Morgunblaðið - 28.10.1989, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.10.1989, Blaðsíða 27
MÖRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28, OKTÓBER 1989 fólk í fréttum TÓNLIST Ennisrakaðir skötuselir E lías Bjarnhéðinsson er þekktur í það minnsta í sinni heimabyggð Vest- mannaeyjum sem snjall handboltamaður, en færri vita kannski að hann hefur haslað sér völl sem tónlist- armaður; hefur gefið út eina plötu, sem seldist allvel, og er að byija að vinna aðra. Elías hefur starfað með sveit sinni Ennisrökuðum skötuselum, sem skipuð er hljóðfæraleikurum úr Eyja- sveitinni góðkunnu Sjöund. I því samstarfi hefur hann beitt viðurnefninu E1 Pu- erco. í stuttu spjalli sagði Elías að tónlistin skipaði æ stærri þátt í lífinu og að honum hefði gengið framar vonum að koma sér á framfæri. Hann sagðist gjarnan reyna að koma við kauninn á fólki í textum sínum með því að benda á hræsni og yfir- drepsskap og hann kynni vel við að fá kröftug við- brögð við iögum og textum, enda væri það svo að fólk ýmist hrifist af eða brygðist hið versta við; fáir væru hlutlausir. Elías sagði að fyrsta platan, sem hét bara Ennisrakaðir skötuselir, hefði verið hans sólóplata, en næsta plata, sem ætti að koma út næsta vor, væri meiri hljómsveitarplata, enda hefði.hljómsveitin náð vel saman eftir að vera búin að leika á ótal tónlekum víða um land. Aðspurður sagðist Elías hafa meira gaman af að spila á fastalandinu, en að leika fyrir Eyjamenn, enda meira gaman að leika fyrir ókunnuga þar sem meiri óvissa væri með viðbrögð og því meiri spenna í loft- inu. Hann sagðist þó ekki vera að kvarta yfir við- tökum Eyjamanna. RITSTÖRF Fergie lúrir á milljónum eins og’ ormur á gulli Elías „E1 Puerco“ Bjarn- héðinsson. Ronald Reagan, fyrrum Banda- ríkjaforseti, og eiginkona hans, Nancy, heiðra Japani þessa dagana með nærveru sinni. Þeim hjónunum hefur verið sýndur margvíslegur sómj m.a sæmdi Akíhító Japanskeis- ari Reagan æðstu orðu þjóðarinnar fyrir að hafa stuðlað að bættum samskiptum Bandaríkjamanna og Japana í forsetatíð sinni. Myndin var Reuter hins vegar tekin í kvöldverðarboði sem Michael Armacost, sendiherra Bandaríkjanna í Japan, gekkst fyrir til heiðurs Reagan-hjónunum. Á meðal þeirra fyrirmenna sem það sóttu var sjálfur Takamiyama, einn þekktasti súmó-glímukappi Japana, sem hér heilsar forsetafrúnni fyrr- verandi. COSPER - - Haltu húsinu fostu á meðan ég sting lyklinum í skráargatið Sarah Ferguson, hertogaynja af York, kraumar af athafnagleði og hefur hún nú líkiega orðið til að að koma henni í ónáð hjá Elísabetu Bretadrottningu sem kallar hana nú „peningasjúka". Fergie er nefnilega farin að rita bækur og græðir á tá og fingri. Milljónirnar hellast inn, én í stað þess að láta aurana renna til líknarmála eins og hefð er fyrir í kónga- flölskyldunni, sankar Fergie aurunum inn á bankabók og lúrir á þeim eins og ormur á gulli. Sagt er að Fergie hafi reynst prýðilega ritfær þegar í barna- skóla og hefur hún nú sent frá sér tvær barnabækur um þyrl- una Budgie. Hafa bækurnar fengið feik- nagóðar viðtökur heima fyrir og bandarískt stórfyrir- tæki hefur falast eftir einkarétti til að láta vinna teiknimyndas- eríu um þyrluna. Það eru ekki smápeningar sem hér er um ræðir, margar milljónir íslen- skar. Þá gengur Fergie á eftir ritstjór- Fergie með ferðatösku um breska blaðsins (fulla af peningum?) Daily Express þessa dagana með svipu á lofti og krefst þóknunar fyrir að leyfa blaðinu að hafa við sig viðtai um bækurnar! Stóra bomban kom svo fyrir skömmu. Fergie gerði það heyrin- kunnugt að hún væri farin að taka saman sjálfsævisögu sína og væri ekkert undan dregið, bókin yrði full- gerð á næsta ári og útgefendur berð- ust um útgáfuréttinn enda um gull- tryggða metsölubók að ræða. Það mun ekki vera ofsögum sagt, að Elísabet Bretadrottning sé lítt ánægð með Fergie og telji það hneyksli að kóngafólk í Bretlandi nútímans raki saman fé þegar svo margir séu þurfandi. Fergie segir það aftur á móti sitt mál hvernig hún veiji frístundum sínum. Júlíus Saga Bessi Kjartan Brjánsson Jónsdóttir Bjarnason Bjargmundsson SameinaÖi grínflokkurinn DÉ LÓNLÍ BLÚ Hljómsveitin mmnoio frá Akureyri rokksyeít RÚNARS JÚLÍUSSONAR Sveilln milli sanda Opnum kl. 19 fyrir matargesti. Marg rómaður matseðill - Borðapantanir í síma 29098. — Á næstunni — StUifcl Næstu sýningar: 7. sýningföstudagskvöldið 3. nóv. 8. sýning laugardagskvöldið 4. nóv. 9. sýningföstudagskvöldið 10. nóv. 10. sýning laugardagskvöldið 11. nóv. Sami miði gildir á allar hæðir! Staður í uppsveiflu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.