Morgunblaðið - 20.01.1990, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANUAR 1990
3
Steftit að stofiiun Evrópubanka fyrir apríllok: r.
Island leggur fram 730 milljónir
í ábyrgðum og beinum framlögum
JÓN Sigurðsson, viðskipta- og
bankaráðherra, gerði ríkis-
stjórninni í gær grein fyrir fund-
um þeim sem hann sótti í París
fyrr í vikunni, en þeir voru
haldnir að frumkvæði Francois
Mitterrands Frakklandsforseta
og var þar fjallað um stofhun
Menntamálaráðherra:
Kvikmyndasjóð-
ur og kvik-
myndasafii
verði sameinuð
SVAVAR Gestsson menntamála-
ráðherra kynnti í ríkisstjórn í
gær frumvarg um að Kvik-
myndasjóður Islands og Kvik-
myndasafh íslands verði samein-
uð í einni stofriun, Kvikmynda-
stofnun. Svavar sagði í samtali
við Morgunblaðið að frumvarpið
yrði lagt fyrir stjórnarflokkana
í næstu viku.
„Það er gert ráð fyrir ýmsum
breytingum í þessu frumvarpi,
bæði 'á úthlutunarkerfinu sjálfu,
svo sem það að rágert er að út-
hluta tvisvar á ári úr sjóðnum, en
ekki einu sinni, eins og verið hef-
ur. Þá er gert ráð fyrir því að sjóð-
urinn geti veitt mönnum ábyrgð á
þeim lánum sem þeir verða að taka,
vegna kvikmyndaframleiðslunnar.
I þriðja lagi er gert ráð fyrir
því að fyrirtæki geti fengið skatt-
fríðindi út á það að leggja fram
fjármuni til kvikmyndagerðar,“
sagði menntamálaráðherra.
Svavar sagði að ábyrgð sú sem
sjóðurinn gæti veitt takmarkaðist
af eignum sjóðsins, en ekki af eig-
um ríkisins. Ráðgert væri að fjár-
veitingar til Kvikmyndastofnunar-
innar yrðu sambærilega við það
sem þær hafa verið til kvikmynda-
sjóðs og kvikmyndasafns.
Endurreisnar- og þróunarbanka
Evrópu. Hugmynd Frakka, að
sögn bankaráðherra, er sú að
slíkur banki greiði fyrir þeim
breytingum sem nú eiga sér stað
á hagkerfi Austur-Evrópuríkj-
anna, frá miðstýrðum áætlunar-
búskap til markaðshagkerfis.
„Ég legg jafnframt á það áherslu
að styðja þá þróun til fjölflokka
lýðræðis og virðingar fyrir rétt-
arríki og mannréttindum, sem von-
andi er þarna að verða að veru-
leika,“ sagði ráðherra í samtali við
Morgunblaðið.
Jón sagði að þetta hefði verið
sögulegt fundahald, því að þarna
hefðu setið í fyrsta sinn í áratugi
fulltrúar frá Austur-Evrópuríkjum,
öllum nema Albaníu, við sama borð
og fulltrúar hinna vestrænu iðnað-
arríkja innan OECD, til þess að
ræða efnahagsmál og sameiginlega
stofnun. Hann sagði að Frakkar
hefðu upphaflega gert tillögu um.
að stofnfé bankans yrði um 17 til
18 milljarðar dollara, en á þessum
fundi hefði komið á daginn að
víðtækt samkomulag er meðal
Evrópuríkja um að stofnframlagið
yrði um 12 milljarðar dollara, eða
um 730 milljarðar íslenskra króna.
Ráð væri gert fyrir því að inn-
borgað hlutafé yrði 20 til 30% af
þeirri upphæð.
„Hlutur Islendinga í þessu gæti
orðið um eða innan við 0,1%, sem
jafngildir um 730 milljónum króna.
Innborgaði hlutinn yrði þá um 220
milljónir króna, sem yrðu greiddar
á allmörgum árum, eða fjórum til
fimm árum. Það myndi jafngilda
því að við greiddum 40 til 50 millj-
ónir króna á ári,“ sagði bankaráð-
herra.
„Ég tel það að sjálfsögðu ljúfa
skyldu hinna tekjuháu iðnríkja að
styðja þessa þróun í Austur-Evr-
ópu. Áherslan í þessu starfi verður
fyrst og fremst lögð á að efla at-
vinnuvegi sem byggja á einkafram-
taki og markaðsbúskap,“ sagði Jón
Sigurðsson. Hann sagði það hafa
verið athyglisvert að hlýða á erindi
Austur-Evrópufulltrúanna á fund-
unum um þau miklu straumhvörf
og þær geysilegu breytingar í hugs-
unarhætti, sem þarna væri að eiga
sér stað. „Það er kannski gleggsta
dæmið um breytinguna að fulltrúi
Tékka á þessum fundi gerði það
að sinni tillögu, bæði í gamni og
alvöru, að hentugt hús fyrir höfuð-
stöðvar hins nýja banka væri safn
marxisma-lenínisma, Gottwald-
safnið í Prag,“ sagði ráðherrann.
Hann sagði að íslendingamir á
fundinum hefðu lýst stuðningi við
tillögu Dana um að höfuðstöðvarn-
ar yrðu í Kaupmannahöfn, en ljóst
væri að margar evrópskar borgir
myndu sækjast eftir þeim. Auk
ráðherra sóttu fundinn þeir Albert
Guðmundsson, sendiherra, Birgir
Árnason, aðstoðarmaður viðskipta-
ráðherra, og Már Guðmundsson,
efnahagsráðgjafi fjármálaráð-
herra.
í frétt frá viðskiptaráðuneytinu
segir að mikil áhersla sé lögð á að
flýta undirbúningsvinnu vegna
stofnunar hins nýja Evrópubanka
eins og kostur sé, þannig að undir-
ritun stofnskrár hans geti farið
fram í mars eða apríl á þessu ári.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi
sínum í gær að Islendingar skuli
áfram taka fullan þátt í þessari
undirbúningsvinnu.
Samkvæmt starfsáætlun Alþing-
is 1989-1990 er stefnt að þing-
lausnum með fyrra fallinu eða 27.
apríl nk. Þing verður því með
styttra móti; starfstíminn framund-
an aðeins um þrír mánuðir. Astæð-
an er sveitarstjórnarkosningar sem
fram fara 26. maí nk. Trúlega falla
þingfundir niður síðustu viku febrú-
armánaðar vegna Norðurlandaráðs-
fundar í Reykjavík.
Hækkun lánskjaravísi-
tölunnar desember/janúar:
Verðbólgu-
hraðinn
16,3 prósent
Byggingarvísitalan
hækkar um 3,3 pró-
sent en launavísitalan
stendur í stað
VISITALA byggingarkostnaðar
hækkaði um 3,3% frá desember
til janúar og má ætla að 2% þeirr-
ar hækkunar megi rekja til upp-
töku virðisaukaskatts um ára-
mótin. Launavísitala janúarmán-
aðar breyttist ekki og er sú sama
og í desember, 112,7 stig. Hækk-
un lánskjaravísitölunnar frá des-
ember til janúar varð því 1,26%,
en launa-, byggingar- og fram-
færsluvísitala vega hver um sig
þriðjung í grunni lánskjaravísi-
tölunnar. Áður hefur komið fram
að hækkun framfærsluvisitölunn-
ar var 0,5%.
Þessi hækkun lánskjaravísi-
tölunnar jafngildir því að verðbólg-
an hafi verið 16,3% síðastliðinn
mánuð, en umreiknað til árshækk-
unar jafngildir hækkunin síðustu
þijá mánuði 17,9% verðbólgu.
Hækkunin síðustu sex mánuði jafn-
gildir 20,4% verðbólgu á heilu ári
og hækkunin síðustu 12 mánuði er
21,1%.
Af einstökum hækkunum bygg-
ingarvísitölunnar frá desember til
janúar má nefna að verð á steypu
hækkaði um 9,7% sem olli 1,0%
hækkun vísitölunnar, innihurðir
hækkuðu um 9,3% sem hafði í för
með sér 0,3% hækkun og hönnunar-
kostnaður hækkaði um 14,2% sem
olli 0,7% hækkun vísitölunnar, en
síðastnefnda hækkunin á fyrst og
fremst rætur að rekja til upptöku
virðisaukaskattsins.
Við útreikning byggingarvísi-
tölunnar tekur Hagstofan tillit til
endurgreiðslna virðisaukaskatts af
byggingu íbúðarhúsnæðis vegna
vinnu á byggingarstað. Án þessara
endurgreíðslna hefði hækkun bygg-
ingarvísitölunnar orðið 11,8%.
Meðal mála sem tekizt verður á
um fyrstu þingvikur verða stjórnar-
frumvörp er varða nýtt umhverfis-
málaráðuneyti, skatt á orkufyrir-
tæki og hækkun á bifreiðagjaldi.
Samkvæmt starfsáætluninni
verður skýrsla umboðsmanns Al-
þingis á dagskrá 15. marz nk.
Síðasti skiladagur nýrra þingmála
er 10. apríl nk.
Skipulag Almannavama Reylga-
víkur endurskoðað á árinu
Gústaf Níelsson ráðinn verkeftiisstjóri
ÁKVEÐIÐ hefur verið að endurskoða skipulag Almannavarna
Reykjavíkur, semja við björgunarsveitir um hjálparstörf og yfír-
fara birgðir og búnað. Rúnar Bjarnason, slökkviliðsstjóri og fram-
kvæmdastjóri Almannavarna Reykjavíkur, segir að jarðhræring-
arnar í San Francisco hafi ýtt við mönnum, að búa betur um
hnútana hér. Gústaf Níelsson, skrifstofustjóri hjá Áfengis- og tó-
baksverslun ríkisins, hefur verið ráðinn til að stjórna verkefninu.
Rúnar Bjarnason segir að þar
sem hann sé sjálfur störfum hlað-
inn hafi sérstakur verkefnisstjóri
verið ráðinn til þess að þoka mál-
um Almannavarna áfram. Eftir
San Francisco-skjálftann á
síðasta ári hafi menn þurft að
horfast í augu við hættu á Suður-
landsskjálfta, skjálftamiðja í báð-
um tilvikum væri í grennd við
þéttbýli. Þetta hafi ýtt á að Al-
mannavarnir Reykjavíkur yrðu
styrktar.
Gústaf Níelsson hefur störf hjá
Almannavömum Reykjavíkur í
næstu viku og ætlað er að verk-
efnið standi út árið. Að sögn
Rúnars Bjarnasonar verður skipu-
lag Almannavarna Reykjavíkur
endurskoðað í samvinnu við Al-
mannavarnir ríkisins. Þá verður
athugað um samninga við björg-
unarsveitir um hjálparstörf og
kannað hvort unnt sé að koma
búnaði fyrir í hverfisstöðvum gat-
namálastjóra. Ennfremur þarf að
sögn Rúnars að yfirfara birgðir
og búnað Almannavarna.
Alþingi hefur störf á mánudag
Alþingi Islendinga, 112. löggjafarþing, hefur störf á ný, eftir hlé
yfír jól og áramót, næstkomandi mánudag, 22. janúar. Þá verður
fundur i sameinuði þingi. A dagskrá verða tillögur til þingsályktun-
ar, m.a. flugmálaáætlun 1990-1993. Minnzt verður látins þingmanns,
Odds heitins Olafssonar.