Morgunblaðið - 10.11.1989, Qupperneq 31
•MORGUXlÍLÁlítÐ -FÖsÍtlDkÓtjR líl.'XÓVejÍBER 198Í)
31 2
var rólegur og dagfarsprúður og
lagði aldrei illt til nokkurs manns.
Skaplaus var hann þó ekki, og
undir rólegu yfirbragði leyndist
dugnaður og snerpa. Hann var
málsvari þeirra er minna máttu sín,
hjálpsamur, greiðvikinn og ósér-
hlífinn. Jóhannes hafði mikinn
áhuga á heims- og þjóðmálum,
ferðalögum, veiðiskap, og sérstakt
yndi hafði hann af lestri góðra
bóka, ljóðum og tónlist. Á yngri
árum sínum var hann virkur félagi
í íþróttafélagi Reykjavíkur þar sem
hann æfði fijálsar íþróttir. Keppti
hann fyrir félag sitt um nokkurra
ára skeið í lang- og víðavangshlaup-
um og vegnaði vel. Hann var einn-
ig sundmaður góður og átti hann
því láni að fagna að bjarga manni
frá drukknun úr höfninni í Bremer-
haven, er skip hans var þar statt
eitt sinn sem oftar. Hlaut hann að
launum heiðurspening frá þýska
sambandslýðveldinu.
Ungur kvæntist Jóhannes eftir-
lifandi eiginkonu sinni, Guðbjörgu
K. Arndal, f. 28.4. 1930 í
Reykjavík. Milli þeirra ríkti gagn-
kvæm virðing, traust og kærleikur.
Þau eignuðust þijár mannvænlegar
dætur, Kristínu f. 1948, sem býr í
Kópavogi. Hún er gift Magnúsi
Guðmundssyni og á 6 börn. Guð-
rúnu, f. 1952, sem býr á Akranesi.
Hún er gift Magnúsi Benediktssyni
og á 4 börn. Oktavíu, f. 1958, sem
býr á Akureyri. Hún er gift Karli
Gunnlaugssyni og á 3 börn. Jóhann-
es og Guðbjörg ólu einnig upp
dótturson sinn, Reyni Reynisson.
Mjög gestkvæmt var á heimili
þeirra hjóna í Grímsnesinu, enda
voru þau gestrisin og samhent með
afbrigðum. Oft dvöldu hjá þeim
börn og unglingar um lengri eða
skemmri tíma að sumri til. Nutu
dætur mínar m.a. góðs af og minn-
ast dvalarinnar hjá Bíbí og Jóa
ávallt með þakklæti og ánægju.
Jóhannes var einstaklega bamgóð-
ur og þolinmóður við börn. Hann
hafði alveg sérstakt lagt á að kenna
þeim og fræða um alla mögulega
hluti og að tengja náttúruna, landið
og lífið í kringum okkur við fræðsl-
una, enda hændust börnin að hon-
um, og ef eitthvað þurfti að gera
eða fara var sjálfsagt að þau væru
með. Mörg þessara barna minnast
bátsferða á Ulfljótsvatni þegar lögð
voru silunganet og vitjað um, þar
sem Jói leiðbeindi af ljúfmennsku
og þolinmæði, en börnin fengu að
gera allt sjálf, róa, leggja, draga
og gera að. Einnig minnast þau
hænsnanna og eggjatökunnar, sem
þau fengu að annast sjálf, undir
leiðsögn Jóa, svo og margra ferða-
laga þar sem Jói var hrókur alls
fagnaðar.
Jóhannes veiktist alvarlega fyrír
15 árum og háði síðan marga hild-
ina við erfiða sjúkdóma og hafði
ávallt betur, þótt oft munaði mjóu,
þar til nú, er almættið ákvað að
honum skyldi hlíft við frekari þraut-
um. Æðruleysi hans, styrkur og
dugnaður í veikindunum var með
eindæmum. Hann kvartaði aldrei,
var ávallt bjartsýnn á bata og hafði
óbilandi trú á lífinu og læknavísind-
unum. Og hann var aldrei deginum
lengur frá vinnu en nauðsyn krafði.
Skarð er fyrir skildi, en eitt sinn
skal hver deyja. Söknuðurinn er
mikill, en fjölskyldan á fagrar
minningar um góðan eiginmann,
föður, tengdaföður og afa. Ég og
fjölskylda mín þökkum samfylgdina
og vottum aðstandendum innilega
samúð.
Jóhannes verður kvaddur hinsta
sinni í Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 10. þ.m. kl. 15.
Hjá Guði færðu umbun iðju þinnar.
í anda hans þú gekkst þín mörgu spor.
Nú lætur hann þig njóta náðar sinnar
og nótt og kvölum snýr í eilíft vor.
(F.J. Amda!)
Stefán Arndal
má með sanni segja að öll hans
orka hafí fyrst og fremst tengst
athafnasemi hans heima í Súganda-
firði. Hann var vakandi og sofandi
yfir velferð byggðarlagsins. Starfið
var hans lífsfýlling, í senn bæði
útrás fyrir ómælda athafnaþrá hans
en einnig frístundaiðja. Ég man
eftir öllum kvöldunum á Hjallaveg-
inum þar sem hann sat annars
hugar við endann á borðstofuborð-
inu og lagði kapal. Sérkennileg ár-
átta, sem var í senn einkennandi
fyrir hann: annaðhvort gekk kapall-
inn upp — eða ekki. Alveg eins og
það sem hugur hans snerist um í
hvert sinn. Oðru hveiju tók hann
sér stutt hlé, hellti hrúgu af neftó-
baki á handarbakið, sogaði mestan
hlutann upp og — dágóður skerfur
flaug á gólfið í stuttri sveiflu! Kaffi-
bollinn alltaf á.sínum stað ...
Hann bar ótakmarkaða virðingu
fyrir dugnaði fólks í vinnu. Hann
studdi gjarnan við bakið á ungu
fólki — fólki sem honum fannst
líklegt til að spjara sig í lífsins ólgu-
sjó og ekki síst var hann tilbúinn
að rétta fram hjálparhönd ef erfið-
leikar steðjuðu að.
Hann var að mörgu leyti maður
síns tíma. Tíma þar sem gömul
gildi voru í heiðri höfð. Viðskiptin
gengu út á gagnkvæmt traust og
það að standa við orð sín. Með þeim
hætti skapaði hann sér traust, virð-
ingu og ekki síst vináttu, margra
karla og kvenna á lífsleiðinni. Það
voru vinir sem lögðu oft leið sína í
Miðleitið til hans og Svönu, hans
einstaka lífsförunautar, eftir að
þau yfirgáfu Súgandafjörð árið
1984 og bjuggu sér nýtt heimili
— okkur í nánustu fjölskyldu hans
til óblandinnar ánægju.
Hann hafði næma tilfinningu
fyrir því spaugilega og skoplega í
lífinu og tilverunni — ekki síst
mannlega þættinum og ég á margar
góðar minningar um þegar hann
var í essinu sínu og fór bókstaflega
á kostum í frásagnargleðinni.
Hann var næmur á tilfinningar
annarra, ekki síst okkar sem stóðum
honum næst' Samt fórum við
tengdabörnin hans, börnin og
barnabörnin ekki varhluta af því
að skynja að hann vildi hag okkar
allra sem bestan og hann fór oft
ótroðnar slóðir til að sýna okkur
það. Ef til vill var það þó fyrst
eftir að hann hafði sest í helgan
stein sem mér fannst skilningur
minn á persónuleika hans dýpka.
Þá gafst okkur oftar tækifæri til
að ræða ýmis mál sem honum voru
hugleikin og veitti mér innsýn í
margt sem mér áður var hulið.
Ég er auðugri af kynnum mínum
af honum.
Margrét Theodórsdóttir
Leiðrétting*
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi leiðrétting:
„f grein minni í blaðinu í gær
um lánamál Guðrúnar Helgadóttur
er Árni Gunnarsson alþingismaður
sagður hafa verið forseti neðri
deildar á þeim tíma er lánið var
tekið. Árni hefur aðeins gegnt
þessu starfi í rúman mánuð og er
því ranglega bendlaður við málið í
greininni. Er beðist velvirðingar á
þessum mistökum.
Virðingarfyllst,
Hreinn Loftsson.
+
Systir okkar,
SIGURLAUG E. GUNNLAUGSDÓTTIR,
áður Austurgötu 25,
Hafnarfirði,
lést 9. nóvember.
Árni Gunnlaugsson,
Stefán Gunnlaugsson.
Við gerumst grannar
Knjiglunnai. Boi jjarluikliússins
og llnss \orslnnaiinnar
<|I
fe-v?* |(B| 1 ' ^
t:
» «
3 n
i a a
9 I a
yrirtækin SJÓVÁ-ALMENNAR, KAUPÞING HF. og
Sparisjóður Reykjavíkur og nógrennis opna í nýju
húsnæði, Kringlunni 5. KAUPÞING hefur starfsemi sína ó
nýja staðnum mánudaginn 13. nóvember en SJÓVÁ-
ALMENNAR og SPRON þriðjudaginn 14. nóvember.
KRINGL AN
? |org»lielkhU8iú Kringlan
verslunarmiðstöð
jHH Hi ■
- 14. NÓYHtáBER -
munu fyrirtækin þrjú í Kringlunni 5 halda opnunardaginn
hátíðlegan. Við vonumst svo sannarlega til að sem flestir
líti inn þann dag og þiggi góðgjörðir. Eins og sjá má á af-
stöðumyndinni hér fyrir ofan, þá er Kringlan 5 gegnt versl-
unarmiðstöðinni Kringlunni, við hliðina á Húsi verslunar-
innar og örstutt frá Borgarleikhúsinu.
Verið velkomin!
SJOVA-ALMENNAR
Sparisjóóur Reykjavíkurog nágrennis
KAUPPING HF