Morgunblaðið - 22.10.1989, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 22.10.1989, Blaðsíða 30
30^ ÆSItUMYNDIN... ERAFDAVÍÐ ODDSSYNIBORGARSTJÓRA Yndislegur, Ijóshærður, hrokkinkollur ^ Þótt maðurinn sé fæddur í Reykjavík telja Selfyssing- ar hann með bestu sonum sínum enda ólst hann upp á Selfossi fyrstu sex ár ævi sinnar. Og ein sagan þar í bæ hermir að einhverju sinni hafi hann deilt barna- grind með Þorsteini Pálssyni. Davíð Oddsson borgar- stjóri Reykjavíkur og nýorðinn varaformaður Sjálf- stæðisfiokksins fæddist í Reykjavík 17. janúar 1948, sonur hjónánna Odds Ólafssonar læknis og konu hans Ingibjargar Lúðvíksdóttur. Hann var næstelstur þriggja bræðra en bræður hans heita Björn og Logi. Aðeins tveggja vikna gamall fiutti hann til Selfoss þar sem faðir hans starfaði. Bjó Davíð þar næstu sex árin en fiutti svo ásamt ljölskyldu gfimi til Reykjavík- ur. MORGUNBLAÐIÐ GUR 22. OKTÓBER Davíð með Ijósu lokkana sína á fyrstu árum ævi sinnar. ÚR MYNDAS AFNINU RAGNAR AXELSSON. Unglingarfara í róður Vinnuskóli Reykjavíkur hefur verið starfræktur um árabil, en í honum fá unglingar tækifæri til þess að spreyta sig við vinnu og vinna að fegrun borgarinnar um leið. Fleira er þó gert en að þræla æsku borg- arinnar út við gróður- setningu, kantskurð og slátt, því á*hveiju sumri er farið í ýmiskonar ferðir, sem eiga að vera nemendum skólans bæði til skemmtunar og fræðslu. Hefur Viðeyjarferð t.a.m. verioð árviss viðburður. Myndirnar úr safninu að þessu sinni voru teknar fyrir um áratug þegar farið var með krakka úr Vinnuskólanum í róður út á Bugt. Sem sjá má skemmtu krakkarnir sér hið besta og hver veit nema að í þeirra hópi hafi leynst feng- sæll fiskimaður framtíðarinnar, sem nú sækir silfur í greipar Ægis? A Aður en Davíð fæddist hlaut hann gælunafnið Beysi og var það afi hans Lúðvík Nordal læknir er gaf honum það. Lúðvík mun hafa þótt gaman að gefa börnum gælunöfn en það sem hann valdi fyrir Davíð vakti litla hrifningu hjá drengnum snemma og segir móðir Davíðs, Ingibjörg Lúðvíksdóttír, að hann hafi átt það ti! að sekta fólk fyrir að nota það. Guðrún Valdimarsdóttir, einn nágranna þeirra læknishjóna á Sel- fossi, man vel eftir Davíð á unga > aldri. „Þetta var yndislegur, ljós- hærður, hrokkinkollur sem lék sér oft með öðrum krökkum í götunni hjá okkur,“ segir hún. Og einn leikfélaga Davíðs frá þessum árum, Sigurður Jónsson fréttaritari Morgunblaðins á Sel- fossi, man einnig glögglega eftir honum. „Þetta var gæðadrengur, þokkalegur í viðmóti og stilltur. Og ég man að hann var Ijóshærður og hrokkinnhærður á þessum tíma,“ segir Sigurður. Ingibjörg móðir Davíðs segir að hann hafi verið dökkhærður er hann fæddist en síðan hafi hárið lýst upp. Hún lætur þess getið að lokk- arnir hafi verið það fallegir að hún hafi varla getað hugsað sér að klippa þá. Og Davíð sjálfur mun enn eiga lokka þessa í fórum sínum. Er Davíð gekk í barnaskóla dökkn- aði hárið aftur. Heimili 'Davíðs á Selfossi var mjög pólitískt og mikið rætt um pólitík á því. Raunar urðu það oft á tíðum mjög háværar umræður, að sögn Ingibjargar, og minnist hún þess að Davíð hafi oft á tíðum tek- ið það fram yfír leik úti við að hlusta á þessar umræður. Því há- værari sem þær voru því betur skemmti hann sér. Það voru einkum afi hans og amma, Lúðvík og Ásta Jónsdóttir, sem ræddu pólitík á heimilinu. Segir Ingibjörg að dreng- urinn hafi drukkið þessar umræður í sig og að hún hafi fljótlega séð hvert stefndi' með lífsstarf hans. Þó hann sé napur er hver rúlla mönnuð og ekki annað að sjá en að unglingafjöklin sé áhugasöm um skakið. STARFIÐ HALLFRÍÐUR STEFÁNDSDÓTTIR ÖKUKENNARI BÓIUN ÁNÁTTBORÐINU PLATAN ÁFÓNINUM MYNDIN ÍTÆKINU Hallfríður Stefánsdóttir. Kona við stýrið Trúlega dettur flestum karlmað- ur í hug þegar þeir heyra talað um ökukennara, enda um hálf- gert „karlastarf" að ræða. Konur eru þó sem kunnugt er æ ineira að hasla sér völl í dæmigerðum karlastörfum og vinna nú nokkr- ar konur sem ökukennarar hér á landi. Ein þeirra er Hallfríður Stefánsdóttir. Hallfríður hefur starfað sem öku- kennari í Reykjavík í 13 ár. Sagði hún að meirihluti nemenda sinna væri kvenfólk. Karlmenn virt- ust í ríkari mæli leita til karlkenn- ara, en margir settu það þó ekkert fyrir sig þó ökukennarinn væri kona. Enda væri enginn ástæða til að ef- ast um ágæti kvenkennara. Hallfríður sagði það vera mjög einstaklingsbundið hvað fólk þyrfti að sækja marga ökutíma og færi það algerlega eftir hæfni hvers og eins. Aðspurð kvaðst hún aldrei hafa orð- ið hrædd í bifreið með nemanda sínum. I bifreiðinni væru aukahemlar og því gæti hún alltaf gripið inn í, ef nemandi lenti í vandræðum. Hallf- ríður sagði að sér fyndist bílstjórar nú vera tillitssamari í umferðinni en áður. Væri það ef ef til vill að þakka auknum almennum áhuga á bættri umferðarmenningu. PETTA SÖGDU ÞAU ÞÁ... Sigurjón Jónsson bílastæða- vörður Sigurjón Kristjáns- son tölvu- fræðingur * Eg er að lesa áhugaverða bók sem heitir Hvert liggur leiðin og hefur að geyma viðtöl Elín- borgar Lárusdóttur við fjóra lands- kunna miðla. Ég hef mjög gaman af ævisögum og svaðilförum og hef verið að glugga í bókina Hættuflug, sem er um frækna íslenska flug- kappa. Síðast hlustaði ég að plötuna Sonic Temple með hljómsveit- inni Cujt og fannst mér hún alveg ágæt. Ég hef annars mjög gaman af allri reggae-tónlist. Held ég mest upp á Bob Marley og á allar hans plötur. Síðast sá ég myndina The Ser- pant and the Rainbow en hún fjallar um svartagaldur og er mjög góð. Ég horfi mest á spennumyndir en hef Iíka gaman af „saklausum“ hryllingsmyndum, sem ganga ekki út á blóðsúthellingar heldur skjóta manni skelk í bringu með spenn- unni einni. Ólafur Jensson prófessor og forstöðumaður Blóðbankansá félagsfundi Æskulýðsfylk- ingarinnar í Reykjavík 26. ágúst1948. * Olafui' Jensson tók næstur til máls ... Spurði hann hvort skálinn ætti að vera hressingar- hæli eða hefði einhvern annan tilgang ... Ólafur kvað Fylking- una pólitískt félag, en ekki ferðafélag og starfið við skíða- skálann væri til þess eins að dreifa kröftum. Aðalatriðið væri að skóla félagana hér heima og fara síðan uppá fjöll. essa dagana er ég að glíma við bókina Stríð og friður eftir Leo Tolstoj. Finnst mér hún verulega góð. Ég les mikið og er mest lirif- inn af verkum eftir slavneska rit- •höfunda, svo sem Kafka og Dostojevskí. * Eg var að hlusta á lagið Blame it on the Rain með hljómsveit- inni Milli Vanilli, en það íag er í miklum vinsældum hjá mér um þessar mundir. Ég hlusta mikið á tónlist og þá eingöngu á eitthvað fislétt og tjörugt sem hressir mig við. Eg sá síðast myndbandið Thríller með Michael Jackson sem ég fékk lánað hjá vinkonu minni. Mér finnst mest gaman að horfa á myndbönd með hljómsveitum, svo sem Michael Jackson og Madonnu. En mér finnst grín- og spennu- myndir líka skemmtilegar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.