Morgunblaðið - 28.10.1989, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1989
Morgunblaðið/Bjami
Forsvarsmenn björgunarsveitanna fyrir framan einbýlishúsið að Fanna-
fold 209. Frá vinstri: Garðar Eiriksson, SVFÍ, Páll Árnason, LHS,
Guðbjörn Ólafsson, SVFÍ, Jón Gunnarsson, LFBS, Hálfdán Henrýsson,
SVFI, Örlygur Hálfdánarson.SVFÍ, Björn Hermannsson, LHS, Tryggvi
Páll Friðriksson, LHS, Arnfinnur Jónsson, LHS og Einar Gunnarsson,
Lokaorð
féllu niður
1 frásögn í Daglegu lífi í gær,
fostudag, um Manfred Hohman,
þýskan hárgreiðslumeistara sem
starfar fyrir Wella, féllu lokaorðin
niður. Hlutaðcigandi eru beðnir
velvirðingar á mistökunum.
Síðasti hluti frásagnarinnar hljóð-
ar svo:
Á námskeiðunum hér, sem sótt
voru af tæplega 400 manns, lagði
Manfred áherslu á hárlitun og kenndi
nýjar aðferðir og nytsamlega hluti,
sem fagmaðurinn getur notað dags
daglega inni á sinni stofu. Hann
hélt námskeið á Egilsstöðum og á
Akureyri fyrir fagfólk, námskeið í
Reykjavík fyrir hárgreiðslufólk í
námi og síðan námskeið í Reykjavík
fyrir eigendur hárgreiðslustofa og
aðalaðstoðarfólk þeirra. Hárlitunar-
efni það sem kynnt var á námskeið-
unum hefur um 60% markaðshlut-
deild allra hárlitunarefna í heiminum.
Það er frábrugðið öðrum hárlitunar-
efnum að því leyti að í því er minna
ammóníak. Ammóníak opnar hár svo
litur á greiða leið inn í hárið en að
sama skapi greiða leið út.
Mildir og hlýir litir verða í tísku
í vetur. Fyrir dökkt hár eru það litir
út í brúnt og rautt og út í gyllt fyr-
ir ljóst hár. Strípur eru í eðlilegum
ljósum litum. Mjúkar línur eru ráð-
andi í frekar stuttu hári og perm-
anent er sígilt.
GI
Leiðrétting
í grein Ástu B. Þorsteinsdóttur,
formanns Þroskahjálpar í Morgun-
blaðinu í fyrradag var sú villa, að
Alþýðusamband Islands var kallað
Alþýðubandalag íslands. Upphaf
greinarinnar átti að vera svohljóð-
andi:“í síðastliðinni viku efndu
Landssamtökin Þroskahjálp, Ör-
yrkjabandalag íslands ásamt Al-
þýðusambandi íslands...“ o.sv. frv.
Þetta leiðréttist hér með.
LFBS.
Lukkutríó:
Nýtt einbýlishús
í vinning
HÆSTI vinningur á nýjum
Sprengimiða björgunarsveitanna
er nýtt einbýlishús við Fannafold
209 í Reykjavík, og er það hæsti
vinningur sem um getur í skyndi-
happdrætti hér á landi. Húsið er
200 fermetrar að flatarmáli og
með innbyggðum bílskúr, en verð-
mæti þess er 15 milljónir króna.
Að auki er Qöldi annarra vinninga
á Sprengimiðanum, þar á meðal
tveir jeppar, tveir fólksbílar, tveir
vélsleðar, ferðavinningar, heimil-
istæki og fleira.
Á blaðamannafundi þar sem aðal-
vinningurinn var kynntur kom fram,
að frá því Lukkutríó, skafmiðahapp-
drætti björgunarsveitanna, tók til
starfa fyrir tveimur árum hafa tekj-
umar af því komið björgunarsveitun-
um til góða við endurnýjun tækja-
kosts og þjálfun björgunarsveitar-
manna, og fyrir bragðið eru sveitirn-
ar betur undirbúnar en nokkru sinni
fyrr til að sinna leit og björgun.
Áðstandendur Lukkutríós eru Slysa-
varnafélag íslands, Landssamband
hjálparsveita skáta og Flugbjörgun-
arsveitirnar, en Lukkutríó hefur ver-
ið sameiginleg tekjuöflun sveitanna1
í tvö ár. Samstarf þeirra hefur auk-
ist verulega á þessum tíma, og hafa
þær nú með sér sameiginlega yfir-
stjórn á björgunaraðgerðum.
Vinningshúsið að Fannafold 209
er byggt sérstaklega til að vera fyrsti
vinningur á Sprengimiðanum, og líkt
og aðrir vinningar er hann skatt-
fijáls. Húsið er að öllu leyti tilbúið,
og getur sá aðili er vinningin hlýtur
því flutt beint inn. Húsið verður til
sýnis næstu helgar frá kl. 10 til 18
laugardaga og sunnudaga. Vikuna
30. október til 3. nóvember verður
húsið einnig sýnt virka daga frá kl.
17 til 22.
Drætti í happ-
drætti FR frestað
Viðbótarfrestur hefur fengist á
drætti í happdrætti Félagsheimilis
tónlistarmanna til 10. nóvember
nk.
Happdrættismiðarnir eru til sölu í
hljómplötuverslunum Steinars hf.,
Skífunnar og Gramminu. Hveijum
miða fylgir ókeypis hljómplata, sem
er framlag hljómplötuútgefenda til
styrktar málefninu.
Síðasta rall-
keppni ársins
BRÆÐURNIR Ólafúr og Halldór
Sigurjónssynir eiga möguleika á
að vinna Islandsmeistaratitilinn í
rallýi með 100 stigum af 100
mögulegum, takist þeim að sigra
í síðustu keppni ársins, sem haldin
verður laugardag 28. október. Það
er einstakur árangur, að sögn
Valsteins Stefánssonar hjá Bif-
reiðaíþróttaklúbbi Reykjavíkur,
sem skipuleggur keppnina.
Keppnin er kostuð af Hjólþarða-
höllinni og nefnist KUMHO - dekkja
rallý. Keppendur verða ræstir frá
Hjólbarðahöllinni klukkan 8.00 á
laugardagsmorgni. Fyrsta sérleið er
um Lyngdalsheiði og hefst klukkan
9.02. Viðgerðarhlé verður að H!íðar
renda á Hvolsvelli klukkan 12.50 til
13.50 og síðasta sérleið verður um
Lyngdalsheiði til baka. Leiðarlýsing-
ar fást í Hjólbarðahöllinni.
„Baráttan verður hörð, þó að
bræðurnir Ólafur og Halldór hafi
þegar tryggt sér íslandsmeistaratitil-
inn með öruggum og yfirveguðum
akstri á Talbotinum,“ segir Valsteinn
Stefánsson. „Feðgarnir Rúnar og Jón
munu vafalaust veita þeim harða
keppni eftir erfiðleika og óhöpp í
undangengnum keppnum." Val-
steinn segist telja að einnig muni
Ævar Hjartarson og Ari Arnórsson
á Suzuki blanda sér í baráttuna,
Birgir Þ. Bragason og Gestur Frið-
jónsson á Toyota og bræðurnir Birg-
ir og Gunnar Vagnssynir á Toyota
eru til alls líklegir.
22 bílar eru skráðir til keppninn-
ar, sem lýkur klukkan 19.30 við
Hjólbarðahöllina „og verður tekið á
móti keppendum í endastöðinni með
flugeldasýningu og fjöri eins og
þeirra Hallarbræðra er von og vísa,“
segir Valsteinn.
Kjallari keisarans
opnaður í gær
í GÆRKVöLDI var formlega opn-
aður Kjallari keisarans, Lauga-
vegi 116, en staðurinn hefur tekið
gagngerum breytingum eftir að
nýir eigendur tóku við staðnum,
sem áður var Abracadabra.
Ætlunin er að á næstunni verði
boðið upp á ijölbreytta dagskrá auk
þess sem það besta í lifandi tónlist
hveiju sinni verði kynnt í Kjallaran-
um.
Fyrirhugað er að á föstudags-
kvöldum verði það nýjasta í breskri
og bandarískri danstónlist leikið en
á laugardögum verði höfðað til breið-
ari smekks og blandað saman suður-
amerískri tónlist, soul-tónlist og jaz-
z/funk-tónlist í bland við danstónlist
hinna ýmsu þjóða.
í gærkvöldi var opnunarboð og
flutti þá hljómsveitin Strax nokkur
lög. Á næstunni munu ýmsar hljóm-
sveitir koma fram í Kjallara keisar-
ans, m.a. verða nýjar útgáfur
Smekkleysu sm.hf. kynntar þar auk
þess sem lifandi jazz- og blústónlist
verður á boðstólum virka daga og á
sunnudagskvöldum.
(Fréttatilkynning)
Hökull gefinn
' HafiiarQ ar ðar-
kirkju
VIÐ messu sunnudaginn 29. októ-
ber munu börn og ættingjar Jóels
Friðriks Ingvarssonar sem gegndi
meðhjálparastörfúm við kirkjuna
mörg ár gefa og afhenda söfnuði
Hafnarfjarðarkirkju messuhökul
til minningar um hann, en á þessu
ári eru 100 ár liðin lirá fæðingu
hans.
Hökulinn, sem er hvítur páska-
og upprisuhökuil, hafa systumar í
Carmel-klaustrinu í Hafnarfirði unn-
ið og saumað.
Dóttursonur Jóels, sr. Valgeir
Ástráðsson, mun prédika við mess-
una og leiða altarisþjónustu ásamt
sóknarpresti. Eftir messu býður
safnaðarstjórn Hafnarfjarðarkirkju
til kaffisamsætis í Álfafelli, íþrótta-
húsinu við Strandgötu.
SICUNCASKOUNN
Námskeið
TIL 30 TONNA RÉTTINDA
hefst mánudaginn 7. nóv.
Kennsla fer fram á þriðjudags
og fimmtudagskvöldum
kl. 7-11.
Námskeið
TIL HAFSICLINCA
(Yachtmaster Offshore)
á skútum hefst 6. nóv.
Skilyröi fyrir þátttöku:
30 tonna próf.
Kennsla fer fram á mánudags-
og miðvikudagskvöldum
kl. 7-11.
öll kennslugögn
fáanleg í skólanum. z
Upplýsingar og innritun í símum 68 98 85
og 3 10 92 allan sólarhringinn.
SICLINCASKÓUNN
Lágmúla 7
meðlimur i Alþjóðasambandi siglingaskóla, ISSA.
Félag íslenskra iðnrekenda:
Kynning á íslensk-
um byggingavörum
FÉLAG íslenskra iðnrekenda og búið, hafa ákveðið að standa fyr-
verslanirnar Byko og Byggt og ir „íslenskum dögum“ í verslun-
um sínum dagana 30. október til
4. nóvember. Um 50 íslenskir
framleiðendur munu taka þátt i
þessu átaki með kynningu á
framleiðslu sinni. Kjörorð átaks-
ins er „Veljum íslenskt".
íslenskir dagar eru haldnir í
framhaldi af kynningarherferð, sem
Félag íslenskra iðnrekenda hóf í
desember 1988 í þeim tilgangi að
efla samstarf og samvinnu meðal
kaupmanna, innkaupastjóra starfs-
iGamla þjóðleiðin
til Reykjavíkur
'BúrfOiS
■Artún
Átfinesíngqim
■ (Búitiðirj'
Árbær«
Rútuferð frá Fossvogs-
skóla að Höfðabakkabrú.
Mæting kl. 13.30.
0 200 400 600 800 1000 n n "< STEKKIA RBA.KKI Lagt af stað kl.14.00 frá Höfðabakkabrú.
MorgunUeWKG. jVy
(
Náttúruskoðunarferð um
Elliðaárdal og Fossvogsdal
íþróttafélag fatlaðra í
Reykjavík og Trimmidúbburinn
Edda standa fyrir gönguferð í
samvinnu við Náttúruverndarfé-
lag Suðvesturlands sunnudaginn
29. október.
Gengið verður frá Höfðabakka-
brú að súnnanverðu að Fossvogs-
skóla. Hugað verður að náttúrufari
og ömefnum á leiðinni undir leið-
sögn fróðra manna..
Þátttakendur mæti við Fossvogs-
skóla kl. 13.30. Þar verður boðið
upp á rútuferð að Höfðabakkabrú.
Frá brúnni verður lagt af stað í
gönguna kl. 14.00. Þátttaka verður
ókeypis.
Ferðin er opin öllum, jafnt ungum
sem öldruðum og hentar ekki síður
hjólastólafólki, þar sem leiðin er
mjög greiðfær. Farið verður hægt
yfir og því hentar ferðin einnig vel
foreldrum með börn.