Morgunblaðið - 20.01.1990, Page 12

Morgunblaðið - 20.01.1990, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1990 Sfld bemskulandsins „teatralskar“ eins og það heitir á norrænu fagmáli. Slíkt þyrfti þó ekki að vera galli ef leikmyndirnar hefðu byggst á fijálsum myndrænum leik, sem þó er sjaldgæft og hér er ekki til að dreifa, því að auðséð ^ er á leikmyndum Siguijóns, sem sýndar eru í formi litskyggna á tjaldi á sýningunni, að hann hefur verið trúr bundinni túlkun leikver- kanna en þó á sinn sérstaka hátt. Siguijón er þannig um margt í sporum manna eins og hins nafn- kunna Dana, Svend Johansen, sem var i senn málari og leik- myndahönnuður, en var jafnan með leikhúsið á heilanum er hann málaði málverk sín. Þannig eru staðlaðar formrænar endurtekn- ingar eins og eftir forskrift, það sem mest er áberandi á sýning- unni, en hvorki hrein formræn né myndræn glíma. Myndirnar eru nostursamlega útfærðar og minna um margt á stílfærðar ljósmyndir, en ekki veit eg þó hvort listamaðurinn hafi stuðst . við ljósmyndir, en það skiptir mun minna máli en sjálf útfærslan. Þijár myndir á sýningunni þykja mér alveg í sérflokki um myndræn vinnubrögð, og þar sem samanþjöppuð heildin skilar sér vafningalaust, sem eru „Ríkiseld- ar“ (15), „Ég ætlaði ofan“ (24) og „Peningalykt“ (37). Það er vissulega löng leið frá klippimyndum Siguijóns Jóhanns- sonar í anda pop-listarinnar frá 1965 og til þessara mynda og er líkast sem hann hafi haft enda- Stef við landið Myndlist BragiÁsgeirsson í upphafi var bernskan og þá vilja menn ólmir komast til vits og þroska, en svo er árin líða ligg- ur leiðin til bernskunnar aftur, þrá eftir birtu liðinna daga. Þessi hringrás er öllum ljós og kemur fram í myndlistinni jafnt sem öðrum listgreinum, en þó eru þeir til, er halda áfram að þrosk- ast fram í rauðan dauðann og líta aldrei til baka. En það eru undan- tekningar frá reglunni. Leikmyndasmiðurinn Sigurjón Jóhannsson, sem er frá hinum margrómaða síldarbæ Siglufirði og hafði að leik- og lífssviði hin myndrænu síldarplön þar, virðist þó ekki vera nein undantekning frá reglunni. Eftir að hann hleypti heimdrag- anum lá leið hans í myndlistar- skóla í Reykjavík og hann stund- aði lengi vel nám í fijálsri mynd- list ásamt því að vera vel virkur á því sviði um skeið, en gerðist svo nafnkenndur leikmyndahönn- uðu og starfaði sem slíkur í aldar- fjórðung. En fyrir tveim árum söðlaði hann yfir í fijálsu myndlistina aftur og tengdist síðasta verkefni hans fyrir leiksvið sfldarárunum á Siglufirði og virðist hann hafa lif- að sig algjörlega inn í það verk, því að allar athafnir hans í mál- aralistinni snúast í kringum það mikla ævintýri. Siguijón er því ekki einn af þeim sem hafa unnið í einhverri bundinni hliðargrein myndlistar- innar, en söðlar svo yfir í fijálsa myndlist og reynir um leið að gleyma öllu sem tengdist brauðst- ritinu áður. Þvert á móti virka myndir þær sem hann sýnir í Listasafni ASÍ um þessar mundir sem beint framhald af íeikmynda- hönnuninni, hafa meiri svip í for- rissum að leikmyndum en sjálf- stæðum verkum og eru þannig í hæsta máta leikhúslegar eða Það er af hinu góða er listsýn- ing kemur á óvart og býr yfir meiri 'safa og vaxtarmagni en maður átti von á. Fyrir nokkrum árum hélt Pétur Halldórsson, sem þekktari var fyrir grafíska hönnun en tilþrif með pentskúfinn, flestum að óvörum málvekasýningu. Þá einkenndust vinnubrögð hans af óhömdum tilfinninga- blossa í anda þess villtasta sem verið var að gera á þeim tíma, og ekki var þá verra að hafa kenn- ingar Einars Pálssonar sér til full- tingis og ábyggilega jafn gildur bakhjarl og'' hver önnur goða- fræði. Margur ungur málarinn má nefnilega varla setja þríhym- ing né feming á dúk, að ekki sé einhver fræðingurinn með það sama farinn að tengja gjörð hans við ástir og örlög úr fornsögum eða goðafræði og er það iðulega fjarska skondin lesning. Eitt sinn sóttu ýmsir málarar myndefni stíft til fomsagna og goðafræði og þótti ófínt, en nú era menn teknir að tengja allt mögulegt og að því er helst verð- ur séð gjörsamlega óskyldum at- riðum við hið sama og þykir mjög fínt. En það sem framformin, sem allur heimurinn byggist á, era svo fá, þá er það sjálfgefið að það sé fjarska auðvelt, að renna ein- hveijum stoðum að slíkum kenn- ingum. Síðastliðinn laugardag opnaði Pétur sýningu á 22 málverkum í kjallarasölum Norræna hússins, sem era af þeirri stærð að þau fylla auðveldlega báða salina og era allar myndirnar málaðar með olíulitum. Að þessu sinni gefur hann fornum goðum og táknum frí, en heldur sér þess meira við sjálft innihald lita og forma og áhrifamátt þeirra í hinni fjöl- þættustu úrvinnslu. Og það er eins og við manninn mælt, að þessi nýju verk hans eru mun áhrifaríkari og betur máluð • > • P skipti á tímarásinni, eins og hann sjálfur hefur gefið í skyn. Og þrátt fyrir að það geti verið fullgilt og sé ekkert eindsdæmi í myndlist- inni þá skynjar maður meiri myndræna lifun í málaðri klippi- mynd listamannsins frá 1965, sem um þessar mundir hangir uppi í Listasafni íslands, en í nokkurri myndanna á þessari sýningu. Pétur Halldórsson en á fyrri sýningunni og nokkrar myndanna myndu sóma sér vel á sýningum sjóaðra atvinnumálara. Nefni ég hér máli mínu til full- tingis myndirnar „Vegur“ (4), „Landslag" (6), „Stigi“ (9), „Hreppamörk,, (13) og „Steinn“ (16). Þetta era allar á sinn hátt vel málaðar myndir, sem listamaður- inn hefur lagt líf og sál í og hann kemst merkilega vel frá þeim sumum, miðað við það að þetta er hans önnur sýning og að hann vinnur þetta í hjáverkum frá erli- sömu brauðstritinu. Myndirnar era einhvem veginn svo ferskar og búa yfir dýpri myndrænni lifun en maður hefur áður séð í vinnubrögðum hans. Einkum vakti myndin Hreppa- mörk athygli mína fyrir það hve sterk hún er og heil þrátt fyrir flókna og fjölþætta byggingu og verður að telja hana hápunkt sýn- ingarinnar. Hinu er svo ekki að leyna að innan um finnast mun lausari myndir, þar sem listamaðurinn er eins og úti að aka og ókennileg fuglaform skjóta upp kollinum, ijúfa og raska myndbyggingu. Vera má að sýningin virki svona vel á mig vegna hinna miklu fram- fara sem ég þykist kenna í bestu myndunum, en ég hef þó engan fyrirvara á því að það leynist dijúgur málari í Pétri Halldórs- syni. 1 I f Svart regn; ágætis afþreying i það heila tekið. Regnvotar götur o g neonljós Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Svart Regrn („Black Rain“). Sýnd í Háskólabíói. Leikstjóri: Ridley Scott. Aðalhlutverk: Michael Dou- glas, Andy Garcia, Ken Takakura og Kate Capshaw. Leikstjórnareinkenni Ridleys Scotts era útum alla hans nýjustu mynd, þrillerinn Svart regn. Göt- umar era alltaf regnvotar, neonljósin blikkandi og skær, birtan dimm og drungaleg og borgarlífið iðar af of- beldi og glæpum. Svart regn er mjög frambærilegur þriller en þú fínnur ekkert nýtt í stflnum hans Scotts. Þú fínnur hins vegar svolítið nýtt og ferskt umhverfí, sem er glæpa- mannahverfí Osaka,.og nýjan og léttgeggjaðan Michaeí Douglas í að- alhlutverkinu. Hann er órökuð og illa til höfð New York-Iögga sem ásamt félága sínum, leiknum af hinum vina- lega Andy Garcia, er sendur til Jap- ans með innfæddan sadista og ma- fíósa. Sá sleppur úr höndum þeirra á flugvellinum í Osaka og þeir reyna að hafa uppá honum aftur með núll skilning á því hvemig hlutimir ganga fyrir sig í Japan. Douglas er skemmtílega krampað- ur í hlutverkinu, ekki óspilltur sjálfur í leit að öðravísi lögguímynd og gef- ur myndinni heilmikla innspýtingu, óróa og ósvífínn kraft. Myndin er tekin í Osaka en varla þeirri sem túristar kynnast. Sögu- sviðið er ofbeldisfullt næturlíf stór- borgarinnar með stríðandi fylkingar japönsku mafíunnar í bakgranni, leikurinn berst inná lögreglustöðvar, bóndabýli og það er að finna a.m.k. eina ómissandi skotbardagasenu í verksmiðju. Scott virðist miða að því að gera umhverfið allt mjög fram- andlegt og dulúðugt. Hann stefnir á leyndardóma lítt þekkts menningar- svæðis og tekst að blanda þeim skemmtilega inní þrillerinn og undir- strikar það með góðri, áhrifaríkri' tónlist. Spennan er mjög góð lengst af, hasarínn hraður og harður. Aukaper- sónumar era allar mjög góðar með Garcia í fararbroddi ogjapönsku týp- urnar, sérstaklega sadistinn, halda manni við efnið. Hnökrar eins og langsótt ástæða yfirkrimmans til að hefna sín á Bandaríkjunum vilja týn- ast í regnvota stílnum en Scott end- ar myndina fullmikið og að ástæðu- lausu eins og Tinnabækumar enduðu hér eiiju sinni. Yfir það heila tekið þó er Svart regn ágætis afþreying. Stundum súper. Haltur styður blindan Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Stjörnubíó: Skollaleikur — See No Evil — Hear No Evil Leikstjóri Arthur Hiller. Aðal- leikendur Richard Pryor, Gene Wilder, Joan Severance. Bandarísk. Columbia 1989. Þeir Wilder og Pryor leiddu saman hesta sína fyrir áratug eða svo, (Stir Crazy), með slíkum ágætis árangri að furðulegt má teljast að einstakir gamnanleik- hæfileikar þeirra hafa ekki verið tvinnaðir saman aftur fyrr en nú. Undirstaða skopsins í Skollaleik er heldur óvenjulegt, því það bygg- ist á blindu Pryors og heyrnar- leysi Wilders! Grín að fötlun manna er heldur gráleitt gaman, en engum ætti að þykja við þá meðferð sem það fær hér í ærsla- leik þeirra félaga. Boðskapurinn, ef einhver er í þessum brokkgenga farsa, er öllu heldur sá að mönnum ■ er f lest mögulegt ef viljinn er fyr- ir hendi. Þeir kumpánarnir kynnast er Pryor ræður sig til starfa hjá blaðasalanum Wilder. Sú sam- vinna verður heldur endaslepp þar sem þeir lenda óðara í höndum lögreglunnar, granaðir um morð. Tekst að sleppa og hafa uppá ód- ámunum í lokin. Þetta makalausa grínleikarapar nýtur sín langsamlega best þegar skopið er lágstemmt og meira reynir á þroskaðan látbragðsleik- inn en útþvældan groddahúmor sem er full fyrirferðarmikill einsog oft áður i gamanmyndum félag- anna. Efnið býður uppá aragrúa skoplegra aðstæðna sem einum sex handritshöfundum nýtast illa. En Wilder og Pryor, sem tvímæla- laust eru í fremstu röð spaugar- anna vestra, una sér best undir ómögulegum kringumstæðum, strokka smjör úr undanrennunni og gera Skollaleik að afþreyingu sem ætti að létta skapið hjá jafn- vel hinum örgustu fýlupokum! Og ekki kæmi mér á óvart þó eggj- andi fótleggir Severance eigi eftir að koma við sögu í draumum fag-. urkera á munaðarlegri beinabygg- ingu ... KLUÐURSLEGT KVENNASTÚSS -- r Bíóhöllin Vogun vinnur — Worth Winning Leikstjóri Will MacKenzie. Aðal- leikendur Mark Harmon, Madel- eine Stowe, Lesley Ann Warren, Maria Halvöe. Bandarísk. 20th Century Fox 1989. Æjæja, enn einn hraðsoðinn samtíningurinn ofan í kvikmynda-| hungraðan æskulýðinn. Oruggai' smágróðagildrur sem gerðar eru á mettíma, fyrir slikk — á Hollywood- vísu — . frumsýndar samtímis í hundruðum kvikmyndahúsa þar sem þær ganga í svosem tvær til þrjár vikur og deyja síðan drottni sínum og gleymast að eilífu. Svo metnaður af einhveiju tæi kemur hvergi við sögu. Vogun vinnur er hvorki betri né verri en obbinn af þessum samsetn- ingi. Harmon leikur alræmdan pilsaveiðara sem veðjar við vini sína að hann geti lagt og fengið gifting- artilboð frá hvaða þrem konum sem þeir velja. Astin kemur til sögunnar og ekki þarf að spyija að leikslok- um. Heldur ámátlegt, alltsaman. Harmon, sem er^ reyndar ekki jafnlélegur leikari og virðist hér, reynir að ná sjarma gömlu kvenna- gullanna sem voru í tísku fyrr á öldinni. En þrátt fyrir netta fegurð barnsrassins vantar mikið uppá að piltur sé nokkur Gable eða Grant og svo sem þokkalegasta hugmynd sofnar útaf í vandræðagang og aulafyndni. Stúlkurnar í aðalhlut- verkunum reyna að gera það sem þær geta úr heldur niðurlægjandi rullum um Evudætur og stormar af þeim kynþokkinn. Fyrir þá sem kaupa Playboy vegna miðopnunnar og unglinga í vandræðum með að slátra tímanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.