Morgunblaðið - 22.10.1989, Side 17
athöfninni sem ætlað var að bræða
bæina saman. Talsmanni Godal-
ming, Sir Richard Posnett, fannst
þetta kjörið tækifæri til að viðra
frönsku sína og hann heilsaði hin-
um frönsku gestum með glimrandi
ræðu þar sem hann sagði m.a.: „Ég
kyssi allar konur ykkar.“ Þar að
auki vissi hann ekki að franska
orðið baiser hafði hlotið jarðbundn-
ari og nokkuð grófari merkingu í
nútíma tali en það hafði er hann
lærði það í skóla. Það gekk því
nokkuð fram af Frökkunum að
heyra að Sir Richard hygðist sam-
rekkja öllum viðstöddum.
Joigny vildi senda fjölda barna
sinna í skiptiheimsóknir til God-
alming en íbúafjöldinn þar var mun
eldri og aðeins hægt að smala sam-
an níu börnum. í staðinn vildi
Godalming senda áhugaleikhóp
sinn yfir til Frakklands og setja
þar upp gamaldags revíu. Frakk-
arnir voru mjög tregir til að fá
þennan hóp í heimsókn og í staðinn
stungu þeir upp á reiðhjólakeppni
í kringum Godalming.
í Surrey var talið að reiðhjóla-
keppni myndi teppa vegina fyrir
annarri umferð svo þeir lögðu til
að sundkeppni færi fram milli
bæjanna. La Société de Natation
de Joigny sagði að sundfólkið ætti
að hittast í veislu fyrst, hugmynd
sem Bretarnir voru lítt hrifnir af.
Frakkarnir sendu þá yfir til Godal-
ming þar sem hét Joigny Chorale
(une tré, trés bonne chorale). í
Godalming var talið að um kirkju-
kór væri að ræða og því var hann
bókaður í kapellu Charterhouse-
skólans. Það kom svo Bretunum
verulega á óvart er „kórinn“ reynd-
ist vera nokkuð villt rokkhljóm-
sveit.
Til tíðinda dró svo á árinu 1987
er Godalming Amateur Dramatics
Society ákvað, upp á eigin spýtur,
að leigja sér sal í Joigny og setja
þar upp revíu sína án þess að bíða
eftir boði þar um. Frakkarnir ásök-
uðu þá Sir Posnett um að þröngva
upp á þá þessari skemmtun og
þeir sögðu sig úr vinabæjahringn-
um í stríðum straumum sem mót-
mæli gegn Bretunum.
Til að sýna þessu stórfenglega
framtaki tilhlýðilega virðingu var
Joigny, þessa sömu viku, veitt Le
Drapeau d’Amitié Européen, sem
er æðsta heiðursmerki Evrópu-
bandalagsins veitt þeim sem best
stuðla að vináttusamböndum innan
EB.
BANKARÁN Á
ITALSKA VÍSU
Glæpir borga sig ekki, segir
máltækið, og víst er að í annálum
glæpamála má finna mörg söguleg
klúður. ítalski bankaræninginn
Carlo Colodi er einn af okkar
mönnum í þeimi efnum. í septem-
ber 1979 háði hann hetjulega bar-
áttu við marmaragólfið í Banca
Agricultura í Mílanó og varð að
láta undan síga. Hann þusti inn í
bankann með byssu á lofti og vasa-
klút bundinn fyrir vit sín. Um leið
• ' ■ : rMMM'iWUrUW!WlY!’.4 • r , n-/-,
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER
steig hann á horn gólfteppis sem
þakti marmaragóif bankans og við
það skall hann kylliflatur aftur
fyrir sig og hleypti af byssunni upp
í loft. I fátinu missti hann klútinn
af andlitinu svo allir sáu hver var
þarna á ferð. Hann flýtti sér á
Íappir aftur en gat ekki almenni-
lega fótað sig á gólfinu. Hann greip
um borðbrúnina fyrir framan
gjaldkerann en varð við það að
láta byssuna frá sér. Þegar hér
var kornið sögu lágu allir viðstadd-
ir í bankanum magnvana í hlát-
urskasti.
Carlo var að sjálfsögðu mjög
móðgaður yfir þessum viðbrögðum
og tók það til bragðs að hætta við
ránið. Hann snéri sér við, hljóp,
rann, hrasaði og skreið út úr bank-
anum. Þar endaði hann beint í
fangi lögregluþjóns sem var að
enda við að skrifa sekt handa hon-
um fyrir að leggja bíl sínum ólög-
lega fyrir framan bankann.
Frændum vorum Dönum virðist
einkar lagið að klúðra bankaránum
og hér eru tvö dæmi um slíkt. í
júní 1987 reyndu þrír framtaks-
samir bankaræningjar lengi vel að
sprengja upp peningaskápinn í
bankanum í Munkebo. Þrátt fyrir
sex tilraunir til að sprengja skáp-
inn upp lét hann ekki á sjá. Bank-
inn sjálfur var hinsvegar algerlega
jafnaður við jörðu og sprenging-
arnar voru tilkynntar í allt að 16
km fjarlægð.
Oðrum dönskum bankaræningja
tókst næstum því að slá Carlo
Coboldi við í klúðri er hann þaut
út úr banka einum í Kaupmanna-
höfn og veifaði til lögreglubíls.
Hann stökk inn í bílinn með feng
sinn og kallaði heimilisfang sitt til
lögreglumannsins sem ók. Ræn-
inginn mun hafa talið lögreglu-
bílinn vera leigubíl, a.m.k. sagðist
hann hafa ruglast á ljósunum á
; tki bílsins.
Fyrst við erum far-
in að ræða um glæpi
er ekki úr vegi að líta
á snögg viðbrögð lög-
reglu i einu máli. Það
var lögreglan í West
Midland sem brá
skjótt við í maí 1983
er henni barst til-
kynning um að pen-
ingaskápur væri einn
og yfirgefinn við veg-
inn að Halesowen. Á
örfáum sekúndum
var einkennisklæddúr
lögreglumaður kom-.
inn á vakt við skápinn
og beið þar í kiukk-
utíma þar til rann-
sóknarlögreglúmenn
rnættu til að taka
fingraför af skápn-
um. Að því búnu átti
að flytja skápinn á
brott en þá kom babb
í bátinn. Ekki reynd-
ist með nokkru móti
hægt að hreyfa skáp-
inn úr stað, jafnvel
þótt liðsauki þrekinna
lögreglumanna væri
sendur á staðinn. Þá
var ákveðið að senda
Land Rover með drátt-
artaug á staðinn en eftir 20 mínútna
hetjulega baráttu urðu menn að játa
sig sigraða. „Það var þá sem við
uppgötvuðum,“ sagði einn varðstjór-
inn, „að þetta var tengibox rafvei-
tunnar í Midland sem hafði verið
steypt í jarðveginn þama.“
G 17
HITAMÆL/ ; 5/É IR S |
100 c
Allar 1 stærðir 1 oo 1 gerðir I BU 60 40 20 pxl
-LlL SStunrOsMgiajiir Jéini®§©jii S Vesturgðtu 16 - Simar 14680-13280 0® M.
Þ.Þ0RGRfMSS0N&C0
UU RUTLAND UU ÞÉTTIEFNI /I PÖK - VEGGI - GÓLF ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640
TOYOTA
VETRARSKOÐUN
Eins og undanfarin ár bjóöa öll viðurkennd TOYOTA-verkstæði
í landinu upp á vetrarskoðun. Innifalið er:
® Mótorþvottur. ® Ath. viftureim. ® Ath. fjaðrabúnað, stýrisbúnað,
® Skipt um kerti. ® Mæla hleðslu. virkni hemla og pústkerfi.
® Skipt um platínur ® Hreinsa og smyrja ® Stilla kúplingu.
(ekki EFi). rafgeymispóla. ® Smyrja hurðalæsingar og lamir.
@ Skipt um loftsíu. ® Ath. þurrkur og rúðu- ® Mæla og jafna loft í dekkjum.
® Skipt um bensínsíu sprautur, setja á ísvara. ® Ath. olíu á vél, gírkassa og drifum.
(ekki EFi). ® Ath. öll Ijós. ® Bera silíkon á þéttikanta.
® Ath. blöndung. ® Ljósastilling. ® Reynsluakstur.
® Mótorstilling. ® Mæla frostþol kælivökva.
Innifalið: vinna, kerti, platínur, loftsía, bensínsía, ísvari, silíkon og vetrarpakki í bílinn að auki.
TILBOÐSVERÐ KR. 8.498.
Gildistími: 16.10.-31.12. 1989.
Eftirfarandi umboðsmenn sjá um vetrarskoðun T0Y0TA:
KÓPAVOGUR
Toyota, Nýbýlavegi 8,
s. 91-44144.
AKRANES
Ólafur E. Guðjónsson,
s. 93-12218.
BORGARNES
Bifreiða- og trésmiðja
Borgarness, s. 93-71200.
PATREKSFJÖRÐUR
Bílaverkstæði Guðjóns,
s. 94-1124.
ÍSAFJÖRÐUR
Vélsmiðjan Þór, s. 94-3711.
BLÖNDUÓS
Bflaþjónustan,
S. 95-24575.
SAUÐÁRKRÓKUR
Bifreiðaverkstæði
Kaupfélags Sauðárkróks,
S. 95-35200.
SIGLUFJÖRÐUR
Bif rei ðaverkstæð i
Ragnars Guömundssonar,
s. 96-71860.
AKUREYRI
Bifreiðaverkstæðið Bláfell sf.,
s. 96-21090.
HÚSAVÍK
Bílaleiga Húsavíkur,
s. 96-41888.
EGILSSTAÐIR
Bifreiöaþjónusta
Borgþórs Gunnarssonar,
S. 97-11436.
ESKIFJÖRÐUR
Bifreiðaverkstæði
Benna og Svenna,
s. 97-61499.
NESKAUPSTAÐUR
Bifreiöaverkstæði S.V.N.,
S. 97-71602.
HÖFN HORNAFIRÐI
Vélsmiðja Hornafjarðar,
S. 97-81340.
KIRKJUBÆJARKLAUSTURl
Bifreiðaverkstæði
Gunnars Valdimarssonar,
s. 98-74630.
SELFOSS
Kaupfélag Ámesinga,
s. 98-22000.
VESTMANNAEYJAR
Fjölverk hf, s. 98-11216.
KEFLAVÍK
Bifreiðaverkstæöi Steinars,
TOYOTA
s. 92-15499.