Morgunblaðið - 22.10.1989, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.10.1989, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MAIMNLÍFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER C 11 Frakklandi og V-Þýskalandi vikið slíkum ákvæðum til hliðar og dæmt flugfélag til greiðslu bóta vegna sein- kunar sem farþegi verður fyrir. Þá hafa m.a. dómstólar í Noregi, Dan- mörku og Þýskalandi dæmt farþega bætur vegna yfirbókunar. Gera verð- ur ráð fyrir að svipuð sjónarmið gildi ef áætlun er með öðrum hætti breytt fyrirvaralaust. Annar af þýsku dómunum er gott dæmi um þann ágreining sem upp getur komið. Málavextir voru þeir að hjón nokkur höfðu bókað tiltekið far með Pan Am frá Þýskalandi tii New York. Áætlun þeirra var sú að ná til New York á þessum degi enda höfðu þau skipulagt fund vegna þýð- ingamikilla viðskipta sem áttu að fara fram daginn eftir og búið var að undirbúa rækilega. Þegar á reyndi kom í ljós að þetta ftug var yfirbók- að og þau komust ekki með Lþessa tilteknu ferð. Flugfélagið gat ekki boðið annað flug sem hentaði hjónun- um. Þau tóku því þann kost að fara sama dag með öðru flugféiagi til Parísar og þaðan til New York sem gerði þeim kleift að komast á áfanga- stað í tíma. Þetta var nokkuð dýrari kostur en flugið með Pan Am og kröfðu hjónin félagið um mismuninn. Pan Am neitaði að greiða á þeirri forsendu að þeir hefðu boðið annað flug, en að auki vísuðu þeir til fyrir- vara í flutningsskilmálunum sem að þessu laut. Dómstólinn í Þýskalandi viðurkenndi ekki þessi rök flugfé- lagsins og dæmdi félagið til að greiða mismuninn. í nýlegum dönskum dómi (frá sep. sl.) er fjallað um svipað álitaefni. Þar voru málavextir þeir að maður Sem þurfti að komast tii Kaþmanna- hafnar frá Álaborg á tilteknum degi og tíma. Hann hafði pantað ferð með áætlunarflugi með SAS mánuði fyr- irfram og staðfest það síðar. Þegar á reyndi var honum tilkynnt að hann kæmist ekki með vélinni vegna yfir- bókunar. Eina leiðin sem maðurinn sá til að komast á áfangastað á til- settum tíma var að panta sér einka- flug, sem hann og gerði. Var flugfé- lagið dæmt tii að greiða þann auka- kostnað sem maðurinn hafði af þessu og ákvæðum í skilmálum félagsins sem takmörkuðu þessa ábyrgð vikið til hliðar. Reikna má með að svipuð sjónar- mið eigi við hér á landi og að slík undanþáguákvæði geti reynst haldlítii ef á reyndi. Þó er rétt að gera ráð fyrir að flugfélagið eigi allt- af rétt á því bæta úr ef hægt er og að farþegi verði jafnvel að sætta sig við að einhver óþægindi kunni að verða vegna þess. Samkvæmt samningsskilmálum flugfélaga virðist réttur þeirra allsterkur, en réttur farþega þeg- ar áætlun fer úr skorðum að sama skapi lítill. ÍMii fásl heimsins bestn pizzur einnig í Kringlunni Vegna mikilla vinsælda Pizza Hut bjóðum við nú einnig upp á pizzurnar okkar í Kvikk í Kringlunni. Pizza Hut í Hótel Esju verður að sjálfsögðu áfram á sínum stað. Pizza Hut Kringlunni og Hótel Esju, sími 68 08 09. CF48B Rúmmál 468 lítrar. Ein grind. Stilling til að spara orku. Leiðbeiningar um geymsluþol ólíkra matvæla. Læsing loki sem fellur ekki niður með bakinu. Skúffa til að taka vatn við afýöingu framan á. Hjól til að færa kistuna til. Mál: Breidd 134.5, Hæð 88, Dýpt 66 cm. CF32B Rúmmál 31 ölítrar. Ein grind. Stilling til að spara orku. Skúffa til að taka vatn við afþýðingu framaq á. Situr á hjólum. Mál: Breidd 95, Hæð 88, Dýpt 66 cm. CF25B Rúmmál 245 litrar. Ein grind. Stilling til að spara orku. Skúffa til að taka vatn við afþýðingu framan á. Mál: Breidd 81, Hæð 86, Dýpt 66'cm. CF17B Rúmmál 165 litrar. Lykillæsing. Aðvörunarljós fyrir frystikerfi. Mál: Breidd 60, Hæð 86, Dýpt66cm. Heimilistæki hf Sælúni 8 SÍMI 69 15 15 . Kringlunni SfMI 69 15 20 samKÍtuym/ CF57B Rúmmál 560 litrar. Tvær grindur. Stilling til að spara orku. Ljós í loki. Leiðbeiningar um geymsluþol ólikra matvæla. Lykillæsing á loki. Skúffa til að taka vatn við afþýöingu framan á. Hjól til að færa kistuna til. Mál: Breidd 162.5, Hæð 88, Dýpt 66 cm. Rowenla Rowenta grill KG-63 Snertigrill. Partígrill oq yfir- bakað í einu tæki. 2ja prepa hitastigsveljari. Hitaplötur útbúnar yfirborði sem matur festist ekki við. Leiðslurúlla. Besta lausnin fyrir heimilið Rowenfa Vörumarkaðurinn KRINGLUNNIS. 685440

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.