Morgunblaðið - 10.11.1989, Blaðsíða 20
1
20__________________
Kosningar í
Jórdaníu:
Heittrúaðir
múslímar
vinna sigur
Amman. Reuter.
MÚSLÍMSKA bræðralagið er
sigurvegari þingkosningannaí
Jórdaníu á miðvikudag. Flokk-
urinn, sem er sá eini sem leyfð-
ur er í landinu, fékk 20 af þeim
80 þingsætum sem kosið var til.
Önnur þingsæti dreifast milli
frambjóðenda sem buðu sig
fram í eigin nafni og fiilltrúa
ýmissa ættbálka. Konur buðu
sig nú í fyrsta skipti fram til
þings í landinu en engin þeirra
náði kjöri.
Kosningamar sem eru hinar
fyrstu í 22 ár þykja hafa farið vel
fram. Styrkur heittrúaðra fram-
bjóðenda hefur þó vakið nokkurn
óhug hjá jórdönskum embættis-
mönnum. Þeir óttast að í sumum
málum nái heittrúaðir múhameðs-
trúarmenn meirihluta á hinu ný-
kjörna þingi. Kjörsókn í kosning-
unum var 53%, minni en búist
hafði verið við.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989
Reuter
Bílfeijan Hamborg er hér komin til hafnar í Bremerhaven eftir að hafa lent í árekstri við flutningaskip
í Norðursjó á miðvikudagskvöld.
Flutningaskip siglir á ferju í Norðursjó:
Strandgæslan hafði var-
að við hættu á árekstri
Athygli vakti að bedúínahöfð-
inginn Akef al-Fayez datt út af
þingi en hann var forseti þingsins
og hefur gegnt því embætti manna
lengst.
Kaupmannahöfn. Frá Nils J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
DANSKA bílferjan Hamborg og norska flutningaskipið Nordic Stre-
am lentu í árekstri í Norðursjó á miðvikudagskvöld, með þeim afleið-
ingum að þrír menn fórust og sjö slösuðust alvarlega. Vestur-þýska
strandgæslan hafði varað skipstjórana við árekstrarhættu áður en
slysið varð, að sögn lögreglunnar í Bremerhaven.
Kína:
Deng segir af sér en
er enn áhrifamestur
Peking. Reuter.
DENG Xiaoping sagði í gær af sér formennsku í hermálaráði kínverska
kommúnistaflokksins en verður áfram áhrifamesti leiðtogi Kína að
sögn vestrænna stjórnarerindreka. Við embættinu tekur Jiang Zemin,
Ieiðtogi flokksins, sem Deng hafði sjálfur valið sem eftirmann sinn.
Deiig ætlar einnig að segja af sér
formennsku í hermálaráði ríkisins,
sem er mun valdaminna. Vestrænir
stjórnarerindrekar segja að með af-
sögninni hafi Deng fómað sér til að
treysta stöðu Jiangs Zemins. Honum
hefði þó ekki tekist að fá Yang
Shangkun, forseta Kína, sem vildi
gegna formennskunni í hermálaráð-
inu, til að fallast á að segja sig úr
ráðinu. Deng er sagður vantreysta
Yang, þar sem hann hafi efasemdir
um efnahagsumbætumar, sem Deng
beitti sér fyrir. Yang Shangkun var
þó gerður að fyrsta varaformanni
ráðsins og bróðir hans, Yang Baib-
ing, varð aðalritari.
Eftirmaður Dengs í formanns-
embættinu, Jiang, hefur litla sem
enga reynslu af hermálum. Hann
komst í miðstjóm flokksins árið 1982
og í stjórnmálaráðið 1987.
Kínverska lögreglan hefur hand-
tekið tvo eftirlýsta andófsmenn, sem
Reuter
Deng Xiaoping.
skipulögðu mótmæli námsmanna
fyrr á árinu og hafa farið huldu höfði
í fjóra mánuði. Henni tókst um leið
að loka flóttaleið úr landinu, sem
stuðningsmenn kínverskra andófs-
manna í Hong Kong höfðu komið
upp.
Finnland:
Deilur um undirbúning viðræðna
um evrópska efnahagssvæðið
Helsinki. Frá Birni Bjamasyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
FINNSKIR stjórnmálamenn búa sig undir að taka ákvarðanir
vegna samningaviðræðnanna um evrópska efhahagssvæðið með
samruna markaða Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) og
Evrópubandalagsins (EB). Stjórnarandstaðan gagnrýnir ríkis-
stjórnina fyrir að hafa ekki fyrir löngu tekið málið upp á þingi.
Stjórnarsinnar og embættismenn ségja á hinn bóginn að ekkert
viðfangsefhi í utánrikismálum hafi verið kynnt þinginu jafn ítar-
lega á vinnslustigum þess. Hlutleysisstefiian hindrar Finna ekki
í þessu máli en hins vegar vi(ja þeir ákveðnar undanþágur vegna
sérstakra aðstæðna eins og við íslendingar.
Af viðræðum við finnska stjóm-
mála- og embættismenn er ljóst
að þeir lfta þannig á að umræð-
urnar um evrópska efnahags-
svæðið og þær ákvarðanir sem
taka þarf í tengslum við samninga
EFTA og EB séu með þeim af-
drifaríkustu er Finnar hafa staðið
frammi fyrir. Þær kunni að gjör-
breyta stöðu Finnlands bæði inn
á við og út á við. Málið kemur á
dagskrá finnska þingsins 28. nóv-
ember næstkomandi þegar ríkis-
stjórnin gerir grein fyrir könnun-
arviðræðum embættismanna
EFTA og EB sem fram hafa farið
að undanfömu undir forystu ís-
lendinga af hálfu EFTA. Fóru
finnskir embættismenn lofsorði
um íslenska starfsbræðuf sína
þegar þeir lýstu framgöngu þeirra
í viðræðunum.
Finnska stjórnin, sem nýtur
stuðnings hægrimanna og jafnað-
armanna, vill eindregið ganga til
samninga EFTA og EB. Miðflokk-
urinn sem er í stjórnarandstöðu
vill einnig slíkan sammna en
gagnrýnir bæði málsmeðferðina
og setur ákvéðnari fyrirvara varð-
andi undanþágur fyrir Finna. Enn
er ekki ljóst hve afdráttarlausir
þeir verða en þar kemur einkum
til álita eignarhald á fasteignum
í Finnlandi og flutningur á vinnu-
afli. Útlendingum er nú bannað
að eiga fasteignir í Finnlandi og
telja margir að það muni leiða til
þess að Finnar missi tijávöruiðn-
aðinn úr eigin höndum ef þessu
banni verði aflétt. Þá mega út-
lendingar ekki eiga meira en 40%
í hlutafélögum í Finnlandi og ekki
fara með meira en 20% atkvæða
í þeim. Hvort tveggja brýtur þetta
í bága við almennar reglur EB
sem við er miðað í viðræðum
EFTA og EB. Kunna Finnar að
óska eftir undanþágu að þessu
leyti og einnig til að yiðhalda
þeirri stefnu sinni að banna fyrir-
tækjum að ráða erlenda farand-
vérkamenn til starfa hjá sér.
Stormur var þegar slysið varð
og mikill sjógangur. Bílfeijan komst
án aðstoðar til hafnar í Bremer-
haven í gær og fóru farþegarnir
þar frá borði. Þeir voru síðan flutt-
ir til Hamborgar.
Lögreglan hóf þegar rannsókn á
orsökum slyssins. „Við vitum ekki
hvers vegna þetta gerðist. Strand-
gæslan hafði varað skipstjórana við
því að hætta væri á árekstri," sagði
talsmaður lögreglunnar í Bremen.
Ekki hafði tekist að bera kennsl
á líkin þijú í gær vegna þess hve
illa þau voru leikin. Sjö slösuðust
alvarlega og voru fluttir með þyrlu
á sjúkrahús í Vestur-Þýskalandi.
Feijan er í eigu danska skipafyr-
irtækins DFDS. Ekki var vitað með
vissu hversu margir farþegar voru
í feijunni. Hún var á leiðinni frá
Harwick í Englandi til Hamborgar,
aðallega með vestur-þýska, breska
og danska farþega. Norska flutn-
' ingaskipið var á leiðinni til Ham-
borgar.
Grikkland:
Mitsotakis
mistekst
stjórnar-
myndun
Aþcnu. Reutcr.
LEIÐTOGI Nýja demókrata-
flokksins í Grikklandi, Konst-
antín Mitsotakis, gafst í gær upp
við að mynda samsteypustjórn
með kommúnistum. Telja má víst
að Andreas Papandreou. leiðtogi
sósíalista og fyrrum forsætisráð-
herra, verði veitt stjórnarmynd-
unarumboð í dag, fóstudag.
Nýdemókrata, sem eru hægri-
sinnaðir, skortir þijú þingsæti til
að hafa meirihluta á þingi eftir
kosningar sem fóru fram síðastlið-
inn sunnudag. Mitsotakis sagðist
telja heppilegast að reynt yrði að
mynda þjóðstjórn í landinu en til-
raunir í þá átt geta ekki hafist fyrr
en sósíalistar og kommúnistar hafa
fengið tækifæri til að bræða saman
stjórn.
Harilaos Florakis, formaður
kommúnistaflokksins, hefur sett
sem skilyrði fyrir samstarfi við sós-
íalista að Papandreou víki úr for-
ystusæti flokksins. Ríkisstjórn Pap-
andreous hefur verið sökuð um
gífurlega spillingu og ólöglegt at-
hæfi af ýmsu tagi.
Norðurlandaráð:
Norskttón-
skáld fær
verðlaunin
NORRÆNA tónlistarnefndin
(NOMUS) ákvað í gær að veita
norska tónskáldinu Olav An-
ton Thommessen Tónlistar-
verðraun Norðurlandaráðs árið
1990. Verðlaunin verða afhent
í Reykjavík í febrúar. Verð-
launin fær Thommessen fyrir
verkið „Gjennom Prisme".
Verðlaunin eru 150.000 dan-
skar krónur en þau eru veitt
á ári hveiju. Tíu verk voru til-
nefnd í ár en af hálfu íslands
voru lögð fram verk eftir þau
Karólínu Eiríksdóttur og Leif
Þórarinsson.
Ástralía:
Karlskrona-
kafbáturinn
í sænskan
skemmtigarð
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
SÆNSKT fyrirtæki hefur fest
kaup á sovéska kafbátnum
sem strandaði í sænska skeija-
garðinum við Karlskrona árið
1981. Bátnum .verður komið
fyrir í stærsta skemmtigarði
Svíþjóðar í Skara norðaustur
af Gautaborg. Kunnur sænsk-
ur athafnamaður, Bert Karls-
son, keypti bátinn af norsku
málmbræðslufyrirtæki og gaf
eina og hálfa milljón s. kr..
(rúmar 14 millj. ísl.) fyrir
bann. Kafbáturinn verður
fluttur í fjórum hlutum frá
Noregi en hann er 72 metrar
að lengd og vegur um 800
tonn.
Noregur:
Konur í póli-
tík ógn við
landvarnir
Ósló. Reuter.
VAXANDI fjöldi kvenna í
háum stöðum innan stjórn-
málanna er ógn við landvarnir
Noregs, að því er Morten Bu-
an, formaður samtaka yfir-
manna í norska hernum, sagði
á mánudag. „Þetta stafar af
því að konur leggja meiri
áherslu á mjúku málin og
koma lítið eða ekki nálægt
varnarmálum,“ bætti hann við.
Buan áleit þó að þetta vanda-
mál mætti leysa með aukinni
hernaðarþjálfun kvenna.
Tyrkland:
Ozal velur eft-
j irmannsinn
Ankara. Reuter.
TURGUT Ozal, nýkjörinn for-
seti Tyrklands, valdi í gær
Yildirim Akbulut í embætti
forsætisráðherra. Ozal sem
verið hefur forsætisráðherra í
sex ár var kjörinn forseti
landsins fyrr í vikunni. Ak-
bulut hefur verið forseti þings-
ins um skeið og er úr Föður-
landsflokknum, flokki Ozals.
Litið er á nýja forsætisráð-
herrann sem mann sátta milli
fijálslyndra flokksmanna og
heittrúaðra. Búist er við að
Akbulut leggi fram ráðherra-
lista sinn eftir nokkra daga.
_____________________(