Morgunblaðið - 10.11.1989, Síða 4

Morgunblaðið - 10.11.1989, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989 Fjármögnun tveggja Boeing 757-200-véla Flugleiða: Samið um 5,3 milljarða lán við 15 erlenda banka FLUGLEIÐIR undirrituðu í gær samning um rúmlega 5,3 miHjarða króna lántöku vegna kaupa á tveimur Boeing 757-200-flugvélum sem félagið fær afhentar næsta vor. Lánveitingin samsvarar 90% af kaup- verði vélanna og var hún boðin út á alþjóðlegum markaði. Bank of Amerika og Long Term Credit Bank of Japan höfðu umsjón með lánveitingunni en 13 aðrir bankar eiga aðild að henni. Flugleiðir hafa einnig samið um 29 milljóna dollara lán við tvo erlenda banka vegna kaupa á þriðju Boeing 737-vélinni og verður samningur þar að lútandi undirritaður í byijun desember. Þegar tilboðin voru opnuð í lán- veitinguna reyndust viðbrögð banka meiri og betri en búist hafði verið við. í lok ágúst höfðu 13 bankar frá Evrópu og Japan skrifað sig á lánið þannig að íjárhæðin var langt um- fram það sem Flugleiðir óskuðu eft- ir eða 125 milljónir dollara í stað 86 milljóna. í frétt frá Flugleiðum segir að þessar undirtektir endurspegli trú bankamanna á þeim flugvélateg- undum sem félagið hafi fest kaup á og sé til vitnis um það orðspor sem fari af Flugleiðum á erlendum lánamörkuðum. Þá séu lánin tekin án ríkisábyrgða og einungis tryggð með veði í flugvélunum sjálfum. Fyrir hönd Flugleiða undirrituðu lánssamninginn Sigurður Helgason, forstjóri og Halldór Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Að sögp Halldórs Vilhjálmssonar er'lánstíminn 15 ár með 25% loka- greiðslu og miðast vextir við Libor- vexti sem eru millibankavextir í London. Fyrstu 4 árin greiðist 0,4% álag á Libor, næstu 11 árin greiðist 0,5% álag en á 25% lokagreiðslunni er 0,75% álag. Lántökukostnaður er samtals 0,55% af lánsfjárhæðinni. Auk fjármögnunar á Boeing 757-vélunum hafa Flugleiðir tryggt fjármögnun vegna kaupa á þriðju Boeing 737-vélinni sem einnig verð- ur afhent á' næsta ári. í því tilviki var samið við tvær íjármálastofnan- ir, C. Itoh UK og Mitsui Trust and Banking. Lánssamningurinn hljóðar upp 29 milljónir dollara og verður hann undirritaður hér á landi í byij- un desember. Heildarfjármögnunar- þörfin vegna næstu þriggja Boeing-véla Flugleiða og fylgihluta er samtals um 124,6 milljónir doll- ara. Að meðtöldum þeim tveimur Boeing 737-vélum sem félagið fékk afhentar í vor og öllum fylgihlutum verður heildarljárfesting Flugleiða vegna endurnýjunar millilandaflug- flotans samtals 187 milljónir dollara eða tæpir 11,7 milljarðar króna. Þar af hefur félagið greitt 20 milljónir dollara eða um 1.250 milljónir króna. VEÐURHORFUR íDAG, 10. NÓVEMBER. YFIRLIT f GÆR: Skammt suð-vestur af landinu er 989 mb lægð sem þokast suð-austur. Yfir Norður-Grænlandi er 1.026 mb hæð. Hiti breytist lítið. SPÁ: Norð-austan átt, sums staðar stinningskaldi eða allhvasst norðan til á Vestfjörðum, en annars gola eða kaldi. Él verða víða norðanlands, einkum þó við sjávarsíðuna, en á sunnan-verðu landinu er.gert ráð fyrir þurru og björtu veðri. Hiti um eða rétt yfir frostmarki við sjóinn, en annars frost 1-6 eða 7 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Norðan- og norð-austan átt um iand allt. Éljagangur norðanlands, en úrkomulaust og víða léttskýjað syðra. Frosti 1-6 stig. HORFUR Á SUNNUDAG: Fremur hæg breytileg átt. Sums staðar él við austur- og norð-austurströndina en annars þurrt og víða léttskýjað. Frost á bilinu 2-8 stig. TÁKN: ' : - Heiðskírt * f - m Léttskýjað Hátfskýjað Skýjað r Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * <10° Hitastig: 10 gráður á Celsíus SJ Skúrir — Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld CO Mistur —|- Skafrenningur (T Þrumuveður .w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri +1 skýjað Reykjavík 1 léttskýjað Bergen 10 úrkoma Helsinki 5 þokumóða Kaupmannah. 9 skýjað Narssarssuaq vantar Nuuk +9 heiðskírt Osló 7 rigning Stokkhólmur 9 súld Þórshöfn 7 léttskýjað Algarve 19 skýjað Amsterdam 11 léttskýjað Barcelona 14 þokumóða Berlín 10 léttskýjað Chicago 2 skýjað Feneyjar 12 alskýjað Frankfurt 9 léttskýjað Glasgow 9 úrkoma Hamborg B skýjaö Las Palmas vantar London 10 skýjað Los Angeles 15 heiðskírt Lúxemborg 5 CO f Madríd vantar Malaga vantar Mallorca vantar Montreal — vantar New York vantar Orlando 22 þokumóða Paris 10 skýjað Róm 16 þokumóða Vín 9 skýjað Washington 17 þokumóða Winnipeg +3 snjókoma Morgunblaðið/Árni Sæberg Frá undirritun samnings um lántöku Flugleiða vegna kaupa á tveim- ur Boeing 757-flugvéIum sem félagið fær afhentar á næsta ári. Fyr- ir hönd Flugleiða undirrituðu samninginn þeir Sigurður Helgason forstjóri og Halldór Vilhjálmsson framkvæmdastjóri Qármálsviðs. 1.850 manns að jafnaði atvinnulausir í október Atvinnulausir 700 í októbermánuði í fyrra ATVINNULEYSI hefur aukist aftur og er í október það sama og það var í ágústmánuði eftir skammvinnan bata í september, að því er fram kemur í upplýsingum Vinnumálaskrifstofu félagsmála- ráðuneytisins um atvinnuástandið. 1.850 manns gengu að jafnaði atvinnulausir í október, sem jafiigildir 1,4% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði, meira en eitt þúsund fleiri en í október í fyrra þegar 700 manns voru að nieðaltali atvinnulausir. Þetta er 10% meira atvinnuleysi en spá Þjóðhagsstoftiunar gerði ráð fyrir. Samtals voru atvinnuleysisdag- amir í mánuðinum 40 þúsund og voru 24 þúsund skráðir hjá konum og 16 þúsund hjá körlum. A öllu landinu nema höfuðborgarsvæð- inu fjölgaði konum meira á at- vinnuleysisskrá en körlum og í heild fjölgar konum á skrá frá mánuðinum á undan um 30% en körlum um 15%. Fleiri karlar eru skráðir atvinnulausir á höfuð- borgarsvæðinu, 418 karlar saman- borið við 391 konu. Skráðum atvinnuleysisdögum fjölgaði á öllum skráningarsvæð- um nema á Vestfjörðum. Aukning- in er mest í dögum talið á höfuð- borgarsvæðinu tæplega 1.90Ó, þar næst á norðurlandi eystra 1.600 dagar og síðan Suðurnes með aukningu um 1.400 daga. Aukn- inginn annars staðar var minni. Landbúnaðarráðherra: Niðurstaða þarf að liggja fyrir innan fárra vikna STEINGRIMUR J. Sigfusson landbúnaðarráðherra segir að tillögur nefndar um aðgerðir til aðstoðar loðdýraræktinni verði að öllum líkindum kynntar á ríkissljórnarfiindi í dag, fostu- dag. „Það verður að viðurkennast að það hefur dregist mun lengur en góðu hófi gegnir að koma þessu máli fram, vegna þess að endanleg niðurstaða verður að liggja fyrir nú innan fárra vikna. Eg hef því lagt ofuráherslu á að fá niðurstöð- ur nefndarinnar í hendur, og stefni að því að geta lagt þær fyrir ríkis- stjórnarfund á föstudag,“ sagði Steingrímur. Fiskiðjan Freyja: Fresturinn framlengdur FRESTUR sá sem Fiskiðjunni Freyju hf. á Suðureyri var veitt- ur til að útvega hlutafé til móts við framlag HIutaQársjóðs Byggðastoftiunar hefur verið framlengdur til 20. nóvember. Fiskiðjunni Freyju hf. var sett það skilyrði að útvega nýtt hlutafé að upphæð 55 milljónir króna fyr- ir 6. nóvember, þegar stjórn Hluta- fjársjóðs samþykkti að bjóða fram nýtt hlutafé að upphæð 96,5 millj- ónir króna til félagsins. Þar sem ekki hafði tekist að safna hluta- fénu að fullu á tilsettum tíma hef- ur Hlutafjársjóður ákveðið að lengja frestinn um hálfan mánuð. Dagur tónlistar- skólanna á morgun DAGUR tónlistarskólanna er á morgun, laugardag. Tónlist- arskólar eru nú 60 talsins á landinu og nemendur þeirra á níunda þúsund. Á morgun munu tónlistarskól- arnir minnast dagsins með margvíslegum hætti. Meðal ann- ars verða haldnir tónleikar og farið í tónleikaferðir og heim- sóknir á elliheimili og sjúkrahús.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.