Morgunblaðið - 20.01.1990, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 20.01.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1990 17 Erum við á réttri leið? eftir Hríi fn Pálsson Áhugi á meðferð ávana- og fíkni- efnaneytenda hefur aukist hin síðari ár. Nægir þar að nefna stofnanir eins og geðdeildir sjúkrahúsa og SÁÁ, sem hafa viðað að sér þekk- ingu og reynslu í áranna rás, svo og áhugamannafélög eins og Rauða kross Islands, Vímulausa æsku, Krössinn, Samhjálp og Krýsuvíkur- samtökin, sem eiga mislangan feril að baki og byggja á orku áhuga- mennskunnar. Árið 1989 voru mál ungra ávana- og fíkniefnaneytenda mjög til um- ræðu hjá stjórnvöldum enda sam- þykkti ríkisstjómin að koma á fót meðferðarheimili fyrir unga ávana- og fíkniefnaneytendur á aldrinum 12 til 17 ára og var Unglingaheim- ili ríkisins í samráði við samstarfs- nefnd ráðuneyta í ávana- og fíkni- efnamálum falið að hefja nauðsyn- legan undirbúning á grundvelli til- lagna hennar. Fjármálaráðuneytinu var jafn- framt falið að útvega húsnæði und- ir meðferðarheimilið og hóf sam- starfsnefnd þegar leit að heppileg- um húsakosti og lét vandiega meta þær húseignir, sem álitlegastar voru taldar. Tillögur nefndarinnar um vænlegustu húsakaupin í þessu sambandi voru síðan lögð fyrir fjár- málaráðuneytið til ákvörðunar og sér nú fyrir endann á húsnæðismál- um meðferðarheimilisins. Þar sem hér er um að ræða afar sérhæft og vandasamt verkefni leit- aði samstarfsnefndin innan lands sem utan eftir verðugri fyrirmynd, sem gera mætti ábyrga tilraun með á grundvelli þrautreyndra aðferða, yfirgripsmikillar þekkingar og víðtækrar reynslu. Stjórnvöld kynntu fyrirætlanir sínar og óskuðu eftir samstarfi við innlendar stofnanir og áhuga- mannasamtök og tóku flestir þeim vel. Að vandlega athuguðu máli varð Riverside Medical Center í Minnesota í Bandaríkjunum fyrir valinu og dr. Harvey Milkman gerð- ur að umsjónarmanni verkefnisins vestan hafs, en Einar Gylfi Jónsson forstöðumaður Unglingaheimilis ríkisins, umsjónarmaður þess hér, enda meðferðarheimilinu ætlaður Hrafh Pálsson „Við komum til með að byggja meðferðina fyr- ir unga ávana- og fíkni- efíianeytendur á með- ferðarlíkani, sem er með þeim viðurkennd- ustu í heiminum í dag.“ staður á vegum þeirrar stofnunar. Til að nálgast meðferðarlíkanið var ákveðið að senda starfsmenn fyrst í þjálfun og síðan að fá kenn- ara þeirra til að fylgjast með starf- seminni, uns tilrauninni væri lokið og árangurinn ljós. Ákveðið er, að tilraun þessi standi yfir næstu þrjú árin. Að þeim tíma liðnum verðui meðferð þessa hóps vonandi komir í þann farveg, að allir megi vel við una. Oft hefur skipan mála verið met þeim hætti hér á landi, að menr hafa fundið hús, skipað sjálfa si£ til starfa og síðan leitað eftir skjól stæðingum. Samstarfsnefnd ráðu- neyta í ávana- og fíkniefnamálurr valdi þá leið að hugsa fyrst urr væntanlega skjólstæðinga, og vai ríkisstjórnin nefnd sinni sammála. Áhugavert verður að fylgjast mei framvindu þessa verkefnis, því þa< meðferðarlíkan sem nú er hafir vinna við er um margt aðferðaleg:, frábrugðið þeim, sem við höfum kynnt okkur hingað til. Fyrst er það, að tími sá sem aðalmeðferðin tekur er mun styttri en áætlað var, síðan eru þau úrræði sem þá taka við mun fjölbreyttari og á færi fleiri aðila en áður var álitið heppilegt. Sé staldrað við og íhugað, hvernig þessu er farið, þá er ljóst, að korn- ungir fíklar eru í mótun eins og annað ungt fólk og þurfa því hnit- miðaða hjálp við að taka stefnu í samræmi við getu þeirra og hæfi- leika. Þá tekur sjálf afeitrunin og nauðsynleg greining mun skemmri tíma en áður var álitið. Auðvitað byggist svo allur árangurinn á því, að starfsliðið sé vel þjálfað og þjált í störfum sínum. Loks ber að geta þess, að kostn- aðurinn við þessa meðferð er minni en önnur hugsanleg úrræði, sem til álita komu. Það er heldur ekki ver- ið að reisa neitt bákn eða stofnun, sem líklegt er að ekki verði ráðið við er fram líða stundir. Hér er um tilraun að ræða, sem byggist á nokk- uð óstaðfestri þörf, því ekki er vit- að, hve stór hún er í raun og veru. Við komum til með að byggja meðferðina fyrir unga ávana- og fíkniefnaneytendur á meðferðarlík- ani, sem er með þeim viðurkennd- ustu í heiminum í dag. Við hljótum því að vera á réttri leið. Höfundur er formaður samstarfsnefndar ráðuneyta í ávana- og fíkniefnamálum. SOLARKAFFI ÍSFIRÐINGA- FÉLAGSINS ísfirðingafélagið í Reykjavík gengst fyrir sínu árlega SÓLARKAFFI föstudags- kvöldið 26. janúar nk., í Súlnasal, HÓTEL SÖGU. Hófið hefst kl. 20.30 með rjúkandi heitu kaffi og rjómapönnukökum. Vönduð dagskrá. AÐGANGSEYRIR kr. 1.200.- Forsala aðgöngumiða verður í anddyri Súlnasalar laugardaginn 20. janúar, kl. 15-17, og sunnudaginn 21. janúar, kl. 16-17. Borð verða tekin frá á sama stað og tíma. Miðapantanir auk þess í síma 83436 alla virka daga. STJÓRNIN snmniKw AKUITUR Þegar við segjum: „útsala!“ þá meinum við það.. Mættu á staðinn og sjáðu úrvalið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.