ir naglana. Það er fáránlegt að
leggja að jöfnu malbik og
mánnslíf."
Birgir sagði að það væri ábyrgð-
arhiuti fyrir lögreglu og hjálpar-
sveitir að ýta naglalausum bílum,
sem ekki komast áfram af eigin
rammleik, út í umferðina. Slíkir
bílar væru í raun vanbúin ökutæki.
Saltausturinn nægir
Viðskiptavinirnir voru ekki á einu
Helga Guð-
mundsdóttir og
Bryndís Bender
verkstæðinu til að láta setja nagla
á vetrardekkin. „Eg er ekki á móti
nagladekkjum og hef alltaf notað
þau. Það er öruggara að nota nagl-
ana en samt myndi ég ekki kaupa
þá ef ég ætti þá ekki fyrir,“ sagði
hún. Bryndís var á nýjum bíl og
kvaðst ekki vilja taka þá áhættu
að láta taka naglana af.
Arnar B. Vignisson var að fá sér
vetrardekk en kvaðst ekki vilja sjá
naglana. „Það eru ekki nema örfáir
dagar á ári sem naglarnir eru naúð-
synlegir, yfirleitt einn til tveir og í
mesta lagi þrír til fjórir dagar eins
og fyrra. Aðra daga er nóg salt á
götunum. Naglarnir sjálfir eru dýr-
ir og svo slíta þeir þar að auki
malbikinu. Þeir mynda rásir í gö-
turnar, sem síðan fyllast af vatni
og fijósa - og þannig skapast hálka
af nöglunum,“ sagði Arnar. Hann
bætti við að mikilvægast væri að
ökumenn höguðu akstrinum eftir
aðstæðum og það vildi gleymast of
oft.
Bókaþing o.g bókaskattur
Til Velvakanda.
„Skipta bækur máli fyrir framtíð
íslenskrar tungu?“ Svo spurði bóka-
útgefandi á bókaþingi. Jú, bækur
skipta miklu máli sögðu útgefendur
og menntamálaráðherra tók undir
það. En svo ætlar hann og meðráð-
herrar að leggja 25% skatt á ís-
lenskar bækur. Bókaskattur hefur
í mörg ár verið stjórnvöldum til
skammar og nú skal skatturinn
hækka. Á sama tíma er boðað
„átak“ um íslenskt mál og margir
kallaðir. Bibba á Brávöllum meðal
útvaldra í málræktarátakið og skal
ekki lasta það. - Margur hefur
lært frambærilegt mál íslenskt af
bókum. En bækur hækka í verði
ár frá ári eins og annað í vaxandi
dýrtíð. 26% skatturinn hlýtur að
draga verulega úr bókakaupum.
Þetta er menningarskattur sem
ríkisstjórn „bókaþjóðarinnar"
stendur að. „Og ég sem hélt að
enginn væri verri en Thatcher,"
sagði sá enski. Það var og.
Menntamálaráðherrann kom með
ráðið á nefndu þingi, búa til einn
sjóðinn enn, með nýjum skatti, og
láta hann píra einhveijum pening-
um í „metnaðarfull verkefni“. Og
svo mætti halda „Ár bókarinnar",
kannski ár hvert?
Tollheimtumennirnir í rentu-
kammerinu mættu fara að dæmi
annars tollheimtumanns-sem barði
sér á brjóst og bað guð sinn að
fyrirgefa sér syndirnar og fór rétt-
lættur heim — og vera ekki verri
en Thatcher.
Haraldur Guðnason
Mótmæli lokun bílastæðis
Til Velvakanda.
Ég vil mótmæla lokun á bíla-
stæði almennings við Frímúrara-
húsið/Skúlagötu (áður Rauðarár-
plan). Ég hef búið við Skúlagötu
gegnt planinu frá því að húsið
Rauðará stóð þar. Þessi bílastæði
hafa verið notuð af íbúum Skúla-
götu og Rauðarárstígs sl. 40 ár en
nú standa þau lokuð og auð fyrir
utan örfáa bíla starfsmanna borgar-
innar sem starfa í Borgartúni og
við Skúlatún. Það er von mín að
þessi stæði verði opnuð strax aftur
svo bíleigendur þurfi ekki að leggja
undir sig leikvöllinn sem er milli
Laugavegs og Skúlagötu, en hann
er nú þegar þétt skipaður bílum og
óhæfur sem leikvöllur fyrir börn.
Það hefur verið hálfgrátlegt að
horfa uppá að eldra fólk við Skúla--
götu og Rauðarárstíg þori vart að
hreyfa bíla sína af ótta við að fá
ekki stæði er komið er til baka.
Jón Friðrik Möller
JAZZVIÐBURÐUR
Finnski píanósnillingurinn
Jukka Linkola
ásamt
10 manna stórsveit
í Heita pottinum í Duus-húsi í kvöld kl.
21.30.
Stórsveitina skipa:
Stefán S. Stefánsson
Gunnlaugur Briem
Bjarni Sveinbjörnsson
Össur Geirsson
Sigurður FloSason
Sæbjörn Jónsson
Reynir Sigurðsson
Kjartan Valdimarsson
Martin van der Falk
Björn Thoroddsen
saxófónn
trommur
bassi
básúna
saxófónn
trompet
víbrafónn
hljómborð
slagverk
gítar
Jukka Linkola er einn virtasti tónlistarmaður Finna
í dag og er staddur hér á landi á vegum NORDJAZZ.
Einstakt tækifæri til að sjá og heyra frábæran listamann,
ásamt okkar fremstu djassleikurum.
Heiti potturinn
Nýrogbetri veislusalur
\(\f^a—
Meiriháttar mótstaður
Borgartúni 18
Afmœlisveislur
Árshátíðir
Blaðamannafundir
Brúðkaupsveislur
Dansleikir
Danssýningar
Erfidrykkjur
Fermingarveislur
Fundir
Grimudansleikir
Jólaböll
Matarboð
Ráðstefnur
Skákmót
Sumarfagnaðir
Vetrarfagnaðir
Þorrablót
Ættarmót
Eða bara stutt og laggott:
Allt frá A — Ö
Fullkomið hljóðkerfi sem hentar
bœði hljómsveitum, diskóteki sem
ráðstefnum.
EITT SÍMTAL - VEISLAN í HÖFN.
MANNÞING,
símar 686880 og 678967.