Morgunblaðið - 10.11.1989, Side 44

Morgunblaðið - 10.11.1989, Side 44
SJQVÁDÍfjALMENNAR FELAG FOLKSINS wóftnttbtfrifr EINKAREIKNINGUR Þ/NN / LANDSBANKANUM _________________Mk FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Sauðfjárslátrun: Aætluð heild- arfiramleiðsla $.600 tonn SAUÐFJÁRSLÁTRUN er nú víðast hvar lokið, og er áætlað að heildarframleiðslan I haust verði um 9.600 tonn. Er það um 6% samdráttur frá síðasta ári, en þá var framleiðslan um 10.250 tonn. Samkvæmt upplýsingum frá Framleiðsluráði landbúnaðarins hefur sláturfé fækkað um 11% frá árinu 1988, og er fallþungi dilka ívið meiri í haust en þá, en endan- legar tölur liggja ekki fyrir. Mesta innvigtun í sláturtíð var árið 1978, en þá var framleiðslan um 15.300 tonn, þannig að samdrátturinn er —am 37%. Danskur stjörnu- spekingur: Eldsumbrot- um spáð á Islandi á líæstunni í DANSKA ríkissjónvarpinu var síðastliðið miðvikudagskvöld við- tal við danskan sljörnuspeking að naftii Arne Gabs. í viðtalinu kom meðal annars fram að Gabs spáði fyrir um eldgosið í Heimaey í jan- úar 1973 og byggði hann spá sína á jarðskjálftum sem orðið höfðu um áramótin 1972-’731 Nicaragua í Suður-Ameríku. Arné Gabs sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að sjötta þessa mánaðar hefði orðið jarðskjálfti í Nicaragua og að hann reiknaði með að eldgos brytist út á íslandi á tíma- bilinu 13.-28. nóvember. Ekki kvaðst Jiann geta sagt fyrir um hvar á iSdinu slíkir atburðir myndu eiga sér stað. Gabs sagði að hann hefði veitt viðtalið í danska sjónvarpinu til að vekja athygli á aðferðum sínum til að spá fyrir um óorðna hluti, en til þess beitir hann stjörnunum í himin- hvolfínu. Hann kvaðst telja að ef til eldsum- brota kæmi renndi það stoðum undir spádómshæfileika sína og þá kenn- ingu sína að samband væri á milli jarðhræringa í Nicaragua og eldsum- brota á íslandi. Gabs sagði að það yrði íslendingum til mikils góðs éf unnt yrði með þessum hætti að spá fyrir um náttúruhamfarir á Islandi. Perlan í Öskjuhlíð Morgunblaðið/Bjami Útsýnishúsið nýja í Öskjuhlíðinni gengur undir nafninu perlan manna á meðal enda minnir gler- hvelfingin óneitanlega á perlu. Byggingakranar hafa verið fiarlægðir og sést nú vel hvernig húsið mun prýða Öskjuhlíðina. Að sögn Jóhannesar Zoéga verkefhissljóra, er húsið nú fokhelt og undir- búningur hafinn að næsta verkþætti, sem er útboð á innréttingum. Standa vonir til að það geti farið fram fyrir áramót. Gjaldþrot ís- landslax: Kröfiihafar og bústjór- ar reka fyrir- tækið áfram Islandslax hf. var formlega úr- skurðað gjaldþrota í gær að ósk sfjórnar félagsins. Skipaðir bú- sfjórar, hæstaréttarlögmennirn- ir Sigurmar Albertsson og Garð- ar Garðarsson, héldu síðdegis í gær fyrsta fúnd sinn með fúlltrú- um stærstu kröfúhafa, Fram- kvæmdasjóðs, Fiskveiðasjóðs og Landsbanka íslands. Ákveðið var að halda rekstri fyrirtækisins áfram á ábyrgð búsins með óbreyttu starfsliði. Að sögn Sigurmars Albertssonar var ekki ákveðið í hve langan tíma þessi háttur yrði hafður á. Hann sagði að á fundinum hefðu. ýmsir möguleikar um ráðstöfun eignanna verið ræddir en ekkert verið ákveð- ið í þeim efnum. Hann sagði að forsvarsmenn SÍS hefðu enn engar hugmyndir lagt fram um að koma inn í reksturinn en Guðjón B. Ólafs- son, forstjóri SIS, segir SIS hafa áhuga á þvi. Sigurmar Albertsson kvaðst eiga von á að fundir með kröfuhöfum yrðu daglega á næstunni. Fyrst um sinn mundi þar aðeins vera um að ræða Framkvæmdasjóð, Fiskveiða- sjóð og Landsbanka en aðrir komi einnig inn á næstunni. Kröfur verða innkallaðar fljótlega. Sjá einnig frétt á miðopnu. Könnun Félagsvísindastofiiunar á atvinnu og tekjum: Fjölskyldutekjur hafa rýrnað um 6% á einu ári Mun færri eru á vinnumarkaði nú en í fyrra UMTALSVERT færri eru á vinnumarkaði nú en á síðastliðnu ári eða 78% fólks á aldrinum 18-75 ára samanborið við 81-83% á árinu 1988, að því er fram kem- ur í könnun sem Félagsvísinda- stofnun hefur gert á atvinnu, at- vinnuhorfúm og tekjum. Þar kemur fram að heildartekjur fúll- vinnandi karla voru um 123 þús- und krónur á mánuði í október og heildartekjur kvenna 75 þús- und krónur. Fjölskyldutekjur voru 169 þúsund krónur á sama tíma og höfðu rýrnað um 6% frá nóvember á siðasta ári, en kaup- máttur heildartekna einstaklinga hafði rýrnað um nær 9%. Samningur um saltsíldarkaup Sovétmanna óstaðfestur: Ovíst hvort íslensku samninga- mennirnir verða áfram í Moskvu SAMNINGANEFND Síldarútvegsnefiidar var í gær tilkynnt í Moskvu að sjávarútvegsráðherra Sovét.ríkjanna treysti sér ekki til að staðfesta samkomulag það, sem gert hafði verið milli innkaupa- stofiiunarinnar Sovrybflot og samningamanna SÚN síðastliðinn laugardag. Samkomulagið var gert með þeim fyrirvara að sovéski ráðherr- ann samþykkti það. Óvíst er hvort íslensku samningamennirnir Gunnar Flóvenz og Einar Bene- diktsson verði áfram í Moskvu en í gær vörðust þeir allra frétta af ^ erangi mála og því í hveiju samn- ingurinn væri fólginn. Þar sem menn héldu að samn- ingar væru að takast við Sovét- menn um saltsíldarkaup þeirra var mokveiði af millisíld í Mýrarbugt í fyrrinótt. Síldin, sem veiðstTiefur í haust, hefur aðallega verið millisíld, sem hentað hefur til sölt- unar á Rússlandsmarkað. Þar sem samningar hafa enn ekki tekist við Sovétmenn um saltsíidarkaup þeirra hefur síldin aðallega farið í frystingu og bræðslu undanfarið. Síldin hefur hins vegar ekki verið nægilega stór til frystingar á Jap- ansmarkað. Frystihús, sem aðild eiga að Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, eru búin að frysta rúmlega 1.200 tonn af heilli síld og 900 tonn af flökum á Evrópumarkað, svo og 60-70 tonn af heilli síld á Japans- markað, að sögn Sveins Guð- mundssonar hjá SH. Saltað hafði verið í 60.200 tunn- ur af síld í fyrrakvöld en seldar hafa verið 72 þúsund tunnur af saltsíld til Svíþjóðar, Finnlands, Póllands, Bandaríkjanna og Kanada. Á sama tíma í fyrra var búið að salta í 118.300 tunnur, árið 1987 hafði verið saltað í 167 þúsund tunnur, 83.400 tunnur árið 1986 og241 þúsund tunnur 1985. í fyrra tókust saltsíldarsamn- ingar við Sovétmenn 1. nóvember. Fram kemur að atvinnuleysi karla hefur aukist nokkuð, en á síðustu mánuðum hafi skráð at- vinnuleysi kvenna minnkað. Um- talsverður hluti fólks hafi því horfið af vinnumarkaði án þess að skrá sig atvinnulaust. Um helmingur vinnandi manna segir að þeir merki samdrátt í starfsemi þess fyrirtæk- is eða stofnunar, sem þeir vinna hjá. Samdrátturinn virðist mestur í Reykjavík og mestur í landbún- aði, verslun, samgöngum og iðnaði á landinu öllu. Vinnutími karla í fullri vinnu hefur styst á þessu á ári um rúm- lega eina klukkustund að meðal- tali, en vinnutími kvenna virðist á hinn bóginn hafa lengst á síðustu mánuðum. Kannanir Félagsvísinda- stofnunar sýna almennt miklar sveiflur í vinnutíma og tekjum kvenna og virðast þær að nokkru Ieyti fylgja sveiflum í sjávarútvegi. Ennfremur kemur fram að nærri 3% vinnandi manna segjast óttast að missa atvinnu sína á næstu vik- um eða mánuðum, sem er nærri þrefalt stæm hópur en skráður er atvinnulaus. Ófaglært verkafólk og þeir sem starfa í iðnaði virðast ótt- ast atvinnuleysið meira en fólk í öðrum atvinnugreinum. Þeir sem starfa hjá hinu opinbera óttast síður atvinnuleysi en aðrir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.