Morgunblaðið - 28.10.1989, Qupperneq 25
MOÍRÖÖfffiLÁÐIÐ lAÖÖÁRÍ)ÁGi:ÍI 2^1* ÖRTOItERÁ9&'fi
25
var honum kær og með ýmsum
hætti vann hann henni margt til
gagns og sóma. Hér í dalnum á
hann ótalin spor frá síðustu 50
árum og ég veit að hér lágu rætur
hans bundnar.
Undanfarin ár hefur heilsuleysi
háð pabba mjög. Dagarnir hafa oft
verið erfiðir, en alltaf hélt hann
sinni óbilandi ró og æðruleysi. Hann
átti sterka trú og vissi að vakað
var yfir honum. Hlýjan og styrkur-
inn sem stafaði frá honum gerðu
mig alltaf ríkari í hjarta þegar ég
fór frá honum en ég kom. Móðir
mín lagði alla sína krafta í að bæta
líðan hans, síðustu vikurnar vék hún
ekki frá honum og var það þeim
báðum styrkur.
Á síðastliðnu vori varð pabbi átt-
ræður. Ekki leyfðu veður og aðrar
aðstæður að haldið væri upp á það
á afmælisdaginn. Ákváðum við
systkinin þá að stefna að því að
hittast af þessu tilefni í sumar og
fyrstu helgina í júlí komum við öll,
ásamt fjöiskyldum okkar saman
heima á Ásbjarnarstöðum. Undum
við okkur þar vel við ýmsa skemmt-
an, en hæst bar þó er pabbi las
upphátt fyrir okkur örnefnaskrá
fyrir Ásbjarnarstaði sem hann hafði
þá nýlokið við að taka saman. Var
hún, eins og hans var háttur, unnin
af stakri nákvæmni og óneitanlega
rifjuðust þama upp ýmis nöfn sem
farin voru að gleymast, sérstaklega
hjá þeim okkar sem farin eru að
heiman fyrir löngu. Var þetta í alla
staði einstaklega ánægjuleg helgi
og víst er að ekki hefði verið hægt
að gleðja pabba betur með öðm.
í fjölskyldunni er auða plássið
stórt sem myndaðist við andlát
hans. Það verður ekki fyllt, en við
tökum höndum saman um að lifa
áfram í hans lífsstíl og hlúa að
minningunum. Árin öll, með allri
þeirri umhyggju og elskusemi sem
hann sýndi okkur öllum fáum við
seint fullþakkað. Ég álít það mína
mestu gæfu að hafa sest að hér í
dalnum, að hafa alið bömin mín
upp við hlið afa og ömmu er það
mikla lán sem þau munu ætíð búa
að.
Ég veit, þú hefðir sagt mér að herða huga
minn.
Ég hugga mig sem best, til að gera vilja
þinn.
Ég geymi hvert þitt bros í minning minni.
Ég man, og skal ei gleyma samvist þinni.
(H. Hafstein)
Með þessum fáu og fátæklegu
orðum kveð ég pabba minn. Guð
blessi minningu hans.
Kristín Guðjónsdóttir
Mikilhæfur maður og kær vinur
er fallin í valinn, og eftir verður tóm
sem vandfyllt verður.
Guðjón komst svo að orði í minn-
ingargrein um látinn sveitunga fyr-
ir allmörgum árum „að enn fækk-
aði hinum gömlu og grónu Vatns-
nesingum“, og voru það orð að
sönnu. Með Guðjóni er genginn einn
af tryggustu íbúum þessarar harð-
býlu sveitar, sem þó á svo sterk tök
í okkur mörgum burtfluttum, að
aldrei lætur okkur ósnortin.
Guðjón var sveitarinnar maður
og bóndi, sem unni jörðinni sinni
og vann sveitinni allt það er hann
mátti, en ekki verður rakið hér.
En hann var fyrst og fremst
gestrisinn heimilisfaðir sem unni
fjölskyldu sinni og hafði yndi af að
taka á móti góðum gestum, og gerði
það höfðinglega með góðum stuðn-
ingi konu sinnar.
Ég kynntist Guðjóni fyrst þegar
ég fyrir um fjörutíu árum fluttist á
Vatnsnesið, þá ungur drengur. Seg-
ir það e.t.v. nokkuð um manninn
Guðjón að á þeim árum heyrði ég
aldrei um hann öðruvísi en með
virðingu og hlýju. Það atvikaðist
svo að ég tengdist þeim hjónum
Guðjóni og Rúnu, þá eignaðist ég
ekki bara annað heimili heldur það
sem aldrei verður metið né full-
þakkað,, trygga vini sem aldrei
brugðust á hveiju sem gekk.
A þeim árum kynntist ég Guðjóni
og því hvern mann hann hafði að
geyma, hann var skoðanafastur en
sanngjarn og aldrei heyrði ég hann
tala illa til nokkurs manns, enda
oft til hans leitað þegar setja þurfti
niður deilur manna, og þóttu gefast
vel hans ráð.
Fyrir nokkrum árum veiktist
Guðjón af erfiðum sjúkdómi og af
afleiðingum hans átti hann við
heilsuleysi að stríða síðustu árin,
sem hann glímdi við af sömu þraut-
seigju og æðruleysi sem einkenndu
allt hans líf.
Ég hitti Guðjón síðast um miðjan
september sl., þá fársjúkan í sjúkra-
húsinu á Hvammstanga, grunaði
okkur báða að samverustundirnar
yrðu ekki fleiri að sinni.
Með þessum fátaiklegu orðum
kveð ég kæran vin, sem í hógværð
sinni skilur eftiri tómarúm í sálum
þeirra sem elskuðu hann og virtu.
Guð veri með honum og styrki þá
sem syrgja.
Þorgeir Ingvason
Fleiri greinar um Guðjón Jósefs-
son munu birtast í blaðinu næstu
daga
__________Brids____________
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Hafnarfjarðar
St mánudagskvöld, 23. október, var
spiluð önnur umferðin í þriggja kvölda
tvímenningi félagsins. Spilað var í
tveimur tólf para riðlum og urðu úrslit
kvöldsins eftirfarandi:
A-riðill:
Ólafur Ingimundarson —
Sverrir Jónsson 188
Albert Þorsteinsson —
Sigurður Emilsson 181
Sigurður Aðalsteinsson —
Ólafur Gíslason 175
B-riðilI:
Guðbrandur Sigurbergsson —
Friðþjófur Einarsson 178
Baldur Baldursson —
Páll Sigurðsson 176
Hulda Hjálmarsdóttir —
Þórarinn Andrewsson 174
Heildarstaða eflir tvö kvöld af þrem-
ur:
Dröfn Guðmundsdóttir —
Ásgeir Ásbjörnsson 399
Baldur Baldursson —
Páll Sigurðsson 383
Guðbrandur Sigurbergsson —
Sverrir Jónsson 366
Albert Þorsteinsson —
Sigurður Emilsson 363
Sigurður Aðalsteinsson —
Ólafur Gíslason 360
Nk. mánudagskvöld, 30. október,
verður spiluð síðasta umferðin og eru
spilarar sérstaklega beðnir um að
mæta stundvíslega kl. 19.30 til að unnt
^sé að hefja spilamennsku á réttum tíma.
Næsta keppni sem hefst mánudaginn
6. nóvember verður sveitakeppni með
16 spilum á milli sveita. Skráning í þá
keppni er þegar hafin og er rétt að
benda spilurum á að mynda sveitir og
skrá þær tímanlega.
Bridsfélag Kvenna
17 umferðum er nú lokið í baromet-
ernum og er staða efstu para þannig:
Halla Bergþórsdóttir —
Soffía Theodórsdóttir 247
Kristín Þórðardóttir —
Ása Jóhannesdóttir 200
Aldís Sehram —
NannaÁgústsdóttir 157
Steinunn Snorradóttir —
Þorgerður Þórarinsdóttir 155
Hildur Helgadóttir —
Karólína Sveinsdóttir 136
Sigrún Pétursdóttir —
Guðrún Jörgensen 133
Hæstu skor síðasta kvöld náðu
eftirtalin pör:
Sigrún Pétursdóttir —
Guðrún Jörgensen 115
Ólína Kjartansdóttir —
Guðlaug Jónsdóttir 110
Halla Bergþórsdóttir —
Soffía Theodórsdóttir 91
Nú færðu heimsfrægu
Weston teppin
í Húsasmiðjunni
Húsasmiðjan hefur sett á laggirnar glæsi-
lega og rúmgóða Weston teppadeild í
verslun sinni við Skútuvog.
Þar með aukum við enn vöruúrvalið í
versluninni og stuðlum að því að bjóða
viðskiptavinum okkar allt sem lýtur að
húsum og híbýlum þess á einum stað.
Við erum stolt ytir því aö geta boðið þér
þessi rómuðu teppi og þú getur valið um
hvorki meira né minna en 50 mismunandi
tegundir af Westonteppum í 400 lita-
samsetningum.
Weston teppin hafa notið mikilla vinsælda
hér á landi í 25 ár og verið þekkt fyrir
framúrskarandi gæði og endingu.
Komdu í nýja og glæsilega Weston teppa-
deild í Húsasmiðjunni við Skútuvog. Við
lofum þer góðri þjónustu og ævintýralegu
úrvali af þessum heimsfrægu teppum.
w
Weston
Teppi
Weston - það besta sem náttúran býður upp á.
HUSA
SMIDJAN
SKÚTUVOGl 16 SlMI 687700