Morgunblaðið - 20.01.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBIAÐIK EMJÖARDAGUK 29ir|ANUAR )}Q90
íslenzkir unglingar sýna erlendis
________Frímerki______________
Jón Aðalsteinn Jónsson
Frímerkjasýningar erlendis hefur
oft borið á góma í þessum þáttum
og þá venjulegast í sambandi við
þátttöku íslenzkra frímerkjasafnara
í þeim. Að vonum er þessi þátttaka
að jafnaði bundin við fullorðna safn-
ara, sem hafa fengið verulega
reynslu í söfnun frímerkja. Þess
vegna er það vissulega ánægjuefni,
þegar hægt er að segja frá þátttöku
ungra safnara í erlendum sýning-
um. Að sjálfsögðu má ekki búast
við mjög miklu frá þeirra hálfu í
fyrstu tilraunum, en „upphafið er
til alls fyrst“, eins og máltækið
segir. Á liðnu hausti gerðist einmitt
það, að fjórir ungir félagar í Félagi
frímerkjasafnara sendu söfn sín á
erlendar sýningar. Ekki er það svo
sem í fyrsta skiptið, því að áður
höfðu tveir ungir safnarar tekið
þátt í sænsku unglingasýningunni
FRIMUNG 88 í Stokkhólmi árið
1988.
Dagana 6.-8. okt. sl. héldu Norð-
menn landssýningu fyrir unga
frímerkjasafnara í bænum Skien.
Nefndist sýningþessi SCHEEN ’89,
en þetta nafn mun vera eldri rithátt-
ur á bænum. Norska unglingasam-
bandið NFU bauð unglingum frá
öðrum Norðurlöndum að taka þátt
í sýningunni. Hingað til lands barst
einnig boð, enda erum við orðnir
þátttakendur í samnorrænu ungl-
ingasambandi. Þessir unglingar
sýndu á SCHEEN ’89: Jón Einar
Jónsson átti þar safn, sem nefnist
Fuglar um víða veröld. Fyrir það
hlaut hann silfrað brons. Haraldur
Guðnason sýndi safn sitt, sem hann
nefnir Flugvélar. Það fékk brons-
verðlaun. Magnús Helgason sýndi
safn, sem hann kallar Franskar
nýlendur, og hlaut bronsverðlaun
fýrir. Viggó Orn Jónsson sýndi safn,
sem nefnist Yfirprentanir á merkj-
um frá þýzkum stjórnarsvæðum,
og hlaut það einnig bronsverðlaun.
Þeir Magnús og Viggó Örn höfðu
einmitt sýnt áður í Svíþjóð á árinu
1988.
Dagana 13.-15. október sl. var
svo haldin Norræn frímerkjasýning
fyrir unglinga í Huskvarna í
Svíþjóð, NORDJUNEX 89. Þar var
þeim Jóni Einari, Haraldi og Viggó
Emi boðið að sýna söfn sín utan
dóma, enda vantaði eitt ár hjá þeim,
til þess að þeir gætu samkv. reglum
sýnt á slíkri sýningu. Allt um það
voru söfn þeirra dæmd, og fengu
þeir umsögn dómenda. Þessir ungu
safnarar eru allir fæddir á árunum
1975 og 1976. Má örugglega vænta
mikils af þeim innan samtaka ís-
lenzkra frímerkjasafnara, ef þeir
leggja áfram rækt við söfnun sína.
Vil ég hér nota tækifærið, þó að
seint sé, og óska þeim til hamingju
með þennan árangur.
DALSÝN 90
Pósthólf 29
620 Dalvík
Frímerkjasýning á Dalvík
í apríl nk.
Dagana 20.-22. apríl 1990 heldur
frímerkj aklúbþurinn Akka á Dalvík
og í nágrenni frímerkjasýningu í
íþróttahúsi Dalvíkur. Hefur hún
hlotið nafnið DALSÝN 90. Verður
stærð sýningarinnar um 150 ramm-
ar í þremur deildum: kynningar-
deild, samkeppnisdeild og svo deild
fyrir nálaflokk. Samkv. þeim upp-
lýsingum, sem ég hef fengið, verður
einkum lögð áherzla á mótífsöfn,
átthagasöfn og nútímasöfn frá
Norðurlöndum. Auk þess mun verða
þar alls konar sýningarefni af Eyja-
fjarðarsvæði og ekki nærri allt, sem
tengist beinlínis frímerkjum. Þá er
gert ráð fyrir að sýna almennt
íslenzkt frímerkjaefni, þar sem
fram kemur fjölbreytt póstnotkun
hér á landi.
Sýningamefnd hefur boðið Þjóð-
skjalasafni og Þjóðminjasafni að
taka þátt í DALSÝN 90 með eitt-
hvað af því ágæta efni, sem þessi
söfn eiga og sýnir vel yfirlit yfir
frímerkja- og póstsögu frá upphafi.
Þetta efni hefur vissulega sézt áður
á sýningum, en að sjálfsögðu er
fengur í því fýrir norðlenzka safn-
ara að geta nú virt það fyrir sér
heima í héraði, ef svo má segja.
Þá skilst mér, að jafnvel sé von á
„góðum söfnum innlendra eigenda,
sem áður eru ósýnd“, eins og það
er orðað í tilkynningu, sem ég hef
undir höndum. Þá mun vera leitað
eftir völdu sýningarefni frá öðrum
Norðurlöndum. Að sjálfsögðu verða
ágæt verðlaun í boði fyrir þá, sem
taka þátt í samkeppnisdeild. Eins
verður gefinn út sérstakur minnis-
peningur til ágóða fýrir sýninguna,
enda kostar ekki svo lítið að koma
frímerkjasýningu á fót.
Loks er þess að geta, að Lands-
samband íslenzkra frímerkjasafn-
ara heldur landsþing sitt á Dalvík
í tengslum við DALSÝN 90. Frá
þessu verður greint betur síðar,
þegar þættinum berast nánari upp-
lýsingar um þessa viðburði í íslenzk-
um frímerkjaheimi, sem fram eiga
að fara á Dalvík í apríl nk.
Hvert er fallegasta
íslenzka frímerkið 1989?
Á árinu 1989 gaf Póst- og síma-
málastjórnin út fjórtán frímerki og
að auki eina örk á Degi frímerkis-
ins með þremur frímerkjum. Þannig
komu út alls seytján frímerki, sem
nota má til burðargjalds. Eins og
um nokkur liðin ár efnir póststjórn-
in til könnunar meðal frímerkja-
safnara og annarra viðskiptamanna
sinna um það, hvert frímerki menn
telji fallegast frá liðnu ári. Eiga
menn að merkja við það frímerki,
sem þeir álíta fallegast, en jafn-
framt við tvö önnur merki, sem
þeim finnst koma þar næst á eftir.
I þessu vali telst örkin sem eitt
merki. Um leið og menn taka þátt
í þessari skoðanakönnun um falleg-
asta frímerki ársins, er til nokkurs
að vinna sem fyrr. Dregin verða
út 25 nöfn þátttakenda og hljóta
þeir verðlaun fyrir. Eru þau árs-
áskrift 1990 að íslenzkum frímerkj-
um, þ.e. eitt fyrstadagsumslag og
óstimpluð fjórblokk. Eyðublöð undir
' þessa „atkvæðagreiðslu” munu
vera fáanleg á pósthúsum landsins,
þótt þess sé ekki getið sérstaklega
í tilkynningu póststjórnarinnar.
Skilafrestur í könnun þessari er til
15. febrúar 1990.
VERÐBRÉFASJÓÐIR ÞEIR SEM VÍB REKUR STÆKKUÐU
MIKIÐ Á ÁRINU 1989. UM ÁRAMÓTIN VAR SAMANLÖGÐ
STÆRÐ ÞEIRRA RÚMIR 2,3 MILLJARÐAR.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
9. janúar Avöxtun 1. janúar umfram
Sölugengi veröbólgu siöustu: ftb) 3 mán. Omén. 12 mán.
Fjárfestingarfélag íslands hf. Kjarabréf 4,520 6.0 7.5 8.5
Markbréf 2.401 8,4 8.6 9.4
Tekjubréf 1.885 7.3 7.7 8,6
Skyndibréf 1,364 6.0 6,2 7,1
Gengisbréf 2.022 — — —•
Kaupþing hf. Einingabróf 1 4,553 8,1 8,2. 9.5
Einingabréf 2 2.506 6,0 6.5 6,6
Einíngabréf 3 2.994 9.4 9,9 10,7
Lífeyrisbréf 2,289 8.1 8.2 9,5
Skammtímabréf 1.556 6.0 6.5 7,5
Verðbréfam. islandsbanka Sjóðsbréfd 1 2,200 9.3 9.2 9.7
Sfóðsbréf 2 1,679 9,6 9.7 10,3
Sjóðsbréf 3 1,643 7.7 7.8 8,3
Sióðsbréf 4 1,297 9,1 9.5 —
Vaxtarsjóðsbréf 1,5520 9.0 9,2 9,9
Avöxtun verðbréfasjóða,
Morgunblaðið 9. janúar 1990
C. 24%
B. 15
D. 38%
JÚ10%
E. 6%
Sjóður 1
Sjóður 3
Valbréf
I. ll
Sjóður 2
Sjóður 4
Vaxtarbréf
D. 12%
A. Ríki, B. Sveitarfélög, C. Bankar og Sparisjóðir, D. Traust Fyrirtæki, E. Veðskuldabréf fyrirtækja og aðrar ábyrgðir,
F. Veðskuldabréf, G. Hlutabréf, H. Bankar ogBæjarsjóðir, I. Skuldabréf með Sjálfskuldarábyrgð
Sjóður 1 var 705 milljóniríupphaji
pessa árs. Hann ereinkum œtlaóur
peim sem vilja Jjárfesta í öruggum
verbbréfum til lengri tíma.
Sjóður 2 var 110 milljóniríupphafi
pessa árs. Hann er œtladur peim
sem vilja hafa reglulegar tekjur af
sparifé sínu.
Sjóður 3 var 734 milljóniríupphafi
pessa árs. Hann er einkum ællaöur
peim sem vilja geyma fésitt í stuttan
tíma, 2-10 mánuhi.
Sjóður 4 eryngsti sjóöurinn. Hann
var 95 milljónir í upphaji pessa árs.
Hann ereinkum œllaburpeim sem
vilja spara til lengri tíma og njóta
góörar ávöxtunar af hlutabréfum.
Vaxtarbréf og Valbréf: VIB sér um rekstur Vaxtarsjóðsins hfog Valsjóösins hf.
Eigendur Vaxtarbréfa og Valbréfa geta pví framvegis keypt og selt sín bréf í
afgreidslu VIB ad Armúla 7 par sem peir hitta m.a. jyrir fyrrum starfsmenn
Verdbréfamarkads Utvegsbankans. Helsta einkenni Vaxtarbréfanna erað pau má
innleysa án kostnaðar 2 og 3 dag hvers mánabar. Valbréf má hins vegar innleysa
fyrstu fimm daga hvers mánadarán innlausnargjalds. Þannig blandast i bádum
tilfellum kostir langtíma ogskammlíma verdbréfasjóda. Vaxtarsjódurinn var 604
milijónir nú um áramótin, en Valsjódurinn 85 milljónir. Fjárfestingarstefna
sjóbanna verbur ab mestu óbreytt áfram.
Velkomin í VIB
Nú um áramótin sameinuðust
verðbréfamarkaðir Iðnaðarbankans,
Alþýðubankans og Utvegsbankans og
urðu Verðbréfamarkaður Islands-
banka.
Verðbréfamarkaður íslandsbanka tók
þá við umsjón verðbréfasjóða verð-
bréfamarkaðanna þriggja og innlausn
hlutdeildarbréfaþeirra. Jafnframttók
VIB að sér alla þjónustu á öðrum
sviðum sem verðbréfamarkaðirnir þrír
höfðu áður boðið.
Verðbréfasjóðir þeir sem VIB rekur
stækkuðumikiðáárinu 1989.Umára-
mótin var samanlögð stærð þeirra um
2,3 milljarðar. Áfram verðuríylgtsömu
fjárfestingarstefnu og áður, þ.e. að
fjárfesta í öruggum verðbréfum ríkis,
sveitarfélaga, banka og fyrirtækja.
Við hjá VIB bjóðum alla fyrri
viðskiptavini VAL, VUB og VIB sem og
nýja viðskiptavini velkomna til okkar í
Armúla 7.
Við leggjum áherslu á örugg verðbréf,
góða ávöxtun og vandaða þjónustu.
Verið velkomin í VIB.
VlB
VERÐBREFAMARKAÐUR ISLANDSBANKA HF
Ármúla 7, 108 Reykjavik. Sími 68 15 30