Morgunblaðið - 10.11.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER1989
2t
íþróttir
fatlaðra
kynntar
íþróttasamband fatlaðra efnir
til kynningar á möguleikum fatl-
aðra til íþrótta- og tómstunda-
starfa í bænum á morgun, laug-
ardag, í samvinnu við íþóttafé-
lagið Akur, íþóttabandalag Ak-
ureyrar, Sjálfsbjörgu og Svæðis-
stjórn um máleini fatlaðra.
Kynningin fer fram að Bjargi,
húsi Sjálfsbjargar að Bugðusíðu
1, og hefst kl. 14. Fyrirkomulagið
verður með þeim hætti að að lok-
inni fundarsetningu fer fram kynn-
ing á starfi íþróttasambands fatl-
aðra og síðan verður sýnt stutt
myndband er sýnir fatlaða í íþrótt-
um og þá verður kynning á starf-
semi íþróttafélagsins Akurs.
Fatlaður íþróttamaður flytur er-
indi og síðan verða umræður. Að
lokum fá þátttakendur að reyna
sig í ýmsum íþróttagreinum sem
fatlaðir leggja stund á.
Píanótónleikar
VILBERG Viggósson píanóleik-
ari heldur tónleika í sal Tónlist-
arskólans á Akureyri á morgun,
og í samkomusal Barnaskólans
á Húsavík á sunnudag. Tónleik-
arnir heQast báðir kl. 17.
Vilberg er fæddur á ísafirði árið
1960 og hóf þar píanónám átta ára
gamall undir handleiðslu Ragnars
H. Ragnars. Hann lauk burtfarar-
prófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík árið 1982 og var gesta-
nemandi við Tónlistarháskólann í
Köln veturinn 1983-84. Síðasta vor
tók Vilberg lokapróf frá Sweelinck
Conservatorium í Amsterdam. Vil-
berg er píanókennari við Tónlistar-
skólann í Njarðvík í vetur.
Dagur tónlistar-
skólanna
DAGUR tónlistarskólanna er á
morgun og kl. 13.30 verða tón-
leikar í Tónlistarskólanum á
Akureyri þar sem fram koma
nemendur skólans.
Við skólann eru um 530 nemend-
ur og þar eru starfandi fjórar blás-
arasveitir og þijár strengjasveitir
auk bigbands. Þá gefst elstu nem-
endunum kostur á að leika með
Kammerhljómsveit Akureyrar. Nú
í vetur var komið upp vísi að kirkju-
tónlistardeild, en kennd er kór-
stjórn við skólann og er Rovar
Kvam þar kennari, en auk þess er
kennir sr. Kristján Valur Ingólfsson
helgisiðfræði og sálmafræði. Starf-
andi organistar hafa sótt þessi
námskeið og hafa til að mynda
komið organistar úr Skagafirði á
námskeiðin.
í vetur hófst tónlistarkennsla við
Glerárskóla þar sem um 20 nem-
endur stunda nám, en slíkt hefur
ekki verið í boði áður.
Of mikið bar í milli í
Krossanesdeilunni
HLÉ hefúr verið gert í samninga-
viðræðum Verkalýðsfélagsins
Einingar og Vinnuveitendasam-
bands íslands í Krossanesdeil-
unni svokölluðu.
Samningafundur hófst á þriðju-
dag og stóð fram undir miðnætti
og var þráðurinn tekinn upp að
nýju á miðvikudag. Fundur stóð
allan þann dag, en upp úr mið-
nætti aðfaranótt fimmtudags var
viðræðum hætt.
Hilmar Steinarsson hjá Krossa-
nesverksmiðjunni sem sæti á í
samninganefndinni sagði að við-
ræðum hefði verið hætt þar sem
of mikið bæri í milli. Tilboð hefði
verið á borðinu um að fjögurra
vakta kerfi yrði tekið upp hjá verk-
smiðjunni, en aðilar hefðu ekki ver-
ið sammála um launaliði.
Gert verður við Heklu
hjá Slippstöðinni
GENGIÐ var frá samnlngum um að Slippstöðin hf. tæki að sér viðgerð-
ir á strandferðaskipinu Heklu í gærmorgun. Skipið fékk á sig brotsjó,
sem kunnugt er, og skemmdist allverulega. Kostnaður vegna tjónsins
er metinn á um 30 milljónir.
Sigurður Ringsted forstjóri Slipp-
stöðvarinnar sagði að reiknað væri
með að vinna yrði við verkið fram í
janúar á næsta ári. Skipta þarf um
-innréttingar og rafmagn í húsi skips-
ins, sem er þrjár hæðir og þá þarf
einnig að setja íipp ný tæki í brúna.
Um helgina verður lokið við þær
viðgerðir sem gerðar verða við skipið
á landi, en verið er að skipta um
framþil í húsinu auk annarra stálvið-
gerða. Þá er verið að gera við skrúfu-
húnaðinn, sprungur og einnig verður
skipið sandblásið, en þessar viðgerð-
Steinninn sem lenti á vinstra fæti
mannsins var tæplega 300 kíló að
þyngd og mjög oddhvass. Fótinn tók
í sundur við ökkla. Maðurinn var
þegar fluttur með sjúkrabifreið frá
Ólafsfirði og á Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri þar sem hann gekkst
undir uppskurð í fyrrakvöld. Líðan
hans var eftir atvikum.
Tryggvi Jónsson aðstoðarstaðar-
stjóri sagði að er slysið varð hafi
starfsmenn verið að hlaða stafninn
og er verið var að hlaða síðustu hol-
una rann steinninn niður eftir stafn-
inum og lenti þá á fæti mannsins.
Hann sagði að sá háttur væri hafður
ir tengjast ekki allar tjóninu sjálfu.
Sigurður sagði að bæði væri verið
að vinna að verkum fyrir trygginga-
félagið og fyrir útgerðina. Tjónið á
Heklunni er metið á um 30 miHjónir
króna, en enn er ekki vitað hversu
mikill annar viðgerðarkostnaður
verður vegna árlegs viðhalds skips-
ins.
Reiknað er með að vinna verði við
skipið fram í janúar á næsta ári, en
það verða nær eingöngu trésmiðir
og rafvirkjar sem sinna þessu verk-
efni.
á að áður en borun hefst sé bergið
hreinsað og það sem laust er er fjar-
lægt. Farið er í körfu efst í bergið
og það sem þar er hreinsað niður.
Þetta hafi verið búið að gera er sly-
sið varð.
Tryggvi sagði að vatn væri í stafn-
inum, en sprungur bergsins væru
leirfylltar. Að öllum líkindum hefði
leirinn smám saman skolast burtu
með þeim afleiðingum að steinninn
hafi losnað og runnið af stað. „Það
er allt gert til að koma í veg fyrir
að svona hlutir geti gerst, en aldrei
hægt að fyrirbyggja þá alveg,“ sagði
Tryggvi.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kostnaður vegna tjónsins sem
strandferðaskipið Hekla varð
fyrir er það lenti í brotsjó fyrir
nokkru er metinn á um 30 millj-
ónir króna. Gengið hefúr verið
frá samningum um að Slippstöðin
taki verkið að sér.
Laugardagur:
Sprengikvöld
Hljómsveit
Geirmundar
Valtýssonar
leikur
til kl. 03.00.
Örfá borð laus fyrir matargestir
Húsið opnað fyrir aðra en
matargesti kl. 23.00.
Verið velkomin.
Hótel IiEA
Norskur maður missti
framan af vinstra fæti
RÚMLEGA fertugur Norðmaður, flokksstjóri við jarðgangagerðina í
Ólafsflarðarmúla missti framan af fæti er stór steinn féll ofan úr berg-
inu og á hann er hann var við vinnu sína í göngunum í fyrradag.
Verið var að hlaða stafiiinn er slysið varð, en gangamenn voru þá
komnir um 2.150 metra inn í göngin.
ATVINNIÍAUGIYSINGAR
Snyrting og pökkun
Starfsfólk vantar nú þegar við snyrtingu og
pökkun. <
Upplýsingar í síma 93-61200.
Hraðfrystihús Ólafsvíkur.
Stálskipasmiðir
Óskum að ráða fjóra menn vana stálskipa-
smíði. Ráðningartími frá 20. nóvembertil 31.
janúar 1990.
Upplýsingar eru veittar í síma 98-11490
(Kristján) föstudag og mánudag milli kl. 10.00
og 12.00 og 13.00 og 16.00.
Skipalyftan hf.,
Vestmannaeyjum.
Beitningamenn
vantar á mb. Hópsnes GK 77, sem rær með
línu frá Grindavík.
Upplýsingar í síma 92-68475.
LANDSPÍTALINN
Sjúkraliðar
óskast til starfa nú þegar á öldrunarlækn-
ingadeild í Hátúni. Um er að ræða fastar
næturvaktir, 80-100% starf.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Karlsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 602266.
Atvinna - kortagerð^
Verkfræðistofan Hnit hf. óskar eftir að ráða
mann til starfa á myndmælingadeild með
staðgóða þekkingu á tölvum og CAD-kerfum.
Æskilegt er að viðkomandí hafi háskóla-
menntun í stærðfræði eða tölvunarfræðum
og/eða fögum tengdri kortagerð.
Væntanlegir umsækjendur eru beðnir um að
koma skriflegum upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf til Verkfræðistofnunn-
ar Hnitar á Háaleitisbraut 58-60 (Miðbæ),
3. hæð.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Metsölublað á hverjum degi!
Báturtilsölu
Til sölu 168 rúmlesta stálfiskibátur smíðaður
í Svíþjóð 1964. Báturinn selst kvótalaus og
án veiðiréttinda.
Upplýsingar í síma 97-56639 eða 56731 í
vinnutíma og í síma 97-56730 utan vinnu-
tíma.
Vopnfirðingafélagið
í Reykjavík
Ágætu félagar og gestir! Munið eftir árs-
hátíð félagsins í Félagsheimili Kópavogs
næstkomandi laugardag kl. 19.00.
Fjölmennið.
Árshátíðarnefnd.
Húseigendur á Spáni
Ákveðið hefur verið að stofna hagsmunafé-
lag húseigenda á Spáni. Stofnfundur verður
haldinn þann 12. nóvember kl. 14.00 í Þing-
holti, Hótel Holti, Reykjavík.
Húseigendur eða fulltrúar þeirra eru eindreg-
ið hvattir til að mæta.-
Undirbúningsnefndin.