Morgunblaðið - 28.10.1989, Síða 26
26
M.OKGUNBIAPIÐ l-AUGARDAGUlj 28. pKTOBJiK 1989
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
í dag ætla ég að halda áfram
umfjöllun um frumþættina.
Nú er komið að loftinu,
frumþætti Tvíbura, Vogar
og Vatnsbera.
Loftið
Loftið er táknrænt fyrir
heim hugmynda og félags-
starfs. Samskipti eru því
mikilvæg í lífi þessara
merkja og segja má að ef
þau leggja ekki rækt við
félagsmál, þá tapi þau
lífsorku og verði slöpp og
áhugalítil. Loftsmerkin eiga
erfitt með að vera ein með
sjálfum sér og umhverfi
þeirra verður að vera hug-
myndalega lifandi. Þau
þurfa því að umgangast fólk
sem er andlega vakandi og
hefur frá mörgu að segja.
Tvíburinn
Það sem helst skilur á milli
er að Tvíburinn þarf á mestri
hreyfingu og flölbreytni að
halda og leggur áherslu á
að ná sambandi við nánasta
umhverfi í gegnum umræð-
ur. Hann talar mest allra
merkja, sbr. Tvíburinn J.F.
Kennedy sem mælti fram
að jafnaði 327 orð á mínútu
í einni ræðu sinni, eða 5,45
skiljanleg orð á sekúndu að
meðaltali.
Vogin
Vogin aftur á móti leggur
fyrst og fremst áherslu á það
að skapa jafnvægi í nánu
samstarfi og samböndum.
Hún á því til að tala mikið
ef viðmælandi hennar þegir
en lítið ef sá sem hún er að
tala við hefur frá mörgu að
segja. Fyrir öllu er að halda
jafnvægi. Hægri sinnuð Vog
geturþví orðið vinstri sinnuð
ef viðmælandi hennar er of
langt til hægri!
Vatnsberinn
Vatnsberinn leggur aftur á
móti áherslu á hópsamvinnu
og hugmyndasköpun í þágu
heildarinnar. Honum líður
því best innan um margt
fólk sem þekkir hann ekki
allt of vel. Um leið og hann
fer að þekkja of marga get-
ur honum fundist frelsi sínu
ógnað. Hann þarf frelsi til
að hafa yfirsýn og er því illa
við að binda sig niður í
ákveðnar klíkur.
Raunsœ merki
Öll loftsmerkin eiga það
sameiginlegt að vera í eðli
sínu raunsæ. Þau eru rök-
föst og að upplagi skynsöm.
Með því er átt við að þau
blanda persónulegum til-
finningum yfirleitt ekki í við-
fangsefni sín og eiga auð-
veldar en önnur merki með
að vera hlutlaus. Meðal
hæfileika þeirra er að geta
afgreitt mikið upplýsinga-
magn hraðar og með betri
árangri en önnur merki.
Loftsmerkin eru athugul og
hugmyndarík og hafa gam-
an af því að leika sér með
hugmyndir.
Köld skynsemi
Þar sem hugsun er æðsti
guð loftsmerkjanna eiga þau
til að vera köld og ópersónu-
leg í viðhorfum. Þau hvetja
til skynsamlegrar afstöðu til
mála og vilja leysa vandamál
með umræðu og rökum.
Þegar tilfinningar eru ann-
ars vegar eiga þau hins veg-
ar til að verða vandræðaleg.
Vatnið ólíkt
Loftmerkjunum gengur að
öllu jöfnu best að lynda við
eldinn, Hrút, Ljón og Bog-
mann, en eiga minnst sam-
eiginlegt með vatnsmerkjun-
um, eða Krabba, Sporðdreka
og Fiski.
GARPUR
, -STurTU SE/MNA --'A
/GJA/SANU/A
fieSS/ SSSL-
DOku/S tiÆG/Ji 'A -
S UN/NN/ h/O ER BA/SA /)£>
S kOMA BÖNDU/U 'A JAKANN'
GRETTIR
HONO/M þöTTl GOTTA&ð
jNIFFA AF 1/ÖFFLUJÁRNI f
Vl£> ATTUM MAR&AÍ? ÍANÆGJUJTUfd
|R VlÐAÐ HOPPAÖFAM'A HAUÍN04^ ’
’/\ HONUM
BRENDA STARR
1 HVAK HO/A
Á BTfZUAi jUiÓÐUe
, . \ \//Ð ? / \ HUA/S /
H£/AtA HJA
LBFTÝS
HUAFL ANNAHs
STAÐA/S?
HVAO KOAt Fye//?\ e/a£>/ST SGAA
Kofann Hennara Ab fSi/coe ett-
K/NG/ HENNAH HAF/
\JMipog /HSFL e/TT
-HANAAB p£SSU
X Hk. Y SKO T/L ! pAÐ EHU £KK/
MENCKbM/) ALLA& KONU/Í SEAi
/<OMA FEAAA V/P AilG
E7NS OG ÉG SÉ PAS-
BLAD F& pvi i,
í<;V
1 IÁOI/A
LJUoNA
rcrvuiiMHivu
rr,~~ ” .iUJUiil W ^ fr
SMÁFÓLK
Á hvað eruð þið allir að glápa, strákar?
Fyrirgefðu þeim, herra. Þetta er í fyrsta skipti sem
þeir sjá einhvern borða poppkorn með gaffli.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Vömin á flóra slagi, en vand-
inn er að taka þá strax. Þegar
spilið kom upp rötuðu AV ekki
réttu leiðina og spuming er,
hvor á sökina?
Norður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ ÁK105
VG2
♦ D964
*D87
Vestur
♦ 84
¥876
♦ 1053
♦ Á10532
Austur
♦ 32
¥ Á93
♦ ÁK87
♦ K964
Vestur
Pass
Pass
Suður
♦ DG976
¥ KD1054
♦ G2
♦ G
Norður Austur
1 tígull Pass
2 spaðar Pass
Pass Pass
Suður
1 spaði
4 spaðar
Útspil: hjartaátta.
Austur tekur fyrsta slaginn á
hjartaás og leggur niður tígul-
kóng. Sagnhafi lætur gosann
réttilega og vestur þristinn. AV
gefa talningu á hefðbundinn
máta: hátt-lágt sýnir jafna tölu,
en lágt-hátt ójafna.
Vandamál austur er þetta:
Þristur vesturs getur verið frá
einu af þrennu: 32 tvíspili, 1053
eða 10532. Fyrsti möguleikinn
er heldur ólíklegur, svo austur
ákveður að leggja niður lauf-
kóng, enda vinnst spilið ef suður
á ásinn. Vestur kallar með lauf-
fimmu og austur spilar laufi
áfram. Tíglar blinds hverfa því
ofan í hjartað.
Með nokkrum rökum má
segja að vestur hefði getað látið
tígulfimmuna í kónginn ef hann
hefði byijað með 10532. Það
væri skýrari talning. En engu
að síður liggur villan fyrst og
fremst hjá vestri. Þegar austur
fær að eiga slaginn á laufkóng
þarf hann enga hjálp frá makker
til að vita hver á laufásinn! Vest-
ur á því að gefa talningu í lauf-
inu, láta tvistinn til að sýna
fimmlit.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Þeir sem tefla bréfskák njóta
þess munaðar að geta flett upp í
fræðibókum og tímaritum um leið
og þeir tefla skákina. I undanrás-
um yfirstandandi heimsbikar-
keppni í bréfskák höfðu Gunnar
Hannesson, Reykjavík, og Sovét-
maðurinn I.V. Aleksejev fylgt 46.
einvígisskák Kasparovs og
Karpovs 1984/85 26 fyrstu leik-
ina, en þá fannst Gunnari nóg
komið, en hann hafði hvítt og átti
leik.
27. Bxh6! (Kasparov lék 27. Bd5,
en eftir 27. — Bxd5, 28. exd5 —
Rc7, tókst Karpov að bjarga sér
í jafntefli) 27. — gxh6, 28. Hxd6
— Db7 (Hvítur vinnur eftir 28. —
Bxd6, 29. Rxh6+ - Kh8, 30.
Rxf7+ og 31. Rxd6) 29. Rf5 -
Bxe4, 30. Dg3 ( Hótar máti í
öðrum leik) 30. — Kh8,31. Rgxh6
— Bxh6, 32. Rxh6 — Bg6, 33.
Bxe6 — De7, 34. Dxe5+ og svart-
ur gafst upp. Sovézkir skákfræð-
ingar stungu upp á 27. Bxh6! fljót-
lega eftir einvígið, en það breytir
því ekki að þetta var mjög lagleg
úrvinnsla hjá Gunnari, sem er
reyndar ritstjóri Bréfskáktíðinda.
Þar fást hvers konar upplýsingar
fyrir þá sem hafa áhuga á að tefla
bréfskák. (Heimilisfang: Grettis-
gata 42, 101 Reykjavík.)