Morgunblaðið - 20.01.1990, Síða 7
f MORGUNBLAÐIÐ ÍAUGARDAGUR 20. JANÍJAR }1990
7
Frystitogarinn Siglfírðingur:
Fáum ekki að frysta
síldarkvótann okkar
- erum sviptir mögulegum tekjum upp á 15 til
17 milljónir, segir Ragnar Ólafsson, skipstjóri
„VIÐ erum að fá sannkallaða
demantssíld þessa dagana. Hún
virðist núna fyrst vera að ganga
inn á firðina og veiðar og Iryst-
ing hafa gengið mjög vel. Hins
vegar er það babb komið í bátinn
að við fáum ekki að vera við
þetta nema til laugardagsins. Þó
við eigum eftir töluvert af kvóta
að verðmæti 15 til 17 milljónir
eftir frystingu og síldin sé stór
og feit, fáum við ekki að halda
áfram,“ sagði Ragnar Ólafsson,
skipsljóri á frystitogaranum Sigl-
fírðingi, í samtali við Morgun-
blaðið.
Siglfirðingur hefur verið við
frystingu frá því í haust og alls
fryst um 700 tonn. Togarinn er
ekki að veiðum, en báturinn Haf-
steinn sér um þá hlið málsins. Allur
afli hans hefur verið heilfrystur um
borð í Siglfirðingi fyrir Japans-
markað og nú eru rúmlega 300
tonn eftir af kvótanum. Samkvæmt
reglugerð frá sjávarútvegsráðu-
neytinu skal þeim síldveiðum, sem
leyfðar voru eftir áramótin, lokið
þann 20. þessa mánaðar. Ragnar
segist alveg undrandi á þeirri stífni
sem þeir hafi mætt í sjávarútvegs-
ráðuneytinu.
„Það þýðir ekkert að ákveða það
með einhverri dagsetningu hvort
síldin er vinnsluhæf eða ekki. Menn
verða að fara eftir staðreyndum og
við erum að vinna 17 til 18% feita
demantssíld, eigum eftir kvóta, sem
skilar okkur tekjum upp á 15 til
17 milljónir króna og þá á að reka
okkur í land. Maður skilur bara
ekki svona vitleysu, það er verið
að svipta okkur möguleika á veru-
legum tekjum,“ sagði Ragnar Ól-
afsson.
Alltaf margar atvinnuaug-
lýsingar á þessum árstíma
MIKIÐ var auglýst eftir fólki til starfa í Morgunblaðinu síðastliðinn
sunnudag. Blaðið leitaði til þriggja manna sem starfa við atvinnum-
iðlun til að inna þá álits á þessu og töldu tveir þeirra að á þessum
árstíma væri alltaf auglýst meira eftir fólki. Einn þeirra sagðist fínna
fyrir meiri bjartsýni hjá fólki, þótt erfítt væri að fullyrða um hvort
atvinnuástand væri að batna.
Þórir Þorvarðarson ráðningar-
stjóri hjá Hagvangi sagði að seinni
hluta nóvembermánaðar og í des-
ember væri alltaf lítið auglýst eftir
fólki, jafnvel þegar þensla var mik-
il hér á landi. Hins vegar tækju
atvinnurekendur við sér í byijun
ársins og þá væri yfirleitt mikið um
atvinnuauglýsingar. Þessi fjölgun á
auglýsingum nú væri því ekki
marktæk.
Þórir sagði að ef til vill hefði það
áhrif nú að ýmis fyrirtæki úti á
landi og smærri fyrirtæki hefðu til
þessa látið vinna bókhald sitt úti í
bæ. Með virðisaukaskattinum
þyrftu þessi fyrirtæki að gera upp-
gjör mun oftar og það kallaði á
fólk til starfa við bókhald þeirra.
„Annars er ekkert sem bendir til
þess að atvinnuástand sé að batna.
Hér er engin nýsköpun svo dæmi
sé tekið og ekkert að gerast," sagði
hann.
Teitur Lárusson sagðist aftur á
móti vera bjartsýnn og honum
finnst léttara hljóð í fólki. Þó væri
ekkert áberandi meira sóst eftir
fólki í vinnu og því erfitt að full-
yrða hvort um raunverulega grósku
væri að ræða á atvinnumarkaðnum.
Fólk væri þó greinilega bjartsýnna
á framtíðina en verið hefur.
Guðni Jónsson sagði að réttast
væri að sjá hvernig næsta helgi
kæmi út áður en farið væri að
dæma um hvort ásókn eftir fólkí
til vinnu væri raunverulega að auk-
ast. Síðastliðin helgi hefði verið sú
fyrsta á árinu sem raunhæft var
að auglýsa eftir fólki. Samkvæmt
fyrri reynslu væri alltaf auglýst
meira eftir fólki í janúar en mánuð-
ina á undan.
fer í hönd
viljum við hjó SPORTLEIGUNNI kynno
hino f jölþætiu þjónustu okkar
'A' SKÍÐALEIGA: Svigskíði - gönguskíði
★ SKÍÐAVÖRUVERSLUN:
K2 amerísku toppskíðin og skíðabrettin, K2 skíðagallar.
ALPINA skíðaskór. SALOMON skíðabindingar.
RIESINGER vönduð og ódýr austurrísk barna- og unglinga-
skíði.
ELAN gönguskíði o.fl. o.fl.
★ SKÍÐAPAKKAR FRÁBÆR VERÐ
★ TÖKUM NOTAÐ UPP í NÝTT:
Við tökum nýlegan og vel með farinn skíðabúnað
upp í nýjan.
★ NOTADUR SKÍÐABÚNAÐUR:
Mikið úrval af notuðum skíðabúnaði ó hagstæðu verði.
★ SKÍDAVIÐGERDIR OG ÞJÓNUSTA:
Ásefning - vaxbræðsla - kantskerping - hólfsólun
skíðabotns - heilsólun.
SPORTLEIGAN
V/UMFERÐARMIÐSTÖÐINA SÍMAR 19800 - 13072.
[slandsbanki hefúr boðið ríkinu
Útvegsbankahúsið við Lækjar-
torg til kaups fyrir dómhús.
Kostnaður
við dómhús
talinn um
400 milljónir
ÁKVÖRÐUN um hvar framtíðar-
dómhúsi verður valinn staður
liggur enn ekki fyrir. Að sögn
Tryggva Sigurbjarnarsonar
verkefhisstjóra} er verið að
kanna hvort Útvegsbankahúsið
við Lækjartorg, sem íslands-
banki heftir boðið ríkinu til kaups
eða húsnæði ÁTVR við Borgar-
tún 7, henti sem dómhús. Kostn-
aður vegna kaupa og breytinga
á hvorum stað er talinn vera um
400 milljónir króna, samkvæmt
frumkönnun.
„Við erum að tala um hús fyrir
sameiginlegan dómstól, það er
sakadóm, borgardóm og dómstól í
ávana- og fíkniefnum auk hluta af
starfsemi borgarfógeta,“ sagði
Tryggvi. Ljóst er að bæði húsin
geta hýst dómstólinn en samkvæmt
frumkönnun þyrfti að rífa nánast
allt innan úr húsunum og innrétta
þau á ný. „Samkvæmt gróflegri
áætlun kostar Útvegsbankinn um
200 milljónir króna og annað eins
fer í að innrétta húsið. Svipuð upp-
hæð færi fyrir Borgartún 7 ef það
er reiknað til verðs og er verið að
bera saman þessa tvo kosti en svo
er þriðji kosturinn alltaf til og það
er að byggja nýtt hús, 3.000 til
3.500 fermetra að stærð fyrir sömu
upphæð,“ sagði Tryggvi.
SUBARU
Touring Wagon 4WD GL 1.8, '
með beinni innspý“-------
SUBARU
- fjárfesting sem skilar sér
i öryggi, ánœgju og endursölu.