Morgunblaðið - 20.01.1990, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGÁRDAGUR 20. JANÚAR 1990
Litið til baka
Fyrri grein
eftir Stefán
Valgeirsson
Um áramót velta menn því
gjarnan fyrir sér hvaða lærdóm •
sé hægt að draga af vegferðinni
um liðið ár. Við þurfum að líta til
baka til að gera okkur grein fyrir
hvað hafi áunnist, hvað hefði
mátt betur fara og síðast en ekki
síst hver hafi verið alvarlegustu
mistökin sem urðu á árinu sem
var að líða.
Hvað varðar framkvæmd efna-
hagsmála tel ég að best hafi til
tekist um viðreisn útflutningsat-
vinnugreina fyrir atbeina Atvinnu-
tryggingarsjóðs og Hlutafjársjóðs.
Með auknu hlutafé og skuldbreyt-
ingum hafa mörg útf lutningsfyrir-
tæki orðið rekstrarhæf á ný. Pjár-
magnskostnaður af þeirri fjárhæð
sem skuldbreytt hefur verið mun
hafa lækkað a.m.k. um helming
fyrir utan innheimtu og lögfræði-
kostnað.
Þessi aðgerð leiddi til að at-
vinnuástand var mun skárra á
landinu en ýmsir höfðu gert ráð
fyrir. En þrátt fyrir það var fólks-
flótti af landsbyggðinni uggvæn-
legur. Hvernig væri ástandið ef
öllum þessum útflutningsfyrir-
tækjum hefði verið lokað um lengri
tíma eins og gerðist t.d. á Patreks-
firði? Það er nauðsynlegt að gera
sér grein fyrir þessu, fyrst og
fremst vegna þess að forystusveit
Sjálfstæðisflokksins lagðist mjög
hart gegn því að Atvinnutrygging-
arsjóður útflutningsgreina og
síðar Hlutafjársjóður yrðu stofn-
aðir til að koma í veg fyrir að fjöl-
mörgum útflutningsfyrirtækjum
yrði lokað. Þeirra leið var gjald-
þrotaleiðin. Atvinnutryggingar-
sjóður var kallaður ýmsum niðr-
andi nöfnum t.d. skussasjóður, en
nú eru þessi nöfn ekki nefnd og
nú viðurkenna flestir, þ. á m. sjálf-
stæðismenn, að umrædd aðgerð
hafi bjargað framleiðslufyrirtækj-
um á fjölmörgum stöðum í landinu
og þar með komið í veg fyrir at-
vinnuleysi.
Hitt er annað mál að ekki er
enn búið að afgreiða nokkur fyrir-
tæki sem eru undirstaða atvinnu-
lífsins í viðkomandi byggðum.
Sumir ráðamenn segja að lausn
þeirra mála sé ekki í sjónmáli.
Staða flestra þessara fyrirtækja
er ekkert eða lítið lakari en sumra
þeirra sem fyrirgreiðslu hafa feng-
ið. Það liggur einnig fyrir að dýr-
asta leiðin, ef tekið er tillit til af-
leiðinganna, er að gera þau gjald-
þrota. Þess vegna verður að krefj-
ast þess að hvert einasta fyrirtæki
verði skoðað og allir þættir máls-
ins metnir og það rökstutt án und-
anbragða ef gjaldþrotaleiðin verð-
ur valin. Það kann að vera að í
einstökum tilfellum sé ekki hægt
að komast hjá gjaldþrotum án
þess að breyta lögum en þá þarf
að athuga það.
Á þessu ári hafa samt sem áður
gengið yfir þjóðina fjöldagjaldþrot
með skelfilegum afleiðingum. Fyr-
irtæki og einstaklingar standa
uppi eignalausir, fjölskyldur
tvístrast og ekki eru horfur á að
þessum hörmungum linni. Margar
ástæður eru fyrir þessum gjald-
þrotum. Erfitt er að gera áætlanir
í verðbólguþjóðfélagi. Af verð-
bólgunni leiðir breytjleg greiðslu-
geta t.d. vegna minni launatekna
í mörgum tilvikum, en aðalástæð-
an er áhrifin af lánskjaravísi-
tölunni og vaxtaokrinu.
Að vísu verður að leita lengra
aftur í tímann en til ársins 1989
til að rifja upp mistökin sem gerð
voru, en það var þegar vextir voru
gefnir frjálsir. Slík ákvörðun var
byggð á reynslu annarra þjóða,
sem búa við allt aðra atvinnuupp-
byggingu og hagkerfi en við og
miklu meiri stöðugleika. Vaxta-
frelsið var eins og á stóð erlend
eftiröpun og gerð án þess að menn
gerðu sér ljóst hvernig yrði að
halda á málum ef nokkur von átti
að vera á því að slík aðgerð setti
ekki allt úr böndunum. Frumskil-
yrði fyrir vaxtafrelsi var að ríkis-
sjóður væri rekinn hallalaus og
þyrfti ekki á lánsfjármagni að
halda.
Þeir fjármálasnillingar sem ráð-
ið hafa ferðinni, þ.e.a.s. í Seðla-
banka, ríkisstjórn og fjármála-
ráðuneyti, fóru öfugt að. Ríkis-
sjóður var rekinn með halla ár
eftir ár, einnig á góðu árunum og
hallinn fjármagnaður að nokkru
leyti með erlendum lántökum og
einnig með sölu ríkisskuldabréfa
og ríkisvíxla. Af þessu leiddi að
skortur var á innlendu lánsfjár-
magni og það orsakaði hækkun
vaxta. Þó kastaði fyrst tólfunum
eftir að ríkisstjórn Þorsteins Páls-
sonar var mynduð 1987. Á fyrstu
mánuðum þeirrar ríkisstjómar
bauð ríkissjóður hærri og hærri
vexti til þess að ríkisvíxlarnir seld-
ust. Vextirnir meira en tvöföld-
uðust á fyrstu fimm mánuðum
hennar. Áðrir vextir hækkuðu
hlutfallslega á sama tíma að sjálf-
sögðu. Þetta ráðslag ríkisstjórnar
Þorsteins Pálssonar er fyrst og
fremst orsök þeirrar eignaupp-
töku, þeirrar gjaldþrotahrinu og
þess harmleiks sem hefur gengið
yfir þjóðfélagið jafnt fyrirtæki sem
einstaklinga og því miður sér ekki
enn fyrir endann á.
Þegar ríkisstjóm Steingríms
Hermannssonar var mynduð í
september 1988 var eitt af aðal-
áhersluatriðum í stefnu hennar að
ná raunvöxtum niður í a.m.k. 6%
og síðar var stefnt að því að ná
þeim niður í 5%. Hvernig standa
þau mál nú þegar árið 1990 geng-
ur í garð? Lægstu raunvextir í
bönkunum eru 6,50%, hygg ég að
þessi vaxtakjör gildi aðeins um
ríkistryggð lán. Almennir útláns-
vextir eru lægstir hjá ríkisbönkun-
um 7.5%, hjá einkabönkunum frá
7.5% upp í 8.25%, en þeir sem
þurfa að láta skuldbreyta hjá sér
verða að bera allt að 3% hærri
vexti en að framan greinir og eru
þeir þá allt að 9% að ógleymdum
dráttarvöxtum fyrir þá sem í því
lenda. Þetta eru kjörin sem þau
fyrirtæki og einstaklingar verða
að búa við sem em komnir með
sín fjármál í ógöngur. Rangar
ákvarðanir síðustu ríkisstjóma
hafa orsakað það hvernig komið
er fyrir þessum aðilum.
Ég hef hvað eftir annað rætt
þessi mál á Alþingi og átalið að
Seðlabankinn skuli gefa lánastofn-
unum heimild til þess að neyða
þá sem em í erfiðleikum til að
borga 2% vexti ofan á kjörvexti.
Það er meira gert í orði en á borði
af þessari ríkisstjórn sem öðram
fyrrverandi ríkisstjórnum, loforðin
reyndust létt á vigt, það er því
ekki rétt að meðaltalsraunvextir
Grundarfirði.
LIONSMENN og kvenfélagskon-
ur í Grundarfirði afhentu heilsu-
gæslustöðinni hérna nýtt og
mjög fullkomið lækningatæki
fyrir skömmu.
Tækið, sem er handhægt og auð-
■ KARLAKÓRINN Stefnir er
50 ára um þessar mundir. Af því
tilefni verður opið hús í Hlégarði
í Mosfellsbæ sunnudaginn 21. jan-
úar kl. 15—18. Þar verður boðið
upp á kaffiveitingar og Stefnir og
Sigrún Hjálmtýsdóttir, óperu-
söngkona munu syngja nokkur lög.
Allir em velkomnir, einkum styrkt-
arfélagar kórsins og gamlir söngfé-
lagar. Söngstjóri Stefnis er Lárus
Sveinsson og Guðrún Guðmunds-
dóttir er undirleikari.
■ ÓLAFUR Egilsson sendi-
herra, afhenti A.I. Lukjanov vara-
forseta Sovétríkjanna, trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra Islands í Sov-
étríkjunum hinn 17. janúar sl.
séu 7% eins og hefur verið haldið
fram. Ég hygg að þeir séu yfir
8% og þeir sem eru í mestum erfið-
leikum eru látnir bera enn hærri
vexti. Það er ef til vill í fullu sam-
ræmi við þá siðblindu sem virðist
ráða ferðinni hjá þeim sem vilja
frelsi fjármagnsins.
Ég vil einnig átelja söluna á
Útvegsbankanum. Söluverðið á
honum var langt undir eðlilegu
verði. Ég mun taka þá sölu til
umfjöllunar þegar endanlegar töl-
ur liggja fyrir og þegar séð verður
hvemig íslandsbanki stendur sig
í samkeppninni við ríkisbankana.
Mér kæmi það mjög á óvart ef
útlánsvextir reyndust verða lægri
þar en þeir verða í ríkisbönkunum.
Bankamálaráðherra hefur afsakað
söluverðið á Útvegsbankanum
með því að verið væri að stuðla
að samrana fjögurra banka sem
myndi leiða það af sér að vextir
lækkuðu. Við sjáum nú hvað ger-
ist í þeim málum. Reynslan sker
úr því.
velt í flutningi, hefur tvö hiutverk.
Það má nota til að fylgjast með
hjartslætti hjá hjartasjúklingi og
einnig er það notað við endurlífgun
hjartasjúklinga. Heildarverð tækis-
ins er um 665 þúsund krónur og
söfnuðu Lionsmenn fyrir stærstum
hluta kaupverðsins með sölu á
rækju, skelfiski og reyktum laxi í
Kolaportinu nú fyrir jól en til þess-
arar söfnunar rann einnig ágóði af
ljósaperusölu fyrr í haust og sölu
jóladagatala. Kvenfélagið gaf krón-
ur 100 þúsund.
Það var Árni Halldórsson, for-
maður Lionsklúbbs Grundarfjarðar,
sem afhenti dr. Hallgrími Magnús-
syni nýráðnum lækni heilsugæslu-
stöðvarinnar tækið og sagði Hall-
grímur þá meðal annars að hið
nýja tæki gæti skipt sköpum fyrir
hjartasjúklinga ekki síst þegar veð-
urharka getur komið í veg fyrir að
hægt sé að flytja fólk strax á
spítala.
NÚ ERUM VIÐ FLUTTIR
Á LAUGAVEGINN
— Ný og betrí hústtkynni —
— Aukin og bætt þjónusto —
— Atdrei meirn úrvol bílu —
LAUGAVEGUR ~ =3 C
mnfíifí nuifí
LAUGAVEGI 174 — SÍMI 695 660 - 695500
- Ragnheiður
Höfundur er alþingismaður.
Morgunblaðið/Ragnheiður Gunnarsdóttir
Starfsfólk heilsugæslustöðvarinnar ásamt Árna Halldórssyni frá Li-
ons og Auði Jónasdóttur frá kvenfélaginu. Frá vinstri Anna Dóra
Tryggvadóttir, Þóra Guðjónsdóttir, Hildur Sæmundsdóttir, Hallgrím-
ur Magnússon, Árni Halldórsson og Auður Jónasdóttir.
Grundarfjörður:
Heilsugæslan á Grund-
arfírði fær tækjagjöf