Morgunblaðið - 28.10.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.10.1989, Blaðsíða 24
24 MOROUNBLADIÐ L4U,GARlj4Gli'K 28.; OKTORRR: 1989 Guðjón Jósefsson bóndi, Asbjarnar- stöðum — Minning Fæddur 11. apríl 1909 Dáinn 20. október 1989 Með eftirfarandi orðum langar mig að minnast Guðjóns á Ásbjarn- arstöðum. Frá bernsku minni man ég fyrst eftir honum á hvítum hesti sem hann átti. Tvö atriði man ég best, hvað Guðjón heilsaði mér hlý- lega og hvað hann fór hratt á hest- inum. Næsta minning er frá veik- indum hans veturinn 1948 er hann veiktist af btjósthimnubólgu og tvísýnt var um líf hans. Þá fór Sig- rún kona hans frá nokkurra vikna gamalli dóttur þeirra til að hjúkra honum á sjúkrahúsinu á Hvamms- tanga. Þau hjónin þökkuðu það áræðni og hæfni Brynjólfs Dags- sonar sem þá var læknir á Hvamms- tanga, að Guðjón lifði þessi veikindi af, en alltaf síðan var hann veill fyrir brjósti. Eitt atvik enn er mér ógleyman- legt úr æskuminningunum. Það er frá sameiginlejgri smalamennsku hér í dalnum. Eg var gangandi og tapaði kindahóp austur yfir á og stefndu þær viðstöðulaust til fjalls. Ég stóð eftir uppgefinn og ráðþrota og hafði beðið ósigur. En mitt í raunum mínum sá ég hvar Guðjón kom hæst ofan af fjalli á Brún sínum, sem var afburða fjörhestur, og hleypti í einum spretti fyrir fjár- hópinn og rak hann á rétta leið, 1 Ég bjóst við einhverjum ávítum fyr- ir mistökin, en það var öðru nær, hann taldi að ég ætti enga sök á óþekktinni í rollunum. Seinna sá ég margsinnis sambærileg atvik. Guðjón var alltaf tilbúinn að koma og leysa vandamál hver sem þau voru og hann var ekki að ávíta þá sem höfðu búið þau til. Árið 1979 urðu þáttaskil í lífi mínu er við Kristín dóttir hans keyptum Þorgrímsstaði og hófum þar búskap. Þá og ætíð síðan veitti Guðjón okkur ómetanlega hjálp á allan hátt og eftir þetta kynntumst við betur. I einkalífi var Guðjón mikill gæfumaður. Hann kvæntist árið 1940 Sigrúnu Sigurðardóttur frá Katadal. Eignuðust þau 6 efnileg börn sem öll hafa stofnað sín heim- ili. Öll bera þau sterkar og hlýjar tilfinningar til foreldra sinna og bernskuheimilis og hafa fjölskyldu- böndin verið mjög sterk. Þó hans skólaganga yrði ekki nema 2 vetur á héraðsskólanum á Núpi var hann með allra fróðustu mönnum sem ég hef kynnst. Minni hans var öruggt og hélt hann því fram að því síðasta. Öll störf sín vann Guðjón af snyrtimennsku og nákvæmni, hver hlutur átti sinn stað. Og eftir reglunni „frestaðu því aldrei til morguns, sem þú getur gert í dag“ fór hann undantekning- arlaust. Með ttyggð til máls og manna á mátt hins góða og sanna þú trúðir traust og fast. Hér er nú starfsins endi. í asðri stjórnar hendi er það„ sem heitt í hug þú barst. (Einar Ben.) Ásbjörn Guðmundsson Heimilið á Ásbjamarstöðum var góðvini mínum Guðjóni Jósefssyni bónda afar kært, þar haliaði hann oft þreyttur höfði til hvíldar, þar vaknaði hann til þess að ganga til stárfa á sínu eigin búi, þar sem áður var heimili foreldra hans, og einkabróður Lofts er síðar bjó enn- fremur á Ásbjarnarstöðum, ásamt konu sinni Margréti Guðmunds- dóttur. Heimilið minnti hann á æskuna og æskugleðina, minnti Guðjón á ógleymanleg augnablik, þegar þeir bræður voru að vakna til lífsins og fegurð þess birtist eins og fagur ljómi. t Eiginmaður minn, BALDUR KARLSSON skipstjóri, Egilsbraut 6, Þorlákshöfn, andaðist föstudaginn 27. október. Guðrún Jóna Jónsdóttir. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðar- för eininkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og systur, ELVU BJARGAR HELGASON HJARTARDÓTTUR frá Borgarnesi, Guð blessi ykkur öll. Pétur Júlíusson, börn, tengdabörn, barnabörn og bræður. t Elskuieg mágkona mín og föðursystir okkar, JENNÝ GUÐBRANDSDÓTTIR, Njörvasundi 37, lést að kvöldi 25. þessa mánaðar. Oddný Þórarinsdóttir, Sigrfður Hermannsdóttir, Stefán Hermannsson. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÞÓRU HALLGRÍMSDÓTTUR frá Halldórsstöðum í Laxárdal. Hallgrimur Valdimarsson, Björg Sigurðardóttir, Stefán Þór, Þóra, Hulda, Halldór Valdimarsson, Oddný E. Magnúsdóttir, Valdimar, Óli, Magnús. Heimilið minnti hann á foreldra hans, Jósef Davíð Guðmundsson bónda, fýrr á Súluvöllum í Þverár- hreppi, síðar Ásbjarnarstöðum frá Stóru-Borg, fæddur 1853, dáinn 1936, og Þórdísi Gísladóttir frá Valdasteinsstöðum í Hrútafirði bónda þar Magnússonar, fædd 1872, dáin 1965. Minningar Guð- jóns um foreldrana voru honum hugljúfar. Er annars nokkuð til er skipar líkan sess í hjarta mannsins en heimilið og mamma. Mamma sem tekur fagnandi á móti manni þegar heim er komið, strýkur gremju lífsins af enninu í einni svip- an, með útbreiddan faðminn og biðj- andi augnaráð. Guðjón kvæntist 16. júní 1940 eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigrúnu Sigurðardóttur úr Katadal á Vatns- nesi, er bjó manni sínum gott heim- ili, og hjá henni fann Guðjón sig sælli en á nokkrum öðrum bletti á jörðinni og hann naut sín sem hús- bóndi. Hann vann lífsstarf þannig að það hafði mikla þýðingu fyrir íbúa Kirkjuhvammshrepps og Vest- ur-Húnavatnssýslu. Hjónin sem byijuðu tvö ein, verða það, sem öll- um hjónum er ætlað, foreldrar. Börn þeirra hjóna urðu 6 og eru eftirtalin: Þórdís, húsfreyja í Reykjavík, maki: Sigurður Arason, skipatæknifræðingur. Sigríður, húsfreyja á Hvammstanga, maki: Benedikt Ástv. Benediktsson, verk- stjóri. Steinunn, húsfreyja í Reykjavík, maki: Svanur Ingimund- arson, málari. Loftur Sveinn, bóndi, Ásbjarnarstöðum, maki: Kristín Jósefsdóttir. Kristín, húsfreyja á Þorgrímsstöðum, maki: Ásbjöm J. Guðmundsson, bóndi. Guðrún, hús- freyja í Reykjavík, maki: Einar Valdimarsson háskólanemi. Að vera faðir og móðir eru háleit- ustu einkaréttindi mannlegs lífs. En þeim einkaréttindum fylgja þungar skyldur. Ásbjarnarstaða- hjón gáfu börnum sínum gott upp- eldi og gjörðu þau að góðum og nýtum þjóðfélagsþegnum, af ein- lægri viðleitni og vakandi um- hyggju. Gestrisni þeirra hjóna var einlæg og mikil, og þó þau væru oft önnum kafin við bústörf tóku þau ætíð þeim, er á heimili þeirra komu, eins og þau hefðu þá ekkert annað að gera, en að láta þeim sem að garði bar sem bezt og gera þeim stundina skemmtilega. Aldrei heyrðist Guð- jón kvarta um annríki. Kunnugt var það þeim, sem honum voru hand- gengnastir, að oft gekk hann að verki með óbilandi viljakrafti en veikum líkamsburðum, síðustu árin jafnvel sárþjáður. En því tókst hon- um að leyna og lét sem ekkert væri, meðan hann gat staðið uppi. í tómstundum las Guðjón mikið, en vandur var hann að höfundum. Ég er góðum Guði þakklátur að mér skyldi hlotnast að kynnast Guðjóni Jósefssyni og heimili hans. „Þeir koma frá kærleikans heimi. Þeir koma úr friðarins geimi. Ur Ijósheimi líða þeir niður. Og líknsemi er með þeim og friður." (E.H. Kvaran) Ég bið Guðjóni blessunar Guðs í heimi kærleikans, og votta mina dýpstu samúð öllum nánum vinum hans. Helgi Vigfússon Það er eðlilégur hlutur að roskinn maður og heilsulítill kveðji þennan heim en þó er eins og lát gamals vinar komi alltaf á óvart. Svo fór mér þegar sonur Guðjóns Jósefs- sonar hringdi til mín að kvöldi 20. þ.m. og sagði mér að faðir hans hefði látist þennan dag. Þó að meira en hálf öld sé liðin síðan ég fluttist burt úr heimahögum hefur sam- bandið við þennan gamla nágranna aldrei rofnað, þé stundum hafi ver- ið langt á milli endurfunda. t Hjartans þakkir viljum við færa öllum þeim er sýndu okkur samúð við fráfall móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ANDREU KRISTJÁNSDÓTTUR, Risabjörgum, Hellissandi. Kristensa Andrésdóttir, Sigurður Þorkelsson, Björgvin Andri Guðjónsson, Sigrún Júlíusdóttir, Sveinbjörg Hrólfsdóttir, Birgir Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn og faðir okkar, KRISTINN STEINDÓR STEINDÓRSSON vélstjóri, til heimilis að Hringbraut 76, Keflavík, andaðist í Borgarspítalanum 25. október sl. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir okkar hönd, tengdabarna og barna- bama. Lilja Gísladóttir, Katrín Kristinsdóttir Ankjær, Gestur Kristinsson, Ester Kristinsdóttir. t Útför GUÐBJARGAR PÁLSDÓTTUR, Einarsstöðum, Reykjahverfi, verður gerð frá Húsavíkurkirkju þriðjudaginn 31. október kl. 14.00. Jón Þór Fr. Buch, Guðný J. Buch, Friðrik Júlíus Jónsson, Kristín Sigurðardóttir, Páll Helgi J. Buch, Guðrún Benediktsdóttir, Hólmfríður Jónsdóttir Buch, Stefán Baldvinsson, Björn Ófeigur Jónsson, Alice Gestsdóttir, Kristbjörg Jónsdóttir Buch, Sigurveig Guðrún J. Buch, Ingólfur Arni Jónsson, og barnabörn. Guðjón fæddist á Súluvöllum á Vatnsnesi 11. apríl 1909 þar sem foreldrar hans, Þórdís Gísladóttir og Jósef Guðmundsson, bjuggu þá. Þegar ég man fyrst eftir þessari fjölskyldu átti hún heima á kirkju- staðnum Tjörn, en fluttist þaðan að Flatnefsstöðum, næsta bæ við Saurbæ, þar sem ég ólst upp. Stutt er milli bæjanna og nágrenni gott og mikill samgangur milli' heimil- anna. Eldri bróðir Guðjóns, Loftur, og Margrét kona hans stóðu fyrir bú- inu en foreldrar þeirra bræðra dvöldu á heimili þeirra. Skömmu áður en ég fór að heiman fluttu þessir nágrannar okkar að Ásbjarn- arstöðum sem ekki var löng leið. Þar átti Guðjón síðan heima til æviloka. Guðjón ólst upp á heimili sem mótað var gamalli, traustri bænda- menningu. Þórdís móðir hans kunni mikið af sögum og ævintýrum og sagði frá af mikilli snilld. Seint mun ég gleyma þeim stundum er ég hlustaði á frásagnir hennar í rökkr- inu þegar ég sem barn og ungling- ur var staddur á heimili hennar. Þama fékk ég marga bókina að láni, sem ég hefði annars ékki átt kost á að lesa. Guðjón var mjög vel greindur og hefði án efa sóst langskólanám vel, en skólaganga hans var ekki löng. Hann var tvo vetur á Núpsskóla í Dýrafirði. Ekki varð námsbraut hans lengri, en hún hefur áreiðan- lega reynst honum gott veganesti síðar á ævinni. Vorið 1939 hóf hann búskap á Ásbjamarstöðum á móti Lofti bróð- ur sínum. Bjuggu þeir þar báðir meðan Loftur lifði en hann er látinn fyrir allmörgum ámm. Brátt munu hafa hlaðist á Guðjón ýmis trúnað- arstörf fyrir sveit sína, en ekki kann ég skil á að telja þau upp. Þau mun hann hafa innt af höndum af þeirri alúð og trúmennsku sem einkenndi hann. Þann 16. júní 1940 kvæntist Guðjón Sigrúnu Sigurðardóttur frá Katadal og lifir hún mann sinn. Eignuðust þau fimm dætur og einn son, Loft, sem nú býr á Ásbjarnar- stöðum. Ég tel víst að vegna þeirra félags- starfa sem Guðjón gegndi fyrir sveit sína hafi ábyrgð á búi og barnaupp- eldi oft hvílt á herðum Sigrúnar og sveitungar þeirra hjóna eigi henni þakkir að gjalda. Guðjón var orðhagur og vel rit- fær. Hann minntist margra látinna sveitunga sinna í minningargrein- um og ætíð með þeirri hlýju og velvild sem honum var svo eiginleg. Það sem ég minnist best í fari Guðjóns var yfirlætisleysi hans og prúðmennska. Með honum er geng- inn góður drengur í þess orðs bestu meiningu. Kæra Sigrún. Við systkinin frá Saurbæ þökkum fyrir vináttu ykkar hjóna á liðnum árum og sendum þér, börnum þínum og öðru vensla- fólki okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Jónas Guðjónsson Guð Ieiði þig, hans eilíf ást, sem aldrei góðum manni brást. Gakk, gakk mitt barn, og forlög fyll, og finnumst, þegar Drottinn vill. Guð leiði þig. (MJoch.) Þann 20. október sl. lést faðir minn, Guðjón Jósefsson bóndi, Ás- bjarnarstöðum, í Sjúkrahúsinu á Hvammstanga. Sama dag kvaddi sumarið okkur og veturinn settist við stjórnvölinn. Við vissum öll að hveiju dró vegna heilsuleysis pabba, samt var enginn tilbúinn og verður aldrei. Minningar liðinna ára flykkjast fram í hugann. Allar eru þær bjart- ar og hlýjar og veita mér huggun nú. Ég var smástelpa þegar pabbi bar mig um vetur dúðaða í hlífðar- föt upp í gamla bæ, svo ég gæti sofið dúrinn minn hjá henni ömmu. Ég var svo dálítið stærri þegar ég fylgdi honum til fjárhúsa og þóttist hjálpa til. Árin liðu og ég ólst upp ásamt systkinum mínum við öryggi og ástúð foreldra okkar. Þau höfðu í sameiningu búið okkur traust og myndarlegt heimili sem mér hefur alltaf fundist vera stór og óhaggan- legur hlutur í lífínu. Faðir minn ól allan sinn aldur hér á Vatnsnesi. Sveitin hans öll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.