Morgunblaðið - 22.10.1989, Side 25
iMOffGg-IýBLAfflÐ, MEIMNIIUGARSTRAUMAR :.?{>K!\'I^AG,UR
22,: OKTÓBER
'iC ,£5
KVIKMYNDIR/ftW^ var á hátíbinni?
Stutt mynd um gláp
EINS OG oftast áður einkennd-
ist nýafstaðin Kvikmyndahátið
af (1) frábærum myndum, (2)
myndum sem varla voru fyrir
almenning, (3) myndum sem
hefði mátt sleppa og (4) mynd-
um sem ekki voru sýndar.
Fyrsti hópurinn var stærsti hóp-
urinn, okkur gafst tækifæri til
að sjá virkilega góðar myndir eins
og Lestina leyndardómsfullu, Sala-
am Bombay!, Stutta mynd um dráp,
Hanussen, Vitn-
isburðinn, Fjöl-
skylduna, Himin-
inn yfir, Berlín,
Blóðakra, Köll úr
íjarska, kyrrt líf,
Sögur af Gimli-
spítala, Liðsfor-
ingjann, Píslar-
göngu Judith He-
arne og fleiri sem gætu verið sálin
og hjartað í hvaða hátíð sem er
hvar sem er í heiminum („Lestin"
og „Stutt mynd“ voru á kvik-
myndahátíðinni í New York sem
lauk tveimur dögum eftir að þessi
hófst).
Hópur númer tvö voru myndir
eins og „Ashik Kerib“ (vinur minn
kaliaði hana aldrei annað en
Kebab) frá Rússlandi, Gerónima
frá Argentínu og Flökkulíf frá
Mexíkó svo einhveijar séu nefndar.
Það má vera að augu vesturheims
eftir Arnald
Indriðason
Fjöiskyldan eftir Ettore Scola; ein af þeim bestu.
séu að opnast fyrir myndum Sergei
Páradjanovs en þau vildu lokast
hjá mér undir Súramvirkinu á
síðustu hátíð svo ég lét „Kerib"
mæta afgangi í þetta sinn. Hinar
höfðu aðeins gildi sem cinlægar og
foivitnilegar.
Hópur númer þijú voru myndir,
sem helst máttu missa sín og flokk-
ast undir tilefnismyndir. I tilefni
af komu ungverska leikstjórans
István Szabó var t.d. tíu ára gömul
mynd, Trúnaðartraust, dregin á
lappir og Mefistó var sýnd hér í
þúsundasta skipti. Hún er að vísu
hluti af þríleik Szabó um þróunina
í Mið-Evrópu áður og þegar nas-
istar komust til valda en það er
líka eina afsökunin. í tilefni af
komu breska leikarans Terence
Stamps voru sýndar tvær myndir
(Uppgjörið og Billy Budd) sem
varla teljast til listahátíðamynda. í
tilefni af komu franska leikarans
Jean Renos var dregin upp fyrsta
mynd Luc Besson, Urslitaorustan,
sem sjö ára gömul bætti lítið frek-
ar bragðlaust úival franskra
mynda. Og í tilefni af komu þýska
leikarans Bruno Ganz var sýnd
gömul Volker Schlöndorffs-mynd,
ágæt, en ef hefði verið hægt að fá
í staðinn nýja mynd frá Spáni (sem
engan fulltrúa átti á hátíðinni)
hefði það verið betur þegið auk
þess sem nýjasta mynd Ganz,
„Strapless“, er hin forvitnilegasta.
Þar með er komið að síðast-
nefnda hópnum, myndir sem ekki
voru sýndai', en hann verður alltaf
viðloðandi kvikmyndahátíðir. Það
er endalaust hægt að snúa uppá
sig og nefna bíómyndir sem ekki
komu en í heildina tókst valið ágæt-
lega. Hlutverk Kvikmyndhátíðar
er auðvitað ekki aðeins að veita
mönnum tækifæri til að sjá rnyndir
sem annars kæmu hér aldrei — hún
gerir það hvort sem er — heldur
og ekki síður að gefa okkur tæki-
færi til að fylgjast með því besta
og því nýjasta sem er að gerast í
heimi listamyndanna. Það tókst.
Helmingur myndanna eða svo var
hreinasta himnasending hingað í
ameríska bíóhverfíð, nýtt og ferskt
og óendanlega öðruvísi.
Af þeim myndum sem ég sá er
Lestin leyndardómsfulla í mestu
uppáhaldi, einstaklega kómísk lýs-
ing á degi í lífi Memphisborgar og
yndislegum ferðalöngum á leið í
gegnum hana. En líklega var Vitn-
isburðurinn eftir Tony Palmer
mesti kvikmyndaviðburðurinn á
hátíðinni á undan Himni yfir Berlín,
Gimlispítalanum, Bombay og hinni
mögnuðu pólsku verðlaunamynd
um dráp. í Vitnisburðinum liðu 157
mínútur af ævi rússneska tón-
skáldsins Dimitri Shostakovitsj
sem þú gleymir ekki í bráð.
Hvernig var á hátíðinni? Það var
eins og að koma til Greisran.
MERLIN GERIN
NEYÐARSPENNUGJAFAR
FYRIR TÖLVUR OG
TÖLVUKERFI
Stærðir: 250VA - 4800kVA
Getum einnig útvegað
með stuttum fyrirvara:
- Spennujafnara
(Line Conditioner)
- Spennusíur (Filters)
MERLIN GERIN býður
vönduð og nákvæm
tæki, þar sem öryggi
er í fyrirrúmi.
'9LTI
HF.
Vatnagörðum 10
Símar 685854, 685855.
THAILAND
Verö frá
hr. 69.700
PATTAYA baðstrandarbærinn og BANGKOK
Brottför alla miðvikudaga. 9, 16, 23 og 30 dagar.
íslenskur fararstjóri í allan vetur.
— FinnFEROIR
ÓTRÚLEGT EN SATT -
Nú getum við boðið slíkar ævin
týraferðir á Kanaríeyjaverði.
Takmarkað sætaframboð.
= SGLRRFLUG
Vesturgötu 17 Simar 10661,15331 og 22100
Þriskiptar dragtir
Stærðir: 38-48
v/Laugalæk-sími 33755
Áskriftarsíminn er 83033
Virðisaukaskattur
- kynningarnámskeið -
í næstu viku hefjast kynningarnámskeið um virðisaukaskatt.
Aðalsteinn Hákonarsson, lögg. endurskoðandi hjá Endurskoðun
hf. kynnir grundvallaratriöi hins nýja skattkerfis og leyst verða
raunhæf verkefni með MET-hugbúnaði á Macintosh-tölvur.
Námskeiðið er 6 klst. langt og
skiptist á tvo daga.
Upplýsingar og skráning
í síma 678 978
- TRAUSTUR TOLVUSKOLI -
GRENSÁSVEGI 13, 108 REYKJAVÍK
SÍMl 678 978
MacBók
Bókhaldsforrit með dæmigerðum
Macintosh-svip.
Einstaklega auðvelt í notkun!
Tölvustofan sf.
Grensásvegi 13,108 Reykjavík, sími 678 978