Morgunblaðið - 22.10.1989, Page 18

Morgunblaðið - 22.10.1989, Page 18
lW G’ MÓÍttíÖKtíLAÖIEl FJÖLMIÖLAR !iú«NÍJ*xi)uií ÖKtÓtíÉRl' FÓLK / fjölmiðlum ÆVAR Kjartansson dagskrár- gerðarmaður verður í vetur með tvo þætti í beinni útsendingu á rás 1 í ríkisútvarpinu. Hann mun bæði sinna menningu og listum og ennfremur þjóðfélags- og sam- félagsumræðunni. Listagyðjan verður blótuð í „Hádegis- stund í út- varpshúsinu" milli eitt og ^tvöásunnu- dögum. Ævar mun leita til tónlistar- manna, ljóð- skálda og rit- höfunda. Af hálfu útvarpsins er lagður mikill metnaður til þess að framlag listamannanna kom- ist sem best til skila, „sérstaklega vönduð steríóútsending". Fyrsta útsendingin verður fyrsta októ- ber. Eitthvað verður krunkað um þjóðfélagsmál og samfélagið á „Nátthrafnaþingi“ milli ellefu og tólf á miðvikudagskvöldum, Æv- ar og Ólína H. Þorvarðardóttir ætla að setjast niður með mönn- um og ræða ýmis þau þjóðfélags- efni sem eru ofarlega á baugi. Ætlunin er að kryfja mál til mergjar fremur en að raska svefnró manna með beinuin kappræðum eða „hanaati". I ráði er að fá valinkunna fræðimenn, stjórnmálamenn og embættis- menn til að segja og síðast en ekki síst rökstyðja sitt álit og mat á umræðuefnunum. ÆVAR KJARTANSSON FT-fréttir á Súper-rás BRESKA BLAÐIÐ Financial Times mun bráðlega hefja send- ingu viðskiptafrétta í sjónvarpi í fyrsta sinn. Fréttirnar verða á evrópsku gervihnattarásinni Su- per Channel. Sjónvarpað verður viðskiptafréttum þrisvar til fjór- um sinnum á dag og hver frétt- atími verður fimm mínútur. Su- per-rásin næst hér á iandi og nær til 17 milljóna heimila og 300,000 iiótelherbergja í Evrópu. Financial Times hefur einnig tryggt sér rétt til að flytja vikuleg- an þátt um evrópsk viðskipti á Su- per Channel. Nútíminner auglýstur lífsstíll ■ Auglýsingar leika á langanir fólks um skárri jardvist ■ Auglýsingar taka allt eins mikid mið af ímynduðum veruleika og raunveruleika OFT þegar vara er auglýst þá er það ekki hún sjálf sem er auglýst heldur eitthvað sem tengist henni og er eftirsóknar- vert. „Við könnumst við nútíma vöru sem sálfræðilegan hlut, sem tákn fyrir persónulega kosti eðá markmið og sem tákn fyrir félagslega stöðu og baráttu. Með þessum hætti má sjá að allir hlutir sem höndlað er með, hafa einhver táknræn sér- kenni...“ Sidney nokkrum Levy var það örðið ljóst fyrir um tuttugu árum að þegar auglýsa á vöru þarf að búa til seljan- lega ímynd. Þess vegna er það að þegar ríkissjóður þarf að seilast ofaní vasa borgaranna með sölu ríkisskuldabréfa er búin til auglýsingamynd fyrir sjónvarp sem sýnir mann í fjall- göngu — mynd sem einnig gæti nýst Skátabúðinni. Imyndir auglýsinga er búnar til með ýmsum hætti. Ef marka má athugun á myndræn- um bandarískum auglýsingum gegna manneskjur, umgjarðir og vörurnar álíka mikilvægu hlut: verki við sköpun ímyndanna. I sömu athugun kemur einnig fram að á síðustu áratugum hef- ur mjög færst í aukana að útlit og hönnun sé ráðandi þáttur í auglýsingum, einnig kímni, en mjög hefur dregið úr því að aug- lýsingar séu fyrst og fremst frá- sagnir, eins og algengt var fyrr á öldinni. Auk þess hafa Banda- ríkjamenn komist að því að aug- lýsingar höfði fremur til tilfinn- inga fólks en skynsemi. Sömu- leiðis hefur það verið fundið út að í nærri tvö skipti af þremur þegar persóna bregst við vöru í auglýsingu eru viðbrögðin til- finningaleg. ímyndir auglýsinganna eru sjaldan iíóknar. Oftast er um einföld þemu að ræða sem ótal BAKSVIÐ cftir Asgeir Fridgeirsson við heilbrigða lifnaðarhætti þrátt fyrir að öllum sé ljós skaðsemi vö- Úti- Margar íslenskar auglýsingar eru áþekkar þeim erlendu að þessu leyti. Sem dæmi má nefna nýja svaladrykkjarauglýsingu frá MS þar sem „töffarinn“ teng- ir drykkinn við aðstæður sem eiga sér stað í draumheimum unglinga. Annað dæmi eru aug- lýsingar á landbúnaðarvörum sem mjög oft tengjast hreysti og íslensku heilbrigði. Athuganir vestan hafs hafa leitt í ljós að á síðustu tveimur árátugum hefur æ meiri áhersla verið lögð á gildi tómstunda. Það er í sjálfu sér ekkert merkilegt þar sem það endurspeglar að miklu leyti þá staðreynd að slíkar stundir í lífí fólks eru orðnar fleiri. Hins vegar má ekki horfa framhjá því að margt af því sem auglýst er í tengslum við frístundir má nýta í tehgslum við margt annað. Þessu veldur að auglýsendur álíta að neytend- ur beri hlýrri tilfinningar til frístunda en annarra stunda og því sé sú leið greiðari að væntan- legum viðskiptavini. Gildismat samfélagsins er síbreytilegt. Auglýsingahönnuðir endurspegla það um leið og þeir breyta því. Að undanförnu hefur lífsstílshugtakið verið mjög ráð- andi í vestrænum auglýsingum. Lífsviðhorfum, starfi, stöðu, fjöl- skyldu sem og eignum og klæðn- aði er stillt upp sem einhvers konar lífsstíl og síðan er vörunni stillt upp við hlið þessa alls. Þeg- ar einhver sérstök kornflexteg- und á að skipta sköpum um vel- ferð manns sérhvern dag þá eru auglýsendur að tengja flögumar við daglega velgengni, lífsstíl, frama og árangur. Varan verður því sálfræðilegt tákn einhvers sem neytandann langar í. Þannig virka auglýsingar. afbrigði eru fundin við. Kók- og Pepsíauglýsingar eru t.d. mjög áþekkar. Þær eru óður til hinnar eilífu æsku. Allt það sem hefur jákvæð formerki og tengist æsku á heima í þessum auglýsingum, fegurð, fimi, fjör, leikur, íþróttir, gáski, hæfilegt kæmleysi og svona mætti áfram telja. Útlend- ar sígarettuauglýsingar em _______________ gjarnan stef rannar. vera, hraustleiki og fögnr nátt- úra er einkennandi fyrir auglýs- ingar margra tegunda og rétt eins og við eigum okkar Bjart í Sumarhúsum eiga Bandaríkja- menn sinn Marlboro-mann. Hersýning í Putalandi egar menn em með atnugasemdir í fjöi- miðlum og eru þar- með að leitast við að vekja athygli á hlutum sem mættu kannski að ósekju fara bet- ur, þá eru viðbrögðjn stund- um þau að þetta séu bara nöldurskjóður að hafa hátt og að þeim væri skammar nær að skrifa og skrafa um það hér heima sém sé þveit á móti til fyrirmyndar. En þetta er ótækt svar og jaðrar raunar við hroka. Maður á að heita fijáls maður í fijálsu landi og leyfist því væntan- lega að opna munninn. Og ansi er ég hræddur um að þetta land okkar hefði ekki reynst okkur jafn ágætlega og raun ber vitni ef aldrei hefði heyrst neitt „nöldrið". Eg veit til dæmis ekki betur en að við höfum „nöldr- að“ okkur út sjálfstæðið, hvorki meira né minna. Eg leyfi mér auk þess að efast um að sá maður nyti mikillar virðingar sem þyrði aldi’ei að hafa uppi aðfinnslur án þess að veifa einhverju sem vel væri gert í sömu andrá. „Það er aldeilis forkastanlegt hvernig við búum að oln- bogabörnum þjóðarinnar einsog til dæmis geðsjúkum, sem við tukthúsum jafnvel stundum en á hinn bóginn vil ég taka það skýrt fram að götuvitinn á horni Lauga- vegs og Snorrabrautar er okkur öllum til sóma.“ Ekki er ég frá því að sá maður sem hefði þennan háttinn á þætti eitthvað undarlegur. Fyrir utan ehdalausar sjónhverfingar póiitískra loddara (og nú keyrir um þverbak) er uppáhaldsnöldr- ið mitt, og sem ég hef raun- ar alið með mér um ianga hríð, svosem nógu meinlaust. Mér leiðist einhver ósköp hvað okkur íslendingum-er gjarnt að apa það eftir út- lendingum sem er ósjaldan næsta hjákátlegt hér í fá- menninu þóað það geti svo- sem verið gott og blessað með stórþjóðunum. Hingað má til dæmis ekki lengur rekast erlendur stórlax að ekki upphefjist samstundis sjónarspil sem er oftast jafn óþarft og það er hégómlegt. Veslings maðurinn er naum- ast fyrr búinn að tylla tánni á íslenska grund en liann er drifinn uppí tíu metra langan stórlaxabíl með fána á tijón- unni og settur um hann þre- faldur lögregluhringur á org- andi mótorhjólum. Það er einsog til okkar hafi flækst margfaldur morðingi sem eigi livergi heima nema í Steininum. Mörg serimonían verður í mínum augum einkanlega montrassasprang hér heima þóað hún geti kannski verið ágæt til síns brúks í hinni voldugu Ameríku ellegar jafnvel austur í Síam (sem nú heitir Thailand ef ég man rétt) gengu þegnarnir til skamms tíma ekki fyrir kónginn þá þeir þurftu fyrir hann. Þeir skriðu fyrir há- tignina. I Tíbet má ég segja heilsast menn líka sumstaðar enn í dag með því að reka útúr sér tunguna, og þegar karlarnir í indíánaþjóðflokki einum vestur í Alaska festu sér konu forðum, þá létu þeir það verða sitt fyrsta verk að bíta snyrtilega fremri köggulinn framan af báðum þumlum aumingja manneskjunnar. Svona geta nú eiiendir siðir verið var- hugaverðir. Og ég veit svei mér ekki hvort hún er heldur til fyrirmyndar þessi uppá- haldsskemmtun Kanans að hella úr rusladöllum sínum yfir mikilmennin sín hvar þau síga skælbrosandi upp breiðstrætin baðandi út öll- um öngum. Ég hefði haldið að með því að þetta eru oft- ast stjórnmálamenn væri freistandi að láta dallinn vaða líka. Mér finnst mótorhjólarall- ið með stórlaxinn með lífið í lúkunum í miðri kássunni eitthvað svo ýkt, ef svo mætti orða það, eitthvað svo langsótt. Hér er ekki leigu- morðingi á hveiju götuhorni nema síður sé né heldur hryðjuverkamaður bakvið hvert gluggatjald. Hér ríkir ekki umsátursástand og það er engum til góðs og ekki að heldur til frama að láta þannig. Verst að þessi árátta er sífellt að vinda uppá sig. Um daginn hefði mátt halda að maður væri kominn til San Franeisco, svo mikið gekk á í miðbænum. Það varð varla þverfótað fyrir leðurklædd- um piltum sem fussuðu á okkur smáfólkið þegar við vildum í sakleysi bkkar halda inná Austurvallarsvæðið. Ég ætlaði aldrei að hafa það útað Herkastala þar sem helst var veik von um stæði undir gandinn. En það hafði ekki orðið jarðskjálfti, seisei nei. Tilefni þessarar hersýn- ingar í Putalandi var ekki stórvægilegri atburður en setning þingsins, sem einsog allir vita dregur að sér svo- sem tíu manna múg þegar best lætur. Ég vil taka það skýrt fram að þegar ég hóf umræðuna um „nöldurskjóðurnar" vakti alls ekki fyrir mér að grípa nú tækifærið til þessað koma þessu sparinöldri mínu á framfæri. Svei mér þá. Þetta æxlaðist bara svona, og þeg- ar maður er á annað borð byrjaður að gjósa . . s Én hvað viðvíkur „nöldr- inu“ fólksins sem bankar uppá hér á Mogga til dæmis ár eftir ár, þá skyldi enginn gera lítið úr greinunum sem það er að færa okkur. Drop- inn holar steininn, þóað aldr- ei væri annað. Og örm er sú þjóð vissulega, einsog sann- ast nú á Austur-Þjóðverjum bókstaflega fyrir augum okkar, sem aldrei hefur dirfst að opna munninn nema ef það væri þá til þess að kytja í kórlögboðinn lofsöng um drottnara sína. Gísli J. Ástþórsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.