Morgunblaðið - 10.11.1989, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 10.11.1989, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989 ÚRSLIT Handknattleikur Vikingur - Valur 25:27 Laugai-dalshöll. íslandsmótið 1. deild, fimmtudagur 9. nóvember 1989. Gangur leiksins: 3:0, 3:1, 5:2, 5:5, 7:8, 10:9, 12:10, 13:12, 15:12. .15:16, 17:16, 19:18, 19:21, 21:23, 23:24, 23:26, 25:26, 25:27. Mörk Víkings: Birgir Sigurðsson 7, Bjarki Sigurðsson 6, Guðmundur Guðmundsson 6/2, Ingimundur Helgason 4/1, Siggeir Magnússon 2. Varin skot: Hrafn Margeirsson 17/2 (Þar af þijú sem Valsmenn fengu knöttinn aftur. Utan vallar: Sex mín. Mörk Vals: Jón Kristjánsson 7, Brynjar Harðarson 6, Valdimar Grímsson 6/1, Jakon Sigurðsson 3, Júlíus Gunnarsson 3, Finnur Jóhannesson 1, Ingi Rafn Jónsson 1. Varin skot: Einar Þorvarðarson 14/1 (Þar af fjögur sem Víkingar fengu knöttinn aft- ur). Utan vallar: Fjórar mín. Áhorfendur: 270. Dómarar: Einar Sveinsson og Kjartan Steinbach, sem voru ekki nægilega sann- færandi. Hrafn Margeirsson, Víkingi. Birgir Sigurðsson, Ingimundur Helgason og Bjarki Sigurðsson, Víkingi. Einar Þor- varðarson, Valdimar Grímsson, Brynjar Harðarson, Jón Kristjánsson og Ingi Rafn Jónsson, Val. 1. deild kvennæ KR-Fram................:..........18:28 Mörk KR: Sigurbjörg Sigþórsdóttir 7/2, Snjólaug Benjamínsdótti 4, Unnur Jóns- dóttir 2, Áslaug Friðriksdóttir, Nellý Páls- dóttir, Bryndís Harðardóttir og Ama Garð- arsdóttir eitt mark hver. Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóttir 9/5, Hafdís Guðjónsdóttir 7, Arna Steinssen 6, Sigrún Blómsterberg 3, Ósk Víðsdóttir 2 og Margrét Blöndal 1. 3. deild karla A: ÍS-KRb........................29:16 3. deild karla B: Breiðablik - Ármann...........25:21 Körfuknattleikur 1. deild kvenna: UMFG-UMFN.....................33:28 ÍBK-ÍS........................44:47 NBA-deildin: Níu leikir voru leiknir í NBA-deildinni í körfuknattleik á þriðjudaginn: L.A. Lakers - Phoenix Suns..111:107 lEarvin „Magic“ Johnson hjá Lakers sló Kevin Johnson með flötum lófa í andlit- ið og fékk 168 þús. Isl. kr. í sekt fyrir það högg. Báðir leikmennimir voru reknir af leikvelli. Kevin var sektaður 63 þús. kr. fyrir slagsmál. Þá var Byron Scott hjá Lakers sektaður um 31 þús. kr. fyrir ýta við einum af þjálfumm Phoenix. Milwaukee - Boston Celtics......106:100 Washington Bullets - Atlanta....118:114 Miami Heat - New Jersey Nets.. 83: 77 Chicago Bulls - Detroit Pistons.117:114 ■Scott Hastings hjá Detroit var sektaður um 94.500 ísl. kr. fyrir átök við Stacey King, sem var sekatður um 31 þús. kr. Houston Rockets - Portland....109: 86 Seattle - Charlotte Homets....128: 88 Warriors - L.A. Clippers........118: 94 Sacramento - Dallas Mavericks...96: 94 Knattspyrna Úrslitaleikur í Grunnskólamóti KRR. Fellaskóli — Ölduselsskóli.........6:5 (Eftir venjulegan leiktima og framlenginu var staðan jöfn, 1:1. Fellaskóli skoraði síðan úr öllum vítaspymunum, en Ölduselsskóli misnotaði eina. Frakkland Lyon - Mulhouse.....................3:1 Garcia 2, Brisson - Diringer. 12.935. Marseille - Auxerre.................1:1 Amoros - Vahirua. 26.262. Nantes - Paris St Germain...........0:1 - Vujovic. 15.000 Nice - Cannes.......................2:0 Metz - Mónakó.......................1:0 Cartier. 7.305 Montpellier - Brest.................1:1 Racing Paris - Caen.................0:0 Sochaux - St. Etienne...............2:3 Lille - Toulon......................3:0 Toulouse - Bordeaux.................0:1 - Allofs. 13.741. Spánn Fyrri leikir í annari umferð spönsku bikar- keppninni: Sabadell - Real Sociedad;..............1:0 Real Betis - Cadiz.....................1:0 Real Valladolid - Malaga....i..........6:1 Athletic Bilbao - Barcelona............0:1 - Ronald Koeman 39. min. vítasp. Real Oviedo - Real Zaragoza............0:1 Atletico Madrid - Real Madrid...........0:0 í kvöld KA og ÍBV leika í 1. deild karla í hand- knattleik í kvöld á Akureyri. UMFN og UBK leika í 2. deild karla kl. 18. Tveir leikir fara fram í 3. deild karla. ÍH leikur gegn Ögra kl. 20116 og Völs- ungur fær Fylkir í heimsókn kl. 20. FH og Víkingur leika í 1. deild kvenna kl. 19 og tveir leikir fara fram í 2. deild kvenna: ÍBK - Þór kl. 20 og UMFA - ÍBV kl. 20.15. SJONVARP Óvíst um beinar út- sendingar frá HM Engar beinarsjónvarpsútsendingareftir 12. desembervegna breytinga hjá EBU RÍKISSJÓNVARPIÐ stendur nú frammi fyrir því að geta ekki sýnt beint frá erlendum atburðum þar á meðal íþróttaviðburðum eftir 12. desember. Samband evróp- skra sjónvarpsstöðva, EBU, sem ríkissjónvarpið er aðili að, hefur ákveðið að skipta alfarið yfir á annan gervihnött: frá og með 12. desember. íslendingar eiga ekki mót- tökuloftnet sem getur tekið á móti beinum sendingum frá þessum nýja hnetti sem er ávallt á hreyfingu. Það þarf því að setja upp loftnet sem er sífellt á hreyfingu og eltir hnöttinn uppi. ð sögn Gústáfs Arnar, yfir- verkfræðings Pósts og síma, kom þetta mál ekki upp á yfir- borðið fyrr en á síðustu stundu. „Þetta mál hefur valdið öllum sem hlut eiga að máli talsverðum erfíð- leikum. Við vorum með í undir- búningi kaup á nýju og stærra loftneti fyrir Ríkisútvarpið, en þau kaup hafa reyndar tafíst vegna þess að það kemur ný kynslóð af gervitunglum á loft 1992. Það hefur ekki legið fyrir nák\ræmlega hvar þau tungl munu verða stað- sett þannig að við höfum ekki getað gengið frá þeim kaupum. Þetta mál kemur nokkuð óvænt upp og án mikils fyrirvara og snertir okkur illa vegna þess að við erum eina lándið í Vestur- Evrópu sem er með svóna lítið loftnet,“ sagði Gústaf Arnar. Ekki sýnt beint frá HM? Sjónvarpið hafði gert samning við EBU um beinar sjónvaips- útsendingar af knattspyrnuleikj- um fram til áramóta. Það er því ljóst að leikir Stuttgart gegn HSV 1)5. desember, og Aston Villa gegn Arsenal 30. desember verða ekki sýndir beint eins og fyrirhugað var. Það er heldur ekki útséð um það hvort hægt verði að sýna beint frá heimsmeistarakeppninni í handknattleik í Tékkóslóvakíu í lok febrúar eins og sjonvarpið hafði ráðgert. „Veldur okkur áhyggjum" „Þessar breytingar EBU valda okkur þungum áhyggjum. Við getum ekki skipulagt neinar bein- ar útsendingar eftir tólfta des- ember vegna þessa. Það er Ijóst að við verðum sambandlausir hvað varðar beinar útsendingai- í að minnsta kosti mánuð ef ekki tvo mánuði hvernig svo sem málið þróást hér eftir,“ sagði Ingólfur Hannesson, deildarstjóri íþrótta- deildar sjónvarpsins. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er EBU tilbúið að setja upp jarðstöð hér á landi á eigin kostnað með þeim skilyrðum að Ríkissjónvarpið eigi og reki stöð- ina. En hingað til hefur Póstur og sími séð alfarið um móttöku á efni frá EBU og selt það síðan tíl sjónvarpsins. Samkvæmt Qarksiptalögunum hefur Póstur og sími einkarétt á öllum slíkum sendingum í ábataskyni. Það þarf því hreytingar eða undanþágu á fjarskiptalögunum til að þetta nái fram að ganga og er málið nú í höndum Steingríms J. Sigfússon- ar, samgönguráðherra. HANDKNATTLEIKUR Valsmenn sterkari * á lokasprettinum „Þetta var erfiður leikur. Við náðum að sýna betri hluti held- ur en við höfum sýnt að und- anförnu. Greinilegt er að okkur skorti úthald. Náum ekki að halda út. Ég vona að leikur okkar sé að komast í réttan farveg. Það hefði verið gaman að fá annað stigið. Við vorum klaufar undir lokin,“ sagði Guð- mundur Guðmundsson, lands- liðsmaður íhandknattleik, sem stjórnaði Víkingsliðinu í fyrsta sinn sem þjálfari gegn Val í gærkvöldi. Valsmenn voru sterkari á lokasprettinum og unnu, 25:27. Mikil spenna var undir lok leiksins. Þegar staðan var, 23:24, komu tvö mörk frá Vals- mönnum í röð, 23:26. Víkingar svöruðu með einu marki og þegar staðan var, 24:26, og 2,30 mín. til leiksloka, misstu Víkingar Guðmund Guðmundsson af leikvelli. Dómarar gerðu þar mistök, því að Guðmundi var vikið af leikvelli fyrir að losa sig úr klemmu Valdimars Grímssonar. Víkingar náðu að minnka muninn í, 25:26, og fengu síðan tækifæri til að jafna þegar dæmdur var ruðn- ingur á Valsmenn þegar 40. sek. voru til leiksloka. Víkingar misstu knöttinn klaufalega fá sér og Jakob Sigurðsson náði að innsigla sigur Vals, 25:27. Hrafn Margeirsson lék mjög vel í marki Víkings. Þá léku þeir Birg- ir Sigurðsson og Bjarki Sigurðsson vel, sem og Ingimundur Helgason í hlutverki leikstjórnanda. Bestu menn Vals voru Jón Kristj- ánsson, Brynjar Harðarson, Ingi Rafn Jónsson, sem var sterkur í vörn, Einar Þorvarðarson og Valdi- mar Grímssor). Skúli Unnar Sveinsson skrífar Jón Kristjánsson lék vel með Valsmönnum og skoraði sjö mörk. KNATTSPYRNA Arnór fær mikið hrós ARNÓR Guðjohnsen fær mikið hrós í grein um Anderlecht í blað- inu Kicker í gær. Þar er sagt frá hvað meiðsli leikmanna hafí leikið félagið grátt. Margir leikmenn hafi þurft að leika aðrar stöður held- ur en þeir eru van- ir og einn af þeim er Arnór Guðjo- Frá Jóni Halldórí Garðarssyni i Þýskalandi hnsen. Blaðið segir: „Hann hefur skilað hlutverki sínu frábærlega sem bakvörður - það er eins og hann hafi ekki leikið aðra stöðu.“ Anderlecht hefur verið í miklum ham bæði í belgísku deildinni þar sem liðið er í efsta sæti og í Evr- ópukeppninni þar sem liðið sló Barcelona út í síðustu viku og er komið í 8-liða úrslit. toómR FOLK ■ NÝ mörk eru nú komin í Laug- ardalshöilina. Þau vöktu athygli áhorfenda í gærkvöidi - fyrir lit sinn. Marksúlumar em svartar og gráar. ■ STJJTTAR taGr urðu á leik Víkings og Vals í gærkvöldi. Nanna Guðmundsdóttir, sem hef- ur verið ritari í leikjum Víkings, var ekki á staðnum. Forráðamenn Víkings vom greinilega búnir að bóka að Nanna væri til staðar - höfðu því ekki áhyggjur. Þ^fBr dómarar fiautuðu til leiks kom í ljós að ritara vantaði. Kristján Sig- mundsson, fyrrum landsliðsmark- vörður og formaður handknattleiks- deildar Víkings, leysti málið og skráði leikinn niður á leikskýrslu. ■ BRYNJAR Harðarson, leik- stjórnandi Vals, var tekinn úr um- ferð af Einari Jóhannessyni í gærkvöldi. Þrátt fyrir það var Brynjar mjög ógnandi og ef hann slapp laus lá knötturinn í neti Víkinga. Brynjar sýndi að það er engin tilviljun að hann sé marka- hæstur í 1. deild. ■ ÁRNI Friðleifsson lék ekki með Víkingum í gærkvöldi. Hann tognaði á ökkla og verður ekki orð- inn góður fyrr en eftir viku. Karl Þráinsson er að ná sér á strik eft- ir meiðsli - hann sat á varamanna- bekk Vikinga. I BORIS Becker er úr leik á opna Stokkhólmsmótinu í tennis. Hann tapaði óvænt fyrir Svíanum, Jan Gunnarsson, 6:3 og 7:5 í 3. umferð gærkvöldi. „Þetta er stærsti dagur í lífi mínu á tennisvellinum. Ég trúi því varla enn að ég hafi unnið Becker,“ sagði Gunnarsson kampakátur eftir sigurinn. Fögnuð- ur 14.000 sænskra áhorfenda var gífurlegur eftir leikinn. Gunnars- son er í 36. sæti á lista yfir bestu tennisleikara heims, en Becker er í öðm sæti á eftir Tékkanum Ivan Lendl. Önnur úrslit í gær vora þau að Mats Wilander frá Svíþjóð sigr- aði Thomas Muster frá Aust- urríki, 6:4, 7:5 og 6:4. Ivan Lendl vann Svíann Anders Jarryd'or- ugglega, 6:0 og 6:2.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.