Morgunblaðið - 22.10.1989, Blaðsíða 32
y62 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER
Ný kápusending
Stærðir: 32-54
v/Laugalæk -sími 33755
VERSLUNARRÁD ÍSLANDS
FÉLAG
ÍSLENSKRA STÓRKAUPMANNA
Morgunverðarfundur í Átthagasal Hótels Sögu
miðvikudaginn 25. október kl. 08.00-09.30.
VIRDISAUKASKATTUR í
INNFLUTNINGSVERSLUN
Fjallað verður um virðisaukaskatt í innflutningi og
heildsölu og áhrif hans á starfsemi og rekstur innflutn-
ings- og heildsölufyrirtækja.
Framsögumenn:
Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra:
Stefna og stjórnsýsluákvarðanir
Jón Guðmundsson, forstöðumaður gjaldadeildar RSK
Virðisaukaskattur í innflutningi og heildsölu
Símon Á. Gunnarsson, löggiltur endurskoðandi:
Áhrif á verslunarkostnað og uppgjör
Fyrirspurnum svarað.
Þátttökugjald er kr. 500, morgunverður innifalinn.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku tímanlega í síma
83088 eða 678910.
mnmn.
JOBIS • VALMELINE
SKOGLUND
BOSEBECK • TONI
Laugavegi 59, 2.h., sími 15250
■:Á £££'
mwm
: |Hfl f á
y
KÆLI- OG FRYSTISKÁPUR
ÓTRÚLEGA LÁGT VERÐ
34.216,
Samt. stærö: 275 1.
Frystihólf: 45 1. ❖ # * ❖
Hæð: 145 sm. Breidd 57 sm.
Dýpt: 60 sm.
Vinstri eða hægri opnun.
FULLKOMIN VIDGERÐA- OG
VA RAHLU TAÞJÓNUS TA
Heimilis- og raftækjadeild.
BAIiÞANKAR
Sæluvika í
Paradís
Októbermánuður á
Bermúdaeyjum er sælu-
vika i paradís. Hitinn er
blandaður svala sem hvíslar
í goluna að vetur konungur
sé að nálgast
önnur lönd.
Hingað á hann
ekkert erindi;
nennir ekki að
takast á við
golfstrauminn
um yfirráð
loftslagsins
sem leikur um
þetta kóralrif sem myndast
hefur á tindum neðansjávar
eldfjalls sem er löngu hætt að
gjósa.
Menn syngja hér létt dæg-
urlag sem hefst með þessum
orðum: Bermuda er töfra-
heimur, sjö hundruð mílur úti
á sjó, eyjaskeggjar fagna vin-
um. óska öllum gleði og rór.
Og það er áberandi hvað fólk
er vingjarnlegt við gesti og
gangandi. Rölti maður aðal-
götuna á enda, sem er álíka
löng og Laugavegurinn upp
að Hlemmi, er eins gott að
gefa sér góðan klukkutíma til
að rabba við alla sem vilja
bjóða manni góðan og gleði-
legan dag.
Hvítskeggjaður öldungur,
Barnes að nafni, stillir sér upp
í blómabeði á miðju hringtorgi
við borgarmörk Hamilton og
stendur þar í tvo tíma hvernig
sem viðrar og heilsar öku-
mönnum á leið í vinnu með
miklum tilþrifum. Hann bað-
ar út öllum öngum og brosir
út að eyrum. „Góðan daginn
elskan," kallar hann, „hvern-
ig er heilsan vinur?" Síðan
hann settist í helgan stein er
þessi morgunstund hans
framlag til hamingju mann-
kynsins.
Ökumenn fara sér ekki að
voða þó þeir veifi á móti, því
hámarkshraði er þijátíu kíló-
metrar á klukkustund. Hér er
allt mannlíf í öðrum gír og
ferðamenn streyma hingað,
fimmhundruð þúsund árlega.
Flestir koma þeir á tímabilinu
frá apríl til október. Skemmti-
ferðaskipin skiptast á um að
leggja að við hafnargarðinn
og þau sigla hnarreist inn og
út þessa litlu höfn þar sem
þau liggja uppljómuð á kvöld-
in einsog ljósakrónur á hvolfi.
Alþjóðaviðskipti eru stunduð
hér í stórum stíl og fjölgar
sífellt þeim fyrirtækjum sem
vilja hafa hér aðsetur. Nokkur
stórfyrirtæki sem óttast
ganga mála í Hong Kong eru
að flytja bækistöðvar sínar
hingað. Svo er það rúsínan í
pylsuendanum. Hér er enginn
tekjuskattur og verðbólgan fer
minnkandi.
Hér hef ég dvalið í rúma
viku, gestur hjá vinum sem
búa hátt fyrir ofan Hamilton-
borg. Ég hef setið við sund-
laugina og er orðin kolbrún
og löt. Ég rembist eins og rjúp-
an við staurinn við að skrifa
dálk. en augun fyllast af suð-
rænum bláma og hugurinn
segir pass. Litríkir fuglar
sveima frá einu aldintré til
annars og syngja hver með
sínu nefi. Ég söng um tíma
bakrödd í þessum kór en er
nú orðin laglaus. Hugurinn
er upptekinn af kaldari bláma
og hressara mannlífi. Ég held
að norðanáttin úti á granda
eigi betur við hausa sem eru
að reyna að berja saman
dálka.
eftir Jónu
Margeirsdóttur