Morgunblaðið - 28.10.1989, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.10.1989, Blaðsíða 36
FLÓRÍDA LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Morgunblaðið/Þorkell Hjóla ísólarhring Nemendur 5. bekkjar MR hófu maraþonhjólreiðar í kringum Tjörnina klukkan 17 í gær °g hyggjast þeir hjóla stanzlaust í einn sólarhring. Er þetta gert til að afla fjár til skóla- ferðalags næsta vor. Til að ræsa kappana var fenginn gamall nemandi úr MR, Steingrím- ur Hermannsson forsætisráðherra. Morgunblaðið/Sverrir Örtröð á dekkjaverkstæðum Miklar annir voru á dekkjaverkstæðum á höfuðborgarsvæðinu í gær, á fyrsta snjódegi vetrarins. Guðlaugur Jónsson í Barðan- um sagði í samtali við Morgunblaðið í gærmorgun að það biðu um 140 manns eftir því að fá vetrardekk undir bifreiðar sínar og milli 40 og 50 bílar kæmu á hveijum stundarfjórðungi. Vegna góðrar tíðar undanfarið voru fáir búnir að búa bifreiðar sínar undir vetrarakstur. Flugleiðir: Á þriðja tug starfs- maiuia sagt upp í gær Hefur fækkað um 300 undanfarið ár Óskað hefiir verið eftir inn- siglun um 1.100 fyrirtækja Hert innheimta söluskatts á árinu: Á ÞRIÐJA tug starfsmanna Flugleiða var sagt upp störfum í gær. Jafhframt var tekin ákvörðun um að framvegis fari menn í stjórnun- arstörfum innan félagsins á eftirlaun við 67 ára aldur. Flestir þeirra sem sagt var upp í gær eru í stjórnunarstörfum í ýmsum deildum í Reykjavík en einnig var fólki sagt upp úr störfúm sem talið er að unnt sé að leggja niður eða sameina öðrum. „Fyrirtækið hefur dregið saman seglin undanfarið og lögð er áhersla á að halda öllum kostnaði í lág- marki,“ sagði Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða. „Launakostnaður er stærsti einstaki kostnaðarliðurinn hjá fyrirtækinu og hefur verið yfir 30% en það er markmiðið að hann verði innan við 30%. Til að ná þessu markmiði várð að taka ákvörðun um uppsagnir fólks í um það bil 25 stöðu- gildum. Við höfðum vonað í lengstu lög að við gætum náð þessu mark- miði með því að ráða ekki í störf þeirra sem hættu en með því móti hefur starfsmönnum fækkað um 16%, eða rúmlega 300 stöðugildi undanfarið ár.“ Aðspurður hvort búast mætti við frekari uppsögnum hjá fyrirtækinu sagði hann svo ekki vera: „Við teljum að þessu sé lokið núna, að við séum búnir að ná því markmiði sem við settum okkur. Miðað við stærð fyrir- tækisins eins og hún er nú, og á eftir að verða á næstu misserum, teljum við að séum með þann starfs- mannaíjölda sem þarf á að halda en við munum sýna aðhald í sambandi við nýráðningar," sagði Sigurður Helgason. Hann sagði að uppsagnirnar tækju gildi á misjöfnum tíma, eftir eðli starfsins og eftir samkomulagi. Sig- urður sagði að starfsaldur margra þeirra sem sagt var upp í gær væri alllangur og að starfsmannastjóri fyrirtækisins mundi aðstoða eftir föngum við að finna fólkinu önnur störf. Helga Birkisdót,tir formaður Starfsmannafélags Flugleiða vildi ekkert segja um uppsagnirnar þegar eftir var leitað í gærkvöldi. TOLLSTJÓRINN í Reykjavík heftir það sem af er árinu óskað eftir við lögreglu að um 1.100 fyrirtæki verði innsigluð vegna vanskila á söluskatti. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík hafa um 350 fyrirtæki verið innsigluð í borginni vegna vanskila á söluskatti á árinu. Tekjuauki ríkissjóðs vegna hertrar innheimtu söluskatts er talinn nema allt að 700 milljónum króna á ári, að sögn Snorra Olsen deildarstjóra í Qármálaráðuneytinu, sem segir að aðgerðirnar, sem hófúst þann 19. júní síðastliðinn, hafi skilað bættri innheimtu söluskattsins um 1-2%. Allt árið í fyrra voru beiðnir um innsiglun fyrirtækja vegna van- goldins söluskatts um 200 talsins, að sögn Björns Hermannssonar tollstjóra, en verulegur hluti kem- ur aldrei tii framkvæmda, til dæm- is vegna þess að skuld er greidd, fyrirtæki er gjaldþrota eða hætt starfrækslu eða starfsstöð fyrir- tækis er á heimili eiganda. A ð sögn Snorra Olsen er áætlað að þær hertu innheimtuaðgerðir sem íjármálaráðuneytið tók upp vegna vangoldins söluskatts á liðnu sumri hafi skilað því að inn- heimta söluskatts sé nú 1-2% betri en á síðasta ári. Snorri áætlar að tekjuaukinn nemi allt að 700 millj- ónum króna. Þá sagði hann að við innheimtu eldri söluskattsskulda hefði náðst enn betri árangur. Verið væri að kanna tölur þar að lútandi og yrðu þær gerðar opin- berar á næstu vikum. Ekki lágu fyrir tölur um endurgreiðslu inn- heimts söluskatts samkvæmt ákvörðun ríkisskattanefndar eða dómstóla. Þá sagði Snorri Olsen að á næstunni yrði gripið til hertra aðgerða vegna vanskila á stað- greiðslu tekjuskatts en frá síðasta ári eru um 800 milljónir króna af 22 milljarða heildarstaðgreiðslu- skatti ógreiddar, að meðtöldum álagningum. Hornagörður: Veiddu há- hyrning' HALLDÓRA HF 61 kom í gær með lifandi ungan há- hyrning til Hafnar í Horna- fírði. Háhyrningurinn var fluttur landleiðina til Hafhar- fjarðar og settur í laug í Sædýrasafninu í gærkvöldi. Halldóra hefur verið á há- hyrningaveiðum í haust og er þetta annar háhymingurinn, sem báturinn nær. Skipstjóri á Halldóru er Jón Gunnarsson, sem áður hefur stundað há- hyrningaveiðar fyrir erlenda dýragarða á bátnum Guðrúnu. Járnblendifélagið á Grundartanga: Hagnaðarhlutdeild greidd í fyrsta skipti VEGNA góðrar afkomu íslenska járnblendifélagsins á þessu ári liggur ljóst fyrir að félagið mun í fyrsta sinn greiða Landsvirkjun hagnaðarhlutdeild á næsta ári. Við endurfjármögnun jám- blendiverksmiðjunnar við Grund- artanga árið 1984 var samningum Járnblendifélagsins við Lands- virkjun breytt á þá lund að þegar eiginfjárhlutfall næði 40% og hagnaður væri meiri en 51,3 millj- ónir, fengi Landsvirkjun greidda hagnaðarhlutdeild sem næmi þriðjungi af hagnaði umfram 51,3 milljónir. Það er ljóst að til greiðslna kem- ur á næsta ári til Landsvirkjunar, en ekki er endanlega ljóst um hversu háa upphæð verður að ræða. Hún mun þó að minnsta kosti hlaupa á tugum milljóna. Endanlegt uppgjör mun liggja fyr- ir innan skamms. Litlu munaði að til þess kæmi á þessu ári að greidd yrði hagnaðarhlutdeild vegna árs- ins í fyrra. Að sögn Stefáns Reynis Krist- inssonar, fjármálastjóra íslenska járnblendifélagsins, er rekstur verksmiðjunnar mjög blómlegur um þessar mundir, enda árin í ár og fyrra mjög góð. Hann segir þó vera farið að halla undan fæti, þar sem verð sé nú 30-40% lægra en á fyrsta fjórðungi ársins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.