Morgunblaðið - 22.10.1989, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 22.10.1989, Blaðsíða 15
Ch 15i MQfiGUNiB-LAÐiP' iSUNNUDAQUfl 22. QK-TQBPG; Líflátnir andspyrnumenn: stjórnaði sjálfur aftökum. Eftir handtökuna: átti von á lögreglu- heimsókn. Gabriel Marcel, en forsetinn neit- aði að verða við bóninni og hafn- aði annarri náðunarbeiðni frá hon- um síðar. Hins vegar gaf Georges Pompidou forseti honum upp sakir með leynd í nóvember 1971 og hann fékk að flytja til Chambéry, skammt frá Lyon. Þegar uppvíst varð um náðunina nokkrum mán- uðum síðar vakti hún svo mikið hneyksli að ákveðið var að líta skyldi svo á að vissir stríðsglæpir væru „glæpir gegn mannkyninu" og að þeir gætu aldrei fyrnzt. Touvier fór aftur í felur, en árið 1973 kom hann fram í út- varpsviðtali og sagði: „Ég hef allt- af viljað efla hinn kristna heim i baráttu hans við heim heiðingja og gera áhrif illu aflanna að engu.“ Tveimur árum síðar hélt hann því fram í sjónvarpi að hann væri sak- laus og sagði að hann færi huldu höfði vegna þess að líf hans og fjölskyldunnar væri í hættu. „Ég er ekki á flótta undan réttvísinni,“ sagði hann. „Ég er til reiðu og lögfræðingur minn veit hvar mig er að finna.“ Flóttinn til Nizza Alls virðist Touvier hafa fengið hæli í 50 trúarstofnunum af ýmsu Joseph Darnand og Pierre Laval kanna heiðursvörð Milice Francaise: illræmdustu samverkamenn Þjóðverja. tagi. Hann fékk meðal annars að hafast við í Chartres og eftir dvöl- ina þar leitaði hann skjóls hjá Chevaliers de Notre-Dame. í sept- ember 1984 birti hann tilkynningu í blaði í Savoy um að hann væri látinn. í marz 1989 upplýsti háðs- ádeiluritið Le Canard Enchainé að trúarregla riddaranna skýldi hon- um skammt frá Rúðuborg (Rou- en). Þaðan lá slóð hans um Nor- mandi og 22. maí fóru lögreglu- menn til klaustursins Wisues, skammt frá St. Omer. Skjöl, sem þar fundust, urðu til þess að lög- reglan yfirheyrði yfirmann Chev- aliers-reglunnar í París, Jean- Pierre Lefevre, sem frönsk blöð sökuðu um að hafa skipulagt flótta Touviers síðustu árin. Mikil at- hygli, sem mál Touviers vakti, varð að öllum líkindum til þess að hún sendi hann að lokum til Nice. Síðustu 12-18 mánuðina áður en Touvier var handtekinn virðist hann hafa dvalizt í að minnsta kosti 10 klaustrum í Frakklandi, Ítalíu og Sviss. Sex sinnum mun- aði aðeins nokkrum klukkústund- um að lögreglunni tækist að hafa hendur í hári hans. Hann mun hafa komið til klaustursins í Nice einum mánuði áður en hann var handtekinn 24. maí. Monique, kona hans og fertug dóttir þeirra, Chantal, og 37 ára gamall sonur þeirra, Pierre, voru hjá honum í klaustrinu. Þegar hann var fluttur í flugvél til Parísar eftir hand- tökuna kvaðst hann hafa vitað að fylgzt væri með klaustrinu, en „ákvéðið að láta handtaka mig að ráði minna nánustu“. Beðið fyrir Pétain Sértrúarsöfnuður Lefvebres riddarareglunni eða söfnuði Lefv- ebres, en það mál er í athugun. Touvier var fluttur í sjúkrahús fangelsisins í Fresnes skammt frá París eftir handtökuna. Jacques Verges, veijandi Barbies, bauðst til að veija hann og La Pen sagði: „Lögreglan hlýtur að hafa eitthvað annað og þarfara að gera en að elta uppi lasburða, gamla menn.“ Flestir Frakkar virtust þó fagna handtöku Touviers og margir kröfðust þess að hann yrði tekinn af lífi. Meira bar þó á því að hneykslazt væri á hlutverki kirkj- unnar, en samkvæmt skoðana- könnun franska ríkissjónvarpsins töldu 37% „eðlilegt" að trúarregla hefði haldið yfir honum hlífiskildi. Gömul sár ýfð upp Málið kom kaþólsku kirkjunni í Frakklandi í bobba, en gagnrýnin beindist aðallega gegn klofnings- hópi Lefvebres erkibiskups. „Hvernig geta trúarstofnanir verndað stríðsglæpamann?“ spurði yfirprestur gyðinga í Lyon, Rich- ard Wertenschlag. „Þessi gestrisni stríðir gegn siðferðisvitund okk- ar.“ Reynt verður að rannsaka hvers vegna Touvier gat reitt sig á dygg- an stuðning voldugra manna í kaþólsku kirkjunni um langt ára- bil. Einnig verður reynt að fá svör við því hvers vegna margir áhrifa- miklir ráðherrar gaullista studdu beiðni hans um náðun. „Réttar- höldin gegn Touvier munu ýfa upp gömul sár úr stríðinu,“ segir sagn- fræðingurinn Henri Amouroux, „og knýja kirkjuna til að gefa vandræðalega skýringu á því hvers vegna hún verndaði hann.“ Tengsl Touviers við kaþólska Færður um borð í flugvél og fluttur til Parisar: óþægilegar spurn- ingar vöknuðu. erkibiskups, Bræðralag Píusar X, fékk klaustrið í Nice að gjöf frá borgarstjórninni og kapellan var endui'vígð fyrir tveimur árum. Meðal þeirra sem vom viðstaddir athöfnina voru borgarstjórinn í Nice, nokkrir stuðningsmenn Þjóð- fylkingar Jean-Marie Le Pens, flokks hægriöfgamanna, og Lefv- ebre sjálfur. Biskupinn í Nice beitti sér gegn því að Lefvebre fengi klaustrið og hefur gagnrýnt að Touvier fékk þar hæli. Þótt Chevaliers de Notre Dame sé afturhaldssamur sértrúarsöfn- uður fylgir hann ekki beinlínis Lefvebre að málum og heldur enn tryggð við Róm, en hallast að Le Pen. í báðum þessum söfnuðum eru messur enn surignar á latínu og enn beðið fyrir sálu Pétains marskálks. Riddarareglan hefur 400 reglubræður innan sinna vé- banda, í Frakklandi, Sviss, Þýzka- landi og fleiri Evrópulöndum. Lefevre, yfirmaður Parísar- deildar reglunnar, var yfirheyrður í 17 tíma eftir handtöku Touviers og kann að verða ákærður fyrir að hafa skýlt honurn. Að hans sögn eru flestir núverandi reglu- bræður fæddir eftir stríðið, þótt nokkrir séu eldri. Ekki er vitað hvort mál verður höfðað gegn ögasinna og Þjóðfylkingu Le Pens gætu bent til þess að margir Frakkar sakni enn hálfgerðs fas- istaríkis Pétains marskálks. Að sögn Parísar-fréttaritara The Gu- ardian býr sá pólitíski ásetningur á bak vlð væntanleg réttarhöld að gera síðustu leifar þessarar tiltrú- ar margra Frakka á Vichy-stjórn- inni að engu, Stjórn sósíalista stóð á sínum tíma að samningum um framsal Klaus Barbies frá Bólivíu. Jafn- framt gerði hún frönsku lögregl- unni kleift að iáta leitina að Touvi- er ganga fyrir öðrum verkefnum. Von hennar var sú „að koma af stað nýjum umræðum um smánar- legasta tímabilið í sögu Frakka“., Touvier býr yfir mikilli vitneskju um franska samverkamenn Þjóð- veija í stríðinu. Hann á yfirgrips- mikið safn af skjölum frá þeim tíma og þegar hann mætir fyrir rétt — en það verður ef til vill ekki fyrr en eftir tvö eða jafnvel fimm ár — má búast við að öll skjöl, sem tengjast tíma hans í Milice Francaise, verði birt. Rétt- arhöldin munu vekja uppnám í kaþólsku kirkjunni og valda jafn- vel meiri sundrungu meðal Frakka en réttarhöldin gegn Klaus Barbie 1987.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.