Morgunblaðið - 22.10.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.10.1989, Blaðsíða 14
MORGÚNBLÁÖIÍ) SUfÍNUDAGUR 22. OÚTÓBER 14 C BODUUINN FRÁ LYON Hvers vegna hjálpubufranskir prestar stríbsglæpamanni? FRANSKUR stríðsglæpamaður, Paul Touvier, var handtekinn fyrir skömmu í klaustri í gamla borgarhlutanum í Nice (Nizza). Þar með lauk einni lengstu leit að glæpamanni í sögu Frakk- lands. Touvier lék lausum hala í 45 ár og naut allan þann tíma sérstakrar vemdar voldugra manna í kaþólsku kirkjunni og ihaldssamra, kaþólskra hópa. Kirkjan hefur verið harðlega gagn- rýnd fyrir að halda hlífiskikli yfir manni, sem lýst var eftir vegna „glæpa gegn mannkyninu", og mál hans hefur vakið nýjar deilur um hlutverk Frakka í síðari heimsstyrjöldinni. Touvier var yfirmaður herlögreglu franskra stuðningsmanna Þjóð- veija í Lyon í Suðaust- ur-Frakklandi og náinn samstarfsmaður Klaus Barbies, yfirmanns Gest- apo í borginni, sem var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir glæpi gegn mannkyninu 1987. Touvier, sem var tvívegis dæmdur til dauða að honum ijarstöddum eftir stríðið, er borinn sömu sökum og Barbie, sem notaði hann og lögreglulið hans til að hafa upp á andspyrnumönnum og gyðingum. Touvier hlaut viðurnefnið „slátrar- inn frá Lyon“ eins og Barbie og var einnig kallaður „böðullinn frá Lyon.“ „Kirkjan fyrir rétti“ Handtaka Touviers beindi at- hyglinni að þeim kaþólsku hópum, sem héldu verndarhendi yfir hon- um. „Kirkjan fyrir rétti," sagði Le Monde í fyrir- sögn, en kirkjunni tókst að víkja sér undan beinustu gagnrýninni. Klaustrið, þar sem Touvier var handtekinn, er í eigu sértrúarsöfn- uðar íhaldssams erkibiskups, Marcel Lefvebre, sem páfinn bann- færði þegar hann vígði fjóra bisk- upa gegn vilja hans 1988, Bræðra- lags heilags Píusar X. „Málið er mér óviðkomandi,“ sagði Albert Decourtray, erkibiskup í Lyon og æðsti maður kaþólsku kirkjunnar í Frakklandi. Hins vegar er fámennur hópur kaþólskra leikmanna, Ordre des Chevaliers de Notre Dame („Regla riddara vorrar frúar“), einnig sak- aður um að hafa skotið skjólshúsi yfir Touvier og sú trúarregla er undir yfirstjórn kaþólsku kirkjunn- ar. Og einhverjir valdamestu kirkjuhöfðingjar Frakka báru ábyrgð á því að kirkjan skýidi Touvier í 20 ár eftir -stríðið, alit þar til dómarnir yfir honum fyrnt- ust. Touvier, sem er 74 ára gamall, kallaði sig Paui Lacroix, Guy Berthier, Berthet eða Gaillard þeg- ar hann fór huldu höfði. Foreldrar hans voru strangtrúaðir og aðdá- endur Philippes Pétains mar- skálks, leiðtoga leppstjórnar Þjóð- verja í Vichy. Hann hafði áhuga á að verða prestur, en faðir hans kom honum í sérsveitirnar Milice Francaise, 25.000 manna herlög- reglu samverkamanna nazista, til að koma í veg fyrir að hann lenti í fangelsi fyrir þjófnað. Gestapo hjálpað Seinna kvaðst Touvier hafa ver- ið haldinn „þeirri áráttu að vilja hafa allt í röð og reglu og safna alls konar upplýsingum“. Því var hann skipaður leyniþjónustufor- ingi lögregluliðsins og fékk það hlutverk að hafa upp á andspyrnu- mönnum og gyð- ingum. í þvi starfi sýndi hann svo mikinn áhuga og samvizkuleysi að hann var gerður að yfirmanni Milice á öllu Rónar-Alpa- svæðinu og hann var einn helzti samstarfs- maður Klaus Barbie þar til Lyon var frelsuð. Seinna sagði Touvier að þegar Þjóðveijar hefðu krafizt gísla hefði hann aðeins valið gyðinga og þeir voru teknir af lífi. Einu sinni stjórnaði hann sjálfur aftökusveit í árásarferð gegn skæruliðum. í annað skipti sást hann fleygja handsprengjum inn í bænahús gyðinga í Lyon og hann stóð fyrir morði á áttræðum formanni mann- réttindafélags, Victor Basch, sem var ungverskur gyðingur. 7 Þegar áróðursráðherrann í Vichy, Philippe Henriot, var myrt- ur lét Touvier handtaka sjö verzl- unareigendur, sem voru gyðingar, og skjóta þá í þorpinu Rillieux-la- wm ERLEND ■ HRINGSIfl eftir Guómund Halldórsson Pape. Hann lét einnig handtaka 57 spænska kommúnista, sem voru sendir í dauðabúðir. Lífgjöfin Þegar Þjóðveijar hörfuðu frá Lyon í ágúst 1944 tóku Gestapo og SS gísla í úthverfunum og að minnsta kosti 120 gyðingar og andspyrnumenn voru skotnir til bana. Pierre-Marie Gerlier kardin- áli, æðsti maður frönsku kirkjunn- ar og erkibiskup í Lyon, komst að því Milice-sveitimar hefðu enn 42 fanga í haldi og fól herpresti þeirra, Stéphane Vautherin, að reyna að koma í veg fyrir að þeir yrðu líflátnir. Vautherin, sem var einn stofn- enda Chevaliers de Notre Dame, talaði við Touvier og Touvier setti það skilyrði fyrir því að hann hlífði föngunum að hann fengi skilyrðis- lausa vernd það sem eftir væri ævinnar. Æstur múgur tók flesta samstarfsmenn Touviers af lífi án dóms og laga. Sjálfur leitaði hann hælis í kirkju og hvarf með allan ránsfeng Milice-liðsins, sem var metinn á 350.000 franka. Sumir segja að Touvier hafi notað þennan fjársjóð til að kaupa sér vernd kaþólsku kirkjunnar. Því er einnig haldið fram að hann hafi tryggt sér vernd Gerliers og annarra áhrifamanna í kirkjunni með því að hóta að birta upplýsing- ar um samvinnu þeirra við naz- ista. Þeir sem taka svari kirkjunn- ar segja að hún hafi aðeins fylgt kristinni mannúðarstefnu og breytt samkvæmt þeirri gömlu hefð að vernda alla, sem til henn- ar leita, hvort sem þeir eru glæpa- menn eða ekki. Auk þess hafi Touvier fyllilega verðskuldað vertid, þar sem hann bjargaði síðustu gíslunum í Lyon. A það er einnig bent að fremsta markmið Milice Francaise var að bjarga Frakklandi frá kommún- istabyltingu, sem virtist blasa við á síðustu mánuðunum áður en Frakkland var frelsað. Kommún- istar höfðu fengið byr í seglin vegna þess að stjórnin í Vichy réð ekkert við mikinn efnahagsvanda og síaukið svartamarkaðsbrask. Seinna sögðu gamlir Milice-menn að þeir hefðu komið í veg fyrir að kommúnistar hrifsuðu völdin með því að lama þær andspyrnu- sveitir, sem lutu þeirra stjórn. Samverka- Klaus Barbie: maðurinn Touvier . var (1943): náðað- hjálparhella ur á laun 1971. hans. Andspyrnumenn teknir af lífi hjá Lyon: Touvier vár harðvítugur andstæðingur þeirra. Miskunnsamir klerkar Sá sem skipulagði flótta Touvi- ers var Monseigneur Charles Duquaire, aðstoðarmaður Gerliers erkibiskups í Lyon. Duquaire varð verndari og skriftafaðir Touviers og skrifaði undir þijár beiðnir til forsetaembættisins um að hann yrði náðaður. Duquaire varð síðan ritari Villots kardinála, sem tók við af Gerlier og varð síðan aðal- ráðgjafi páfans í Róm. Samband Duquaires og Touviers hélzt allt þar til Duquaire lézt 1987. Touvier var tvívegis dæmdur til dauða að honum fjarstöddum: í Lyon í september 1946 og í Chambéry í marz 1947. Það ár kvæntist hann á laun. í hveijum mánuði tók hann út 30.000 krónur af bankareikningi, sem var skráð- ur á nafn Monique, konu hans, og prestar lögðu inn álíka háa upp- hæð í staðinn. Hann samdi bók um klaustrið Chartreuse, þegar hann starfaði þar ásamt konu sinni, og seinna var skráð í per- sónuskilríki hans að hann væri heimilisfastur í höll erkibiskupsins í Lyon og væri vörður þar. Hann varð vinur vísnasöngvar- ans Jacques Brel, sem gerði hann að ritara sínum og hjálpaði honum að gefa út sérkennilega hljóm- plötu, L’Amour et la Vie, 1967. Sama ár fyrntust dómarnir yfir Touvier og hann bað De Gaulle um náðun með stuðningi Duqaires og kaþólska heimspekingsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.