Morgunblaðið - 28.10.1989, Síða 34
u
MORGPNBLAÐIÐ iÞROTTJR L/íföARPAGUIuk,
.(OKTOBBR A9|89t
KNATTSPYRNA
Sjálfsalastríð í Keflavík
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar
ÞAÐ er óhætt að segja að gos-
ið hafi í Keflavík vegna gossjálf-
sala, en barátta um sjálfsala
varð til þess að stjórn knatt-
spyrnuráðs Keflavíkurákvað
að segja af sér. Hótanir um
afsögn eru ekkert nýtt hjá ráð-
inu því að fjórum sinnum hefur
ráðið, undir stjórn formanns-
ins, hótað uppsögn á árinu.
Aýmsu hefur gengið hjá knatt-
spyrnuráði Keflavíkur á því
eina ári sem núverandi ráðsmenn
hafa starfað. Fyrir rúmu ári var
Ap knattspymuráð
INNLENDUM Keflavíkur í fréttum,
VETTVANGI en þá var það vegna
«, rúmlega tíu milljóna
kr. taps á rekstri
ráðsins. Eftir mikil
fundahöld var ákveð-
ið að íþróttabanda-
lag Keflavíkur tæki
það að sér að
grynnka á skuldun-
um. IBK ákvað að taka yfir skuldir
knattspyrnuráðs og var skipuð
skiptanefnd til að ná skuldunum nið-
ur. Knattspyrnuráðið sem hefur nú
tilkynnt að það láti af störfum 15.
nóvember, eða tíu dögum fyrir árs-
þing bandalagsins. Knattspyrnuráð
hóf starfsárið á núlli, en það hefur
ekki gerst undanfarin ár.
Eftir þeim upplýsingum sem ég
hef aflað mér hjá fjölmörgum mönn-
um í Keflavík, þá er „gossjálfsal-
astríðið" ekki eina stríðið sem knatt-
spyrnuráð Keflavíkur hefur háð á
árinu. Ráðið hefur verið í stríði við
■ skilanefnd ÍBK, íþróttafélögin tvö í
Keflavík — Ungmennafélag
Keflavíkur og Knattspyrnufélag
Keflavíkur, við Stuðningsmanna-
klúbb ÍBK, við íþróttabandalag
Keflavíkur, við Handknattleiksráð
Kefiavíkur og við forstöðumann
íþróttahúsanna í Keflavík. „Maður-
inn vill greinilega alltaf vera í stríði,"
sagði einn viðmælandi um formann
knattspyrnuráðs Keflavíkur.
Menn eru sammála um að að þrátt
fyrir hinar mörgu deilur hafi knatt-
spyrnuráðsmenn unnið mörg góð
störf. Flugeldasala og útgáfa síma-
skrár fyrir Suðurnesin gáfu ráðinu
góðar tekjur og þá náðist að inn-
heimta 700 þús. krónur í félagsgjöld-
kum á árinu.
„Það er í góðu lagi að vera ákveð-
inn, en aftur á móti er það óþolandi
þegar menn eru ósanngjarnir og
keyra á fullu eftir einu ákveðnu
striki án þess að horfa til hliðar og
virða rétt annarra," sagði einn gam-
alkunnur landsliðsmaður í knatt-
spymu, sem ég ræddi við.
Hótanir um afsögn
„Það var eins og knattspyrnuráðs-
menn hafi fljótlega fundið að sterk-
asta vopnið til að fá sitt fram væri
að hóta afsögn," sagði einn viðmæl-
andi minn.
Fljótlega á árinu urðu deilur um
auglýsingaspjöld á knattspyrnuvell-
inum í Keflavík. Ákveðið var að
skiptanefndin, sem sá um að gera
upp skuldir knattspyrnuráðs, fengi
allan ágóða af auglýsingaspjöldum.
Þetta voru knattspyrnuráðsmenn
ekki ánægðir með. Þeir vildu fá tekj-
urnar sem auglýsingaspjöldin gáfu.
Þá var hótað afsögn ef ekki væri
gengið að kröfum þeirra. Samkomu-
lag varð um að skiptanefndin fengi
ágóða af þeim skiltum sem áður
hafa verið á vellinum, en knattspyrn-
uráð fengi ágóða af nýjum skiltum.
Næst urðu deihir um sælgætissölu
í félagsheimili ÍBK, íþróttavallar-
húsinu við knattspyrnuvöllinn í
Keflavík. Knattspyrnuráð vildi fá
setustofu undir sælgætissöluna, en
margir stjórnarmenn ÍBK voru á
móti því. Knattspyrnuráðsmenn
sögðu þá að með því væri verið að
koma í veg fyrir tekjumöguleika og
hótuðu afsögn ef þeir fengju ekki
sínu framgengt. Eftir töluverðar
umræður var ákveðið að knattspyrn-
uráðið fengi setustofuna undir sæl-
gætissölu,
Knattspyrnuráðið lenti í deilum við
Stuðningsmannaklúbb ÍBK vegna
skila á ársgjöldum, en félagsskírteini
giltu sem aðgöngumiði á leiki ÍBK-
liðsins. Gekk þetta svo Iangt að
knattspyrnuráðsmenn neituðu þeim
sem voru með skírteini um aðgang
að einum leik ÍBK-liðsins í sumar.
Það bitnaði á þeim sem höfðu greitt
ársgjöld sín og einnig boðsgestum
ÍBK.
Sameining félaga
Það var síðan allt á suðupunkti í
Keflavík þegar knattspyrnuráðs-
menn boðuðu til fundar vegna hug-
mynda um sameiningu íþróttafélag-
anna í Keflavík, UMFK og KFK.
Lögðu þeir fram tillögur sínar sem
þeir höfðu unnið með stofnun Knatt-
spyrnufélags ÍA til hliðsjónar. Það
gleymdist algjörlega hjá ráðsmönn-
um að þeir ætluðu að sameina tvö
rótgróin félög sem áttu eignir.
íþróttabandalag Keflavíkur vildi fá
að skoða þessar tillögur nánar.
Knattspyrnuráðsmenn áttu erfitt
með að sætta sig við það og hótuðu
afsögn ef tillögur þeirra væru ekki
samþykktar. Þegar hér var komið
sögpx gripu ýmsir rótgrónir félags-
menn í UMFK og KFK í taumanna
og lömdu í borðið. „Við sættum okk-
ur ekki við yfirgang og róttækar
breytingar. Það tók Skagamenn
sextán ár að sameina félögin á Akra-
nesi. Það átti að gera það á svip-
stundu hér í Keflavík, án þess að
fara vet í saumana á málinu," sagði
einn félagsmaður í UMFK.
„Sjónauki þessara manna sá að-
eins eitt: Knattspyrnuvöll. Það er
gott og blessað þegar menn hugsa
um íþrótt sína, en þeir mega ekki
1 '
Iþróttahúsið í Keflavík, þar sem gossjálfsalinn umdeildi er.
loka augunum fyrir öðrum íþrótta-
greinum innan ÍBK. Sambandsstjórn
IBK sér um málefni innan sambands-
ins, en ekki ein íþróttadeild innan
IBK,“ sagði Ragnar Orn Pétursson,
formaður ÍBK, sem vildi sem minnst
ræða um þetta mál á þessu stigi.
„Við kappkostum að leysa þetta
mál, eins og öll þau vandamál sem
hafa komið upp fram til þessa. Það
er engin uppgjöf hjá okkur.“
Þjálfaramál
Hinar ýmsu framkvæmdir knatt-
spyrnuráðs hafa vakið vonsku í
Keflavík. Það hitnaði í kolunum þeg-
ar þjálfaraskipti urðu undir lok
keppnistímabilsins. Illa var staðið að
málum þegar kallað var á nýjan
mann til að sitja við hliðina á þjálf-
ara, sem hljóp í skarðið þegar
Keflavíkurliðið stóð uppi þjálfara-
laust fyrir sl. keppnistímabil. „Menn
voru ekki sáttir við hvernig komið
var fram við þjálfarann og ósannind-
um beitt. Það er orðið slæmt til af-
spurnar fyrir Keflavík að alltaf sé
verið að reka þjálfara héma. Búið
er að láta þtjá knattspyrnuþjálfara
fara á stuttum tíma, einn hand-
knattleiksþjálfara og einn körfu-
knattleiksþjálfara. Þá hefur einn
körfuknattleiksþjálfari sagt starfi
sínu lausu. Menn eru byrjaðir að
kalla Keflavík „Reka-vík“,“ sagði
einn viðmælandi minn.
S valad ry kkjasaga n
Fyrir rúmu ári sendi Handknatt-
leiksráð Keflavíkur íþróttaráði
Keflavíkur umsókn, þar sem ráðið
óskaði eftir að fá að sjá um sölu á
svaladrykkjum í íþróttahúsinu í
Keflavík og sundhöll bæjarins. Á
fundi íþróttaráðs var samþykkt að
vísa umsókninni til ÍBK, þannig að
íþróttaráð mundi ekki gera upp á
milli íþróttagreina. ÍBK fékk heimild
til að sjá um sölu á svaladrykkjum
á áðumefndum stöðum og var þá
ákveðið að handknattleiksráð og
körfuknattleiksráð fengju leyfi til að
sjá saman um sölu á svaladrykkjum
í íþróttahúsinu, en handknattleiksráð
sæi um söluna í sundhöllinni. Hér
var um að ræða sölu á Hl-C-drykkj-
um í pappaumbúðum. Körfuknatt-
leiksráð hætti fljótlega þessu sam-
starfi þannig að handknattleiksráð
sá alfarið um söluna.
Handknattleiksráð verslaði við
Vífilfell. Þegar ráðið stóð ekki í skil-
um við Vífilfell, ákvað Vífilfell að
hætta viðskiptunum.
ÍBK greip þá í taumana og í júní
gaf ÍBK handknattleiksráði fimm
daga frest til að að ganga frá sínum
málum við Vífilfell og láta fylla á
kassana í íþróttahúsinu. Þegar sá
frestur rann út án þess að neitt hefði
verið gert í málinu, var leyfið tekið
af handknattleiksráðinu.
Þegar þetta stóð yfir gerðist það
að menn frá knattspymuráði bám
dósasjálfsala inn í íþróttahúsið og
hófu sölu í óþökk ÍBK og forstöðu-
manns íþróttahússins. „Ég var búinn
að benda knattspymumönnum á, að
þeir gætu örugglega fengið leyfi til
að selja Hl-C-drykki þar sem hand-
knattleiksmenn hefðu misst það leyfi.
Þegar ég kom úr sumarfríi vora
knattspymuráðsmenn búnir að koma
fyrir gosdrykkjasjálfsalanum, án
þess að hafa heimild frá ÍBK,“ sagði
Jón Jóhannsson, forstöðumaður
íþróttahúsanna í Keflavík.
AmoMusK jafiivel o
s mmL
. ,vl
Irtirrkaðir
ávexlir
Framandi
ávexiir
Handknattleiksráð fær aftur
söluleyfi
í byrjun september tóku nýir menn
við stjóm handknattleiksráðs
Keflavíkur og varð uppgangur í
handknattleiksdeildinni. Stjórn ÍBK
ákvað að handknattleiksráð fengi
leyfi til .sölu á drykkjum frá 1. sept-
ember 1989 til 1. maí 1990. Þá
myndi knattspymuráð taka við leyf-
inu, eða frá 1. maí 1990 til 1. sept-
ember sama ár. Körfuknattleiksráð
tæki þá við sölunni til 1. maí 1991
og síðan koll af kolli.
Knattspymuráðsmenn vora vondir
yfir þessari ákvörðun. Sögðust hafa
sett upp gosdrykkjasjálfsalann og
væra með yfirráð yfir sölunni. Þeim
var þá tjáð að reglur þær sem ÍBK
setti myndu standa. Óskað var eftir
því að þeir losuðu kassann fyrir 1.
október, þannig að Handknattleiksr-
áð, sem var búið að ganga frá málum
við Vífilfell, gæti fyllt á kassann og
tekið við rekstri hans.
Knattspyrnuráðsmenn neituðu að
opna kassann. Það var svo sl. laugar-
dag að Jón Jóhannsson, forstöðu-
maður íþróttahúsanna í Keflavík,
opnaði kassann til þess að hand-
knattleiksráðsmenn gætu komið vör-
um sínum fyrir í honum. Talið var
upp úr kassanum og vörar og pening-
ar sett á vísan stað.
Rétt eftir að handknattleiksráðs-
menn voru búnir að fylla á gos-
drykkjasjálfsalann mættu knatt-
spyrnuráðsmenn á staðinn á sendi-
ferðabifreið. Þeir tóku sjálfsalann
með vöram handknattleiksráðs í.
Hótað að kæra
forstöðumanninn
Þeir hótuðu að kæra forstöðu-
manninn fyrir lögreglunni. „Mér var
bent á að ég hefði brotið 215. grein
hegningarlaganna, sem segir að ekki
megi afhenda eigur annarra. Mér var
tilkynnt að þetta væri alvarlegt
brot,“ sagði Jón Jóhannsson, for-
söðumaður.
Eftir þennan atburð var Vífilfelli
tilkynnt um málið, en í reglum Vífil-
fells um gosdrykkjasjálfsala segir að
öðram en starfsmönnum Vífilfells sé
óheimilt að fjarlægja kassa eða færa
þá á milli staða. Forstöðumenn fyrir-
tækisins óskuðu eftir því að sjálfsal-
inn yrði settur á sinn stað. Ef ekki,
yrði lögfræðingur kvaddur til. Knatt-
spymuráðsmenn hafa nú lofað að
skila kassanum fyrir helgina.
í kjölfar þessara deilna kallaði
stjórn IBK forráðamenn knatt-
spyrnu- og handknattleiksráðs til
fundar og þar var mönnum tilkynnt
að reglur þær sem settar vora um
leyfi á sölu drykkja stæðu óhaggað-
ar.
Þetta þoldu knattspymuráðsmenn
ekki og ákváðu að segja starfi sínu
lausu frá og með 15. nóvember.
Þetta mál hefur vakið athygli og
undran i Keflavík. „Þeir sem standa
í illindum við félaga sína út af einum
gosdrykkjasjálfsala, eiga ekki að
starfa í iþróttaforystu," sagði einn
viðmælandi minn um þetta einkenni-
lega gosdrykkjamál, sem á sér enga
hliðstæðu í íslenskri íþróttasögu.
Ég hef reynt að ná sambandi við
formann knattspyrnuráðs undan-
farna daga. Lagt fyrir hann skila-
boð, en án árangurs.