Morgunblaðið - 28.10.1989, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.10.1989, Blaðsíða 9
9 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1989 AÐALSTOÐIN Góður félagi um þessa helgi. Laugardagur: 10 - 13. Þorgeir Ástvaldsson leikur nýja og gamla tónlist. 13-14. Anna Björk Birgisdóttir með ryksugurokk og Ijóðræna afþurrkunartónlist. 16 - 19. Bjarni Dagur Jónsson bregður sér í sveitagervið og leitar uppi sveitasöngva að vestan. 22 - 02. Jón Axel Ólafsson sér um sína og að allt sé í þessu fína heim í notarlegheitum. Sunnudagur: 10 - 13. Ásgeir Tómasson vaknar hér fyrstur manna með sunnudagstónlist. 13 - 14. Inger Anna Aikman kemur okkur alltaf í hátíðarskap. Þegar hún talar, hlustar þjóðin. 16 - 18. Jón Ólafsson Bítlavinur snýr aftur til útvarpsins. Þessu máttu ekki missa af, hann verður skondinn strákurinn. 22 - 24. Létt klassísk tónlist í helgarlok og vikubyrjun. Fjárlagahall- inn 1990 2% aflandsfram- leiðslu! Guðmundur H. Garð- arsson alþingismaður sagði i fjárlagaumræð- unni að margir veikir hlekkir væru í Qárlaga- frumvarpinu. Telguliðir væru stórlega ofáætlaðir og gjaldaliðir að sama skapi vanáætlaðir. Taldi þingmaðurinn að fjár- lagahalli komandi árs yrði, að forsendum óbreyttum, ekki undir 7.000 m.kr., eða 2% af landsframleiðslu sem væri stórt skref til öfugr- ar áttar. Guðmundur sagði að í hönd færi þriðja sam- dráttarárið í þjóðarbú- skapnum. Tekjuáætlun flárlagafrumvarpsins tæki'hvergi nærri nægi- legt mið af þessum sam- drætti, sem að sjálfsgöðu myndi segja til sín í smærri skattstofhum og lægri skatttekjum en í góðæri. Stjómarstefrian hefði lagst á sveif með ytri aðstæðum við að skerða tekjulíkur fólks og fyrirtælga og þar með rikissjóðs. Þingmaðurinn staðhæfði að telgur ríkis- sjóðs væm af þessum sökum ofáætlaðar sem næmi 1.000-1.500 m.kr., auk þess jöfhunargjald væri ofáætlað um 500. m.kr. Ofaætlun á tekju- hlið næmi því um 1.500- 2.000 m.kr. Þingmaðurinn taldi eftirtalda gjaldaliði van- áætlaða í frumvarpinu: 1) Kostnaður vegna nýrr- ar verkaskiptingar ríkis og sveitarfélaga um 200-500 m.kr., 2) Niður- greiðslur um 700-1.000 m.kr., 3) Lánasjóður námsmanna um 200-300 m.kr, 4) Laun um 500-800 m.kr., 5) Lifeyrissjóður ríkisstarfsmanna um 500 m.kr., 6) Byggingarsjóð- ur ríkisins um 500-1.000 m.kr., 7) Útflutnings- bætur um 300-500 m.kr., 8) Lyfja- og lækniskostn- aður um 500 m.kr., 9) Ellilifeyrir 200 um m.kr. og fleiri liði nefhdi hann svo sem menntamála- Ofáætlaðar tekjur - vanáætluð útgjöld! Guðmundur H. Garðarsson alþingismað- ur fullyrti í fjárlaga-umræðu sl. fimmtu- dag að tekjuliðir fjárlagafrumvarps Ólafs Ragnars Grímssonar væru ofáætlaðir en gjaldaliðir vanáætlaðir. Benda má á aug- Ijósa veikleika í fjárlagafrumvarpinu, sagði þingmaðurinn, sem að óbreyttu kunna að leiða til 5.500-7.700 milljóna króna aukins halla. Sem kunnugt er lagði fjármálaráðherra fram fjárlagafrumvarp fyrir árið 1989 með rúmlega þúsund millj- óna króna rekstrarafgangi (afgreitt með 630 m.kr. afgangi) en fjárlagaveruleiki ársins stendur hinsvegar til 5.000 m.kr. halla. Staksteinar stinga nefi í fjárlaga- ræðu Guðmundar H. Garðarssonar í dag. ráðuneyti, niðurgreiðslur á rafmagni og Þjóðar- bókhlöðu. Samtals taldi þingmaðurinn gjaldaliði vanáætlaða um 4.000- 5.660 m.kr. Að teknu tilliti til áformaðs útgjaldaniður- skurðar, sem einhveijum árangri hlyti að skila, áætlaði hann að halli ríkissjóðs, miðað við fj<ir- lagastefhu ríkisstjórnar- innar, yrði ekki undir 7.000 m.kr. 1990, þ.e. yfir 2% af landsframleiðslu. Þróun og greiðslubyrði erlendra skulda Guðmundur H. Garð- arsson vék og í ræðu sinni að þróun erlendra skulda og greiðslubyrði. Hann vitnaði til heimilda frá Seðlabanka Islands sem sýna að löng erlend lán vóru 51,1% af lands- framleiðslu 1985 (þegar Þorsteinn Pálsson tók við). Skuldastaðan var hins vegar komin niður í 40,4% 1987 (þegar Þor- steinn skilar af sér). Er- lendar skuldir vóru 41,3% af landsframleiðslu 1988 (þegar Ólafiir Ragn- ar tekur við). Þjóðhags- áætlun gerir hinsvegar ráð fyrir því að skulda- staðan verði 53,1% í lok fjárlagaársins 1990. Þetta er íslandsmet í skuldastöðu sagði þing- maðurinn. Svipað verður upp á teningnum þegar heim- ildir Seðlabanka um greiðslubyrði erlendra lána eru skoðaðar. Greiðslubyrðin var 19,9% af útflutningstekjum 1985 (þegar Þorsteinn Pálsson tekur við) en 16,1% 1987 (þegar hann skilar af. sér). Greiðslu- byrði er 17,3% af útflutn- ingstekjum 1988 (þegar Ólafur Ragnar setzt í stól fjármálaráðherra) en verður í lok fjárlíigaárs- ins 1990, samkvæmt láns- fjáráætlun, 20,1%. Þetta er ekki góður árangur hjá ríkisstjórn Steingríms Hermanns- sonar, sagði þingmaður- inn, eða hjá hinum sjálf- umglaða Qármálaráð- herra hennar. Þessi þró- un þýðir verri stöðu þjóð- arbúsins, meiri greiðslu- byrði fólks og fyrirtælga, verri afkomu. Árangurá mælikvarða almennrar af- komu Það er sama hvort árangur stjóraarstefii- unnar er mældur í þjóð- artekjum, rekstrarstöðu atvinnuveganna, at- vinnuöryggi (atvinnu- leysi), kaupmætti launa, skattaþróun (sem segir m.a. til sin í vöruverði) eða afkomu rikisbúskap- arins — alls staðar en niðurstaðan ein og söm. Fjármálaráöherrann og formaður Alþýðubanda- Iagsins, Ólafur Ragnar Grímsson, sem er hönn- uður og hinn „sterki maður“ s(jórnarinnar, kallar fjárlagafrumvarp sitt fyrir árið 1990 tíma- mótafrumvarp. Séð í kastljósi Guðmundar H. Garðarssonar, sem hér heftir verið vitnað til, litur það hinsvegar út eins og spilaborg, sem hrynur trúlega með svip- uðum hætti og fjárlög liðandi árs hafa þegar gert. KULDASKOR Stærðir: 40-46 Litur: Svart + brúnt Efni: Skinn Verð: 4.790,- T0PPJ KRINGWN KNHeNH S. 08921Z 4L gjw VELTUSUNOt 21212 5% staðgreiðsluafsláttur Póstsendum samdægurs. TIL SOLU Willys CJ-7 Laredo árg. ’84, 6 cyl., 4,2 I með flækjum. 36“ radial mudder og 10“ álfelgur. Drifhlutfall 1:4,56, diskalæsingar að aftan og framan. Raucho fjaðrir, loftdæla, vökva- og veltistýri. 2x100 w kastarar. Útv. + segulband, 4 hátalarar. Verð kr. 1.250.000,- Skipti á ódýrari koma til greina. Upplýsingar í síma 71772. Áskriftarsíminn er 83033

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.