Morgunblaðið - 22.10.1989, Qupperneq 8
MORGl’NHI.ADlö MANIULÍFSSTRAUMAR QMMgvr
22.!0MTÓB'Blí
+
BAÐHUÐUN
Hlíðarvegi 11- 200Kópavogur
^
Endurhúdum hreinlætistæki.
Gerum gamla badsettid sem nýtt
smo - S85-32202
HAGFRÆÐI/ /■; iað ersvona merkilegt vib þab ab flytja út
vörurf
Utanríkisverslun
ogvdferð
z
'<
Q_
co
s<
z
o
LLI
I—
co
<
LL
Stórkostleg náttúrufegurð
Þú eignast þitt eigið hús
Tímanum ræður þú sjálfur
Kjörið fyrir hópa að sameinast
Kynnisfundur í dag, sunnudag,
á Laugavegi 18, kl. 13-17.
- Allir velkomnir að kynnar sér
sólríka framtíð á Spáni.
Kynnisferð 8. nóvember
G. ÓSKARSSON OG CO.,
Orlofshús sf.,
Laugavegi 18, 101 Reykavík, sími 91-617045.
MARGRA ÁRA REYNSLA.
ÞEGAR flett er bókum um sögu hagfræðikenninga koma tvær 17.
og 18. alda stefnur, merkantílisminn og fysiokratisminn, kunnuglega
fyrir sjónir: þetta eru sennilega þær stefnur sem helst móta hugmynd-
ir almennings eins og þær koma fram í þjóðarsálum rásanna og les-
endabréfum dagblaðanna. Kjarni kenninga merkantílismans var að
gull væri uppspretta alls auðs. En á fyrri öldum var greitt fyrir
útflutning og innflutning með gulli. I kenningunni fólst því að gjald-
eyrisöflun væri uppspretta verðmætanna. Fýsíókratar héldu því hins
vegar fram að land væri uppspretta alls auðs.
Tilgangur allrar efnahagsstarf-
semi er neysla. Fjárfesting er
því aðeins hagkvæm að hún auki
neyslumöguleikana í framtíðinni. En
tíminn er peningar, og neysla í dag
er augljóslega
meira virði en
neysla á morgun.
Vexti má túlka sem
mælikvarða á verð-
ið á þessa óþolin-
mæði mannsins.
Þannig er fjárfest-
ing þá aðeins hag-
kvæm að hún auki
framtíðarneyslu um meira en sem
nemur vöxtunum. Ræktun er gott
dæmi um þetta, við gætum borðað
allar kartöflurnar strax, en hyggi-
legra er að geyma hluta uppskerunn-
ar og nota það sem útsæði næsta
vor. Utsæðið er því fjárfesting.
Þar sem tilgangur allrar efnahags-
starfsemi er neysla, er tilgangur þess
að flytja út vörur og þjónustu sá einn
að flytja inn vörur til neyslu, til ijár-
festingar eða til reksturs. Gjaldeyris-
öflun er ekkert markmið í sjálfri sér.
Ef gengið er „rétt skráð“, hvernig
sem menn vilja nú skilgreina það,
er gjaldeyrisöflun á engan hátt
merkilegri eða göfugri atvinnustarf-
semi en sjoppurekstur. Framlag
beggja til verðmætasköpunar er
vinnsluvirðið eða virðisaukinn.
Vinnsluvirðið er verðmæti framleiðsl-
unnar að frádregnu verðmæti þeirra
vara sem notaðar eru við framleiðsl-
una. Þessu vinnsluvirði er síðan skipt
í rekstrarafgang, afskriftir og laun.
Einfalt dæmi um þetta er kartöflu-
ræktun, þar sem verðmæti fram-
leiðslunnar er uppskera kartaflna að
frádregnu útsæðinu og má telja ann-
að hvort í fjölda kartaflna eða í krón-
um.
Ástæða þess að við íslendingar
flytjum vörur út er einföld. Við gæt-
um út af fyrir sig framleitt allt sem
landsmenn þarfnast; hveiti, timbur
til bygginga, bifreiðar og vélar. Þar
sem við höfum takmarkaðar náttúru-
legar aðstæður til, yrði kostnaður
við framleiðslu þessara vara gífur-
lega mikill. Við eigum mun betri leik
í stöðunni og höfum fyrir löngu leik-
ið hann: Við skiptum við önnur lönd
á þeirri vöru, sem við 'getum fram-
leitt hlutfallslega ódýrar en þau, á
þeim vörum sem við þörfnumst. Það
er þessi sérhæfing sem er undirstaða
velferðar íslendinga.
Við íslendingar stundum um-
fangsmikil utanríkisviðskipti sem
mæla má með því að bera saman
útflutning vöru og þjónustu eða inn-
flutning og landsframleiðslu. Þá fæst
að 35-40% lándsframleiðslu eru flutt
út eða inn. Til samanburðar við þetta
má nefna að útflutningur Banda-
ríkjamanna er einungis 5-10% af
landsframleiðslunni.
í heimaspunninni alþýðlegri
íslenskri hagfræði er jafnan lögð
meiri áhersla á útfiutning vöru en
útflutning þjónustu, hvað þá inn-
lenda framleiðslu sem keppir á
heimavelli við erlenda vöru. Opinbert
nafn Stefánssjóðs er þannig Atvinnu-
tryggingasjóður útflutningsgreina,
hér er ekki minnst á samkeppnis-
greinar. Lítum nánar á þetta. Vöru-
útflutningur (fob) á síðasta ári nam
72% af heildargjaldeyrisöfluninni en
þjónustuútflutningur var um 28%.
Utflutningur sjávarvara nemur um
A af heildai-vöruútflutningnum en það
gerir þó ekki meira en 55% af heildar-
útflutningi vöru og þjónustu. í reynd
er hrein gjaldeyrissköpun sjávarút-
vegs minni, þar sem til rekstrar þarf
ýmsar innfluttar re*kstrarvörur.
Áætlanir Þjóðhagsstofnunar sýna að
hrein gjaldeyrisöflun er mismunandi
eftir Sigurð
Snævarr
LÆKNISFRÆÐI//iya) var skrifab hér um heilhrigbismál
fyrirníutíu árumf
KAUPMANNASAMTÖK
ÍSLANDS
ALNIENNUR FÉLAGSFUNDUR |
UM VIRDISAUKASKATT
verður haldinn á Hótel Loftleiðum,
miðvikudaginn 25. þ.m., kl. 20.30.
Frummælendur verða:
Ólafur Ragnar Grímsson,
fjármálaráðherra,
Friðrik Sophusson,
alþingismaður.
Guðjón Oddson, formaður K.í.
verðurfundarstjóri.
Fulltrúar ríkisskattstjóra
mæta á fundinum.
GÖMLUM BLÖÐUM
FLETT
í FRAMHALDI af pistlum um berkla og fleiri bakteríur er fróðlegt
að líta á það sem skrifað var um þau mál hér á landi rétt fyrir alda-
mótin þegar Robert Koch var kominn á bólakaf í malaríurannsóknir.
Arin 1899 og 1900 kom út í
Reykjavík tímarit „handa al-
þýðu um heilbrigðismál" og hét
Eir, eins og lækningagyðjan forð-
um. Ritstjórar voru dr. Jónas Jón-
assen landlæknir,
Guðmundur
Magnússon síðar
prófessor í skurð-
lækningum og
Guðmundur
Björnsson sem
varð landlæknir
nokkrum árum
seinna þegar Jón-
assen lét af því embætti. Guðmund-
arnir voru báðir á fertugsaldri en
landlæknir að nálgast sextugt og
er útgáfa ritsins einn af mörgum
vitnisburðum um atorku þessara
ágætu manna og framtakssemi
þeirra í því að efla heilbrigði lands-
manna og auka skilning á fram-
förum læknavísinda.
í septemberhefti Eirar 1899 birt-
ist grein sem heitir Um berklasótt.
Guðmundur Björnsson þýddi hana
úr dönsku en segist hafa gert á
henni smábreytingar um leið. Hann
getur þess einnig að þýðingin hafi
verið prentuð árið áður á kostnað
landssjóðs og henni útbýtt meðal
almennings. Lítum á nokkur atriði:
í upphafi segir frá því að berkla-
sótt sé næmur sjúkdómur, sótt-
kveikjan sé ofurlítil jurt sem nefnist
berklagerill og þurfi afarsterka
smásjá til eygja hana. „Þegar þessi
sóttkveikja kemst í líkamann getur
farið svo að hún festi rætur ein-
hvers staðar; þar hefur hún þá sjúk-
leika í för með sér. Þá er vel farið
ef sjúkdómurinn berst ekki út fyrir
þessa fyrstu litlu bólfestu sína, því
að berklagerlarnir geta og einnig
æxlast stórum í líkamanum, brotist
inn í vöðvana (blóðið, holdsafann),
borist áfram í þeim og sýkt allan
líkamann með eitri því er þeir
brugga. Fulltíða rnenn taka berkla-
sóttina oftast í lungun; er hún þá
nefnd bijóstveiki eða lungnatær-
ing.“ Síðan er skýrt frá því að tær-
ingarveikt fplk hósti upp milljónum
berklagerla á skammri stund og
þannig berist sjúkdómurinn manna
milli. Meginefni ritgerðarinnar er
leiðbeiningar og reglur um hvernig
helst megi verjast smitun frá
berklasjúklingum og er mikil
áhersla lögð á hreinlæti og varúðar-
ráðstafanir gagnvart uppgangi
brjóstveikra. í lok greinarinnar seg-
ir svo: „Það hefur reynst lang af-
farasælast að hafa sérstök sjúkra-
hús handa berklaveikum mönnum;
þau eru oftast reist fjarri bæjum
og kauptúnum, ýmist fram við sjó
eða uppi á heiðurn."
Ellefu árum síðar tók heilsuhælið
á Vífilsstöðum til starfa.
En höldum nú áfram að fletta
fyrri árgangi Eirar. í nóvember- og
desemberheftin skrifar Bjarni Sæ-
rnundsson náttúrufræðingur langa
og ýtarlega ritgerð um bakteríur.
Hann tekur fram í smáletursgrein
að orðið „gerill" eigi illa við um
bakteríur af því að einungis fáar
þeirra valdi gerjun. Ritgerðin hefst
á þéssum orðum: „Fátt af því sem
vísindi síðari tíma hafa leitt í ljós
hefur vakið jafnmikla og jafnstöð-
uga athygli almennings og það sem
menn hafa fengið að vita utrr bakt-
eríurnar; og það er líka eðlilegt því
að þær eru harla mikilsverðar fyrir
mennina. Það er sem sé orðið víst
að sumar þeirra valda ýmsum hin-
um skæðustu sjúkdómum og drep-
sóttum er geisa um löndin, og að
aðrar koma (ásamt sveppum) til
leiðar allri rotnun í dauðum leifum
dýra og jurta, eða ýmsum öðrum
mikilsverðum efnabreytingum. En
þetta starf þeirra er svo mikið og
afleiðingar þess svo víðtækar að vér
eftir Þórarin
Guðnason